Morgunblaðið - 25.06.2010, Qupperneq 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2010
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
I
/S
ÍA
–
1
0
-0
3
2
1
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Gísli Baldur Gíslason
gislibaldur@mbl.is
Fulltrúar minnihluta borgarstjórnar
mótmæla tillögu meirihlutans um að
stjórnarformaður Orkuveitu
Reykjavíkur (OR) verði gerður að
starfandi stjórnarformanni og þann-
ig hluti af launuðu stjórnendateymi
fyrirtækisins. Þetta kom fram á
fundi borgarráðs í gær.
„Mér finnst afar einkennilegt
að meirihluti sem hefur sagt að hann
ætli að hagræða í stjórnkerfi og yfir-
stjórn borgarinnar geri það að sínu
fyrsta verki að bæta við enn einum
stjórnanda í OR fyrir mjög há laun,“
segir Sóley Tómasdóttir, oddviti
Vinstri grænna. Tillaga meirihlut-
ans hljóðar þannig að Haraldur
Flosi Tryggvason verði ráðinn
stjórnarformaður OR og fái að laun-
um um 920 þúsund krónur á mánuði.
Það eru u.þ.b. tvöfalt hærri laun en
borgarfulltrúar eru með á mánuði.
„Ráðning þessa manns er ekkert
annað en hefðbundin bitlingapólitík
og það veldur mér miklum vonbrigð-
um,“ segir Sóley.
Ekki meiri þörf nú en áður
Hanna Birna Kristjánsdóttir,
oddviti Sjálfstæðisflokksins, segir að
ráðningin sé ekki í samræmi við þá
hagræðingu sem borgarfulltrúar og
starfsmenn Reykjavíkurborgar hafi
unnið að upp á síðkastið.
„Stjórnarformennska í OR hef-
ur alltaf verið umtalsvert starf, eins
og stjórnarformennska almennt er.
Það hefur hins vegar aldrei áður
verið gerð tillaga um að þarna væru
menn í fullu starfi. Það er ekkert
meiri þörf á því núna en hefur ver-
ið,“ segir Hanna Birna.
Hún bætir við að formaður
stjórnar og stjórnin öll hafi mikið
eftirlitshlutverk fyrir eigendur
gagnvart daglegri stjórn og rekstri
Orkuveitunnar. „Að gera stjórnar-
formanninn að daglegum þátt-
takanda í stjórnunarteymi fyrir-
tækisins stríðir algjörlega gegn því
hlutverki hans,“ segir Hanna.
Ekki pólitísk ráðning
Jón Gnarr, borgarstjóri, vísar
því á bug að eingöngu sé um póli-
tíska ráðningu að ræða.
„Ef við værum að gera þetta
„old school“ þá yrði Einar Örn
[Benediktsson, borgarfulltrúi] bara
stjórnarformaður og það væri
ógeðslega gaman fyrir hann. Við er-
um að reyna að gera þetta vel og til
gagns. Við erum að skipa fólk sem
hefur fagþekkingu á þessu sviði,
sem mér skilst að gerist ekki oft,“
segir Jón. „Einstaklingarnir sem við
erum að skipa hafa bæði menntun
og starfsreynslu á þessu sviði.“ Auk
Haraldar Flosa munu þau Helga
Jónsdóttir og Aðalsteinn Leifsson,
fá sæti í stjórn OR, samkvæmt til-
lögunni.
„Sérfræðingar og þeir sem við
treystum og teljum hafa vit á þess-
um málum, ráðlögðu okkur að
stjórnarformaður yrði í fullu starfi
til að byrja með til að hann hefði
möguleika á að gera það sem gera
þarf,“ segir borgarstjórinn. Hann
segir að Haraldur verði í launuðu
starfi í eitt ár.
„Það er trú mín að þessi leið
muni skila okkur betri Orkuveitu
sem verður betur rekin og starfar
betur en hún gerir núna,“ segir Jón.
Gamaldags vinnubrögð
Sóley og Hanna Birna eru
ósáttar við vinnubrögð meirihlutans
í þessu máli.
„Ég hélt að þetta væru vinnu-
brögð sem við værum öll sammála
um að víkja frá,“ segir Hanna Birna.
Dagur B. Eggertsson, oddviti
Samfylkingarinnar, kveðst ekki hafa
heyrt að samráð hafi skort.
„Í öllu samstarfi verða rökin að
ráða. Við kynntum tillöguna fyrir
minnihlutanum og hefðum gjarnan
viljað að þau skildu nauðsyn þess-
arar ráðstöfunar. En við gerum
enga athugasemd við það að fólk sé
á annarri skoðun,“ segir Dagur.
Ósátt við ráðningu meirihlutans
Ekki í anda hagræðingar og nýrra
vinnubragða, segir minnihlutinn
Dagur B.
Eggertsson
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Sóley
Tómasdóttir
Jón
Gnarr
„Við aðstandendur þjóðgarðsins er-
um afar stolt af þessari byggingu og
sýningunni sem hún hýsir,“ segir
Anna Kristín Ólafsdóttir, stjórnar-
formaður Vatnajökulsþjóðgarðs. Í
gær var opnuð á Skriðklaustri í
Fljótsdal gestastofa fyrir austur-
svæði þjóðgarðsins, en fram-
kvæmdir hófust í fyrra. Byggingin
er um 700 fermetrar og í arkitektúr
var reynt að höfða til sérstöðu svæð-
isins. Er húsið hið fyrsta sem byggt
er hér á landi skv. alþjóðlega við-
urkenndum umhverfisstaðli um vist-
vænar byggingar. Var eftir föngum
reynt að nýta byggingarefni svo sem
skógarvið af Héraði. Kostnaður við
framkvæmdir er um 350 milljónir
króna.
