Morgunblaðið - 21.06.2010, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.06.2010, Blaðsíða 22
22 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2010 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand GETTU HVAÐ ÉG GRILLAÐI VEGNA ÞESS AÐ ÉG MAN ÞAÐ EKKI ÞESS VEGNA FANN GUÐ UPP TÓMATSÓSUNA ÞÚ YRÐIR HRÆÐILEGUR BÓNDI HÚN SAGÐI ÞAÐ... EKKI ÉG! ÞÚ HEFUR EKKI EINU SINNI SÉÐ KÚ! EINA DÝRIÐ SEM ÞÚ HEFUR SÉÐ ER SNOOPY! OG HANN ER VARLA GÓÐUR ÞVERSKURÐUR AF DÝRARÍKINU HRÓLFUR, KOMDU AFTUR! ÞÚ GLEYMDIR AÐ SKRIFA Í GESTABÓKINA OKKAR! ENGLENDINGAR HALDA FAST Í HEFÐIRNAR HVERNIG ÆTLI KALLI BJARNA MYNDI LÍTA ÚT EF HANN HEFÐI ELST EINS OG VENJULEGT FÓLK? LÁTUM OKKUR SJÁ... HANN ER 58 ÁRA GAMALL ÞANNIG AÐ HANN VÆRI ÖRUGGLEGA MEÐ SKEGG... HANN ÞÉNAR 3.5 MILLJARÐA Á ÁRI, ÞANNIG AÐ HANN MYNDI ÖRUGGLEGA GANGA Í MJÖG FÍNUM FÖTUM ÞÁ NÚ MAMMA SAGÐI MÉR AÐ PABBI ÆTLAÐI AÐ VINNA Í VERSLUNAR- MIÐSTÖÐINNI YFIR HÁTÍÐIRNAR Í ALVÖRU? HVERNIG ÆTLI HANN SÉ Í ÞJÓNUSTU- STARFI? HANN ER KLÁR KARL. HANN VERÐUR FLJÓTUR AÐ LÆRA Á ÞETTA HEYRÐU, STRÁKSI... HVER ER YFIRMAÐUR HÉRNA? ÉG! EF HANN ER EKKI KOMINN FYRIR KLUKKAN EITT ÞÁ FER ÉG HÚN ER EKKI Í VINNUNNI HVAR GÆTI HÚN VERIÐ? Á MEÐAN MARÍA LOPEZ FÆRIST NÆR DAUÐANUM... LEITAR KÓNGULÓARMAÐURINN AÐ HENNI Á SKRIFSTOFUNNI HENNAR Landspítalinn til fyrirmyndar Ég brotnaði illa fyrir nokkru og þurfti að liggja á Landspít- alanum í Fossvogi, nán- ar tiltekið á bæklunar- deildinni, í sex daga. Öll aðhlynning starfsfólks var til fyrirmyndar svo og sérfræðinga spít- alans. Á stundum fannst mér starfsfólkið vinna miklu meira en það í raun átti að gera. Ég tel að við eigum heilbrigðisstarfsfólk á heimsmælikvarða og það í öllum þessum niðurskurði. Ég vona að stjórnvöld sjái sér fært að halda spítölunum okkar í þessum gæðaflokki og skera ekki meira niður við svo frábært fagfólk sem þar er. Harpa Karlsdóttir. Nýr borgarstjóri Nú er Jón Gnarr orðinn borgarstjóri og með ýmis markmið. Ýmis þeirra eru nú bara grín, en hann ætlar víst að hugsa um róna Reykjavíkur. Þeir hafa víst ekki nógu mikið af húsnæði, þótt ég haldi að þeir hafi það. Hvað með ketti Reykjavíkur? Það þekkja margir þá tilfinningu sem maður fær þegar maður sér kött ráfandi aleinan um borgina. Maður hugs- ar: Á þessi köttur heim- ili? Margir þeirra eiga það ekki. Nú stendur yfir söfnun fyrir Katt- holt, húsnæði fyrir heimilislausa ketti. Ég skora á nýjan borg- arstjóra að hjálpa Katt- holti. Ég held að það muni rætast vel úr honum sem borgarstjóra. Þó finnst mér að hann ætti kannski að setja einhver markmið fyrir hina mikilvægu ungu Reykjavík og kett- ina. Jóhannes Hrafn Guðmundsson, 12 ára kattareigandi. Ást er… … að óska sér. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Opið frá kl. 9. Skráning í Jónsmessuferð 23. júní stendur yfir. Árskógar 4 | Handavinna, smíði/ útskurður kl. 9-16.30, félagsvist kl. 13.30, myndlist kl. 16. Dalbraut 18-20 | Brids kl. 14. Dalbraut 27 | Handavinna kl. 8-16. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postu- línshópur kl. 9, ganga kl. 10, handavinna kl. 13, félagsvist kl. 20.30. