Morgunblaðið - 25.08.2010, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2010
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-ráðherra skaut föstum skotum
að einum ráðherra í ríkisstjórn
sinni í gær og verður sú framganga
að teljast nokkuð einstæð. For-
sætisráðherra sagði að ef ráð-
herrar framfylgdu ekki tillögum
sem Alþingi samþykkti þyrftu þeir
„að velta fyrir sér sinni stöðu“.
Þarna var forsætisráðherra aðvísa til þess að Jón Bjarnason
hefur gert athugasemdir við aðlög-
unarferlið sem
hafið er vegna
umsóknar að
ESB.
Jón Bjarnasonog fleiri þing-
menn telja að Al-
þingi hafi alls
ekki samþykkt
að fara út í aðlög-
un Íslands að
ESB áður en að aðild kynni að
koma og í því efni hafa þessir þing-
menn augljóslega rétt fyrir sér.
Enginn hélt því fram þegar sam-
þykkt var að ganga til aðild-
arviðræðna að þar með ætti strax
að hefja aðlögun að ESB, enda var
iðulega talað um könnunarvið-
ræður og lítið gert úr því ferli sem
framundan væri.
En ef forsætisráðherra telur aðráðherra verði að fylgja vilja
þingsins, sem er út af fyrir sig skilj-
anleg afstaða þó að hún eigi ekki
við í þessu máli, hvað finnst for-
sætisráðherra þá um vilja þjóð-
arinnar?
Íslenska þjóðin hefur í atkvæða-greiðslu hafnað því með afger-
andi hætti að ganga að kröfum
Breta og Hollendinga vegna Ice-
save. Þrátt fyrir þetta keppast for-
sætisráðherra og fjármálaráðherra
við að láta Íslendinga borga.
Þurfa slíkir ráðherrar ekki „aðvelta fyrir sér sinni stöðu“?
Jóhanna
Sigurðardóttir
Að velta fyrir sér sinni stöðu
Veður víða um heim 24.8., kl. 18.00
Reykjavík 14 léttskýjað
Bolungarvík 10 léttskýjað
Akureyri 10 skýjað
Egilsstaðir 8 skýjað
Kirkjubæjarkl. 12 skýjað
Nuuk 8 skúrir
Þórshöfn 10 skýjað
Ósló 12 skýjað
Kaupmannahöfn 18 léttskýjað
Stokkhólmur 17 léttskýjað
Helsinki 15 skúrir
Lúxemborg 17 heiðskírt
Brussel 18 léttskýjað
Dublin 17 léttskýjað
Glasgow 15 léttskýjað
London 21 heiðskírt
París 21 heiðskírt
Amsterdam 18 léttskýjað
Hamborg 20 léttskýjað
Berlín 22 heiðskírt
Vín 22 skýjað
Moskva 17 skúrir
Algarve 25 heiðskírt
Madríd 32 heiðskírt
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 31 léttskýjað
Róm 30 heiðskírt
Aþena 27 heiðskírt
Winnipeg 16 alskýjað
Montreal 22 léttskýjað
New York 19 alskýjað
Chicago 25 skýjað
Orlando 23 skúrir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR KL. 12 Í DAG
25. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:50 21:11
ÍSAFJÖRÐUR 5:45 21:25
SIGLUFJÖRÐUR 5:28 21:09
DJÚPIVOGUR 5:17 20:43
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Bandaríska verslanakeðjan Whole
Foods Market (WFM) hyggst auka
kaup sín á íslensku sjávarfangi til
viðbótar við íslenskar vörur sem
þegar eru á boðstólum hjá WFM.
Nokkrir æðstu yfirmenn versl-
anakeðjunnar á heimsvísu og í
Bandaríkjunum eru komnir til
landsins til að kynna sér fiskveiðar
og fleira varðandi matvælafram-
leiðslu.
Ingvar Eyfjörð, aðstoðarfor-
stjóri Icelandic Group, segir að
WFM hafi keypt af þeim þorsk, ýsu
og flatfisk af og til í viðbót við eldis-
bleikju. Þá hefur WFM selt íslensk-
ar landbúnaðarvörur á borð við
lambakjöt, skyr, osta, smjör o.fl.
Megintilgangur yfirmanna
WFM með komu hingað nú er að
kynnast íslenskum sjávarútvegi,
gæðakröfum og vottun sjávarafurða.
Einnig að undirbúa kynningu á ís-
lenskum þorski og ýsu í verslunum
WFM um öll Bandaríkin í haust.
Icelandic Group fékk styrk frá AVS
(Aukið virði sjávarfangs) og hann
verður m.a. notaður í kynningar-
átakið.
