Morgunblaðið - 21.06.2010, Síða 18

Morgunblaðið - 21.06.2010, Síða 18
18 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2010 ✝ Halley Svein-bjarnardóttir fæddist í Reykjavík 15. mars 1932. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 11. júní síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Kristín Sigrún Eiríksdóttir, f. 21. ágúst 1895, d. 2. febrúar 1944, og Sveinbjörn Ögmunds- son, f. 21. ágúst 1900, d. 26. nóvember 1974. Systir Halleyjar var Jóhanna Sveinbjörnsdóttir, f. 26. mars 1925, hún er látin. Halley giftist 15. mars 1952 Kristjáni Guðmundssyni slökkvi- liðsmanni, f. 2. júlí 1927. Börn þeirra eru: 1) Kristín, f. 1952, hún er gift Ívari Guðmundssyni, f. 1952. Synir þeirra eru Ívar Kristján, f. 1980, og Aron, f. 1986; 2) Guð- mundur, f. 1955, kvæntur Sonju B. Jónsdóttur, f. 1952. Sonur þeirra er Birkir Kristján, f. 1991; 3) Sveinbjörn, f. 1957, kvæntur Krist- ínu Leifsdóttur, f. 1966. Sonur hans er Þórbergur, f. 1985. Synir Sveinbjörns og Kristínar eru Kristján Júlían, f. 2000, og Jó- hann Haukur, f. 2004; 4) Björgvin, f. 1964, dóttir hans er Júlía, f. 1987. Halley ólst upp á Fálkagötunni í Reykjavík og síðar á Barónsstíg. Hún vann lengst af við afgreiðslu- og skrifstofustörf ásamt húsmóðurstörfum og var síðast móttökuritari á Heilsugæslustöð- inni í Fossvogi. Halley og Kristján bjuggu lengst af í Hólmgarði en fluttu í Eiðismýri á Seltjarnarnesi fyrir þrettán árum. Útför Halleyjar fer fram frá Bú- staðakirkju í dag, 21. júní, og hefst hún kl. 13. Halley Sveinbjarnardóttir er lát- in. Ég kveð tengdamóður mína með miklum söknuði. Hún var falleg kona, gáfuð og sterkur persónuleiki. Hún kynntist mér fyrst sem síð- hærðum, skeggjuðum, hippalegum strák, en tók mig strax í sátt. Ég uppgötvaði það snemma að allt hennar líf gekk út á ást og um- hyggju fyrir börnum sínum, tengda- börnum og barnabörnum. Halley missti móður sína snemma á lífsleiðinni og var komið fóstur hjá vinafólki. Það var hennar lán að Svava og Ásti, hennar fósturforeldr- ar voru yndislegt fólk, og ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst því sómafólki. Halley var, þrátt fyrir sínar gáfur og persónutöfra, fremur hæglát og hógvær kona. Hún og eiginmaður hennar, Kristján Guðmundsson, brunavörð- ur, voru mjög samrýnd. Ástin var gagnkvæm og augljós. Þessi ást náði einnig til barna þeirra og barnabarna. Halley sinnti ýmsum skrifstofu- og verslunarstörfum á ævi sinni. Þrátt fyrir að þurfa að ala upp fjög- ur börn, sem hún gerði með sóma, þá þurfti hún að nýta sína krafta þar sem þeirra var þörf. Þegar ég kynntist henni fyrst þá vann hún í kjörverslun í nágrenni heimilis þeirra hjóna. Seinna fór hún að vinna á skrifstofu Kjötvers hf. Þegar ég rak endurskoðunar- stofu, kom hún mér til hjálpar þeg- ar vantaði bókara. Þrátt fyrir að vera ekki vel kunnug bókhaldsstörf- um, leysti hún sín störf af stakri snilld. Síðasta starf hennar var sem móttökuritari við heilsugæsluna í Borgarspítalanum við Fossvog. Hún var ætíð reiðubúin að aðstoða sín börn í öllu sem þau tóku sér fyr- ir hendur. Fyrir nokkrum árum greindist Halley með sjaldgæfan sjúkdóm, sem gerði hana hægt og sígandi hreyfihamlaða. Hún átti erfitt með