Morgunblaðið - 25.06.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.06.2010, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 5. J Ú N Í 2 0 1 0  Stofnað 1913  146. tölublað  98. árgangur  GUNNI OG FELIX SYNGJA LÖG ÓMARS HEIMS- MEISTARAR Á HEIMLEIÐ HUGSA UM GÆLUDÝR EINS OG BÖRNIN SÍN ÞJÓÐHÁTÍÐ RÍKIR Í SLÓVAKÍU ÍÞRÓTTIR MIKLIR DÝRAVINIR 10HEIÐRA ÓMAR RAGNARSSON 40 Önundur Páll Ragnarsson og Skúli Á. Sigurðsson Gylfi Magnússon, efnahags- og við- skiptaráðherra, telur að fjármála- kerfi landsins muni vart þola áfallið ef allt fer á versta veg frá sjónarhóli lánveitenda hvað varðar gengis- tryggð lán í íslenskum krónum. Kveður hann stjórnvöld eða Alþingi þurfa að bregðast við þeirri niður- stöðu Hæstaréttar að slík gengis- trygging sé ólögmæt. Stjórnarand- staðan vill að málið fari í farveg réttarkerfisins og fyrir dóm. Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra kallar eftir víðtækri sam- stöðu ríkisstjórnar og stjórnarand- stöðu um það að eyða óvissu um hvernig skuli fara með lánin. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis- flokks, telur niðurstöðu Hæstaréttar áfellisdóm yfir fjármálakerfinu. Hann telur þó ekki að Alþingi eigi að hlutast til um málið. Enn óvíst um gengistryggð lán Þeir sem tóku verðtryggð bílalán fyrir efnahagshrunið gætu orðið mun verr settir en þeir sem tóku gengistryggð bílalán standi samn- ingar um síðarnefndu lánin óhagg- aðir fyrir utan gengistryggingu. Svo gæti farið að eftirstöðvar verði fjór- tánfalt hærri í einhverjum tilfellum. Of þungt högg á kerfið  Kallað eftir samstöðu en stjórn og stjórnarandstöðu greinir á um rétt viðbrögð  Eftirstöðvar verðtryggðra bílalána gætu orðið fjórtánfaldar á við gengistryggð MVerðtryggð lán verri »4, 6, 18 Óánægja kraumar innan Vinstri grænna með slaka niðurstöðu í sveit- arstjórnarkosn- ingum og óeiningu innan þingflokksins. Óánægjan hefur meðal annars komið fram í skeytasendingum á póst- listum félagsins. Talið er að hart verði tekist á á flokksráðsfundi VG sem hefst í dag. Sveitarstjórnarmál eru ofarlega á baugi á fundinum, en niðurstaða í sveit- arstjórnarkosningum olli mörgum flokks- mönnum vonbrigðum, t.d. missti VG út annan af tveimur fulltrúum í borgar- stjórn Reykjavíkur. Þrátt fyrir það kem- ur fram á vef flokksins að sveitarstjórn- arhópur VG hafi stækkað um þriðjung. Nýjum sveitarstjórnarfulltrúum verði því gefinn kostur á að koma saman og velja sér stjórn í sérstöku sveitarstjórnarráði VG. Nýr vinstri flokkur í haust? Greinileg óánægja innan flokks Vinstri grænna mun þó ekki aðeins brjótast út á flokksráðsfundinum því samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins er nýr vinstri flokkur í burðarliðnum í haust. Sagt er að þeir sem hyggja á stofnun nýs flokks séu að hluta til ósáttir flokksmenn VG. Baráttufundir séu þegar skipulagðir. Flokksráðsfundurinn hefst kl. 17 í dag á Grand hótel. Sveitarstjórnarkosning- arnar, endurmótun Íslands og flokks- starfið eru umræðuefni fundarins en einnig verður rannsóknarskýrsla Alþing- is kynnt flokksmönnum. » 14 Óánægja kraumar innan VG Hart verður tekist á Kvöldsólin um hásumar