Morgunblaðið - 21.06.2010, Blaðsíða 23
Menning 23FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2010
Nú stendur yfir í Þingvalla-
kirkju tónleikaröðin „Þriðju-
dagskvöld í Þingvallakirkju“.
Aðrir tónleikarnir í röðinni
verða haldnir annað kvöld kl.
20.00, en þá leika Helga Þór-
arinsdóttir víóluleikari og Krist-
inn H. Árnason gítarleikari verk
eftir m.a. Vivaldi og Bartók og
lög eftir Atla Heimi og Sigvalda
Kaldalóns. Kristinn mun einnig
leika einleiksverk fyrir gítar frá
16. öld. Tónleikaröðin, sem stendur til 6. júlí, er
samvinnuverkefni Þingvallakirkju og Minning-
arsjóðs Guðbjargar Einarsdóttur frá Kárastöðum.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis en tekið við
framlögum í minningarsjóðinn við kirkjudyr.
Tónlist
Helga og Kristinn í
Þingvallakirkju
Kristinn H.
Árnason
Nú stendur yfir sýning á verk-
um Hörpu Jónsdóttur í Edin-
borgarhúsinu á Ísafirði. Á sýn-
ingunni, sem Harpa hefur valið
nafnið Foldarskart, eru ýmis
verk Hörpu unnin á árunum
2008-2010. Í kynningu kemur
fram að verkin eru flest inn-
blásin af íslenskri náttúru; við-
kvæmur smágróður, fjöru-
steinar og birtan við hafið
endurspeglast í hlutum sem
eru fínlegir og grófgerðir í senn. Verkin eru öll úr
íslenskri ull og útsaumuð ýmist með bómull eða
hörþræði. Harpa var bæjarlistamaður Ísafjarðar-
bæjar árið 2002. Harpa hefur fengist við hann-
yrðir og textílvinnu frá barnæsku.
Myndlist
Harpa sýnir í
Edinborgarhúsinu
Harpa
Jónsdóttir
Minjasafn Austurlands og
Menningarmiðstöð Fljótsdals-
héraðs stendur fyrir verkefni
til minningar um ljóðskáldið
Hákon Aðalsteinsson frá Vað-
brekku í Hrafnkelsdal. Verk-
efnið hefur yfirskriftina Ljóða-
bærinn Egilsstaðir og felst
neðal annars í því að mörg af
ljóðum Hákonar eru birt á hús-
veggjum á Egilsstöðum og yfir
í Fellabæ. Einnig munu ljóðin
birtast á húsum á Hallormsstað, Skjöldólfsstöðum
á Jökuldal, Vaðbrekku í Hrafnkelsdal, Möðrudal
og Snæfellsskála við rætur Snæfells, en það eru
staðir sem voru Hákoni kærir. Hákon fæddist að
Vaðbrekku í Hrafnkelsdal 1935 og lést í mars sl.
Ljóðlist
Minnast Hákonar
Aðalsteinssonar
Hákon
Aðalsteinsson
Metfé var greitt fyrir handskrifað
textablað Johns Lennon á uppboði
Sotheby’s í New York á dögunum.
Á blaðinu er texti Bítlalagins „A
Day In The Life,“ sem Lennon
skrifaði í samvinnu við Paul
McCartney og greiddi ónefndur að-
ili 1,2 milljónir dollara fyrir blaðið
sem áður var í eigu Mals Evans sem
vann lengi með hljómsveitinni. Var
því slegið met fyrir textablað frá
Bítlunum. En fyrra metið var 1
milljón dollara fyrir texta lagins
„All You Need Is Love.“
Á báðar hliðar blaðsins eru skrif-
aðar nótur lagsins auk ýmisa leið-
réttinga sem Lennon og McCartney
gerðu á laginu þegar þeir voru að
semja það og texti Lennons sem tal-
ið er að hann hafi bætt við seinna
meir.
Lagið er lokalag metsöluplöt-
unnar Sgt. Pepper’s Lonely Hearts
Club Band frá árinu 1967 og setti
tónlistartímaritið Rolling Stone
lagið á lista yfir 500 bestu lög allra
tíma. Breska ríkisútvarpið BBC
bannaði spilun lagsins árið 1967, en
BBC taldi að textabúturinn „I’d like
to turn you on,“ væri vísun í eitur-
lyfjanotkun.
