Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 14.08.2010, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 14.08.2010, Qupperneq 39
Menning 39FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2010 Jazzhátíð Reykjavíkur verður sett í dag í Þjóðmenningarhúsinu í dag og í kvöld verða opnunartónleikar hátíðarinnar þegar Agnar Már Magnússon minnist Bills Evans með tríói sínu. Á tónleikadagskránni eru eingöngu lög eftir Evans eða lög sem hann gerði að sínum. Agnar Már segir að rétt sé að minnast Ev- ans, ekki síst í ljósi þess að hann sé eins- konar forfaðir allra nútíma djasspíanista. „Hann færði píanóið inn í nútímann hljóm- rænt og rytmísk séð. Hann var mikill gúrú og sendi frá sér ógrynni af efni og það þurfa allir djasspíanistar að taka afstöðu til hans á einhverjum tímapunkti, hvort sem það er sú afstaða að finnast hann bara leiðinlegur eða reyna að takast á við hann á einhvern hátt.“ Agnar Már tekur undir það að Evans hafi kannski ekki verið eins framsækinn og sumir samtíðarmenn hans, „en miðað við þann tíma sem hann var uppi þá er hann að færa spuna- kennt sánd inn í djassmúsíkina sem var ekki svo algengt á þeim tíma. Kannski eitt af því helsta sem hann lagði til var samtal hljóðfær- anna, það er ekki bara einn sólóisti og hinir að bakka hann upp.“ Tríóið skipa auk Agnars Más Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á bassa og Magnús Trygvason Elíassen á trommur. Gestir verða Kristjana Stefánsdóttir, Ragnheiður Gröndal og Ragnar Bjarnason. „Raggi Bjarna fer í fötin hans Tony Bennett og hann, Ragnheið- ur og Kristjana taka hvor sitt lagið,“ segir Agnar Már og bætir við að hann hafi legið mikið yfir sönglögum sem Evans hljóðritaði. „Undirleikurinn er ótrúlegur og maður getur lært endalaust af þessum lögum. Það er svo mikil dýpt í raddsetningum og raddhreyf- ingum að það er sér skóli, maður getur eytt ævinni í að pæla í því hvað hann var að gera.“ Færði píanóið inn í nútímann Morgunblaðið/Ómar Hljómrænt Tríó Agnars Más Magnússonar leikur lög Bills Evans í Þjóðmenningarhúsinu í kvöld . Tríó Agnars Más Magn- ússonar minnist píanó- meistarans Bills Evans í Þjóðmenningarhúsinu Í dag verða í Salnum sjöundu tón- leikarnir í tónleikaröð á vegum Tón- listarhátíðar unga fólksins sem nú stendur yfir í Kópavogi. Fiðluleikar- arnir Elfa Rún Kristinsdóttir, Helga Þóra Björgvinsdóttir og hornleikar- inn Ella Vala Ármannsdóttir flytja verk eftir Telemann, Kirchner, Brahms og Prokofiev ásamt franska píanistanum Francois Lambret. Elfa Rún og Helga Þóra fiðluleik- arar hafa spilað saman í mörg ár og leika verk fyrir tvær fiðlur eftir Te- lemann og Prokofiev. Ella Vala spil- ar nú í annað sinn á Tónlistarhátíð unga fólksins. Franski píanóleikarinn Francois Lambret kemur í fyrsta sinn fram á Íslandi. Píanó Francois Lambret hefur fengið fjölda verðlauna. Fiðlur og horn Sverrir Kristinsson, framkvæmdastjóri, lögg. fasteignasali Guðmundur Sigurjónsson, lögfræðingur, lögg. fasteignasali Þorleifur St. Guðmundsson, lögg. fasteignasali Kjartan Hallgeirsson, lögg. fasteignasali Geir Sigurðsson, lögg. fasteignasali Hilmar Þór Hafsteinsson, lögg. leigumiðlari, lögg. fasteignasali Magnús Geir Pálsson, sölumaður Þórarinn M. Friðgeirsson, lögg. fasteignasali Jóhanna Valdimarsdóttir, gjaldkeri Elín Þorleifsdóttir, ritari Reykjavík Frá 1957 Elsta starfandi fasteignasala landsins S : 5 8 8 9 0 9 0 • S í ð u m ú l a 2 1 • 1 0 8 R e y k j a v í k w w w. e i g n a m i d l u n . i s Fallegt og vel umgengið 205 fm einbýlishús á einni hæð. Húsið skiptist í forstofu, gang, hol, stofu, eldhús með borðkrók, garðstofu, sjónvarpshol, þrjú