að sætta sig við þennan sjúkdóm og streittist lengi við að fá sér hjálpar- tæki til að auðvelda henni að kom- ast leiðar sinnar. Þannig var stolt þessarar konu. Hún vildi fórna sér fyrir fjölskylduna, en enginn skyldi fórna sér fyrir hana. Það var veru- lega þungbært fyrir hana þegar sjúkdómurinn náði loksins yfirhönd- inni. Þá varð ekki aftur snúið. Þá gat hún ekki lengur verið stoð og stytta fjölskyldunnar. Þá var hún orðin háð öðrum, og það átti hún erfitt með að sætta sig við. Hún kvaddi þennan heim aðfara- nótt laugardagsins 12. júní síðastlið- ins. Barnabörnin höfðu öll kvatt hana daginn áður, án þess að gera sér grein fyrir að hún væri að fara frá þeim. Sjálfur kvaddi ég hana þennan dag með þeim orðum að við vildum fá hana fljótlega aftur heim. Hún horfði blíðlega í augun á mér, tók þéttingsfast í höndina á mér, gat ekki talað sökum þess að hún var í öndunarvél, en mér fannst eins og hún væri að kveðja mig í hinsta sinn og þakka mér samfylgdina í líf- inu. Þetta er mín síðasta minning um hana og hún verður mér ætíð kær. Það er kannski of seint fyrir mig að þakka henni á móti hlýhug henn- ar og góðar samverustundir, en ég geri það samt hér. Takk fyrir að vera dóttur þinni, tengdasyni og sonum okkar stoð og stytta í lífinu. Takk fyrir að vera gleðigjafi í lífi okkar. Við munum ætíð minnast þín, og munum sakna þín sárt. Ívar Guðmundsson. Fyrir sextíu árum knýttu fimm ungar stúlkur vinnáttubönd: þrjár úr Grímsstaðaholtinu, ein frá Ísa- firði og önnur frá Vestmannaeyjum. Leiðir þeirra lágu fyrst saman í ferðum Æskulýðsfylkingarinnar ár- ið 1949, þar sem þær stigu saman sín æskuspor. Þær innsigluðu vin- áttuna í saumaklúbbi, vinahópi, sem hitzt hefur nokkuð reglulega í sex áratugi. Og þótt margt hafi breytzt á þessum langa tíma, bæði í þjóðlíf- inu og högum okkar vinkvenna, hafa vináttuböndim aldrei rofnað, heldur styrkst með árum og þroska. Fyrst okkar vinkvenna kvaddi Kolbrún Hermannsdóttir, en hún lézt, langt um aldur fram, árið 1979. Hún lifir í huga okkar. Nú er öðru sinni höggvið skarð í okkar raðir. Halley Sveinbjörnsdóttir hefur ýtt úr vör yfir móðuna miklu, eftir erf- itt veikindastríð. Með henni er gengin falleg, ljúf og yndisleg kona, sem við kveðjum með þakklæti fyrir allt það er hún var okkur. Við send- um eiginmanni hennar, börnum og öðrum ástvinum innilegar samúðar- kveðjur. Við kveðjum vinkonu okkar, Hall- eyju Sveinbjörnsdóttur, í djúpum söknuði, eftir sex áratuga vináttu, með orðum Jakobs Jóh. Smára: Að baki lífsins bíður dauðans vetur, – á bak við hann er annað vor, sem get- ur látið oss ganga aftur æskuspor. Þorgerður Sigurgeirsdóttir, Sólveig Margrét Þorbjörns- dóttir, Guðbjörg Jóhannsdóttir. Halley Sveinbjarnardóttir ✝ Emma Árnadóttirfæddist á Ak- ureyri, 21. ágúst 1925. Hún lést á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi 13. júní síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Árni Valdimarsson, f. 2.9. 1896, d. 2.9. 1980, og Ágústa Gunnlaugsdóttir, f. 1.8. 1895, d. 13.11. 1995. Systkini Emmu eru Sverrir, f. 1920, d. 2001, Ragnar, f. 1921, d. 1998, Hreinn, f. 1929, d. 1930, Haukur, f. 1931, Unnur Berg, f. 1932, og Hörður Sverr- isson, f. 1940, uppeldisbróðir. Eiginmaður Emmu var Garðar P. Magnússon frá Akurgerði, Akranesi f. 1.1. 