Morgunblaðið - 25.06.2010, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 25.06.2010, Blaðsíða 12
Hjalti Geir Erlendsson hjaltigeir@mbl.is Veiðisumarið 2010 fer vel af stað og má greina almenna ánægju meðal veiðimanna um allt land. Veiði er hafin í mörgum helstu laxveiðiám landsins og segja kunnugir veiðina fara betur af stað nú en oft áður. Laxinn virðist koma vel haldinn af hafi og svo virðist sem hann sé al- mennt í góðu ástandi. Hugur er í mönnum enda er byrjunin vísir að góðu veiðisumri. Um 300 laxar á 10 dögum Veiði er hafin í Þverá og Kjarrá og samkvæmt upplýsingum frá veiði- félaginu Sporði hafa veiðst um 300 laxar á svæðinu frá opnun. „Við opnuðum 15. júní og síðan þá eru komnir 125 laxar bara í Þverá,“ segir Hallgrímur Gunnars- son, leiðsögumaður í Þverá/Kjarrá, en hann var nýkominn úr sjö stanga holli í Þverá þegar blaðamaður náði af honum tali. „Þetta verður að teljast mjög gott miðað við júníveiði en það veidd- ist 51 lax nú í síðasta holli,“ segir Hallgrímur. Eðlileg dreifing sé á lax- inum og mikið sé um smálax. „Við höfum tekið eftir sterkri smálaxagengd í bland við 60 til 70 cm laxa en svo kemur alltaf einn og einn stórlax inn á milli,“ segir Hallgrímur. Stórlöxunum sleppt Í vikunni veiddust tveir stór- laxar í Þverá. Annar var 90 cm hængur sem veiddist í Klappar- fljóti á svarta Frances en veiðimaður var Björn Guðmundsson. Hinn var 87 cm hrygna í Skiptafljóti sem veidd- ist á þýska snældu, veiðimaður var Jónína A. Sanders. Að sjálfsögu var löxun- um sleppt í samræmi við regl- ur staðarins um að sleppa öll- um stórlöxum. Hallgrímur segir sæmi- legt vatn vera í ánum en það mætti þó aðeins bæta í. „Þessi byrjun er vísir að góðu sumri. Það eina sem við biðjum um er smá rigning en draumurinn er að fá í það minnsta tvo rigningar- daga í viku,“ segir Hallgrímur. Veiðihugur í mönnum Þessi jákvæða byrjun virðist ekki einskorðast við Þverá því Páll Þór Ármann, framkvæmdastjóri SVFR, tekur í svipaðan streng og þeir hjá Sporði. „Við sjáum ótrúlega góðar göngur og verður að segjast að það er langt síðan veiði hefur verið svona góð í júní,“ segir Páll en hann hefur þó engar haldbærar skýringar á þessu góða gengi. „Það var metopnun í Langá 21. júní en þar veiddust 50 laxar á tveim- ur og hálfum degi,“ segir Páll og til samanburðar nefnir hann að eðlileg byrjun þar sé í kringum 8 laxar á fyrsta degi. SVFR er með veiðisvæði um allt land. Páll segir að Vesturland og Suðurland fari oftast nær vel af stað en sama gildi reyndar um allt land í ár. Sem dæmi þá fór veiði einnig vel af stað í Fnjóská í Eyjafirði. Óskabyrjun í veiðinni  Laxveiði fer vel af stað um allt land  Laxinn er vel haldinn og í góðu ástandi  Metopnanir voru t.d. í Þverá, Kjarrá og í Langá  Vísir að góðu veiðisumri Ljósmynd/Hallgrímur Gunnarsson Flottur Sigurður E. Sigurðsson veiddi 85 cm hæng í Klapparfljóti í Þverá, á svarta Frances, 1,5 tommu túbu. Laxinum var sleppt aftur í ána. 12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2010 Til fyrirmyndar er yfirskrift hvatningarátaks í tilefni af því að 29. júní næst- komandi verða 30 ár liðin frá því að Íslendingar voru til fyrir- myndar með því að vera fyrstir þjóða til að kjósa konu sem forseta í lýðræðislegum kosningum. Fram kemur í tilkynningu að með átakinu, sem sé tileinkað Vig- dísi Finnbogadóttur og íslensku þjóðinni, séu landsmenn hvattir til að gefa sér tíma til að staldra við og huga að því sem vel sé gert, jafnt stóru sem smáu. „Þriðjudaginn 29. júní er fólk hvatt til að taka þátt í átakinu með því að skrifa bréf sem ber yfirskriftina „Takk fyrir að vera til fyrirmyndar“. Bréfið má senda til fjölskyldu, vina, vinnu- staða, félagasamtaka eða annarra sem bréfritarar telja hafa verið til fyrirmyndar á einn eða annan hátt. Bréfsefni verður dreift inn á heim- ili um allt land dagana 29. og 30. júní. Bréfin má setja ófrímerkt í póst,“ segir í tilkynningu. Allir hvattir til að vera til fyrirmyndar Vigdís Finnbogadóttir Brot átta ökumanna voru mynduð í Vesturbergi í Reykjavík sl. mið- vikudag, þar sem fylgst var með ökutækjum aka í norðurátt, miðja vegu á milli Suðurhóla og Norð- urfells. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 198 ökutæki þessa akstursleið og þar af ók lítill hluti ökumanna, 4%, of hratt eða yfir af- skiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 60 km á klst. en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 66. Eftirlit lögreglunnar í Vesturbergi var til- komið vegna ábendinga frá íbúum en þeir hafa kvartað undan hrað- akstri á þessum stað. Flestir ökumenn á löglegum hraða Morgunblaðið/Júlíus Jónas Margeir Ingólfsson jonasmargeir@mbl.is Neytendastofa hefur með nýrri niðurstöðu sinni bannað 365 miðlum birtingu á saman- burðarauglýsingum sínum um útvarpshlustun. Í auglýsingunni er samanburður gerður á hlustun á lesnum auglýsingum á Bylgjunni 98,9 Gull Bylgjunni og Létt Bylgjunni sameig- inlega en Rás 1 og Rás 2 hvorri í sínu lagi. Í niðurstöðu Neytendastofu er tekið fram að lesnar auglýsingar séu ekki leiknar auglýs- ingar og því óréttmætir viðskiptahættir að greina í sundur hlustun á Rás 1 og Rás 2 þar sem lesnar auglýsingar eru sendar út á sama tíma á báðum rásum á sama hátt og rásum Bylgjanna. Þannig sé það brot á lögum um eft- irlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu að bera annars vegar saman hlustun allra Bylgjanna en hins vegar Rás 1 og Rás 2 sér- staklega. Þá er einnig gerð athugasemd við könn- unina sem tölurnar sem notast er við í auglýs- ingunni eru fengnar úr en hún var gerð í viku 47 árið 2009. Auglýsingin birtist í prentmiðlum í apríl 2010 sem þykir brot á sömu lögum þar sem Neytendastofa leggur mikla áherslu á að í samanburðarauglýsingum sé notast við gögn sem eru viðeigandi á þeim tíma sem auglýs- ingar eru birtar. Neytendastofa hefur því bannað 365 miðlum birtingu auglýsinganna. Ekki í fyrsta sinn Í mars úrskurðaði Neytendastofa einnig samanburðarauglýsingar 365 miðla ólögmætar þar sem auglýst var sameiginlegt hlutfall út- varpshlustunar á Bylgjuna 9,89, Létt Bylgjuna og Gull Bylgjuna án þess að greina með skýr- um hætti frá því að um sameiginlegt hlutfall útvarpsstöðvanna þriggja væri að ræða en í sömu auglýsingu voru Rás 1 og Rás 2 að- skildar. Verður að miða við sömu forsendur Þorsteinn Þorsteinsson, markaðsstjóri Rík- isútvarpsins, fagnar niðurstöðu Neytenda- stofu. „Þegar hlustun er borin saman verður að hafa sömu forsendur báðum megin. Til við- bótar nýttu þeir tölur frá viku 47 árið 2009 en birta auglýsinguna í viku 17 árið 2010. Þeir fundu þarna bestu vikuna sína og birtu auglýs- inguna hálfu ári síðar,“ segir Þorsteinn sem kveður mælingar Gallup liggja fyrir í hverri viku. Hann segir þetta þó ekki eina dæmið um villandi framsetningu 365 miðla í auglýsingum sínum. „Þeir hafa verið dálítið frakkir í þessum auglýsingum sínum og þá er skemmst að minnast hvernig þeir kynntu HM til sögunnar. Þeir kynntu HM eins og það væri hjá sér ein- göngu þegar sannleikurinn er sá að við erum með flesta leikina. Þeir eru með átján en við erum með fjörutíu og sex. Við kærðum það nú ekki en þeir breyttu auglýsingunum þegar þeir voru gagnrýndir fyrir framgöngu sína.“ Neytendastofa bannar auglýsingu 365  Samanburðarauglýsing 365 miðla um útvarpshlustun þykir brjóta gegn lögum um eftirlit með við- skiptaháttum og markaðssetningu  Auglýsingin þykir ósanngjörn og samanburðurinn villandi Morgunblaðið/Heiddi Brotlegir Neytendastofa telur samanburðar- auglýsingar 365 miðla ólögmætar. Laxar hafa víða veiðst á fyrsta degi í ám landsins sem verður að kallast óvenjugott. Til dæmis veiddist lax á fyrsta degi í Andakílsá og sjö laxar fengust á fyrsta degi í Miðfjarðará samkvæmt www.votnogveidi.is. Þar segir einnig að stærsti laxinn hingað til í sumar hafi bitið á í Laxá í Aðaldal og mældist hann 22 pund. Þá má nefna að 40 laxar veiddust fyrsta daginn í Grímsá. Meðal veiðisvæða sem verða opnuð á næstunni má nefna Laxá í Dölum 28. júní og Laxá á Nessvæðinu 1. júlí. Stærsti laxinn 22 pund MOKVEIÐI Pétur Pétursson, framkvæmdastjóri sölusviðs 365 miðla, taldi fyrirtækið hafa lagað auglýsingarnar að sjónar- miðum Neytendastofu eftir fyrri úrskurð hennar. „Í mínum huga er aðalatriðið í þessu máli að ekki er gerð athugasemd við að lögð sé saman hlustun Bylgjanna. Yfirburðir stöðvanna eru því ótvíræðir. Við munum skoða niðurstöðuna en ég tel líklegt að við nýtum málskotsheimild til áfrýjunarnefndar,“ segir Pétur sem kveður um mistök að ræða af hálfu 365 þegar notast var við gamlar tölur í aug- lýsingum og úr því hafi verið bætt. „Staðreyndin er hins vegar sú að hlustun á útvarp er stöðug og hefur lítið breyst undanfarið ár.“ Munu áfrýja niðurstöðunni 365 MIÐLAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.