Textinn Handskrifaður texti lagsins
A Day In The Life.
Metfé
greitt fyrir
Bítlatexta
BBC bannaði spil-
un lagins árið 1967
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Mæðgurnar Valdís G. Gregory og
Guðríður St. Sigurðardóttir halda
tónleika í Selinu á Stokkalæk næst-
komandi miðvikudag kl. 20. Valdís
mun syngja og Guðríður leika undir á
píanó, en á efnisskránni eru sönglög
eftir Johannes Brahms, Richard
Strauss, Henri Duparc, Reynaldo
Hahn, Landon Ronald, Jón Ásgeirs-
son og Jón Þórarinsson. Þá flytja þær
einnig aríur eftir Mark Adamo, Wolf-
gang Amadeus Mozart, Vincenzo
Bellini, Giuseppe Verdi og Charles
Gounod.
Valdís G. Gregory lauk miðstigi í
klassískum söng vorið 2004 og sótti
síðan einkatíma. Hún stundaði um
skeið söngleikjanám við The Hartt
School, tónlistardeildina í University
of Hartford í Connecticut, en skipti
svo yfir í tónlistarkennslu með
áherslu á söng við sama skóla og út-
skrifast brátt með Bachelor of
Music-gráðu. Guðríður útskrifaðist
með einleikarapróf frá Tónlistarskól-
anum í Reykjavík 1978 og stundaði
framhaldsnám við háskólann í Mic-
higan í Ann Arbor. Hún lauk þaðan
meistaraprófi í píanóleik 1980 og
hlaut fyrstu verðlaun í píanókeppni á
vegum Ann Arbor Society of Musical
Arts sama ár. Að sögn Guríðar verða
þetta fyrstu tónleikar þeirra mæðgna
saman þó þær hafi eðlilega oft flutt
saman einhver lög. „Þetta eru fyrstu
heildartónleikarnir okkar, en við höf-
um flutt saman lög í afmælum og við
ýmis tækifæri. Svo héldum við líka
stutta boðstónleika í fyrrasumar fyrir
vini og vandamenn,“ segir Guðríður
og bætir við að þær hafi eðlilega æft
heilmikið saman í gegnum árin og ef-
laust hafi Valdísi þótt gott að geta
skotist inn í stofu til að prófa eitthvað
með undirleikara á heimilinu.
„Við finnum það vel núna, þegar
við erum með heilt prógramm, hvað
við erum orðnar vel samspilaðar; við
lesum hvor aðra mjög vel músíkalskt.
Það er náttúrlega erfiitt að hætta að
vera móðir og barn og verða píanó-
leikari og söngkona, en það kemur
með auknum þroska, við höfum báðar
þurft að læra á þetta og skilja að
sumt er best ósagt. Ég er líka píanisti
og vil skipta mér sem minnst af
söngnum, ég get ekki sagt henni til í
honum.“
Guðríður segist vona að þær eigi
eftir að spila mun meira saman þegar
frá líður, en það sé eðlilega snúið að
koma því á þar sem Valdís er enn í
námi ytra og svo er hún sjálf önnum
kafin við ýmis verkefni. „Það er því
skemmtilegt að hafa boðist að halda
tónleika hjá þeim eistöku heiðurs-
hjónum Ingu Ástu og Pétri Hafstein,
enda er aðstaðan hjá þeim frábær.“
Morgunblaðið/Eggert
Mæðgurnar Guðríður St Sigurðardóttir og Valdís G. Gregory .
Mæðgur halda
söngtónleika í Sel-
inu á Stokkalæk
Efniskráin
Flutt verða sönglög eftir
Johannes Brahms, Richard
Strauss, Henri Duparc,
Reynaldo Hahn, Landon
Ronald, Jón Ásgeirsson, Jón
Þórarinsson og aríur eftir Mark
Adamo, Wolfgang Amadeus
Mozart, Vincenzo Bellini,
Giuseppe Verdi og Charles
Gounod.
