Morgunblaðið - 25.06.2010, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Spekúlera Hér skoða þær Camila og Sanita röntgenmyndir af dýrum sem hafa laskast og velta fyrir sér aðgerðum.
Flestir viðskiptavinir dýra-
læknastofu Dagfinns eru fólk sem
býr í nágrenni við Skólavörðustíg-
inn, í svokölluðum 101 Reykjavík.
„Fyrir vikið þá mæti ég oft við-
skiptavinum okkar á gangi um bæ-
inn,“ segir Camila og hlær.
„Það er frábærlega þægilegt að
hafa dýralæknastofuna svona ná-
lægt heimilum okkar, en við búum
báðar hér í miðbænum, Sanita býr í
næsta húsi en ég á Grettisgötu,“
segir Camila og bætir við að hún sé
enga stund að labba í vinnuna en
reyndar sé hún aðeins lengur núna
en venjulega enda komin langt á leið
með sitt annað barn, sem á að fæðast
í ágúst.
„Ég er sett á ellefta ágúst en
kannski fæ ég barnið í afmælisgjöf
því sjálf er ég fædd sjötta ágúst,“
segir hún en það er vel við hæfi að
þessi dýralæknir sé í ljónsmerkinu,
stóra kisan hæfir henni sérlega vel.
Erfitt að venjast kuldanum
Hjá þeim báðum var það ástin
sem dró þær hingað til norðursins.
Camila er gift íslenskum manni og
þau höfðu búið saman í
Portúgal í eitt ár áður en
þau fluttu hingað síðast-
liðið haust.
Hún segir það
hafa verið mikil við-
brigði fyrir sig að búa
hér í kuldanum í vetur
en nú líður henni bet-
ur, í bjarta hlýja sumr-
inu.
„Fólkið hér á Íslandi
er líka öðruvísi en ég á að venjast.
Heima í Chile kyssumst við til dæm-
is alltaf á báðar kinnar en hér heils-
ast fólk með handabandi og er ekki
eins opið og ég er vön.“
Sanita hefur búið hér lengur en
Camila, í tæp tvö ár. Þegar hún kom
hingað til lands í fyrsta sinn átti það
einungis að vera stutta tveggja
vikna heimsókn til kærastans, sem
er samlandi hennar. Hann hafði þá
búið og starfað á Íslandi í rúm fjögur
ár. „Hann vildi gjarnan fá mig til að
flytja hingað og ég sló til eftir að ég
hafði fengið vinnu hér á dýralækna-
stofunni.“
Gefandi að bjarga lífum
Þau eru mörg handtökin hjá
Dagfinni, það þarf að bólusetja dýr
og laga þeirra margvíslegu kvilla.
Algengasta skurðaðgerðin sem þær
framkvæma er gelding.
„En vissulega þarf stundum að
fjarlægja æxli eða annað slíkt með
skurðaðgerð og hingað koma stund-
um dýr sem hafa lent í slysi, eru
jafnvel beinbrotin og við reynum að
laga það.
Það er mjög gefandi að fylgjast
með dýri ná sér að fullu eftir aðgerð
og sjá því líða vel. Og eigendurnir
eru líka svo þakklátir.“
Þær Sanita og Camila eru hlý-
legar ungar konur og þær hafa gott
lag á dýrunum sem þær meðhöndla.
En finnst þeim ekki erfitt að
þurfa að svæfa dýr hinsta svefni, er
ekki meira gaman að bjarga lífum?
„Jú, vissulega getur sá hluti af
starfinu að aflífa dýr verið erfiður,
en þegar dýr er mjög veikt eða mjög
gamalt þá erum við að líkna því með
því að svæfa það. Aftur á móti er erf-
itt að svæfa ung og heilbrigð dýr og
við reynum alltaf að finna nýja eig-
endur fyrir þau dýr og það tekst oft-
ast, sem betur fer.“
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2010
Daglegt líf 11
Á Dýralæknastofu Dagfinns er
heimilislegt og notalegt yfir-
bragð.
Þar er gæludýrum fyrst og
fremst sinnt, svo sem hundum,
köttum, fuglum, nagdýrum og
kanínum.
Þar eru ekki aðstæður til að
taka á móti hestum, enda
miðbærinn eng-
inn staður fyrir
stórgripi.
Eigandi Dýra-
læknastofu Dag-
finns er Guðbjörg
Þorvarðardóttir
dýralæknir en
þrír ungir dýra-
læknar starfa
hjá henni, þær
Sanita Sudrab-
ina, Camila Abad
og Svala Ögn
Kristinsdóttir.
Dagfinnur
læknar dýrin
FYRIR ÖLL GÆLUDÝR
Kanínan
Agneska
ingu, hærri gjöldum, auknu álagi
eða einhverju öðru sem ráðamenn
geta eflaust látið sér detta í hug?
