Morgunblaðið - 14.08.2010, Side 36
36 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2010
Sudoku
Frumstig
8 7 6
1
5 2 8 4
4 6 1
5 7 4 2
8 2
9 7
7 4
2 6 1 5
1 2
9 3 7
1 5 9
2 3 5 8
3 8 6
6 8 5 3
9 6
2 9
2 6
2 8 3 5
1 9 3
8 3 7
6 3
2 6 1
3 8
6 2 1
5 6 7
4 9 6 2 1 5 7 3 8
2 3 8 9 6 7 1 5 4
7 1 5 8 3 4 6 9 2
8 5 9 4 2 1 3 7 6
6 7 2 3 8 9 4 1 5
1 4 3 5 7 6 2 8 9
3 8 7 6 9 2 5 4 1
5 2 1 7 4 8 9 6 3
9 6 4 1 5 3 8 2 7
4 8 2 5 9 1 3 6 7
3 9 1 7 6 2 8 5 4
6 7 5 3 8 4 9 1 2
2 1 7 9 4 3 6 8 5
5 4 9 6 1 8 2 7 3
8 6 3 2 7 5 1 4 9
1 3 8 4 2 7 5 9 6
7 2 6 8 5 9 4 3 1
9 5 4 1 3 6 7 2 8
1 5 6 8 4 2 3 7 9
4 2 9 7 3 1 8 5 6
7 8 3 6 9 5 4 1 2
8 6 7 3 2 9 1 4 5
3 4 2 5 1 6 7 9 8
9 1 5 4 7 8 6 2 3
6 9 1 2 8 7 5 3 4
5 7 4 9 6 3 2 8 1
2 3 8 1 5 4 9 6 7
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 14. ágúst,
226. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Fagnið því, þótt þér nú
um skamma stund hafið orðið að
hryggjast í margs konar raunum.
(1Pt. 1, 6.)
Ef vinnudagurinn dregst á lang-inn og Víkverji er orðinn of
svangur til að geta eldað kemur hann
stundum við í Nóatúni og kaupir þar
grillaðan kjúkling. Kjúklingur þeirra
Nóatúnsmanna er nokkuð góður og
auk þess sæmilega hollur skyndibiti,
blessunarlega laus við djúpsteiking-
ardeig eins og tíðkast of víða. Und-
anfarið hefur Víkverji þó rekið sig æ
oftar á það að allir kjúklinganir eru
búnir í borðinu einmitt á kvöldmat-
artíma. Ýmist eru svör starfsfólks þá
að fleiri verði kjúklingarnir ekki það
kvöldið eða þá að 30-50 mínútna bið
sé eftir næstu umferð.
x x x
Þetta á Víkverji erfitt með aðskilja. Það er afar óheppilegt
þegar vöruframboð er svo stopult að
viðskiptavinurinn geti ekki gengið að
því vísu sem hann langar í, hvað þá á
þeim tíma þegar líklegast er að hann
þurfi á því að halda.
Svo vill til að fyrir rúmum áratug
vann Víkverji sjálfur í kjötborði
Nóatúns og minnist þess ekki að
kjúklingurinn hafi nokkurn tíma
fengið að klárast á háannatíma, því
um leið og grillofnin var tæmdur var
önnur umferð sett inn. Víkverji lagði
metnað sinn í að hungraðir við-
skiptavinir þyrftu aldrei að bíða í 50
mínútur eftir kjúklingnum sínum og
vildi óska að starfsfólk Nóatúns
gerði það enn.
x x x
Víkverji varð fyrir svipaðrireynslu eitt sinn í bakaríi í
Þingholtunum. Þetta var á sunnu-
dagsmorgni og ætlunin var að útbúa
veglegan dögurð, en þegar í bakaríið
kom var nánast ekkert til. Í kælinum
stóðu að vísu heilu raðirnar af orku-
drykkjum og kóki, en engin var jóg-
úrtin og appelsínusafinn var volgur.
Greinilegt var að ekki hafði verið
fyllt á kælinn daginn áður sem Vík-
verja þótti afar sérkennilegt því
sunnudagsmorgnar eru jafnan sá
tími sem flestir leggja leið sína í bak-
arí og því rökrétt að hafa vöru-
framboðið í samræmi við það.
Eða það finnst Víkverja. Kannski
Víkverji ætti að leggja pennanum og
stofna verslun. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | Lárétt: 1 ljós
hugsun, 8 stútum, 9
vindurinn, 10 elska,
11 fen, 13 sleifar, 15
guðshús, 18 annast, 21
auð, 22 lækna, 23 sál-
ir, 24 vesalingar.
Lóðrétt | Lóðrétt: 2 gleður, 3
lofað, 4 skynfæra, 5 mat-
reiðslumanns, 6 viðlag, 7
vökvar, 12 umfram, 14 drátt-
ardýr, 15 meltingarfæri, 16
björtu, 17 óhreinkaði, 18
skreið í gegnum, 19 þrábiðja,
20 forar.
