Morgunblaðið - 21.06.2010, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.06.2010, Blaðsíða 17
Minningar 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2010 Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, NJÖRÐUR TRYGGVASON, byggingarverkfræðingur, lést á Landspítalanum Fossvogi föstudaginn 18. júní. Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 24. júní kl 14:00. Kristrún Jónsdóttir, Jón Tryggvi Njarðarson, Elisabeth Eigenberg, Hróðný Njarðardóttir, Snorri Gunnarsson. Ástkær bróðir mágur og fósturfaðir, FLOSI ÓSKARSSON, vélfræðingur, Þverholti 9, Mosfellsbæ, er látinn. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 24. júní kl. 13. Gylfi Óskarsson, Sigríður Konráðsdóttir, Ósk Óskarsdóttir, Björt Óskarsdóttir, Guðmundur R. Jónsson, Ásta Ísafold, Þórólfur Grímsson, Jón Þór Þórarinsson. Elsku drengurinn okkar, bróðir og barnabarn, KARL CESAR SALÓMONSSON, Hafnargötu 5, Vogum, Vatnsleysuströnd, lést aðfaranótt 17. júní sl. Útför hans verður gerð frá Grafarvogskirkju föstudaginn 25. júní kl. 13. Salómon Viðar Reynisson, Þóra Lind Karlsdóttir, Svavar Örn Eysteinsson, Steinunn Björnsdóttir, Gylfi Snær Salómonsson, Reynir Viðar Salómonsson, Kristín Valgeirsdóttir, Birna Björg Salómonsdóttir, Karl Cesar Sigmundsson, Reynir Ásgrímsson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN SIGRÍÐUR JÓHANNESDÓTTIR BLÖNDAL, lést á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð, Garðabæ föstudaginn 18. júní. Jóhannes Blöndal, Maj Britt Pálsdóttir, Jósep Blöndal, Hedvig Krane, Gunnar Blöndal, Margrét Magnúsdóttir, Guðmundur Blöndal, Guðrún Blöndal, Theodór Sigurðsson, Lárus L. Blöndal, Soffía Ófeigsdóttir, Anna Bryndís Blöndal, Jón Ásgeir Blöndal, Lárus St. Blöndal Jónasson, Íris Dröfn Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ólafur KristinnÞórðarson fæddist í Haga á Barðaströnd 21. ágúst 1918. Hann lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Seljahlíð 14. júní síð- astliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Þórður Ólafs- son bóndi á Innri-Múla Barðaströnd, f. 24. ágúst 1887, d. 10. apríl 1984, og Steinunn Björg Júlíusardóttir, f. 20. mars 1895, d. 13. febrúar 1984. Systkini Ólafs voru: Björg, f. 1916 (látin), Jóhanna, f. 1920, Júlíus, f. 1921 (látinn), Björgvin, f. 1922 (látinn), Karl, f. 1923 (látinn), Kristján, f. 1925, Steinþór, f. 1926 (látinn), Sveinn, f. 1927. Ólafur kvæntist 5. ágúst 1944 Helgu Vigfúsdóttur, f. 3. október 1923, d. 8. nóvember 2009, frá Hrís- nesi á Barðaströnd. Foreldrar henn- ar voru hjónin Vigfús V. Erlendsson bóndi, f. 5. apríl 1888, d. 18. maí 1940, og Guðbjörg Guðmundsdóttir, f. 31. júlí 1892, d. 23. júní 1974. Þau eignuðust þrjú börn: Þau eru 1) Kolbrún, f. 25. október 1944, gift Jónínu S. Jónasdóttur, f. 1. sept- ember 1957. Synir þeirra: Ólafur Kristinn, f. 1. mars 1979. Kjartan Valur, f. 20. apríl 1982, maki Hildur Ýr Viðarsdóttir og eiga þau einn son. Hjalti Jón, f. 4. mars 1992. Ólafur ólst upp á Innri-Múla á Barðaströnd. Hann stundaði nám við Héraðsskólann í Reykjanesi við Ísa- fjarðardjúp og varð búfræðingur frá Hólum í Hjaltadal 1942. Bústörf og farkennslu stundaði hann á Barða- strönd á árunum 