herbergi, baðherbergi, þvottaher- bergi og innbyggðan bílskúr. Verðlaunagarður með góðri verönd og skjólgirðingum. V. 62,9 m. 5765 HÚSNÆÐI ÓSKAST Valhúsabraut - laus strax Velstaðsett einlyft 117,3 fm einbýlishús ásamt 37,6 fm bílskúr á mjög góðum stað við Valhúsabraut á Seltjarnarnesi. Húsið skiptist í forstofu, hol, góðar stodu, eldhús, þvottahús, þrjú svefn- herbergi, baðherbergi og fl. V. 39 m. 5849 Suðurgata - Hf. Blöndalshús. Hér er um að ræða 74,3 fm neðri hæð ásamt 29,6 fm bílskúr í mjög fallegu sögufrægu járnklæddu timburhúsi, byggðu árið 1890. Húsið stendur í fallegri götu í elsta hluta Hafnarfjarðar undir Hamrinum. Húsið hefur nær allt verið endurnýjað, s.s. allar lagnir, ein- angrun, þakjárn, veggir, gluggar og gler, inn- réttingar, gólfefni, eldhús og baðherbergi. Íbúðin er laus strax. V. 23,5 m. 5837 Austurgata - Hafnarfjörður Fallagt einbýlishús við Austurgötu í Hafnafirði, með auka íbúð á jarðhæð. Húsið er timburhús á steyptum kjallara með steyptri áfastri við- byggingu sem er skráð sem bílskúr, en er ekki með bílskúrshurð heldur inngöngudyr- um.Húsið er til afhendingar við kaupsamning. 5089 Nýbýlavegur - 3ja með bílskúr. Falleg 3ja herbergja íbúð á 1.hæð ásamt bíl- skúr í góðu sjö íbúða húsi í Kópavogi. Húsið er nýlega viðgert og málað. Fallegt útsýni. Skipti möguleg á 4ra herb. íb. á jarðhæð 5907 Einbýlshús í Vesturborginni óskast. Æskileg stærð 400-500 fm Traustur kaupandi óskar eftir 400-500 fm einbýlishúsi í Vesturborginni. Góðar greiðslur í boði. Húseign í nágrenni Landakotstúns óskast - staðgreiðsla Óskum eftir 300-400 fm húseign sem næst Landakotstúni, staðgreiðsla í boði. Einbýlishús í Smáíbúðahverfi eða Gerðunum óskast. Óskum eftir góðu einbýlishúsi á ofangreindum svæðum. Æskileg stærð 250-300 fm, a.m.k. 5 herbergi og stofur. Nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson í síma 861-8514 Einbýlishús í Þingholtunum óskast - staðgreiðsla Óskum eftir 300-400 fm einbýli í Þingholtunum. Verð mætti vera á bilinu 80-150 milljónir. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson. Einbýlishús í Vesturborginni óskast - staðgreiðsla Óskum eftir 250-350 fm einbýli í Vesturborginni. Verð mætti vera á bilinu 90-150 milljónir. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson. SKÓGARHÆÐ GARÐABÆ - VANDAÐ HÚS Sérlega glæsileg 3ja herbergja 147,6 fm íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi ásamt stæði í bílageymslu. Tvennar svalir. Einstakt sjávarútsýni. Sérsmíðuð eldhúsinnrétting. Falleg hvíttuð planka eik á gólf- um. Vönduð íbúð. V. 44,9 m. 5888 LANGALÍNA - STÓR OG GLÆSILEG Stórglæsilegt og vel staðsett 667 fm einbýli í Laugarásnum. Húsið er byggt árið 1987 og er teiknað af Kjartani Sveinssyni. Einstakt útsýni er yfir Laugardalinn. Húsið er allt hið vandað- asta bæði að innan og utan. V. 150 m. 4836 LAUGARÁSVEGUR - EINSTÖK EIGN Vandað einbýlishús, teiknað af Skarphéðni Jóhannssyni arkitekt. Húsið er tvílyft 270,7 fm með aukaíbúð á neðri hæðinni, þar af er bílskúr 24,5 fm Húsið er upprunalegt að mestu, vandað að fyrstu gerð og hefur ávallt verið í eigu sömu fjölskyldu. V. 59 m. 5847 SPORÐAGRUNN - EINBÝLISHÚS MEÐ AUKAÍBÚÐ Glæsileg mikið endurnýjuð 132,8 fm íbúð á 4.hæð í virðu- legu nýlega endursteinuðu húsi við miðborgina. Mjög fal- legt útsýni. Svalir. Þrjú svefn- herbergi og mjög góð stofa. Endurnýjað vandað eldhús, endurnýjað baðherbergi. Nýl. gluggar og gler, ofnalagnir og fleira. V. 39,3 m. 5743 Opið hús verður hjá Stefáni og Arndríði frá kl. 17 - 18:30 Mánudag og þriðjudag. GARÐASTRÆTI 6 ÍBÚÐ 0401 OPIÐ HÚS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.