Morgunblaðið - 25.06.2010, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 25.06.2010, Qupperneq 29
Minningar 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2010 í raun aldrei verið til! Viðkoma í Ketbúðinni Borg skylda, sviðak- jammi, þorrabakki eða annað þjóð- legt. Lakkrís í Iðunnarapóteki. Þá gat leiðin allt eins legið í Kirkju- lista- eða Lífstykkjabúðina, nú eða Hattabúð Reykjavíkur að ræða hattsaum og annað kruðerí sem hver maður þarf að kunna skil á. Ferðir víða um land til að halda námskeið eða rannsaka mál gáfu færi á endalausum pælingum. Þró- un „geðsjárinnar“ var langt komin og hefði sennilega valdið heims- byltingu ef prósjektið hefði verið markaðsett. Tengsl mánans við sálina voru prófuð í þaula með ströngustu aðferðum, aflagðar tunglsýkiskenningar öðluðust nýtt líf. Þegar ég nú kveð Sæmund Haf- steinsson er ég þess meðvitaður að með honum kveð ég allt í senn ein- stakan samferðamann, óvenju fjöl- hæfan og hæfileikaríkan kollega með glæstan feril, vinnufélaga og mér kæran vin sem hafði áhrif á líf mitt og starf. Missir þess fólks sem honum stendur næst er mikill, Auðar og barnanna, Ragnheiðar, Braga og Tryggva. Skyldmennum og samstarfsmönnum samhryggist ég. Ég veit af reynslu að líf Sæ- mundar og starf einkenndist af því að efla og styrkja. Það mun minn- ing um hann einnig gera. Guðjón Bjarnason. Bekkjarbróðir okkar og vinur, Sæmundur Hafsteinsson, er allur. Skæður sjúkdómur lagði hann að velli á aðeins nokkrum mánuðum. Það var erfið glíma og ójafn leikur. Það er mikils virði að eignast góða bekkjarfélaga og sú var gæfa okkar fimmtán stráka í Q-bekkn- um sem útskrifuðumst frá MR vorið 1975. Við vorum minnsti bekkurinn en sá skemmtilegasti að eigin áliti. Við höfum stundum sagt að fyrstu dagarnir í 5. bekk hafi ekki lofað góðu, við þekktumst margir lítið og virtumst ólíkir. Þeim mun skemmtilegri varð bekkurinn. Sæmundur lýsti okkur eitt sinn á þá leið að við hefðum verið hjart- fólgnir skólabræður úr Q-deildinni sem hefði verið lokuð deild. Það var rétt hjá honum, þetta var lok- uð deild sem stóð þétt saman í blíðu og stríðu – ekki síst þegar við töldum réttlætinu ekki full- nægt. Það var eitthvað í fasi Sæma sem varð til þess að hann fékk at- hygli án þess að sækjast eftir henni. Hann var utan af landi, frá Siglufirði, og leigði í bænum. Hann var sjálfstæður; stundaði sjó- mennsku á sumrin og vakti athygli okkar fyrir að vera vel lesinn í bókmenntum. Hann var hægur, ró- legur en beinskeyttur. Hann talaði yfirvegað en tæpitungulaust og kímnin fólst í að skjóta inn meitl- uðum setningum á réttum stað. Það verður seint sagt um Sæma að hann hafi verið stundvís á morgnana í menntó. Augnaráð Jóns Gúm, þegar hann hélt á kladdanum og leit á autt sætið í horninu, bar þess merki. En Jón vissi sem var, að það liðu ekki margar mínútur þangað til dyrnar yrðu opnaðar og sest í sætið. Þegar stúdentatal MR 1975, Fauna, var endurútgefið fyrir tíu árum, skrifaði Sæmi m.a. á þessa leið um eftirminnileg atvik úr skól- anum: „Dásamlegar löngufrímínút- ur á veitingastaðnum „Prikinu“ yf- ir kaffibolla og sandköku – og innan um fjölbreytileika mannlífs- ins eins og hann gerist skrautleg- astur.