1943-6 og 1954- 1960 og bjó þá í Hrísnesi. Einnig var hann um tíma bústjóri á Hóli Bíldu- dal, skólastjóri í Tálknafirði og kennari á Patreksfirði. Flutti með fjölskyldu sinni til Reykjavíkur 1961. Eftir það kenndi hann í Ytri- Njarðvík, Vogaskóla og síðast í Álfta- mýrarskóla til starfsloka, í um 23 ár. Lengst af kenndi hann unglingum og þá mest íslensku enda hafði hann mikinn áhuga á íslenskum fræðum. Árið 1965 tók hann kennarapróf frá Kennaraskóla Íslands og árið 1977-78 stundaði hann framhaldsnám við Kennaraháskóla Íslands í íslensku, sögu og uppeldisfræði. Ólafur var hagmæltur og gaf út eina ljóðabók „Leitað í sandinn“. Ólafur og Helga bjuggu lengi á Háaleitisbraut 44, síð- an í Maríubakka 2 og síðustu árin í Seljahlíð, Hjallaseli 55. Útför Ólafs fer fram frá Fella- og Hólakirkju í dag, 21. júní, kl. 13. Herði Eiðssyni, f. 8. maí 1944. Börn Kol- brúnar: Kári Breið- fjörð Ágústsson, f. 24. júní 1965, d. 2006, eft- irlifandi þrjár dætur. Berglind Brynjólfs- dóttir, f. 12. febrúar 1967, maki Guð- mundur Jónsson og eiga þau tvö börn. Sölvi Breiðfjörð Harð- arson, f. 14. febrúar 1970, maki Anna Sig- ríður Grímsdóttir og eiga þau tvö börn. Ólafur Helgi Harðarson, f. 15. nóv- ember 1980. Stjúpdóttir Steinunn Harðardóttir, f. 18. desember 1974. 2) Skarphéðinn Ólafsson, f. 10. októ- ber 1946, kvæntur Sigríði M. Skarp- héðinsdóttur, f. 5. maí 1948. Barn: Elín Kristín Skarphéðinsdóttir, f. 7. maí 1968, og á hún þrjár dætur. Móðir Elínar: Sigrún Bernótusdótt- ir, d. 1980. Stjúpsonur: Skarphéðinn Rúnar Grétarsson, f. 14. febrúar 1966, d. 2005, lætur eftir sig tvær dætur og Konráð Ara. Fóstursonur: Konráð Ari Skarphéðinsson, f. 26. desember 1985. 3) Þórður Gísli Ólafsson, f. 8. júlí 1952, kvæntur Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Elsku pabbi minn. Nú ert þú farinn og ég sakna þín svo mikið. En ég veit að nú líður þér betur og að þú varst sáttur við að fara en það verður skrítið að heimsækja þig ekki lengur í Seljahlíðina. Þú saknaðir mömmu mikið og nú eruð þið saman á ný. Mér er efst í huga þakklæti og virð- ing til þín fyrir allt sem þú varst mér. Þú varst ekki bara pabbi minn heldur varstu líka kennarinn minn all- an minn grunnskóla sem þá var til 14 ára aldurs í sveitinni. Á svona stundu rifjast upp æskuárin þegar börn eru svo mikið með foreldr- unum. Ég minnist þeirra ára með gleði. Man fyrst eftir mér í Tálknafirði. Man þegar ég uppgötvaði jóla- sveininn á jólaballi, því að hann var með græna trefilinn þinn, þessi dæmalaust góði og skemmtilegi jóla- sveinn. Þið mamma voruð góðir for- eldrar og gáfuð okkur gott veganesti. Ég man að það var gott að vera barn með ykkur. Við gerðum svo mik- ið saman. Í Tálknafirði var verið að veiða niðri á bryggju, fara í berjaferðir, fjöruferðir og stúkufundi. Þú fórst með okkur í leiki í frímínútum í skól- anum. Það var alltaf nóg við að vera. Svo fluttum við í Hrísnes og þar eignuð- umst við fullt af dýrum sem við sinnt- um saman og heyskapnum á sumrin og á vetrum var spilað á spil og hlust- að á útvarpsleikritin og sagðar sögur og mikið lesið. Þú sagðir okkur sögur frá uppvexti þínum og skólaárum í Reykjanesi og á Hólum en þaðan útskrifaðist