Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 14.08.2010, Side 11

Morgunblaðið - 14.08.2010, Side 11
átta sinnum þar áður en hún fór ofan í. Ingibjörg skráði höggin samvisku- samlega í skorkortið og endaði ég með 62 stig sem telst nú ekki gott en ágætt hjá algjörum byrjenda. Ég kenndi umhverfi minigolfvallarins um þessa lélegu stigatölu, ég var svo hrifin af öllu sjóræningjadótinu að það truflaði einbeitinguna. Hvað sem líður öllum stigatölum var þetta stór- skemmtilegt sjóræningjaævintýri. Fangelsi Þeir sem standa sig ekki eru settir í steininn. Blaðamaður var lélegur, endaði með of mörg högg. Nánari upplýsingar um mini- golfið og aðra afþreyingu sem Skemmtigarðurinn í Grafarvogi býður upp á má finna á vefsíðunni: www.skemmtigardur.is MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2010 Daglegt líf 11 „Í dag er ég að fara flytja í nýja íbúð í Þingholtunum með Hjalta kærastanum mínum,“ segir Bryndís Eiríksdóttir, hagfræðingur og starfs- maður Landsbankans. „Síðustu daga hef ég verið að fara í gegnum gamalt dót og pakka niður í kassa. Það er ótrúlegt hvað maður hefur safnað að sér miklu dóti síðustu ár. Ég verð nú samt að viðurkenna að það hefur verið lúmskt gaman að fara í gegnum allt þetta gamla dót,“ segir Bryndís og bætir við að fataskápurinn hafi meðal annars verið tekinn í gegn og með hjálp Hjalta hafi henni tekist að losa sig við föt sem hún hafi aldrei notað og komi eflaust aldrei til með að nota. „Hugsunin mín „kannski mun ég einhvern tíma nota þetta“ er allt of sterk. Uppáhaldshluturinn okkar, sem mun njóta sín vel í íbúðinni, er gamall antík sófi sem við fundum í gömlu eyðibýli í Hrútafirði. Hann hefur ekki fengið að njóta sín hing- að til þar sem hann þurfti smá- lagfæringar og hreinsun.“ Bryndís mun ekki einungis standa í ströngu í dag því hún stefnir á að verðlauna sig að verki loknu með góðum mat í góðra vina hópi. „Dagurinn mun svo enda á kvöldmat og partíi með hagfræð- ingum framtíðarinnar þar sem verð- ur farið yfir ástæður efnahags- hrunsins á Íslandi. Reyndar er nú laugardagskvöld og ef ég þekki þennan hóp rétt verða umræðuefnin eflaust á léttu nótunum og kvöldið mun án efa enda á góðri dans- sveiflu í miðbæ Reykjavíkur.“ Hvað ætlar þú að gera í dag? Ljósmynd/Hjalti Sigfússon Stússast Bryndís Eiríksdóttir stendur í flutningum og hittir góða vini í dag. Flutningar og vinahittingur Bryndís Eiríksdóttir Talið er að fyrsti minigolfvöllur í heimi sé Ladies Putting Club í St. Andrews í Skotlandi en hann var stofnaður 1867 og er enn opinn í dag. Það var Royal & Ancient-golfklúbburinn sem stofnaði hann þeg- ar konur fóru að sýna golfíþróttinni áhuga en viðhorfið á þeim tíma var að hinn hefðbundni golfleikur væri ekki hentugur fyrir konur. Nokkrum áratugum síðar var það orðið algengt að amerísk og bresk hótel byðu upp á minigolf fyrir gesti sína. Minigolfvellir eins og þeir eru í dag, með gervigrasi, fóru að sjást í upphafi síðustu ald- ar. Minigolfið kom til Svíþjóðar fyrsta lands á Norðurlöndunum árið 1931, um svipað leyti var fyrsta opinbera minigolfmótið haldið. Þróað fyrir konur MINIGOLF FRÍTT Í BÍLASTÆÐAHÚS! • VERSLANIR OPNAR TIL KL. 17:00 Í miðborginni okkar finnur þú bækurnar, námsgögnin, fatnaðinn, gleraugun, úrin og allt sem þú þarfnast fyrir haustið og veturinn. Njótum þess að versla, nærast og mærast saman í miðborginni okkar um helgina. Sjáumst! Hinn frábæri farandkvartett 3 raddir & Bítur skemmtir á Ingólfstorgi kl. 14:00 og heldur þaðan að Lækjartorgi, Hjartatorgi, Skólavörðustíg og Laugavegi til kl. 17:00 LANGUR LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.