Fréttablaðið - 05.12.2011, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 05.12.2011, Blaðsíða 18
5. desember 2011 MÁNUDAGUR18 Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Svanhildur Sæmundsdóttir, áður til heimilis í Brekkugötu 23 Akureyri, lést á dvalarheimilinu Hlíð 27. nóvember. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudag- inn 8. desember kl.13.30. Sæmundur Friðfinnsson Svala Sigurðardóttir Jónína Þórey Friðfinnsdóttir Ívar Herbertsson ömmu og langömmubörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurgeir Ingvarsson, Geiri í Múla, fyrrverandi kaupmaður, Selfossi. andaðist á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum mánu- daginn 28. nóvember, og verður hann jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 10. desember klukkan 13.30 Guðmundur Birnir Sigurgeirsson Ágústa Traustadóttir Pálmar Sölvi Sigurgeirsson Valgerður K. Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og bróðir, Jón Jósefsson flugvirki Markarflöt 10, Garðabæ verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 7. desember kl. 13.00. Kristín Gísladóttir Brynja Hrönn Jónsdóttir Hildur Edda Jónsdóttir Bragi Smith Sverrir Már Jónsson Gunnar Hrafn Jónsson Helgi Hrannar og Brynjar Orri Anna Guðrún Jósefsdóttir Sesselja Ingibjörg Jósefsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Magnús Gunnlaugsson frá Súðavík sem lést mánudaginn 28. nóvember, verður jarðsung- inn frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 7. desember klukkan 13. Ólöf Steinunn Einarsdóttir, Gunnlaugur Magnússon Valdís Jóna Sveinbjörnsdóttir Helgi Grétar Magnússon Svanhvít Magnúsdóttir Ægir Magnússon Anna Bragadóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg eiginkona mín, móðir okk- ar,tengdamóðir,amma og langamma Þorgerður Magnúsdóttir Mýrarvegi 113, lést á Dvalarheimilinu Hlíð 29.nóvember. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 9.desember kl:13:30 Þeir sem vildur minnast hennar er bent á Dvalarheimilið Hlíð Akureyri Ingólfur Sigurðsson Elinborg Ingólfsdóttir Magnús Þórðarson Magnús Ingólfsson Sólveig Erlendsdóttir Ragnhildur Ingólfsdóttir Samúel Jóhannsson Þórdís Ingólfsdóttir Sölvi Ingólfsson Guðrún Jónsdóttir Barnabörn og barnabarnabörn timamot@frettabladid.is WALT DISNEY (1901-1966) fæddist þennan dag. „Hlátur er mikilvægasta útflutningsvara Bandaríkjamanna.“ Band on the Run, þriðja plata hljómsveitarinnar Wings, kom út 5. desember 1973. Wings var hljómsveit Pauls McCartney og konu hans Lindu en platan hlaut dræmar viðtökur til að byrja með. Það átti þó eftir að breytast þegar kom fram nýja árið og varð Band on the Run mest selda platan í Bretlandi og Ástralíu árið 1974. Platan seldist best af öllum plötum Wings og hefur síðan verið talin besta plata McCartneys eftir að samstarfi Bítlanna lauk. Árið 2000 setti tímaritið Q Band on the Run í 75. sæti á lista yfir 100 bestu plötur sem gefnar hefðu verið út í Bretlandi frá upphafi vega. Og árið 2003 var platan valin í 418. sæti á lista tímaritsins Rolling Stone yfir 500 bestu plötur allra tíma. Gagnrýnandi Rolling Stone, Jon Landau, sagði þegar Band on the Run kom út að þetta væri „besta platan sem nokkur meðlimur Beatles hefði gefið út eftir að sú hljómsveit lagði upp laupana“. ÞETTA GERÐIST 5. DESEMBER 1973 Band on the Run kemur út Fyrir tæplega tveimur árum, um ára- mótin 2009/2010, tók ég þá ákvörðun að útbúa áramóta- og þrettándadisk,“ segir Sigríður Anna Einarsdóttir, sem nú hefur gert