1924, d. 4.2. 1991. giftur Þórönnu Kjartansdóttur, börn þeirra eru Sindri Þór, Hafþór Ingi og Ása Katrín. Emma ólst upp á Akureyri en flutti með foreldrum sínum til Ólafsfjarðar 13 ára þegar faðir hennar varð útibússtjóri KEA á Ólafsfirði til ársins 1950. Árið 1940 varð hún skíðadrottning á skíða- landsmóti Íslands, sem haldið var á Akureyri. Emma fór tvö ár í Reyk- holtsskóla í Borgarfirði og kynnt- ist þar Garðari. Þau giftust árið 1946 og hófu búskap fyrst á Ólafs- firði, en fluttu þaðan til Akureyrar og tveimur árum síðar árið 1952 til Akraness. Emma vann lengst af á Akraborginni, sem yfirþerna og fékk heiðursmerki aldraðra sjó- manna árið 1997. Hún var um ára- bil formaður Þernufélags Íslands. Emma bar ávallt höfuðið hátt og fylgdist vel með afkomendum sín- um og hafði ýmislegt til málanna að leggja. Útför Emmu fer fram frá Akra- neskirkju í dag, 21. júní 2010, og hefst athöfnin kl. 14. Þau slitu samvistum. Börn þeirra eru 1) Ágústa Gíslína, f. 1947, gift Henry Stef- ánssyni, sonur þeirra er Hafþór. 2) Árni Ingi, f. 1949, sam- býliskona Ástríður S. Valbjörnsdóttir, áður giftur Ásu B. Garð- arsdóttur, börn þeirra eru Garðar Ágúst og Emma. 3) óskírð, f. 1951, d. 1951 4) Edda, f. 1953, gift Arne Lystrup, börn þeirra eru Mic- helle, Natascha og Martin. 5) Ásdís Þuríður, f. 1956, gift Birni Guð- mundssyni, börn þeirra eru Guð- mundur Örn og Emma Rakel 6) Hafdís, f. 1959, gift Rúnari Ás- geirssyni, börn þeirra eru Tryggvi, Þór og Ingi. 7) Hörður, f. 1970, Hvíl þig móðir, hvíl þig, þú varst þreytt, þinni hvíld ei raskar framar neitt. Á þína gröf um mörg ókomin ár, ótal munu falla þakkartár. (Jóhann Bjarnason) Ég veit þú heim ert horfin nú og hafin þrautir yfir svo mæt og góð, svo trygg og trú svo tállaus, falslaus reyndist þú ég veit þú látin lifir! (Steinn Sigurðsson) Með þessum erindum viljum við kveðja ástkæra móður okkar. Minning hennar mun lifa í hjörtum okkar allra. Lofum Guð fyrir að hafa fengið að hafa hana svo lengi. Ágúst (Gilla), Árni Ingi, Edda, Ásdís, Hafdís og Hörður. Elsku amma mín. Núna ertu far- in til Guðs og englanna. Það er svo margt sem mig langar að segja um ömmu mína, en ég finn ekki orðin sem mig langar að segja. Amma var æðisleg amma og góð. Ég man þegar ég gisti hjá henni á Vallarbrautinni. Ég man þegar ég fór í Akraborgina þegar hún vann þar. Það er svo margt sem ég man eftir ömmu. Oft hjálpaði ég henni, fór út í búð og margt sem ég gerði fyrir ömmu mína. Amma var hepp- in að eiga nóg af barnabörnum. Mér þótti vænt um hana. Amma var alltaf svo stolt af mér þegar ég vann verðlaun í sundinu og í íþrótt- um. Ég veit að henni líður vel þar sem hún er núna, að hitta bræður sína og mömmu sína og pabba. Þegar ég var hjá henni fann ég ást og hlýju. Ég mun alltaf sakna hennar. En ég veit að hún mun vaka yfir okkur og passa okkur í framtíðinni. Við þökkum samfylgd á lífsins leið þar lýsandi stjörnur skína og birtan himneska björt og heið hún boðar náðina sína en Alfaðir blessar hvert ævinnar skeið og að eilífu minningu þína. (Vigdís Einarsdóttir) Hvíldu í friði elsku amma mín og nafna, ég mun aldrei gleyma