Morgunblaðið - 25.08.2010, Side 1

Morgunblaðið - 25.08.2010, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 5. Á G Ú S T 2 0 1 0  Stofnað 1913  197. tölublað  98. árgangur  FÍFLALÆTIN TÓKU VÖLDIN HJÁ SNIGLABANDINU ARON OG FÉLAGAR Í KIEL GÓÐIR ÞINGEYRINGUR SMÍÐAR HLJÓÐFÆRI Í TÓMSTUNDUM LIÐINU SPÁÐ TITLINUM EFTIR AUGANU 10FAGNAR 25 ÁRA AFMÆLI 29 Jónas Margeir Ingólfsson jonasmargeir@mbl.is Í minnisblaði sem lögfræðingar unnu fyrir efnahags- og viðskipta- ráðuneytið og kynntu viðskipta- nefnd Alþingis í gær kemur fram að samkvæmt lögum beri ríkið enga ábyrgð á skuldbindingum Trygging- arsjóðs innstæðueigenda og fjár- festa. Tryggingarsjóðnum er m.a. ætlað að tryggja Bretum og Hollending- um greiðslu á Icesave-reikningun- um en flestar fjármálastofnanir greiða í sjóðinn, sem á að verja inn- stæðueigendur fyrir fjárhagslegum skaða ef fjármálastofnun hrynur líkt og Landsbankinn, sem átti Icesave, gerði haustið 2008. Það vekur athygli að lögfræðing- urinn sem samdi álitið var áður stjórnarformaður sjóðsins og ráðu- neytisstjóri viðskiptaráðuneytisins. Lilja Mósesdóttir, formaður við- skiptanefndar Alþingis, segir að túlka megi minnisblaðið á þann hátt að andstæðingar Icesave-samnings- ins sem gerður var á síðasta ári hafi haft rétt fyrir sér. „Svo má líka segja að þeir sem voru hlynntir því að gera upp þessar skuldbindingar svokölluðu við Breta og Hollendinga líti svo á að við verð- um að læra af því og nú verði að tryggja að ekkert bendi til þess að það sé ríkisábyrgð,“ segir Lilja. Ríkið ber ekki ábyrgð  Minnisblað sem kynnt var viðskiptanefnd í gær segir ríkið ekki bera ábyrgð á Tryggingarsjóði innstæðueigenda sem ætlað var að greiða Icesave-innstæðurnar MEngin ríkisábyrgð »4 Minnisblaðið » Ekki eru ákvæði um ríkis- ábyrgð á skuldbindingum í lög- um um Tryggingarsjóð inn- stæðueigenda og fjárfesta. » Ríkið á ekki tryggingarsjóð- inn þar sem hann er sjálfseign- arstofnun, á sig sjálfur. Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is „Þetta er hrein og bein afleiðing af loftslags- hlýnun. Efst á toppi Oksins er fallegur hringlaga gígur þar sem nú hefur myndast stöðuvatn. Það er um 240 sinnum 400 metrar að stærð og er um 3-4½ metra djúpt,“ segir Hilmar J. Malmquist, forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs. Hópur á vegum stofunnar hélt í vísindaleið- angur upp á Okið í gær til að rannsaka stöðu- vatnið sem myndast hefur á síðustu árum í gígn- um við toppinn vegna bráðnunar jökulsins. Sýni voru tekin úr vatninu til að efnagreina það og jafnframt voru tekin þörungasýni til að kanna hvaða tegundir hafa tekið sér bólfestu þar. Að sögn Hilmars gekk hann fram á vatnið ásamt eiginkonu sinni hinn 7. ágúst árið 2007. „Enginn hafði þá minnst á þetta vatn og þetta hefur vænt- anlega verið í fyrsta skipti sem einhver gekk fram á það.“ Hilmar segir jafnframt mikilvægt að nafn verði fundið á vatnið hið fyrsta. „Ein tillagan er Kringluvatn til heiðurs Snorra Sturlusyni enda er vatnið kringlulaga. En Borgfirðingar verða að finna gott nafn á vatnið.