“ Fjölbreytilegt mannlíf varð hans vettvangur í lífinu. Eftir stúdents- próf fór hann í sálfræði, þar fann hann sína fjöl og varð einn kunn- asti sálfræðingur landsins. Þegar við tíu félagar úr Q- bekknum heimsóttum Sæma á líknardeild Landspítalans í Kópa- vogi fyrir rúmum hálfum mánuði ræddum við gamla góða daga úr skólanum, ógleymanlega kennara og hvað við brölluðum saman á þessum árum. Það var mjög af Sæma dregið; hann hlustaði og hló; og spjallaði eftir bestu getu. Við kvöddum hann og teknar voru myndir af hópnum – næstum upp á dag 35 árum eftir að við veif- uðum stúdentshúfum í Lækjar- götunni á leið út í lífið. Það er komið að skilnaðar- stundu. Hugur okkar er hjá Auði og börnunum. Mikið er á hana lagt; hún missti föður sinn, séra Braga Friðriksson, fáeinum vik- um áður en Sæmi sofnaði svefn- inum langa. Við vottum henni og öðrum vandamönnum samúð okk- ar og kveðjum kæran skólabróð- ur. Fyrir hönd bekkjarbræðra í 6-Q 1975, Jón G. Hauksson. Í dag kveð ég Sæmund Haf- steinsson sálfræðing, sem var í senn samstarfsfélagi og besti vin- ur minn í þrjátíu ár. Leiðir okkar lágu fyrst saman í Háskóla Ís- lands, þar sem við lögðum báðir stund á nám í sálfræði. Við náðum strax vel saman, þó að við værum að mörgu leyti ólíkir. Við áttuðum okkur fljótlega á því að við höfð- um mjög svipaða sýn á lífið og til- veruna. Að loknu BA-námi héld- um við hvor í sína áttina til að læra meira, þroskast og víkka sjóndeildarhringinn. Sæmundur greindist með illvígan sjúkdóm í kringum síðustu verslunarmanna- helgi og ljóst var frá upphafi að um ójafnan leik var að ræða. Þeg- ar ég spurði Sæmund hvernig það væri að takast á við þessi válegu tíðindi komst hann strax að kjarna málsins og svaraði á bein- skeyttan hátt en því fylgdi einnig æðruleysi: „Mér finnst þetta skítt, en þetta er bara svona“. Samstarf okkar hefur alla tíð ver- ið afar farsælt og aldrei hefur borið skugga á okkar vináttu. Við héldum hundruð námskeiða um margra ára skeið um flest sem lýtur að mannlegum samskiptum, sjálfstrausti, uppeldi og fjöl- skyldumálum. Við þekktum okkar mörk, bár- um ómælda virðingu fyrir hvor öðrum og vissum að við þurftum á hvor öðrum að halda. Við skrif- uðum nokkrar bækur saman og ég man hversu stoltur hann var þegar þær komu út og hversu vel þeim var tekið. „Erum við búnir að slá sölumet?“ var gjarnan spurning sem ég fékk frá vini mínum og gladdist hann mikið þegar vel gekk og háleitum mark- miðum var náð. Lífsviðhorf Sæmundar ættu að vera mörgum til eftirbreytni. Hann trúði því að kærleikurinn væri hið æðsta takmark. Það væri sama hvert ferðinni væri heitið eða hvert við værum að stefna þá væri lífið innihaldslaust án kær- leika. Sæmundur var í eðli sínu hógvær og laus við alla frama- girni, en allir sem áttu þess kost að starfa með Sæmundi áttuðu sig fljótt á því hversu eldklár hann var og hversu fljótur hann var að átta sig á kjarna málsins. Sæmundur hafði einstaklega góða nærveru, var hlýr og vin- samlegur við alla og ég man ekki eftir því að hafa heyrt hann hall- mæla nokkrum manni. Honum varð oft tíðrætt um gamlar og góðar dyggðir eins og hógværð, auðmýkt, glaðværð, nægjusemi, samviskusemi og heiðarleika. Satt best að segja finnst mér að þær hafi allar átt við hann og hann náði því sem kannski fæst- um okkar tekst, að