þér. Addi bróðir sendi bestu kveðjur til þín, elsku amma. Þín Emma Rakel. Þegar Emma er kvödd eftir far- sæla ævidaga koma í hug einkenni hennar sem voru bjartsýni, um- hyggja og reglusemi. Þegar þessir eiginleikar kristallast í einni og sömu manneskjunni þarf engan að undra að Emma var vinsæl meðal samferðafólks og tókst að laða fram það besta í hverjum manni. Þess vegna var ávallt glatt á hjalla þegar hún var nálægt um leið og gætt var að öllum grunngildum í mannlegum samskiptum og reglufestu. Hún hafði með öðrum orðum mjög góð áhrif á umhverfi sitt og þá sem hún umgekkst. Emma var höfðingi sinn- ar fjölskyldu og skjólið trausta sem margir leituðu til þegar á móti blés. Þar var góðs að vænta í anda eðl- islægrar bjartsýni hennar sem veitti mörgum þá örvun sem nýttist vel í lífsins ólgusjó. Margar ánægjulegar samverustundir með Emmu eru okkur frændfólki henn- ar efst í huga þegar komið er að leiðarlokum. Þar var hún ávallt fremst í flokki og smitaði út frá sér með söng og frásögnum þegar hún rifjaði upp afrek og uppátæki þeirra systkina frá Akureyri og Ólafsfirði. Miklu hefðum við verið fátækari á fjölskyldumótum ef Emelíu von Skagen hefði ekki notið við, en það nafn festist við hana innan fjölskyldunnar eftir að hún hafði búið í áratugi á Akranesi. Hún var sannkallaður gleðigjafi og ekkert svo leiðinlegt að hún gæti ekki gert það skemmtilegt með kankvísi sinni og jákvæðni. Vinátta hennar og foreldra minna, Andreu og Sverris, er ein af dýrmætu minningunum frá æskuárunum og er það trúa mín að enn bergmáli hlátrasköll þeirra um Ránargötuna á Akureyri enda lifðu þau eftir lög- málinu að hafa það heldur sem skemmtilegra reyndist. Með þess- um fátæklegu línum er Emmu minnst með mikilli hlýju og virð- ingu um leið og hennar nánustu er vottuð samúð. Ingólfur Sverrisson. Emma Árnadóttir ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐFINNA JÓNSDÓTTIR, Bólstaðarhlíð 60, áður til heimilis að Syðsta-Ósi, Miðfirði, lést á Landakoti laugardaginn 12. júní. Útför hennar fer fram frá Melstaðarkirkju miðviku- daginn 23. júní kl. 14.00. Rúta fer frá Umferðamiðstöðinni kl. 10.00. Þorvaldur Böðvarsson, Hólmfríður Skúladóttir, Hólmfríður Böðvarsdóttir, Sveinn Kjartansson, Jón Böðvarsson, Ingibjörg Jóhannesdóttir, Ingibjörg Böðvarsdóttir, Þórunn Guðfinna Sveinsdóttir, Pétur Böðvarsson, Hildur Árnadóttir, Elísabet Böðvarsdóttir, barnabörn og langömmubörn. ✝ DIPL. ING. TÓMAS Þ. ÁRNASON, f. 14. mars 1939, d. 17. maí 2010, áður Ránargötu, Reykjavík, Dachstr. 48, Essen. Jarðarförin hefur farið fram í Þýskalandi með nánustu fjölskyldu og vinum. Í kærleika og þakklæti kveðjum við. Sophia Árnason, Pétur Tómasson, Ursula Tómasdóttir, Maria Florentine, Garðar Árnason, Guðrún Árnadóttir, Hulda Árnadóttir og aðrir aðstandendur. ✝ Ástkær bróðir okkar og mágur, GRÉTAR BREIÐFJÖRÐ, lést á heimili sínu 15. júní. Jarðarför verður auglýst síðar. Kolbrún Jónsdóttir, Jörgen Tomasson, Ævar Breiðfjörð, Ásta Guðjónsdóttir, Ragnar Breiðfjörð, Jóna S. Kristinsdóttir, Dorothy M. Breiðfjörð, Daníel Guðmundsson, Óskar Breiðfjörð, Margrét Breiðfjörð, Krístín Breiðfjörð, Jón Emil Hermannsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.