“ Oddur Sigurðsson jarðfræðingur segir að jöklar Íslands hopi nú á áður óþekktum hraða. „Síðustu 15 árin hafa jöklar hér hopað hraðar en nokkru sinni fyrr í allri þeirri sögu sem við þekkjum. Okið er sérstaklega á hröðu und- anhaldi og er í dag eiginlega á mörkum þess að geta talist jökull.“ Oddur segir jafnframt að íslenskir jöklar hafi minnkað mikið á 20. öld. „Litla ísöldin náði alveg frá Sturlungaöld og fram til aldamótanna 1900 en þá byrjaði að hlýna og íslenskir jöklar rýrnuðu mikið. En síðustu 15 ár hafa verið verst. Jöklarnir hér minnka um 0,3-0,4% á ári. Hver jökull sem er 1.000 ferkílómetrar minnkar um fjóra ferkílómetra á ári og Vatnajökull minnkar um 30-40 ferkílómetra.“ Jöklarnir skreppa saman  Stöðuvatn hefur myndast uppi á gígnum við topp Oksins vegna hlýnunar andrúmsloftsins  Vatnið er nokkrir hektarar að stærð og 3-4½ metra djúpt Ljósmynd/Hilmar Malmquist Okið Haraldur Rafn Ingvarsson, Stefán Már Stefánsson, Þóra Hrafnsdóttir og Finnur Ingimarsson að störfum við vatnið á toppi Oksins í gær.  Háttsettir stjórnendur verslanakeðj- unnar Whole Foods Market í Bandaríkjunum, sem rekur nær 300 sælkeraverslanir, eru komnir til landsins. Þeir ætla að kynna sér veiðar og vinnslu sjávarafla, gæða- vottun, fara á sjó og fylgjast með verkun. Í undirbúningi er að kaup- andinn geti rakið ferlið allt frá því að fiskurinn veiðist og þar til hann er afgreiddur út úr búð. »8 Af öngli og alla leið út úr verslun vestra  Um 7,7% munur er á hæsta og lægsta verði á rafmagni til heimila. Þetta þýðir að venjulegt heimili getur sparað um 2000 krónur á ári með því að skipta við þann sem býð- ur lægsta verðið. Þetta er óvenju- lega mikill munur, en oftast hefur munurinn ekki verið nema 200-300 kr. á ári. Orkubú Vestfjarða og Orkuveita Reykjavíkur eru með lægsta verðið, en búist er við að verðmunurinn minnki þegar OR breytir gjaldskrá á næstu dögum. Kristján Haraldsson, fram- kvæmdastjóri Orkubús Vestfjarða, segir að Orkubúið ætli sér að bjóða ávallt lægsta verðið. »12 Orkubú Vestfjarða með lægsta verðið  Framkvæmda- stjóri og aðaleig- andi bresku ferðaskrifstof- unnar Discover The World segir frestanir og af- lýsingar áætl- unarferða Ice- land Express of tíðar og því beini hann við- skiptavinum sínum annað í dag. Forstjóri Iceland Express segir hins vegar ágreining um kostnað hafa ráðið því að viðskiptasamband fyrirtækjanna rofnaði. »14 Segir of mörgum flugferðum aflýst  Stjórn Prestafélags Íslands hefur boðað til almenns félagsfundar um þau málefni sem eru efst á baugi á vettvangi kirkjunnar þessa dagana. Fundurinn verður haldinn næst- komandi mánudag. Stuðningur virðist vera við þá til- lögu séra Sigríðar Guðmarsdóttur að yfirstjórn þjóðkirkjunnar óski eftir því við stjórnvöld að skipuð verði óháð sannleiksnefnd til að rannsaka ásakanir um þöggun kirkjunnar vegna meints kynferð- isbrots fyrrverandi biskups. »2 Prestar funda um málefni kirkjunnar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.