Morgunblaðið - 14.08.2010, Page 33
Hún Auður frænka mín hefur kvatt
okkur. Minningarnar koma upp í hug-
ann, minningar um yndislega konu
sem alltaf stóð af sér öll áföll með
reisn og æðruleysi. Góða vinkonu sem
mátti treysta, hlustaði og tók þátt.
Þótt nokkur aldursmunur væri á okk-
ur skipti það ekki máli, við náðum vel
saman, hún var greind og fróð – og
svo hafði hún þennan dásamlega eig-
inleika að sjá alltaf spaugilegu hlið-
arnar á því sem bar á góma. Hlát-
urinn hennar, djúpur og smitandi,
gleymist aldrei – en allt var það
græskulaust, hún hafði alltaf hugfast
að „aðgát skal höfð í nærveru sálar“.
Þó hún hefði ákveðnar skoðanir á því
sem um var rætt og væri ekki alltaf
sammála þá dæmdi hún ekki. Hún var
náttúrubarn sem naut þess að vera
úti og gekk á fjöll meðan heilsan
leyfði. Hún fór allra sinna ferða fót-
gangandi eða á hjólinu sínu og eftir að
hún flutti á Grund fyrir nokkrum ár-
um fór hún út á hverjum degi hvernig
sem viðraði. Oft kom hún í kaffi með
okkur Áslaugu frænku okkar þegar
hún kom inn úr gönguferð, rjóð í
vöngum eftir vesturbæjargjóluna. Og
alltaf glöð.
Mikið dáðist ég að dugnaði hennar
þegar hún stóð ein með tvö lítil börn
þegar maðurinn hennar, hann Stein-
þór, fórst í hörmulegu slysi. Hún
bætti við sig menntun, keypti íbúð og
þar ól hún börnin sín upp, Sigurð og
Gerði. Sagði að hún hefði fengið mik-
inn stuðning frá foreldrum sínum –
brosti þessu fallega brosi og bætti við:
þetta gekk allt saman. Það var gott að
koma til hennar á hlýlega heimilið
hennar á Ljósvallagötunni. Hún,
sagði mér oft hve gott væri að vera á
Grund og hve starfsfólkið væri elsku-
legt. Ég skyldi sko flytja þangað þeg-
ar ég þyrfti á aðstoð að halda. Og
brosti.
Fyrir nokkrum árum var hún svo
óheppin að meiða sig, bjó þá um tíma
hjá Gerði systur sinni. Ég kom til
þeirra systra og það var svo fallegt að
sjá sambandið milli þeirra og vænt-
umþykjuna sem geislaði af þeim.
Fólkið hennar skipti hana miklu máli
og hún talaði oft um hve góð þau væru
við sig. Hún spurði um krakkana
mína sem hún hafði ekki séð í mörg
ár. Mundi hvað þau hétu og hvað þau
gerðu.
Við kveðjustund er mér efst í huga
þakklæti fyrir vináttu og elskusemi
hennar Auðar, minnar góðu frænku.
Börnunum hennar, þeim Sigurði og
Gerði og allri fjölskyldunni, sendi ég
innilegar samúðarkveðjur og kveð
kæra vinkonu með haustljóðinu hans
pabba míns, Jóns Jónssonar.
Haustfölva slær á hlíðarvangann
rjóða,
hjartsláttur dvín og liðin sumarganga.
Voðin er unnin, vafin upp í stranga.
Vefarinn hefur lokið sinni skyldu.
Næst mun sér annar nema þarna
spildu.
Guð blessi minningu góðrar konu.
Ásdís Jónsdóttir.
Minningar 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2010
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
sonar, stjúpsonar, föður, fósturföður, tengdaföður,
bróður og afa,
JAKOBS SMÁRA
prófessors í sálfræði.
Guðbjörg Gústafsdóttir,
Bergþór Smári, Anna Júlíusdóttir,
Örlygur Smári, Svava Gunnarsdóttir,
Bergþór Smári,
Unnur Jakobsdóttir Smári, Friðrik Magnus,
Andri Valur Sigurðsson, Tinna Dögg Guðlaugsdóttir,
Erla Bergþórsdóttir Smári, Thomas Mathiesen,
Júlíus Smári, Bryndís Kristjánsdóttir,
Malín, Gunnar Berg, Jakob Þór, Heba, Hrönn,
Tómas, Davíð, Sara Lind og Bryndís Ýr.
✝
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð,
hlýhug og vináttu við andlát og útför elskulegs
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
HREINS EYJÓLFSSONAR
vélstjóra,
Laugarnesvegi 87,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til Karitas hjúkrunarþjónustu, starfsfólks líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi og annarra starfsmanna Landspítalans fyrir
alúð þeirra við umönnunina í veikindum hans.