þú bú- fræðingur. Þá var amma mín stolt af þér. Þú varst mikill listamaður og fjöl- hæfur, ortir vísur og ljóð og gafst út ljóðabókina „Leitað í sandinn“. Þú skrifaðir sögur og leikrit og leikstýrð- ir og lékst líka sjálfur. Þú varst mikil félagsvera og varst alls staðar kosinn í stjórnir og nefndir enda maður sem kom vel fyrir sig orði. Þegar við flutt- um til Reykjavíkur 1961 þá fórst þú að kenna í Njarðvík og Vogaskóla. Síðan fórstu í Kennaraskólann að ná þér í réttindi og þaðan lá leiðin í Álftamýrarskóla, þar sem þú kenndir út þinn starfsaldur og síðan á bóka- safni skólans til 70 ára aldurs. Þú varðst fyrsti formaður Kórs aldraðra í Gerðubergi og söngst með þeim kór í mörg ár ásamt mömmu. Einnig voruð þið virk í eldri borgara starfi þar. Þú varst mikið fyri sund og fórst nær daglega í mörg ár í Breiðholts- laugina og varst þar í félagsskap „Pottorma“. Svo tók ellin við og þið mamma fluttuð í Seljahlíðina 2007, þið áttuð góða daga þar framan af og það var vel að ykkur hlúð þar. En nú er komið að kveðjustund, elsku pabbi minn. Minninguna um þig geymi ég í hjarta mínu. Innileg kveðja frá Herði, ykkur þótti vænt hvorum um annan. Guð veri með þér. Þín dóttir, Kolbrún. Elsku afi minn, nú ertu kominn í faðm ömmu þar sem þú vildir helst af öllu vera. Það er sárt að sakna þín þó að tími þinn hafi verið kominn og þú hafir farið sáttur. Þú varst ákaflega ljúfur og hjarta- hlýr maður og gott að koma til þín. Þegar ég var lítil fékk ég alltaf blað og blýant til að teikna hjá afa. Þú varst mjög listrænn og mikill fagurkeri. Samdir yndisleg ljóð og málaðir fal- legar myndir og varst óspar á að hrósa fallegum konum. Þú samdir svo fallegt ljóð til ömmu þegar þið voruð í tilhugalífinu að það hefði sennilega engin kona staðist svona rómantískan mann, en amma var heppin að vera sú sem varð fyrir valinu. Þú varst bæði búfræðingur og kennari og mikill ís- lenskumaður. Þú lagðir mikið upp úr því að fólk talaði íslenskuna rétt. Þú lagðir mikla áherslu á menntun og varst mjög stoltur af mér að ég skyldi velja menntaveginn. Þú varst mjög góður ræðumaður og hélst ofsalega fallegar ræður í útskriftarveislum mínum. Þá var ég ákaflega stolt af afa mínum, fannst hann bestur, klárastur og fallegastur. Við kveðjum þig elsku afi minn, þú munt ávallt vera í minningu okkar og hjarta. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleym- ist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynn- ast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Berglind, Guðmundur, Snæfríð- ur Sól og Sölvi Snær. Ólafur Kr. Þórðarson  Fleiri minningargreinar um Ólaf Kr. Þórðarson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, AUÐBJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Illugastöðum, Vatnsnesi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki heilbrigðis- stofnunar Vesturlands Hvammstanga fyrir einstaka alúð og umönnun. Jónína Ögn Jóhannesdóttir, Birgir Jónsson, Guðmundur Jóhannesson, Bjarney G. Valdimarsdóttir, Árni Jóhannesson, Anna Olsen, Jónína Auðbjörg Sigurbjörnsdóttir, Jóhann Ingi Haraldsson, Jóhannes Óskar Sigurbjörnsson, Þorbjörg Ásbjarnardóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.