Í gestastofunni er aðstaða fyrir
ferðamenn auk þess sem þar er
brugðið ljósi á náttúrufar á austur-
svæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Má þar
nefna umhverfisfræðslusýninguna
Veraldarhjólið sem fjallar um hring-
rás náttúru með áherslu á samspil
gróðurs og dýralífs.
Í samkeppni um nafn gestastof-
unnar var dómnefnd sammála um að
Snæfellsstofa væri besta tillagan,
enda sést vel til fjallsins á Austur-
landi. „Trú okkar er að Snæfells-
stofa muni um alla framtíð hafa að-
dráttarafl sem miðstöð umhverfis-
fræðslu og fulltrúi frábærrar
íslenskrar byggingarlistar,“ sagði
Anna Kristín Ólafsdóttir. sbs@mbl.is
Erum stolt
af Snæfells-
stofunni
Lyklavöld Anna Kristín
Ólafsdóttir, formaður
stjórnar Vatnajökuls-
þjóðgarðs, Svandís Svav-
arsdóttir umhverfis-
ráðherra og Agnes Brá
Birgisdóttir þjóðgarðs-
vörður. Byggingin nýja
er á innfelldu myndinni.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Heyra mátti saumnál detta á lok-
uðum fundi ESA, eftirlitsstofnunar
EFTA, með íslenskum embættis-
mönnum á Hótel Nordica í gær þegar
Össur Skarphéðinsson hellti sér yfir
Per Sanderud, forseta ESA. Tilefnið
var almenn ummæli Sanderuds um
Icesave-deiluna en Össur lagði þau út
á þann veg að í þeim fælust þeir for-
dómar að Íslendingar hefðu ekki
áhuga á að greiða kröfuna.
Sanderud brást hart við og líkti
Össuri við lítið, íslenskt eldfjall. Össur
hjó í sama knérunn strax eftir fund-
inn þegar hann fór hörðum orðum um
Sanderud í viðtali við blaðamann Aft-
enposten og sakaði forseta ESA um
að haga sér með óviðeigandi hætti í
ljósi aðkomu sinnar að málinu. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins er
málið litið alvarlegum augum hjá
ESA en hlutverk þess er að hafa eft-
irlit með því að farið sé að lögum og
reglum EES-samningsins, sem Ís-
lendingar eiga aðild að. Með ummæl-
um sínum sé Össur að saka stofn-
unina um að hafa tekið fyrirfram
afstöðu í málinu en frestur íslenskra
stjórnvalda til að svara ESA formlega
vegna málsins, sem gæti endað fyrir
EFTA-dómstólnum, rennur út 26. júlí
í sumar.
Spurður um málsmeðferðina
sagði Sanderud í viðtali við Morgun-
blaðið að ef íslensk stjórnvöld leggi
fram ný sjónarmið um greiðsluskyldu
vegna Icesave í umræddu bréfi sem
kalli á svar muni ESA færa rök fyrir
afstöðu sinni í öðru bréfi sem íslensk
stjórnvöld hafi þá tvo mánuði til að
svara.
Sökum þess að hluti starfsmanna
í Brussel sé í fríi í ágúst sé ekki hægt
að reikna með að sú röksemdafærsla
berist íslenskum stjórnvöldum í mán-
uðinum. Fremur beri að horfa til
september en stjórnvöld hafa þá á ný
tvo mánuði til að svara. Telji ESA
svörin ekki sannfærandi rök gegn
greiðsluskyldu fer málið fyrir EFTA-
dómstólinn og telur Sanderud ómögu-
legt að segja fyrir um hvenær það
yrði þótt greina megi að horft sé til
næsta árs í því efni.
Sanderud ítrekar að ef Íslend-
ingar nái samkomulagi við Breta og
Hollendinga um greiðslu kröfunnar
áður en lokafresturinn rennur út í
haust muni málið að sjálfsögðu ekki
fara til dómstólsins.
Líkti Össuri við eldfjall
Össur
Skarphéðinsson
Per
Sanderud
Harðar deilur á fundi ESA og íslenskra embættismanna
Til harðra orða-
skipta kom milli
Guðlaugs Þórs
Þórðarsonar,
þingmanns Sjálf-
stæðisflokksins,
og Pers Sand-
eruds, forseta
ESA, á fundi
stofnunarinnar
með íslenskum
embættismönnum
í gær. Þeir þrættu meðal annars um
ríkisábyrgð Íslands á Icesave og neyð-
arlögin sem voru sett í kjölfar hruns.
Guðlaugur segir að forsetinn hafi ekki
virst þekkja vel til Icesave-deilunnar
og ekki fært góð rök fyrir afstöðu sinni
til neyðarlaganna.
Guðlaugur segir afstöðu Sanderuds
slæmar fréttir. „Mér finnst það
áhyggjuefni að sjá hver nálgunin er
hjá þetta valdamiklum manni. Og það
var ekki eins og hann gæti fært sterk
rök fyrir sínu máli, þvert á móti virtist
hann ekki hafa vel ígrundaða skoðun á
þessu deilumáli okkar. Þetta er nú
stofnun sem við eigum aðild að og það
er afskaplega mikilvægt að hún fari
vel og ígrundað yfir svona mál sem
varða okkar hagsmuni.“
Óttast af-
stöðu ESA
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Morgunblaðið/Sigurður Bogi