Morgunblaðið - 25.08.2010, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 25.08.2010, Qupperneq 9
Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is „Við þurfum bara að ræða það póli- tískt nákvæmlega hvernig ferlið sem slíkt er hugsað og hvernig að því er staðið af okkar hálfu,“ sagði Stein- grímur J. Sigfússon fjármálaráð- herra á fundi með blaðamönnum í gær að afloknum ríkisstjórnarfundi um það ferli sem fór í gang í kjölfar umsóknarinnar um inngöngu í Evr- ópusambandið. Steingrímur sagðist sjálfur ekki telja að um væri að ræða aðlögunar- ferli að sambandinu sem fæli í sér að gera þyrfti breytingar á stofnunum og löggjöf landsins samhliða viðræð- um um inngöngu í það. Til þess kæmi ekki að því er hann vissi best fyrr en innganga hefði verið samþykkt. Mótfallinn aðlögun Steingrímur sagðist aðspurður ekki vera sáttur við það ef út úr nán- ari athugun á málinu kæmi að um að- lögunarferli væri að ræða. „Ekki ef það þarf að fara að gera einhverjar breytingar á stofnunum og lögum á Íslandi fyrirfram. Þá er ég það ekki. Ég væri algerlega mótfallinn því.“ Aðspurður hvort kæmi til greina að stöðva ferlið af hálfu Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs ef litið væri svo á að það væri ekki að þróast í ásættanlegar áttir svaraði Steingrím- ur því til að bæði vinstri-grænir og Alþingi hefðu áskilið sér rétt til þess. „Við [þingflokkur vinstri-grænna] munum ræða tiltekna þætti í þessu sem snúa að framkvæmdinni og áherslunum af okkar hálfu og það er síðan þá þingsins að taka ákvarðanir ef þær yrðu einhverjar teknar um einhverja nýja stefnu í málinu.“ Um misskilning að ræða Rædd voru á fundinum þau um- mæli Jóns Bjarnasonar sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra í Morgunblaðinu í gær að nema ætti staðar í ferlinu þar sem um aðlögun- arferli væri að ræða og sögðust bæði Steingrímur og Jóhanna Sigurðar- dóttir forsætisráðherra telja að um misskilning væri að ræða hjá Jóni. Jóhanna lýsti ennfremur miklum vonbrigðum með ummæli Jóns og sagði að honum bæri skylda til að framfylgja ákvörðunum Alþingis. Steingrímur sagði um persónulegar skoðanir Jóns að ræða sem ekki væru ný tíðindi. Ekki stefna stjórnarinnar Þá undirstrikaði Steingrímur sérstaklega að það væri ekki stefna ríkisstjórnarinnar að sækja um inngöngu í Evrópusam- bandið. Einungis væri um að ræða ákvörðun Alþingis sem stjórnin væri að framfylgja. Vill ekki aðlögun  Fjármálaráðherra telur ekki að aðlögun að ESB sé í gangi en að skoða þurfi málið betur  Algerlega mótfallinn aðlögun Ráðherrar Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. Fréttir 9INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2010 Aðeins það besta fyrir börnin! Lindberg barnagleraugu í skólann 3 ára ábyrgð Trommuskóli Gunnars Waage Innritun stendur yfir fyrir nám í undirbúningsdeild. Byrjendur jafnt sem lengra komnir óháð búsetu og á öllum aldri. Erum á horni Suðurlandsbrautar og Grensás. Innritun í síma 865 5890 - info@trommuskolinn.com Nánari uppl. Á vefsíðunni Trommuskolinn.com „Ég hef áhyggjur af því ef við erum að fara í eitthvert aðlög- unarferli sem alls ekki var ætl- unin þegar a.m.k. ég greiddi