Lausn síðustu krossgátu
Lausn síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 fóarn, 4 sárin, 7 ósköp, 8 iljar, 9 afl, 11 anna,
13 angi, 14 nafar, 15 grín, 17 frek, 20 bak, 22 unaði, 23
lítur, 24 deiga, 25 kenni.
Lóðrétt: 1 flóra, 2 askan, 3 næpa, 4 skil, 5 rýjan, 6
norni, 10 fífla, 12 ann, 13 arf, 15 grund, 16 Írani, 18 rit-
in, 19 karfi, 20 bisa, 21 klók.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5
Rxd5 5. e4 Rxc3 6. bxc3 Bg7 7. Bc4 c5
8. Re2 Rc6 9. Be3 0-0 10. 0-0 Dc7 11.
Hb1 b6 12. Bf4 e5 13. Bg3 De7 14. Bd5
Bb7 15. Da4 Hfc8 16. dxe5 Rxe5 17.
Rf4 c4 18. Hfd1 h5
Staðan kom upp á ofurmótinu í Dort-
mund í Þýskalandi sem lauk fyrir
skömmu. Víetnamski stórmeistarinn
Liem Le Quang (2.681) hafði hvítt
gegn Ruslan Ponomarjov (2.734) frá
Úkraínu. 19. Rxg6! Rxg6 20. Bd6! De8
21. Dxe8+ Hxe8 22. Bxb7 Had8 23.
Bb4 hvítur er nú peði yfir og með
betra tafl. 23. … Rf4 24. Kf1 Hxd1+
25. Hxd1 Rd3 26. Bd5 Hc8 27. Hb1
Rxb4 28. Hxb4 Bxc3 29. Ha4 Hc5 30.
Hxc4 Hxc4 31. Bxc4 h4 32. f4 Kg7 33.
e5 f6 34. exf6+ Kxf6 35. g3 Kf5 36.
Bd3+ Ke6 37. Kg2 hxg3 38. hxg3 Kd5
39. Kf3 Kd4 40. Ba6 hvítur hefur nú
tvö samstæð frípeð og dugði það til að
innbyrða vinninginn í 52. leik.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Borðleggjandi spil.
Norður
♠ÁKG9
♥ÁK7
♦K98
♣K52
Vestur Austur
♠D87 ♠64
♥63 ♥D5
♦ÁDG105 ♦76432
♣DG4 ♣9876
Suður
♠10532
♥G109842
♦--
♣Á103
Suður spilar 7♥.
Útspilið lá á borðinu og sagnhafi
velti vöngum nokkra stund. Lagði svo
upp með sveiflu: „Ég á þetta allt.“
Mótherjarnir horfðu til skiptis á
hönd suðurs og sagnhafa sjálfan: Var
maðurinn genginn af göflunum? „Þarf
ég að útskýra,“ tók suður upp þráðinn:
„Allt í lagi. Ég toppa hjartað, svína í
spaða og þvinga vestur í lokin, sem
stenst ekki þrýstinginn með tígulás og
drottningu-gosa í laufi.“
Það er óumdeilt að þetta skilar
þrettán slögum, en hvernig í ósköp-
unum gat maðurinn vitað að rétta leg-
an væri fyrir hendi? Ja, vestur opnaði á
1♦ og kom svo út með tromp. Útspilið
sagði þá sögu að austur ætti ♥D, senni-
lega aðra, en þá hlaut vestur að vera
með restina af hápunktunum til að eiga
fyrir opnun.
Borðleggjandi spil í fyrsta slag.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú prófar ný hlutverk, eins og að
vera besti vinur í heimi og rómantískasta
mannveran á jörðu. Gleymdu þó ekki í
allri gleðinni þeim sem standa þér næst
og þurfa stuðning.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú þarft að setja þér fastar starfs-
reglur til þess að allt fari ekki úr bönd-
unum. Mundu því að koma fram við aðra
eins og þú vilt að þeir komi fram við þig.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það getur stundum reynst erfitt
að skilja á milli einkalífs og starfs. Ein-
hver vill kynnast þér nánar en þorir ekki.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það er notalegt að eiga stund með
nánum vini og gott að geta deilt áhyggj-
unum með einhverjum sem maður treyst-
ir. Haltu þig þó út af fyrir þig meðan þú
ert að vinna úr þínum málum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það er ekki víst að þú getir afstýrt
öllum þeim óhöppum, sem þú sérð vera í
uppsiglingu. Ekki hafa áhyggjur, morg-
undagurinn sér um sig.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú hefur mikla þörf til tjáskipta í
dag og gætir því litið út fyrir að vera of
ágeng/ur. Það er ekkert gaman að vera
alltaf sammála síðasta ræðumanni.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú veist af manneskju sem þarf á
hjálp þinni að halda en er of óframfærin
til þess að biðja um hana. Skrifaðu hugs-
anir þínar niður því annars fjúka þær á
braut í vindhviðum dagsins.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Vertu ekki vonsvikin/n þótt
þér hafi mistekist eitthvað. Mundu bara
að til þín verður leitað síðar.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Í nýjum hugmyndum felast oft
gömul sannindi. Spjall við ókunnugan að-
ila gæti víkkað út sjóndeildarhring þinn.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ættir að fá tækifæri til ferða-
laga og framhaldsmenntunar á næstunni.