lifa eftir þeim. Umfram allt var Sæmundur vinur minn þó einstaklega já- kvæður persónuleiki, enda sagði hann gjarnan að jákvæðni væri alltaf skemmtilegri og þægilegri valkostur en neikvæðni. Fjölskyldan var Sæmundi afar hugleikin og var hann afar ham- ingjusamur með Auði sinni, sem staðið hefur eins og klettur við bakið á honum í hans veikindum. Sömu sögu má segja um börnin þrjú, Braga, Ragnheiði og Tryggva sem hafa umlukið föður sinn ást og umhyggju í veikindum hans. Lífið gefur og lífið tekur. Ég kveð vin minn Sæmund með þakk- læti fyrir allt og allt. Þín verður sárt saknað. Blessuð sé minning Sæmundar Hafsteinssonar. Jóhann Ingi Gunnarsson. Kveðja frá samstarfsfólki á Félagsþjónustunni í Hafnarfirði Minningar okkar um Sæmund eru sveipaðar gleði og þakklæti. Hann kom inn í líf okkar á Fé- lagsþjónustunni í Hafnarfirði snemma árs 2000 og tók við stjórnun stofnunarinnar eftir nokkurt erfiðleikatímabil hennar. Okkur grunar að það hafi ekki alltaf verið auðvelt en Sæmundi leysti það vel af hendi og var lagið að stjórna þannig að allir gengu sáttir frá borði. Með honum kom hressilegur blær og jákvæðni til starfsins og starfsmanna. Sæmundur var hár og mynd- arlegur maður. Hann bar sig vel og hafði mjög hlýja og góða nær- veru. Það var tekið eftir honum þegar hann gekk stórstígur eftir Strandgötunni í Hafnarfirði á leið sinni til fundar við stjórnendur bæjarins, þá gustaði af honum. Hann var elskulegur maður og mikill sáttasemjari. Ekkert var fjær Sæmundi en erjur manna á milli og óþarfa ergelsi. Hann leit- aðist við að leysa mál með öllum, sem að því komu og hlusta á öll sjónarmið og stjórnaði þannig fyr- ir opnum tjöldum. Hann sýndi starfsmönnum sínum traust í orði og verki og hélt sér í hæversk- legri fjarlægð. Sæmundur hafði ástúð á íslensku máli og lagði mikið upp úr fallega rituðum texta. Hann var mikið náttúru- barn og var hreykinn af að hafa alist upp í íslensku sjávarplássi. Hann var skemmtilegur maður, fróður og vel lesinn og hafði oft ljóð á hraðbergi og kunni þau mörg. Hann var mikill trúmaður þó hann flíkaði því ekki og er ekki að efa að það var honum styrkur á síðustu mánuðunum. Sæmundur hafði mikinn áhuga á þróun Félagsþjónustunnar og tók virkan þátt í því starfi með starfsmönnum sínum. Í skemmti- ferðum okkar var hann var hrók- ur alls fagnaðar og tók þátt af áhuga og gleði. Hann var söng- maður og hafði miklar mætur á meistara Megasi svo dæmi sé tek- ið. Hann lagði sannarlega sitt af mörkum til að efla samkennd okk- ar samstarfsmanna sinna. Sæmundur var ekki margmáll um einkahagi sína en þó leyndi sér ekki að fjölskyldan var honum mikils virði og hann var afskap- lega hreykinn af henni. Kom enda glöggt í ljós í veikindastríði Sæ- mundar að Auður og börnin þeirra þjöppuðu sér saman um hann og gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að létta honum byrð- arnar. Hugur okkar er nú hjá fjöl- skyldu Sæmundar, konu hans og börnum, öldruðum föður og öðrum aðstandendum hans á þessum erf- iða tíma og við biðjum þeim Guðs blessunar. Við kveðjum nú með söknuði vin og vinnufélaga í þakklæti fyrir tíu ára samvinnu og vináttu sem aldrei bar skugga á. Kolbrún Oddbergsdóttir og Guðríður Guðmundsdóttir. Með örfáum orðum langar mig fyrir hönd