Morgunblaðið - 14.08.2010, Side 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2010
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Þrátt fyrir rólega byrjun er útlit
fyrir gott ferðasumar á Vest-
fjörðum. Margir ferðamenn hafa
lagt leið sína þangað í júlí og ágúst.
Útlit er fyrir að sumarið í heild slagi
upp í síðasta ár þegar mikil aukning
varð.
„Sumarið er prýðilegt eftir frekar
rólega byrjun,“ segir Heimir Hans-
son, forstöðumaður upplýsinga-
miðstöðvar ferðamála á Ísafirði.
Hann segist ekki vita hvað valdi
samdrætti í maí og júní en nefnir að
margir kenni úrslitakeppni heims-
meistaramótsins í knattspyrnu um.
Elías Oddsson, framkvæmdastjóri
Vesturferða, segir að mikið hafi
hægt á bókunum í vor og tengir það
helst við áhrif öskunnar úr Eyja-
fjallajökli en tekur fram að þeir hóp-
ar sem átt hafi bókað hafi skilað sér
vel.
Stöðug aukning er í gönguferðir
um Hornstrandafriðland og ferðir á
Hesteyri og í Vigur, að sögn Elíasar.
Þá hefur mikið verið að gera við
þjónustu ferðafólks skemmti-
ferðaskipanna.
Samgöngubætur skila sér
Íslendingar áttu drjúgan þátt í
þeirri miklu aukningu sem varð á
ferðmennskunni á Vestfjörðum á
síðasta ári. Sú þróun hefur haldið
áfram og segir Heimir að innlendir
ferðamenn hafi verið áberandi í
sumar. Elías segir að veðrið ráði
alltaf miklu um ferðir Íslendinga og
segir að Vestfirðingar hafi ekki
þurft að kvarta undan því.
Eftir að vegurinn um Arnkötludal
var tekinn í notkun er hægt að aka
frá Reykjavík til Ísafjarðar á mal-
bikuðum vegi og raunar alveg til
Þingeyrar. Það telja ferðaþjónar að
hafi leitt til þess að fleiri Íslendingar
hafi ákveðið að sækja Vestfirði heim
en oft áður. Sigurður Atlason, fram-
kvæmdastjóri Galdrasetursins, seg-
ir að þessi þróun sjáist hvað greini-
legast í sjoppunni og kaupfélaginu á
Hólmavík. Þá segir hann dæmi um
að fólk tjaldi á Hólmavík og fari í
dagsferðir til Ísafjarðar. Slíkt hafi
ekki þekkst áður fyrr.
Sumarið verður gjöfult fyrir
ferðaþjóna að mati Sigurðar. Sama
hljóð er í Birnu Mjöll Atladóttur í
Breiðavík við Látrabjarg. Þangað
koma mikið erlendir ferðahópar og
segir Birna að allar bókanir hafi
staðist.
Sigurður Atlason er jafnframt
formaður Ferðamálasamtaka Vest-
fjarða og hvetur ferðaþjóna eindreg-
ið til að halda opnu fram yfir miðjan
september. Hann segir að það hafi
valdið vandræðum í fyrra hvað
margir lokuðu snemma. „Ég vona að
menn standi sig betur núna. Öðru-
vísi lengjum við ekki ferðamanna-
tímann,“ segir hann.
Margir fara vestur
Margir hafa ferðast um Vestfirði eftir rólega byrjun
Aukning er í ferðum um Djúp og Hornstrandir
Morgunblaðið/Ómar
Á Látrabjargi Náttúran dregur marga til Vestfjarða. Hornstrandir og Látrabjarg eru vinsælir viðkomustaðir.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, hefur sent forseta Kína,
Hu Jintao, samúðarkveðjur vegna
náttúruhamfaranna sem orðið hafa
í Kína að undanförnu. Á annað þús-
und manns hafa látist og mikill
fjöldi misst heimili sín enda er eyði-
legging þorpa og byggða gífurleg.
Þá hefur forseti Íslands einnig
sent forseta Pakistans, Asif Ali Zar-
dari, samúðarkveðjur vegna hinna
hrikalegu flóða sem valdið hafa
gríðarlegu tjóni í landinu. Margar
milljónir berjast nú við afleiðingar
flóðanna, manntjón hefur verið
mikið og hætta hefur skapast á út-
breiðslu sjúkdóma, segir í frétt frá
forsetaembættinu.
Samúðarkveðjur til
Kína og Pakistans
Melskurður er hafinn á land-
græðslusvæðinu í Þorlákshöfn. Til
uppgræðslu var melgresi sáð í
sandinn og fyrir tveimur árum var
hænsnaskítur borinn á svæðið. Mel-
gresið er nú farið að skila mikilli
uppskeru af góðu melfræi, segir á
vef Landgræðslunnar.
Í vikunni voru sex vélar frá
Landgræðslunni í melskurði í Þor-
lákshöfn. Að uppskeru í Þorláks-
höfn lokinni verða vélarnar sendar
í Landeyjarnar og á Mýrdalssand.
Það er mikilvægt fyrir Landgræðsl-
una að fá fræ af melgresi til áfram-
haldandi landgræðslustarfa. Það er
mikið notað í uppgræðslu á erfiðum
sandsvæðum svo sem við Bakka-
fjöru.
Mikil uppskera af góðu melfræi
Morgunblaðið/G.Rúnar
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
Verðhrun
60-80% afsláttur
af öllum vörum
www.gisting.dk/gisting.html
sími: 499 20 40 (Íslenskt símanúmer)
Ódýr gisting í Kaupmannahöfn
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 1200
Bók sem gerir gagn
Pöntunarsími: 555 3620
SEINASTA ÚTSÖLUVIKA
ALLT AÐ 70% AFSLÁTTUR
NÝJAR VÖRUR STREYMA INN
Skoðið sýnishorn á laxdal.is
Laugavegi 63 • S: 551 4422