Jóhanna Hreinsdóttir, Benóní Torfi Eggertsson,
Steinþór Hreinsson, Elín Skarphéðinsdóttir,
Guðrún Hreinsdóttir,
Gestur Hreinsson, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir,
Hlynur Hreinsson, Erika Martins Carneiro,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur
samkennd, hlýhug og vináttu við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður,
afa, langafa og vinar okkar allra,
TRAUSTA EYJÓLFSSONAR.
Gréta Finnbogadóttir,
Þórunn Helga Traustadóttir, Stefán Már Halldórsson,
Gunnar Albert Traustason, Ásta Birna Stefánsdóttir,
Ólafur Árni Traustason, Auður Bergsteinsdóttir,
Jón Grétar Traustason, Ingunn Hera Ármannsdóttir,
Sesselja Traustadóttir, Kjartan Guðnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför elsku-
legrar eiginkonu, móður okkar, tengdamóður,
systur, ömmu og langömmu,
SIGRÍÐAR UNNAR KONRÁÐSDÓTTUR,
Diddu,
Langholtsvegi 142.
Sérstakar þakkir til Karitas hjúkrunarþjónustu,
Guðlaugar Helgu Ásgeirsdóttur prests, líknardeildar Landspítalans
í Kópavogi og öllu öðru starfsfólki líknardeildar fyrir alúð og góða
umönnun.
Ægir Vigfússon,
Viktor Ægisson, Guðrún Margrét Baldursdóttir,
Konráð Ægisson, Þórunn Björg Birgisdóttir,
Lúðvík Berg Ægisson, Guðrún Júlína Tómasdóttir,
Aldís Björk Ægisdóttir,
Guðlaug Konráðsdóttir,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Alúðarþakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur
vináttu og vottuðu samúð sína við andlát og
útför áskærrar eiginkonu minnar, móður, tengda-
móður, ömmu, langömmu og langalangömmu,
MÖRTHU ÁRNADÓTTUR,
Hlíf II, Ísafirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heilbrigðis-
stofnunarinnar á Ísafirði fyrir einstaklega góða
umönnun þessa síðustu mánuði.
Sigurður Jónsson,
Árni Sigurðsson, Guðrún Halldórsdóttir,
Jón Ólafur Sigurðsson, Jóhanna Oddsdóttir,
Málfríður Þórunn Sigurðardóttir,
Þórhildur Sigrún Sigurðardóttir, Guðmundur Hafsteinsson,
barnabörn, barnabarnabörn, langömmubörn
og langalangömmubörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu við andlát ástkærs föður
okkar, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa,
JÓNS SALÓMONS JÓNSSONAR
sjómanns,
frá Flateyri.
Sérstakar þakkir til allra þeirra sem önnuðust hann
á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Svandís Jónsdóttir, Guðbjartur Guðbjartsson,
Valborg Jónsdóttir,
Grétar Arnbergsson,
Kristinn Þórhallsson,
Birna Jónsdóttir, Garðar Sigurgeirsson,
Magnfríður Jónsdóttir,
Ólafur R. Jónsson, Sólveig Jónsdóttir,
Björn Ágúst Jónsson, Anna María Sigurðardóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
✝
Þökkum hlýhug og samúðarkveðjur vegna fráfalls
ástkærs vinar okkar,
ÓLAFS SIGURÐSSONAR,
frá Syðri Gegnishólum,
sem var jarðsunginn miðvikudaginn 4. ágúst.
Innilegar þakkir til starfsfólks Kumbaravogs fyrir
góða umönnun.
Svala Steingrímsdóttir,
Margrét Ívarsdóttir
og aðrir vandamenn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför okkar ástkæru,
ESTERAR LÁRUSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til þeirra er komu að umönnun
hennar síðustu mánuðina.
Bragi Jóhannsson, Áslaug Kristinsdóttir,
Þóra Ester Bragadóttir, Sverrir G. Pálmason,
Hanna Björk Bragadóttir, Andreas Nyman,
Bergur Már Bragason, Hrafnhildur Örlygsdóttir
og langömmubörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýju við
fráfall okkar elskulega bróður og frænda,
GUNNARS MÁS HJÁLMTÝSSONAR.
Sérstakar þakkir færum við starfs- og
hjúkrunarfólki Grundar fyrir einstaka alúð,
umönnun og vináttu í Gunnars garð.
Ásdís L. Hjálmtýsdóttir Callaghan,
Jóhanna H. Hjálmtýsdóttir Thorarensen
og frændsystkinin.
✝
Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför,
LÁRU BÖÐVARSDÓTTUR,
frá Laugarvatni,
Barmahlíð 54,
Reykjavík.
Eggert Hauksson,
Ágústa Hauksdóttir, Jónas Ingimundarson,
Ása Guðmundsdóttir.