Vandi í starfi leysist af sjálfu sér. Bíddu
til morguns með að gera vissa hluti.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú hefur þörf fyrir rómantík og
skemmtanir í dag. Fylgdu innsæi þínu ná-
kvæmlega – það er aðgöngumiðinn þinn
að velgengni.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú færð hugmynd að því hvernig
mögulegt er að treysta fjárhagslega
framtíð þína. Einhver er að reyna að
segja þér fyrir verkum og rifrildi vegna
e-r uppákomu er líklegt.
Stjörnuspá
14. ágúst 1784
Miklir landskjálftar urðu
þennan dag og tveimur dögum
síðar í Árnessýslu og Rang-
árvallasýslu. Hundrað bæir
hrundu til grunna, margt fólk
var grafið upp úr rústunum og
þrír týndu lífi. Þetta eru taldir
mestu jarðskjálftar hér á
landi, sá stærsti hefur verið
áætlaður 7,5 stig. Flest hús í
Skálholti skemmdust og í kjöl-
farið voru skóli og biskups-
stóll fluttir til Reykjavíkur.
14. ágúst 1920
Sveinn Björnsson, 39 ára for-
stjóri Brunabótafélags Ís-
lands, var skipaður fyrsti
sendiherra Íslands í Kaup-
mannahöfn. Hann varð síðar
forseti Íslands.
14. ágúst 1942
Bandarískar herflugvélar
skutu niður þýska sprengju-
flugvél sem stefndi til Reykja-
víkur. Þetta var fyrsta óvina-
flugvélin sem bandarískir
hermenn skutu niður yfir Evr-
ópu í síðari heimsstyrjöldinni.
14. ágúst 1968
Alec Guinnes leikari kom til
landsins í frí. „Virðuleiki hans
er mikill,“ sagði Alþýðublaðið
og talaði um heimsfrægan og
margheiðraðan mann.
14. ágúst 1982
Furstahjónin af Mónakó,
Grace Kelly og Rainier, komu
í heimsókn til Íslands. Tvö
börn þeirra, Carolina og Al-
bert, komu með þeim. Grace
lést í bílslysi mánuði síðar.
14. ágúst 2000
Rafmagnslaust var í Útvarps-
húsinu við Efstaleiti í hálfa
klukkustund vegna skemmd-
arverks á rafmagnstöflu. Út-
sendingar útvarps og sjón-
varps féllu niður vegna þess
að vararafstöð fór ekki í gang.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
„Það er töluverður áfangi í tilverunni að verða 70
ára,“ segir Magnús Tryggvason, fv. forstjóri Ora,
sem verður sjötugur á morgun, sunnudaginn 15.
ágúst. „Ætlunin er að vera með fjölskyldunni í ró-
legheitum á þessum tímamótum og halda ekki
stórveislu,“ segir Magnús en síðast hélt hann stór-
veislu er hann varð fimmtugur. Magnús fæddist í
Reykjavík, í húsi númer 42 við Laugaveg, og ólst
upp hjá foreldrum sínum í Þingholtunum. Hann
byrjaði ungur að starfa hjá Ora sem sumarmaður,
eða árið 1951. Eftir útskrift úr Verzló 1959 fór
hann alfarið að vinna hjá Ora, tók við fram-
kvæmdastjórn árið 1963 og síðar sem forstjóri 1988, þar til hann hætti
störfum er hann seldi fyrirtækið árið 2004 eftir 45 ára starf. „Lífið
hefur verið gott við mig, heilsan í góðu lagi, þó að stundum hafi vinnu-
tíminn verið langur og strangur við uppbyggingu á fyrirtækinu og í
hinum ýmsu félagsstörfum. Magnús segist hafa haft fjölmörg áhuga-
mál gegnum tíðina, s.s. veiðiskap, ferðalög, sumarhúsaveru með fjöl-
skyldunni og svo golfið í seinni tíð. Eiginkona Magnúsar er Guðrún
Beck og eiga þau þrjá syni; Tryggva, Eirík og Magnús, og barnabörn-
in eru orðin níu talsins. bjb@mbl.is
Magnús Tryggvason 70 ára á morgun
Töluverður áfangi
Nýirborgarar
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd
af barninu
til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is
Reykjavík Birna Eldey
fæddist 28. mars kl. 19.07.
Hún vó 3.500 g og var 50
cm löng. Foreldrar henn-
ar eru Rebekka Silvía
Ragnarsdóttir og Björn
Karlsson.
Akranes Brynjar Ingi
fæddist 31. mars kl. 17.52.
Hann vó 4.440 g og var
52,5 cm langur. Foreldrar
hans eru Olga Ellen Þor-
steinsdóttir og Arnar
Grétarsson.