Guðríður segist vona að hún og Vig-
dís eigi eftir að spila mun meira saman
Undanfarið hefur stofnun á vegum
Evrópusambandsins, Literature
Across Frontiers (LAF), styrkt
samskipti og þýðingar evrópskra
skálda og rithöfunda og er koma
þriggja slóvenskra skálda til lands-
ins nú ávöxtur þessarar samvinnu.
Slóvenarnir lesa ljóð sín og þriggja
íslenskra skálda á slóvensku en Ís-
lendingarnir lesa eigin ljóð og þýð-
ingar á ljóðum slóvensku skáldanna.
Slóvensku gestirnir eru þau
Brane Mozetic, Suzana Tratnik og
Marjana Moskric, en þau íslensku
eru Böðvar Björnsson, Sigurður
Pálsson og Þórunn Valdimarsdóttir.
Mozetic er fæddur árið 1958 í
Slóveníu. Hann er höfundur tólf
ljóðabóka og þriggja skáldverka.
Auk þess hefur hann þýtt meira en
20 bækur. Tratnik fæddist árið 1963
í Murska Sobota í Slóveníu. Hún er
menntuð í félagsfræði og mann-
fræði, býr og starfar í Ljubljana við
skriftir, þýðingar og útgáfu. Suzana
hefur gefið út fimm smásagnasöfn,
tvær skáldsögur, barnabók, leikrit
og tvær bækur aðrar. Hún hlaut
verðlaun Prešeren’s-sjóðsins fyrir
besta slóvenska skáldverkið árið
2007. Bækur hennar hafa verið
þýddar á meira en fimmtán tungu-
mál. Moškric fæddist 1958. Hún
lærði bókmenntir og slóvensku og
hefur unnið á bókasafni í Ljubljana
þar sem hún starfar með börnum.
Hún gaf út sína fyrstu bók árið 1998,
Bréfaskáldsöguna, sem var tilnefnd
sem besta nýja skáldsaga ársins.
Næstkomandi fimmtudag kl.
21.00 lesa þau upp í félagsmiðstöð
Samtakanna ’78 á Laugavegi 3. Á
föstudag lesa þau upp í Þjóðmenn-
ingarhúsinu við Hverfisgötu klukk-
an 15.00.
Þrjú slóvensk skáld
heimsækja Ísland í vikunni
Lesa ljóð sín og þriggja íslenskra skálda á slóvensku
Ĺjóðskáldin Suzana Tratnik, Brane Mozetic og Marjana Moskric.
Smári Gunnarsson og Sandra Gísladótt-
ir, sem bæði stunda nám við Rose Bru-
ford-leiklistarskólann í Lundúnum,
voru valin í tíu manna hóp skólans sem
er núna að endurvinna eina af sýningum
þriðja ársins og fara með hana fyrir
hönd skólans á leiklistarhátíð í Brat-
islava í Slóvakíu.
Sýning hópsins nefnist Oedipage og
er unnin eftir aðferðafræði pólska lista-
mannsins Tadeusz Kantors með tilliti til
grísku goðsögunnar um Ödipus. Sama
sýning verður svo sett upp í ágúst á
Fringe-hátíðinni í Edinborg.
Hátíðin í Bratislava, Istropolitana
Projekt, hefur verið haldin annað hvert
ár frá árinu 1977 og þar verða að þessu
sinni sýningar skóla frá Kína, Banda-
ríkjunum, Indónesíu, Rússlandi, Frakk-
landi, Austurríki og fleiri stöðum, en
eina sýningin frá Bretlandseyjum verð-
ur sú sem Smári og Sandra taka þátt í.
Alls eru 18 sýningar frá 17 löndum. Í
dómnefnd hátíðarinnar eru meðal ann-
arra Mark Ravenhill, höfundur Shopp-
ing and Fucking, og leikstjórinn kunni
Baz Luhrmann.
Boðið á leiklistar-
hátíð í Bratislava
Baz Luhrmann situr í dómnefndinni
Paul Simon , Leonard
Cohen ásamt og fleiri
voru heiðraðir í New York á
dögunum 25
»