samtaka Vímulausrar æsku að minnast Sæmundar okk- ar sem lést langt fyrir aldur fram. Sæmundur var einn af burðar- ásunum í samtökunum því hann hafði með ótakmarkaðri vinnu sinni og eljusemi léð samtökunum starfskrafta sína í tæp 20 ár. Öll þau ár var hann mjög hliðhollur samtökunum og gott var að leita til hans með hvers konar hug- myndir sem upp komu. Fyrst var leitað til hans í kringum 1990 þeg- ar samtökin voru að færa út kví- arnar og kom hann að öflugum námskeiðum til handa foreldrum sem áttu börn í vanda eða vildu styrkja sjálfa sig í uppeldi barna sinna. Hann lagði mikla áherslu á foreldraþáttinn í öllu starfi hjá samtökunum en foreldrarnir eru grunnurinn að góðu uppeldi og að- búnaði barnanna. Sæmundur var formaður sam- takanna í nokkur ár og mótaði stefnu fyrir samtökin sem enn eru í gildi. Námskeið og efling ein- staklingsins skipti hann miklu máli og sett voru á laggirnar nám- skeið fyrir foreldra sem kölluð voru „öflugt sjálfstraust“ en með þeim námskeiðum vildi hann efla foreldra til að takast á við vanlíð- an þegar þau áttu ungling í neyslu. Unglingar og foreldrar þeirra voru honum afar hugleikin og liggja eftir hann ótal bækur og greinar þess efnis. Má til að mynda geta þess að bókinni „Lengi muna börnin“ var dreift inn á 30 þúsund heimili á sínum tíma. Sæmundur var einstaklega fag- legur í verki, traustur og stað- fastur. Einstaklega gott var að vinna með honum og þau verk sem hann tók sér fyrir hendur vann hann vel og faglega í alla staði. Samtökin leituðu mjög oft til hans og var hann ávallt boðinn og búinn til að veita ráð og leið- beiningar á sinn rólega og yf- irvegaða hátt. Eftir hann liggja mörg verk sem nýtist íslensku samfélagi áfram á sviði forvarna og barnauppeldis. Einstaklega góður maður er fallinn frá en minningin um störf hans og verk lifir áfram í samtökunum Vímu- lausri æsku. Ég vil fyrir hönd samtakanna og stjórnar Vímulausrar æsku votta aðstandendum hans alla samúð okkar og biðja guð um að veita þeim styrk á þessum erfiðu tímum. Fh. Vímulausrar æsku, Ólöf Ásta Farestveit, stjórnarformaður. Sæmundur Hafsteinsson, sál- fræðingur og forstöðumaður Fé- lagsþjónustunnar í Hafnarfirði er fallinn frá, langt um aldur fram. Þegar ég tók við formennsku í Fjölskylduráði Hafnarfjarðar, ár- ið 2002, tókst strax með okkur ágætt samstarf. Raunar hófust kynni okkar nokkrum árum áður, því Sæmundur var fenginn af yf- irvöldum til að meta hæfi okkar hjónanna til að ættleiða barn. Þá þegar áttaði ég mig á því hve fær Sæmundur var í sínu fagi, hve næmur hann var á fólk og hvern mann hann hafði að geyma. Sam- antektin sem hann lagði fram eftir nokkur samtöl, var bæði nákvæm og raunsönn. Sömu eiginleikar einkenndu störf hans hjá Fé- lagsþjónustunni. Hann var fljótur að átta sig á aðstæðum fólks og andlegu ástandi. Þar kom áralöng þjálfun vafalítið að gagni, en ekki síður óvenjulegt innsæi. Þessir eiginleikar gögnuðust Sæmundi vel í starfi hans sem sál- fræðingur, þar sem hann þurfti oft að setja sig inn í erfiðar að- stæður ókunnugs fólks á stuttum tíma og finna leiðir til að hjálpa því til að finna lausn á sínum vanda. Viðfangsefnin voru honum ekki vandamál, heldur leit að lausn. Fáum hef ég kynnst sem hafa haft jafn mikla hæfileika