Kröfuharðir gæðakaupmenn
Whole Foods Market rekur nú
hátt í 300 smásöluverslanir víðs veg-
ar um Bandaríkin, auk Kanada og
Bretlands. Markhópurinn er kröfu-
harðir kaupendur sem spara hvorki
við sig í mat né drykk. WFM gerir
miklar kröfur og verða vörurnar að
uppfylla ströngustu gæða- og um-
hverfiskröfur. Verslanaveldinu í
Bandaríkjunum er skipt í nokkur
markaðssvæði. Ingvar sagði að
markaðssvæðin hefðu haft nokkurt
sjálfdæmi um innkaup, en nú væri
unnið að því að samræma innkaupin.
Í heimsókninni verða fulltrúar
WFM fræddir um íslenska fisk-
veiðistjórnunarkerfið, umhverf-
isvottun og hvernig Íslendingar
standa að sjávarútvegi. Þá munu
þeir verja degi hjá Matís þar sem
m.a. verður fjallað um meðhöndlun
hráefnisins. Ferskfiskverksmiðjan
Fiskval í Keflavík verður heimsótt
og einnig verður farið til Íslands-
sögu á Suðureyri við Súgandafjörð.
Íslandssaga vinnur með Icelandic
Group að verkefni fyrir WFM sem
felst í því að gera kleift að rekja
feril fersks fisks allt frá bátnum
sem veiddi hann og í söluborðið.
„Whole Foods Market er mjög
umhugað um að þekkja uppruna
hráefnisins,“ sagði Ingvar. „Þeir
fara á sjó frá Suðureyri og sjá
hvernig línan er lögð. Svo draga
þeir fisk og sjá allan ferilinn. Þeir
kynna sér bæði hvernig fiskurinn
fæst og umhverfið sem hann verður
til í. Þeir virðast kynna sér vel virð-
iskeðjurnar.“
Íslenskt gæðamerki
Þá stendur til að kynna WFM
nýtt íslenskt gæðamerki. Ingvar
sagði að gæðamerkið yrði m.a. not-
að við kynninguna í haust.
„Whole Foods Market eru há-
gæða smásöluverslanir, mjög um-
hverfisþenkjandi og ábyrgar og
gera miklar kröfur. Svona kynning
þar fær mikla athygli. Þetta er
mjög mikilvægur kaupandi. Það er
mjög gott fyrir okkur að ná beinum
viðskiptum við þá og það hjálpar
okkur að gera framleiðsluna betri.
Við fáum líka ákveðna viðurkenn-
ingu fyrir að geta uppfyllt þessi
skilyrði.“
Byrjað er að nota íslenskt upp-
runamerki. Næst er að fá vottun
þriðja aðila um að sjávarfangsins sé
aflað og það unnið með sjálfbærum
hætti. Ingvar segir markaðinn gera
sífellt meiri kröfur um vottun á öll-
um framleiðslustigum og nefnir í
því sambandi merki Marine Stew-
ardship Council. Að veitt sé úr
sjálfbærum stofni og varan með-
höndluð í sátt við lífríkið og um-
hverfið.
„Þetta hjálpar okkur sem
markaðssetjum íslenskan fisk að
viðhalda sérstöðu okkar á mark-
aðnum,“ sagði Ingvar.
Kröfuharðir kaupendur
Sérstök kynning verður á íslenskum matvælum í verslunum Whole Foods
Market í haust Þorskur, ýsa og lambakjöt frá Íslandi verða í fyrirrúmi
Bragðbest Whole Foods Market segir íslenskt lambakjöt vera það bragð-
besta í heimi. Það verður auglýst í öllum verslunum WFM í haust.
Ljósmynd/WFM
Icelandic Group hefur unnið með
Baldvini Jónssyni í Áformi að
markaðssetningu hjá Whole Foods
Market (WFM) frá 2005.
„Baldvin hefur unnið þarna al-
gjört markaðskraftaverk,“ sagði
Ingvar Eyfjörð, aðstoðarforstjóri
Icelandic Group. „Það er erfitt að
komast að hjá keðju af þessu tagi.
Þetta er mjög stórt tækifæri til að
kynna land og þjóð og það sem við
getum boðið upp á. Ekki síst þegar
við þurfum að
halda áfram að
selja íslenskan
fisk á þeim mark-
aði sem borgar
hæsta mögulegt
verð.“
Ingvar telur
það opna ótal
möguleika fyrir
íslenskar vörur að vera teknar til
sölu hjá WFM.
„Algjört markaðskraftaverk“
MIKILVÆGT TÆKIFÆRI TIL KYNNINGAR Á LANDI OG ÞJÓÐ
Ingvar Eyfjörð