er engu lík og er birtan sem af henni stafar oft svo óviðjafnanleg að fólki finnst það statt í ævintýri eða draumi. Akureyrarkirkja roðnar og speglast fallega í Pollinum og er það ekki að undra að margir vilji vera úti við og upplifa þessa birtu sem við fáum aðeins í skamman tíma á ári. Það ætla golf- arar á Akureyri að gera en Arctic Open-golfmótið hófst í gær og þar er spilað um miðnæturbil. Kvöldroðinn speglast í Pollinum Morgunblaðið/Ómar  Þrír bændur á Vesturlandi hafa stofnað nýtt mjólkursamlag, Vest- urmjólk, og hyggjast m.a. vinna úr mjólk sem framleidd er utan greiðslumarks. Nýtt frumvarp sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra gerir hins vegar ráð fyr- ir því að afurðastöð, sem tekur við mjólk utan greiðslumarks og selur innanlands, verði sektuð um 110 krónur á hvern lítra. „Þetta frum- varp gæti riðið okkur að fullu,“ segir Bjarni Bærings, einn bænd- anna, og bætir við að frumvarpið sé eins og sending aftan úr forn- öld. Vesturmjólk mun geta unnið úr 20 milljón lítrum árlega og er ætl- unin að framleiða mjólk, skyr, jóg- úrt, osta og fleira. »15 Fyrirhugaðar sektir ógna mjólkursamlagi  Búist er við tölu- verðum átökum á landsfundi Sjálf- stæðisflokks sem hefst í dag. Átökin muni snúast um tvennt: Evrópumál og styrki til handa einstökum þing- mönnum. Meðal þeirra ágreiningsmála sem geta risið er orðalag stjórn- málaályktunar flokksins um aðild- arumsókn að ESB en andstæð- ingum aðildar innan Sjálfstæðis- flokksins hefur fjölgað að undan- förnu. Sennilegt er að ályktunin verði harðorð. »16 Búist við átökum um ESB á landsfundi Landsbankinn telur áhrif þess að upphaflegir samn- ingsvextir gengistryggðra lána verði látnir standa ekki valda því að leggja þurfi til nýtt hlutafé. Íslands- banki og Arion banki sendu einnig frá sér tilkynn- ingar þess efnis að efnhagsreikningum þeirra yrði ekki stefnt í hættu ef samningsvextirnir standa. Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra hefur þó lýst því yfir að fjármálakerfið sé ekki undir það búið að er- lendu vextirnir verði látnir standa. Hann telur högg af þeirri stærðargráðu, frá sjónarhóli lánveitenda, óhjá- kvæmilega lenda á öðrum, þ. á m. skattgreiðendum. Þurfa ekki nýtt hlutafé LANDSBANKINN, ÍSLANDSBANKI OG ARION BANKI Landsbankinn segist ráða við höggið. Aðilar vinnu- markaðarins og fulltrúar sveitar- félaganna voru boðaðir á upp- lýsingafund í stjórnarráðinu í gær. Á fund- inum kynntu ráðherrar rík- isstjórnarinnar mögulegar afleið- ingar nýfallinna dóma Hæsta- réttar um gengistryggingu lána. Fundargestir fengu að vita hvern- ig Fjármálaeftirlitið metur áhrifin fyrir bankana miðað við mismun- andi forsendur. „Við lýstum því sjónarmiði að fjármálafyrirtækin þyrftu að ákveða hvernig þau ætla að vinna úr þessu,“ segir Vil- hjálmur Egilsson, framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins. „Sama hvað er gert, þá verður lát- ið reyna á allt fyrir dómstólum. Fjármálafyrirtækin komi með lín- una, sem standist þá dóm og rík- isstjórnin bakki þau upp.“ Fjármálafyrirtækin komi með línuna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.