Morgunblaðið - 25.06.2010, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 25.06.2010, Blaðsíða 17
Fréttir 17INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2010 n o a t u n . i s H a m r a b o r g – N ó a t ú n 1 7 – H r i n g b r a u t – A u s t u r v e r – G r a f a r h o l t Ö ll ve rð er u bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill u og /e ða m yn da br en gl SVALANDI FRÁBÆRT Í FERÐALAG IÐ McVITIE’S SÚKKULAÐIKEX LJÓSTEÐADÖKKT 295 KR./PK. BRAZZI, 1 L EPLASAFI APPELSÍNUSAFI 109 KR./STK. PAGEN KANILSNÚÐAR 349KR./PK. OSTAHÚSIÐ TÍRAMISÚ, 110 G 199 KR./STK. Hafðu það gottmeð Nóatúni 20% afsláttur GOÐA BBQGRÍSARIF KR./KG ÍM FERSKAR KJÚKLINGABRINGUR KR./KG 1799 25% afsláttur 2398 1598 1278 Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is „Þegar baráttumál Sambands ungra sjálfstæðismanna eru skoðuð í upp- hafi þá var fyrsta stefnumál sam- bandsins að beita sér í sjálfstæðis- baráttunni. Síðan var ýmislegt sem tengist frelsi einstaklingsins og frelsi í viðskiptum sem þá var á odd- inum,“ segir Ólafur Örn Nielsen, for- maður Sambands ungra sjálfstæðis- manna (SUS), en sambandið fagnar 80 ára afmæli sínu þann 27. júní nk. Ólafur segir að þegar stefnumál SUS í dag séu borin saman við þau sem voru fyrir 80 árum þá sjáist að grundvallaráherslur hafi í raun ekk- ert breyst. „Við erum í dag að berj- ast gegn því að fullveldið verði fram- selt til Brussel, erum enn að berjast fyrir auknu frelsi í viðskiptum og að höfð séu minni afskipti af einstak- lingnum. Ég held að það séu fáar stjórnmálahreyfingar sem hafa verið jafn samkvæmar sér í sínum mál- flutningi.“ Samviska flokksins Að sögn Ólafs hefur SUS gegnt mjög veigamiklu hlutverki í gegnum tíðina gagnvart Sjálfstæðisflokkn- um, s.s. með því að veita honum hug- myndafræðilegt aðhald og halda kjörnum fulltrúum hans við efnið. Fyrir vikið hafi sambandið gjarnan verið nefnt samviska flokksins. Hann segir að það gildi jafnt í dag eins og áður að SUS megi „aldrei taka sig of alvarlega og verða sam- dauna Sjálfstæðisflokknum í öllum málum“. „Þau baráttumál sem SUS hefur tekið sér fyrir hendur hafa í fyllingu tímans gjarnan orðið að veruleika. Þau þóttu kannski óvinsæl eða rót- tæk þegar þau voru lögð fyrst fram en sjálfsögð og eðlileg eftir að málin náðu fram að ganga, t.a.m. með laga- setningu,“ segir Ólafur. Fyrstu pólitísku skrefin „Það hafa gríðarlega margir hafið stjórnmálaþátttöku sína í SUS sem síðar hafa orðið þingmenn eða kjörn- ir fulltrúar á öðrum vettangi fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Það hefur án efa verið afskaplega mikilvægt vega- nesti fyrir þessa einstaklinga að hafa farið í gegnum þær hugmyndafræði- legu umræður sem fram fara innan SUS sem og alla aðra sem tekið hafa þátt í þeim. Ég held að kjörnir fulltrúar hafi verið betur undir það búnir að takast á við þau mál sem þeir hafa glímt við ef þeir hafa áður tekið þátt í störfum ungliðahreyfing- arinnar,“ segir Ólafur. Í tilefni af þessum tímamótum í sögu SUS er afmælisdagskrá fyrir- huguð sem standa mun út árið. Að sögn Ólafs hefst dagskráin með af- mæliskvöldverði sem fram fer í Gullhömrum í Grafarholti annað kvöld en það verður um leið lokahóf landsfundar Sjálfstæðis- flokksins sem hefst í dag. Veisl- an er opin öllum og er ekki ein- göngu fyrir landsfundarfulltrúa. Síungur öldungur og sígild stefna  Samband ungra sjálfstæðismanna 80 ára  Stefna SUS óbreytt í grundvallaratriðum frá upphafi  Margir stigið sín fyrstu pólitísku skref í starfi sambandsins  Afmælisdagskrá fyrirhuguð út árið SUS Frá aukaþingi Sambands ungra sjálfstæðismanna á Þingvöllum 1974. Samband ungra sjálfstæðis- manna var stofnað á Þingvöll- um 27. júní árið 1930 á meðan á Alþingishátíðinni stóð en þar var þúsund ára afmæli þingsins fagnað. Þá voru fyrir þrettán fé- lög ungra sjálfstæðismanna og urðu þau við stofnun sam- bandsins aðildarfélög SUS. Fyrsti formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna var Torfi Hjartarson síðar tollstjóri, en hann átti einnig hugmyndina að stofnun sambandsins. Torfi var þá varaformaður Heimdall- ar, félags ungra sjálfstæðis- manna í Reykjavík, en það félag var stofnað árið 1927 eða þrem- ur árum áður en SUS var stofn- að og tveimur árum fyrir stofn- un Sjálfstæðisflokksins. Fjöldi félagsmanna í SUS við stofnun sam- bandsins er talinn hafa verið um 1.400 manns. Í dag er fjöldi fé- lagsmanna í kringum 13 þúsund talsins í hátt í fjörutíu aðildarfélögum um allt land. Stofnað á Þingvöllum SUS 80 ÁRA 27. JÚNÍ Ólafur Örn Nielsen, formaður SUS Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.