at- kvæði með þessari umsókn,“ segir Lilja Mósesdóttir, þing- maður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, um þá um- ræðu hvort Ísland sé í aðlög- unarviðræðum við Evrópusam- bandið en ekki einföldum aðildarviðræðum í kjölfar þess að umsókn var send um inn- göngu í það sumarið 2009. Lilja segist telja að fara þurfi yfir málið og fá á hreint hvernig ferli sé nákvæm- lega í gangi. „Það var ekki minn skilningur að við værum að fara í að- lögun með því að senda inn umsókn.“ Greiddi ekki atkvæði með aðlögun LILJA MÓSESDÓTTIR Lilja Mósesdóttir Agnes Jóhannesdóttir barnahjúkrunarfræð- ingur lést mánudaginn 23. ágúst sl., 76 ára að aldri. Agnes fæddist í Álftafiði árið 1933 og voru foreldrar hennar Sigurður Páll Hall- dórsson og Kristbjörg Jóhannesdóttir. Agnes var ættleidd við fæð- ingu til systur Krist- bjargar (Sigrúnar), Helenu Jóhann- esdóttur, og Jóhannesar Jónssonar sem bjuggu lengst af á Ísafirði. Agnes átti eina hálfsystur, Sigrid Kaland, og voru þær dætur Sig- urðar Páls. Sigrid er myndlist- armaður og býr í Bergen í Noregi. Agnes giftist Hrafnkeli Guð- geirssyni rakara árið 1964. Þau eignuðust þrjár dætur saman, Hel- enu Kristbjörgu, Jóhönnu og Svövu Snæberg. Hrafnkell átti dóttur frá fyrra hjónabandi, Lilju Svövu, sem lést árið 2004. Agnes fluttist ung að aldri til Reykjavík- ur til að leggja stund á nám í hjúkrun í Hjúkrunarskóla Ís- lands, þaðan sem hún útskrifaðist árið 1958. Hún fór síðan fram- haldsnám í Sahl- grenska háskólasjúkrahúsinu í Sví- þjóð þar sem hún sérhæfði sig í hjúkrun barna. Agnes starfaði eft- ir það á Barnaspítala Hringsins. Hún gegndi stöðu deildarstjóra ungbarnadeildar í hátt á þriðja tug ára. Landspítalinn veitti henni heiðursviðurkenningu árið 1996 fyrir starf hennar í þágu veikra barna. Andlát Agnes Jóhannesdóttir Ásgrímur og Asger Það leiðréttist hér með að í viðtali við Thor Vilhjálmsson í Sunnudags- mogganum er talað um Ásgrím Jónsson listmálara og jafnframt að Asger Jorn myndskreytti Söguna af brauðinu dýra eftir Halldór Lax- ness. LEIÐRÉTT Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um áfram- haldandi gæsluvarðhald yfir Guð- laugi Agnari Guðmundssyni og Dav- íð Garðarssyni. Þeir voru þann 23. júlí sakfelldir, ásamt þremur öðrum, fyrir smygl á rúmlega einu og hálfu kílói af kókaíni til landsins. Guðlaugur og Davíð voru báðir dæmdir til fjögurra og hálfs árs fangelsis og hlutu þyngstu dóma fimmmenninganna. Dómunum var áfrýjað. Í dómi Hæstaréttar segir að með tilliti til alvarleika sakarefnis þyki í þágu almannahagsmuna nauðsynlegt að framlengja gæslu- varðhaldið meðan mál þeirra séu til meðferðar fyrir Hæstirétti. Skulu þeir sæta gæsluvarðhaldi þar til Hæstiréttur kveður upp dóm en þó ekki lengur en til 22. október. . Áfram í gæslu- varðhaldi Skemmdir voru unnar á úrkomu- mæli Veðurstofu Íslands, sem stað- settur er við Löngulág í Vest- mannaeyjum, í vikunni. Að sögn lögreglu var brotinn hattur sem er ofan á mælinum. Ekki er vitað hvenær skemmdirnar voru unnar og óskar lögreglan eftir upplýs- ingum. Skemmdir á úr- komumæli í Eyjum Morgunblaðið / Billi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.