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Opið kl. 9.30-16. gönguhópur kl. 11. Félagsstarf Gerðubergi | Opið kl. 9- 16.30, m.a. handavinna. Farið í heimsókn í Dalasýslu kl. 10. Á morgun kl. 10.30 er stafganga. Uppl. á staðnum og í síma 575-7720. Háteigskirkja | Félagsvist kl. 13 í Setr- inu, kaffi. Hraunbær 105 | Skráning stendur yfir í Jónsmessukaffi 23. júní, farið til Kefla- víkur. Uppl. á staðnum og s. 411-2730. Hraunsel | Rabb kl. 9, ganga kl. 10, tré- skurður og glerbræðsla kl. 13, vist og tækjasalur í Hress Ásvallalaug kl. 13.30, Kristinn Magnússon sjúkraþj. stjórnar. Hvassaleiti 56-58 | Opið kl. 8-16 í sum- ar. Matur og kaffi. Hæðargarður 31 | Örsýning Listasmiðju t.d. útskurður, postulínsmálun og búta- saumssýning auk samsýningar Lista- smiðju, Frístundaheimilisins Sólbúa og Skapandi skrifa. Listasmiðjan er opin í júnímánuði. Hæðargarður 31 | Við hringborðið kl. 8.50, Stefánsganga kl. 9, félagsvist kl. 13.30. Sími 411-2790. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Við hring- borðið, spjallhópur kvenna kl. 10.30, handverks- og bókastofa kl. 11.30, botsía kl. 13.30, veitingar, söngstund kl. 15. Norðurbrún 1 | Sumarferð 23. júní kl. 13-18, fararstj. er Anna Þrúður. Skráning í síma 411-2760. Vígþór Hrafn Jörundsson hafðisamband við umsjónarmann vegna vísu sem var rangfeðruð í Vísnahorninu á miðvikudag, en hún hafði verið sótt í Vísnasafn Héraðs- skjalasafns Skagfirðinga. Hann segir vísuna eftir Jörund Gestsson föður sinn og rétta svona: Einmana ég uppi stend. Eðlishvatir bála. Ó, að ég hefði átt hann Gvend eins og kom til mála. Vísan var ort um konu í sveitinni, sem hafði hafnað bónorði. Jör- undur var mikill sjálfstæðismaður og orti eftir að hringt hafði verið í hann með landsfundarboð: Pólitík með kjaftaklið kallar oss til funda; undan henni ölum við alltof marga hunda. Og svo orti hann eftir kosningar um svipað leyti: Þjóðin velur þingliðið þar á hún nokkra uxa, sem miða allt við málæðið en minna við að hugsa. Vígþór Hrafn er einnig hag- mæltur og orti í fjölmiðlafárinu fyr- ir nýafstaðnar sveitarstjórnarkosn- ingar, eins og hann orðar það sjálfur, „þegar margir æptu Gnarr Gnarr Gnarr og þótti fyndið. Mann- fólkið er öðru hvoru að æpa og ekki er svo ýkja langt síðan að æpt var Barrabas“: Í lífsins garra gálaust narr Guði fjarri í orðum æpt var Gnarr og aftur Gnarr eins og á Barra forðum. Vísnahorn pebl@mbl.is Af feðgum og pólitík Að skrifa minningagrein Ekkert gjald er tekið fyrir birtingu minningagreina. Þær eru einnig birtar á www.mbl.is/minningar. Skilafrestur minningagreina er á hádegi tveimur virkum dögum fyrir útfarardag, en á föstudegi vegna greina til birtingar á mánudag og þriðjudag. Fjöldi greina í blaðinu á útfarardag ræðst af stærð blaðsins hverju sinni en leitast er við að birta allar greinar svo fljótt sem auðið er. Hámarkslengd minningagreina er 3.000 tölvuslög með bilum. Lengri greinar eru vistaðar á vefnum, þar sem þær eru öllum opnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.