Næsta skref hlýtur að vera sér-
stakt tjaldhælagjald, til að gera
útilegur aðeins kostnaðarsamari.
Nú, þá liggur beint við að setja
innflutningstolla á gaskúta til að
gera grillurum þessa lands erfiðara
um vik að slá upp veislu. Kannski
rétt að vara strax við hugsanlegri
holu í þeirri löggjöf, því menn
gætu í stórum stíl byrjað að grilla
yfir kolum. Kannski kolefnisskatt-
urinn dekki það – þetta þurfa lög-
fræðingarnir í umhverfisráðuneyt-
inu að leggjast yfir og ganga úr
skugga um.
Það þyrfti líka að koma upp ein-
hvers konar neyslueftirliti til að
kortleggja innkaupamynstur al-
mennings. Þeir sem kaupa sultu-
krukku og mygluost með stuttu
millibili eru líklegir til að neyta
þeirra matvæla samtímis. Sama
gildir með kartöfluflögur og ídýfu.
Flestir eru sammála um að ákveð-
inn bragðlaukavirðisauki myndist
við þær samsetningar sem er lýst
hér að ofan.
Klárlega sóknarfæri fyrir skatta-
yfirvöld.
Golfkylfur hækkuðu nokkuð við
gengislækkunina, enda að öllu leyti
innflutt vara. Fjöldi kylfinga valsar
um golfvelli landsins hvert sumar
og slær kúlur í holur sér til ánægju
og yndisauka. Það getur
hreinlega ekki verið að
stjórnvöld láti þessa
taumlausu skemmtun
viðgangast. Svo ekki
sé talað um alla
fluguveiðimenn-
ina í vöðlunum
sínum og fjalla-
garpana í göngu-
skónum sínum ...
thg@mbl.is
Heimur Þórðar
Það sem ég óttast helst viðkreppuna er að á Íslandiverði ekkert skemmtilegtlengur. Málið snýst ekk-
ert endilega um peninga – auðvitað
sættir flest fólk sig við að fara í að-
eins færri utanlandsferðir, end-
urnýja sjónvarpið í stofunni með
lengra millibili eða sleppa fellihýs-
inu og vera í tjaldi. Ég þarf nú að
borga aðeins hærra hlutfall af
tekjum mínum í hina sameiginlegu
sjóði. Nokkuð fúlt en gott og vel,
ég fæ litlu um það ráðið. Stjórn-
málamenn geta haft sínar skoðanir
á því hvernig best er að takast á
við efnahagslega
erfiðleika. En
manni finnst
stundum að það
eina, sem ís-
lenskir stjórn-
málamenn hafi
fram að færa
þessa dagana, sé að skattleggja þá
hluti sem gera lífið bærilegra.
Skattleggja allt það sem telst til
lífsins nautna. Þrátt fyrir skaðsemi
reykinga er til fullt af fólki sem
hefur talsverða ánægju af þeirri
iðju, þó það hafi oft slæmar afleið-
ingar síðar meir. Áfengi flokkast
tæplega til heilsusamlegustu
neysluvara, en þorri landsmanna
neytir þess með mismunandi milli-
bili sér til ánægju og yndisauka.
Eldsneyti er nauðsynlegt til að aka
flestum bílum, sama hvort sá akst-
ur eigi sér stað við leik eða störf.
Þessir hlutir eru allir dýrari í dag
en þeir voru á dögum víns og rósa
árin 2004-2007. Þá verðhækkun má
ekki bara rekja til gengislækkunar
íslensku krónunnar, heldur einnig
gagngerra ákvarðana íslenskra
stjórnmálamanna að hækka verð á
þeim. Eru menn gagngert að
reyna að gera vistina á
þessari annars indælu
eyju eins leiðinlega og
hægt er? Virðist vera.
Eru þá ekki alveg
örugglega einhverjir
fleiri vinsælir og
skemmtilegir hlutir sem
hægt er að torvelda að-
gengi enn frekar að með
aukinni skattlagn-
»… manni finnst stundum að það einasem íslenskir stjórnmálamenn hafi
fram að færa þessa dagana sé að skatt-
leggja þá hluti sem gera lífið bærilegra.
VITA er lífið
Alicante
VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444 | VITA.is
Kynntu þér ferðamöguleikana og
skráðu þig í netklúbbinn á VITA.is
Flugsæti
Verð frá 22.500 kr.
Innifalið í verði: Flug aðra leið til Alicante með flugvallarsköttum.
Flogið allt að þrisvar í viku út október.
26., 28. og 30. júní.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
V
IT
50
61
5
06
/1
0