alvöru úr ákvörðuninni og er útgefandi tveggja diska af ára- móta- og þrettándagleði sem koma út á næstu dögum. „Um áramót og þrettánda hafði ég svo oft hugsað um hvað mig langaði að hlusta á meiri tónlist sem tengdist þessum árstíma. Mig langaði að fylla heimili mitt af meiri stemningu,“ heldur Sigríður Anna áfram. „Einnig hef ég tekið eftir að þessi menningar- arfur okkar á undir högg að sækja Því það eru svo margir aðrir menningar- heimar sem berjast um athygli fólks. Þetta hefur mér fundist leitt. Ég var alltaf að vona að það kæmu diskar á markaðinn sem uppfylltu löngun mína en svo varð ekki. Svo hugsaði ég með mér að fyrst mig langaði þetta svona mikið þá bara yrði ég að gera þetta sjálf og löngunin var það sterk að ég lét til skarar skríða.“ Sigríður Anna segist ekki hafa gert sér neina grein fyrir því hversu stórt verkefni hún var að ráðast í. „Til að gera langa sögu stutta bættist alltaf við meira og meira efni sem mér fannst mikilvægt að taka með og sem snýr að okkar menningar- og þjóðararfi. Auk þess skipti það mig miklu máli að fá gott fólk í lið með mér. Það var töluvert átak að ráðast í það að hafa samband við listafólkið og biðja það um að koma fram á diskunum upp á von og óvon með greiðslur. En það tóku mér allir mjög vel og voru boðnir og búnir að koma að þessu með mér. Fékk ég nokkra kóra, einsöngvara, leikara, leikritaskáld, organista, trompetleikara og fleiri til þess láta draum minn verða að veru- leika og það kom mér á óvart hversu tilbúnir allir þessir listamenn voru til að taka þátt í þessu verkefni. Ég er mjög gæfusöm að hafa fengið að vinna með öllu þessu góða fólki og verð því ævin- lega þakklát,“ segir Sigríður Anna. Diskarnir innihalda ekki einvörð- ungu tónlist því leikararnir Hjalti Rögnvaldsson og Ragnheiður K. Steindórs dóttir lesa ljóð og þjóðsögur sem tengjast þessum árstíma og einn- ig er á diskunum leikþáttur sem Jón J. Hjartarson samdi sérstaklega af þessu tilefni. Meðal annarra sem fram koma á diskunum eru Kór Neskirkju, Lúðra- sveitin Svanur, Kór Áskirkju og nem- endur úr Söngskóla Sigurðar Demetz. Einsöngvarar eru Snorri Wiium, Guð- björg K. Tryggvadóttir, Aðalsteinn M. Ólafsson og Berglind Ósk Alfreðsdóttir. Auk þess koma fram fleiri hljóðfæra- leikarar og kórar. Einnig kemur Árni Björnsson, doktor í menningarsögu, við sögu. Upptökur, fyrir utan lögin með Lúðrasveitinni Svani og Árneskórnum, fóru fram árið 2011 í Guðríðarkirkju, Neskirkju og stúdíói Hljómi og hljóð- maður var Páll Orri Pétursson. „Þetta er búið að vera gífurleg vinna,“ segir Sigríður Anna, „en ég sé sko alls ekki eftir því að hafa látið þennan draum minn rætast. Ég veit ekki til þess að gefinn hafi verið út svona diskur með efni sem eingöngu tengist áramótum og þrettánda og ég vona að diskarnir eigi eftir að gleðja landann ekki síður en mig sjálfa.“ fridrikab@frettabladid.is SIGRÍÐUR ANNA EINARSDÓTTIR: GEFUR ÚT GEISLADISKA MEÐ ÁRAMÓTAEFNI Varð að uppfylla drauminn sjálf GEFUR ÚT GEISLADISK Sigríður Anna Einarsdóttir lét draum sinn rætast og hefur gefið út Áramóta- og þrettándagleði á tveimur geisladiskum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Eiginmaður minn og faðir okkar, Ingi Sigurður Erlendsson, Mælingamaður, Hrauntungu 30, Kópavogi lést miðvikudaginn 30. nóvember á Landspítalanum við Hringbraut. Rannveig Gísladóttir Guðmundur Ingason Örn Erlendur Ingason Haukur Ingason Sólborg Erla Ingadóttir Þórdís Ingadóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.