Fréttablaðið - 05.12.2011, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 05.12.2011, Blaðsíða 17
MÁNUDAGUR 5. desember 2011 17 Afgreiðslutími Virka daga 09:00 - 18:30 Laugardaga 10:00 - 14:00 Á almennum frídögum er lokað Sími 567 - 4200 Af því tilefni viljum við bjóða viðskiptavinum okkar dagana 5. - 10. desember 40 ára (1971 - 2011) af Guli línunni frá Heilsu af Solaray línunni frá Heilsu af Udo´s línunni frá Heilsu af vítamínum frá BIOMEGA af vítamínum frá Ein á dag *gildir 5. - 10. desember Á Íslandi líður flestum börn-um vel í grunnskólunum, en því miður gildir það ekki um þau öll. Við sem vinnum með börn- um vitum að það eru fjölmargir þættir sem orsaka vanlíðan barna og fullyrði ég að starfsfólk skólanna leggur sig ávallt fram við að finna lausnir á þeim vanda sem barnið glímir við. Einelti er einn þessara vanda. Hver skóli setur sér reglur sem m.a. er ætlað að koma í veg fyrir einelti/ ofbeldi og skapa góða samskipta- hætti innan hans og utan. Margt hefur áunnist sem skilað hefur góðum árangri. Þrátt fyrir góðan ásetning hefur ekki tekist að koma að öllu leyti í veg fyrir einelti. Óhjákvæmilega vekur það upp spurningu um hvað sé til ráða. Við henni er ekkert eitt svar en ljóst að margt vinnur saman. Virðing fyrir kennarastétt- inni og skólastarfi er eitt. Beri nemandi ekki virðingu fyrir kennara num og skólanum telur hann sig líklega ekki skuld- bundinn til að framfylgja þeim reglum sem skólinn setur. Það er vandi að gæta meðal- hófs. Fjölmiðlar miðla til lesenda sögum af því hvernig skólakerfið bregst nemendum og margir láta skoðun sína í ljós t.d. í umræðu á bloggi og öðrum fjölmiðlum. Þeir eru ekki margir sem lýsa yfir stuðningi við skólana og það sem þar er verið að vinna, enda erfitt þar sem báðar hliðar málsins eru sjaldan sagðar. Við heyrum ljótar sögur af einelti sem nemend ur verða fyrir. En sumar sögurnar segja okkur ekkert um það sem þegar hefur verið unnið í máli hvers einstaklings, né hvað liggur á bak við þann þagnarmúr sem opinberum starfsmönnum ber að hafa í heiðri. Ég veit að kennarar reyna ávallt að gera sitt besta til að öllum nemendum líði vel í skól- an um. Og þjóðin þarf að trúa því að með þeim úrræðum sem skól- unum bjóðast er hagur nemand- ans ávallt hafður að leiðarljósi. Í sálarnær- veru er háttvísin hál Saga íslensku krónunnar er ekki löng og segja má að hrakfalla- saga hennar hefjist strax í upp- hafi. Gjaldeyrishöft eru sett á 1931, þau hert árið 1947 og ekki losuð að fullu fyrr en árið 2001. Gengið er fellt um 18% árið 1939 og fellt aftur um tæp 43% árið 1950. Tekið var upp 55% yfir- færslugjald (tvöföld gengis- skráning) árið 1956, gengið fellt um 57% 1960 og aftur um 35% árið 1967. Það sígur frekar á 9. áratug síðustu aldar auk gengis- fellinga 1992 um 6,0% og 1993 um 7,5%. Þá féll krónan einnig mikið við fall bankanna. Miðað við dönsku krónuna eru um 0,5% eftir af upphaflegu verðmæti hennar. Segja má að krónan sé nú stúf- ar við hækjur í formi gjaldeyris- hafta og slíkt gangverk er ekki gott til framtíðar. Líklegt er að notkun krónunnar muni kalla á áframhaldandi gjald- eyrishöft því verja verður hana, m.a. gegn vaxtamuna viðskiptum (e. carry trade). Á móti höfum við sveigjanleika til að fella gengið eftir þörfum (miðað við reynslu síðustu aldar eru frekar litlar líkur á styrkingu krónunnar). En er ekkert annað í stöðunni? 1. Komið hafa fram tillögur um að setja krónuna á gullfót, en í ljósi mikillar hækkunar á gulli síðasta áratug er það ekki fýsilegur kostur. 2. Rætt hefur verið um að taka einhliða upp aðra mynt. Í því myndi felast að bankarnir en ekki stjórnvöld stýra peninga- magni í umferð og þar með einnig atvinnustigi. Benda má á Panama sem dæmi en þar hefur US$ verið gjaldmiðill frá 1913 og eru utanríkis viðskipti að mestu í þeim gjaldmiðli. Verð- bólga hefur verið þar lág, yfir- leitt á bilinu 1-3% að árinu 2008 undanskildu en þá fór verðbólga í 8,8%, sem er met. Atvinnu- leysi þar síðasta áratug hefur sveiflast á milli 6% og 16%. Vaxtakostnaður myndi lækka verulega og fylgja þeirri mynt sem tekin yrði upp. 3. Upptaka evru virðist skynsam- leg í ljósi utanríkisviðskipta okkar, en rúm 70% útflutnings fara til Evrópu og rúm 56% inn- flutnings koma þaðan. Kostir og gallar við einhliða upptöku færu eftir lið 2 hér á undan, en ESB hefur lýst sig andsnúið ein- hliða upptöku. Ef við göngum í Evrópu- sambandið gætum við haft möguleika á því að taka upp evru eftir ákveðinn tíma. Það yrði líklega betri kostur en einhliða upptaka. Það felast ákveðin tækifæri í upptöku annarrar myntar en einnig ógnanir. Er ekki ástæða til að skoða ýtarlega hvað í þessu felst eins og Benedikt Jóhannesson lagði til í grein í Fréttablaðinu hinn 17. nóvember sl. Vegna utanríkisviðskipta er upptaka evru augljósasti kostur- inn sem myndi líklega einnig leiða til agaðri vinnubragða við efna- hagsstjórnun og meiri stöðug- leika. Með þetta í huga eru áfram- haldandi viðræður við ESB skynsam legar. Með framsýni, kjarki og áræðni ættum við að geta fundið tækifæri framtíðar- innar og nýtt þau. Höldum áfram viðræðum um ESB-aðild Evrópumál Finnur Torfi Magnússon verkfræðingur Menntun Þorgerður Laufey Diðriksdóttir Formaður Kennarafélags Reykjavíkur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.