til að tala róandi til fólks í miklu ójafn- vægi, hvort sem um var að ræða hópa eða einstaklinga. Ég varð nokkrum sinnum vitni að því þegar Sæmundur var fenginn til að tala við hópa sem höfðu orðið fyrir áfalli, eða voru í uppnámi. Enn- fremur varð ég oftar en einu sinni vitni að samtölum við einstaklinga sem voru reiðir eða í mikilli geðs- hræringu. Á stuttum tíma tókst honum að róa viðkomandi niður og ná þannig sambandi við hann, að hægt var að ræða málin af yfirveg- un í framhaldinu. Þetta gat hann jafnvel gert símleiðis. Sá sem varð vitni að slíku samtali gat ekki ann- að en dáðst að hæfileikanum – án þess þó að geta skilgreint hvað það var nákvæmlega sem gerði það að verkum að viðkomandi ró- aðist. Hann einfaldlega varð róleg- ur af samskiptum við Sæmund. Sæmundur var farsæll í störfum sínum sem forstöðumaður Fé- lagsþjónustunnar í Hafnarfirði. Samskipti við hann voru áreynslu- laus og uppbyggileg og hann hafði jákvæð áhrif á umhverfið. Þau áhrif lifa áfram með þeim sem urðu þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að starfa með Sæmundi og læra af honum. Fjölskyldunni votta ég innilega samúð vegna fráfalls vandaðs og góðs drengs. Guðmundur Rúnar Árnason. Sæmundur Hafsteinsson, félagi okkar og vinur, er látinn eftir erfið veikindi. Sæmundur varð félagi í Samtökum félagsmálstjóra á Ís- landi fyrir rúmum 15 árum er hann réðst til starfa sem félags- málastjóri í Bessastaðahreppi, síð- ar Sveitarfélagið Álftanes. Árið 2000 var hann ráðinn félagsmála- stjóri í Hafnarfirði. Sæmundur sat í stjórn samtakanna árin 2005– 2009, er hann lét af stjórnarsetu að eigin ósk. Sæmundur var góður félagi, ráðagóður og einatt jákvæður í allri nálgun. Viðhorf hans mótuð- ust af virðingu, hvort sem var fyrir notendum félagslegrar þjónustu, samstarfsaðilum eða viðfangsefn- um. Ekki var hann hávær á fund- um okkar en orð hans höfðu því meira vægi, enda var hann vitur maður og menntur vel á okkar fagsviði; nam félagsráðgjöf fyrst og síðar sálarfræði og lét til sín taka á því sviði, stundaði ritstörf, hélt uppi námskeiðum og fræðslu og var nafntogaður leiðbeinandi áður en hann tók að sér manna- forráð og stjórnun innan fé- lagsþjónustunnar. Við félagar hans höfum vissu fyrir því að hann var farsæll í starfi sínu. Fráfall Sæ- mundar er mikill missir samstarfs- mönnum og okkur félögum hans. Við söknum vinar í stað. En mest- ur er þó missir konu hans og barna, sem missa nú nákominn öðru sinni á stuttum tíma, en tengdafaðir Sæmundar var til grafar borinn fyrir örfáum dögum. Við vottum Sæmundi virðingu, ást- vinum hans samúð okkar, sem og samstarfsfólki hans í Hafnarfirði. Við óskum og skjólstæðingum hans að annar jafngóður maður komi í manns stað þótt slíkur verði vandfundinn. F.h. Samtaka félagsmálastjóra á Íslandi, Gunnar M. Sandholt, formaður. ✝ Minningarathöfn um elskulegan son okkar og bróður, LÁRUS HRAFN KVARAN flugmann, sem lést á Kirchberg sjúkrahúsinu í Lúxemborg þann 5. júní, fer fram í Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 30. júní kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Ragnar G. Kvaran, Hrefna Lárusdóttir Kvaran, Anna Ragnhildur Kvaran og fjölskylda Lárusar í Lúxemborg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.