Morgunblaðið - 25.08.2010, Page 11

Morgunblaðið - 25.08.2010, Page 11
Morgunblaðið/Kristinn Jón og langspilið Jón Sigurðsson hefur mikinn áhuga á heimshljóðfæraflórunni. Hér heldur hann á langspili sínu. þau sem eru með kúpt bak, bæði balalæka og bouzouki sem er grískt hljóðfæri. Það smíðaði ég úr krossviði og möndlaði við að búa til kúpt bak, það tókst á endanum en það leit ekki vel út enda er það hljóðfæri bara uppi í skáp, ekki til sýnis. Hljómurinn hefur samt allt- af heppnast,“ segir Jón sem lærir líka að spila á hljóðfærin af netinu. Jón hefur verið viðriðinn tón- list síðan hann var í grunnskóla og segir mikinn tónlistaráhuga vera á Þingeyri og hafi alltaf verið. „Pabbi spilar á harmónikku svo ég hef verið í kringum tónlist alla tíð. Ég var eitt sinn í hljóm- sveit sem hét Export, við vorum þrír gaurar í henni og spiluðum hérna í tvö til þrjú ár á hverju ein- asta balli eins og gengur og gerist í sveitinni.“ Upprunaleg langspil Jón hóf að selja langspilin sín í heimshljóðfærabúðinni Hljóð- heimurinn Sangitamiya á Grett- isgötu nýlega og var það vegna eft- irspurnar. „Mér skildist á eiganda búð- arinnar að þetta væri í fyrsta skipti sem langspil væri til sölu í búð á Íslandi. Ég seldi mitt fyrsta langspil á Minjasafnið á Austur- landi og þannig spurðist það út að ég væri að smíða þau. Minjasafnið frétti af því að ég væri að prófa að smíða langspil eftir að ég heimsótti Þjóðlagasetrið á Siglufirði í fyrra- sumar til að skoða langspil. Þar sá ég í fyrsta skipti nákvæmlega hvernig langspilið lítur út því ég hafði bara skoðað það af myndum. Það eru til allskonar eftirlík- ingar af langspilum en ég vil hafa mín eins og þessi upprunalegu ís- lensku. Erlendu langspilin, sem er verið að smíða núna, eru betrum- bætt og búið að setja öðruvísi stillihnappa sem eru eins og á nú- tímagíturum. Ég vil hafa það sem ég geri sem næst því að vera upp- runalegt en auðvitað er útlitið mín túlkun út frá öllum myndum sem ég hef séð. Ég nota íslenskan við í smíðarnar og handvel hann í timb- ursölu hér fyrir vestan, það er ekki sama hvernig æðarnar í viðnum liggja,“ segir Jón. Hann notast að- allega við furu og greni. „Þess vegna eru langspilin mín ekkert rosalega dýr, það gæti nánast hver sem er keypt þau. Ég hef hins veg- ar hugsað mér að fara út í það líka að smíða úr harðviði til að hafa báðar sortir, en harðviðurinn er dýrari og hljómar öðruvísi.“ Aðeins verið að spila heima Jón smíðar ekki eingöngu hljóðfæri heldur safnar hann þeim líka. „Ég reyni að kaupa alltaf eitt ef ég fer eitthvað til útlanda, man- dólín frá 1890 pantaði ég í gegnum netið frá Bandaríkjunum. Ég fékk það mjög ódýrt því það var brotið og ég gat lagað það. Mér finnst mjög spennandi að fá eitthvað gamalt upp í hendurnar sem ég get lagað.“ Spurður hvort hann komi ein- hvern tímann fram og leiki á þessa hljóðfæraflóru sína segist Jón lítið gera af því. „Það er karlahópur í sveitinni sem kallar sig Harmónikkukarlana og ég hef verið að leika með þeim á banjó og mandólín til að lyfta undir harmónikkutónana. Það verður kannski einhvern tímann sem ég kem fram og spila á eigið langspil. Ég hef aðeins verið að spila hérna heima og æfa mig og reyni að fá konuna til að syngja með mér, við vorum að æfa aðeins að gamni okkar saman í sumar, bæði á langspil og á íslensku fiðl- una.“ Jón segist ekki vera með neitt nýtt á smíðaborðinu, hann þurfi að halda áfram að smíða langspil því eftirspurnin eftir þeim sé töluverð. „Það er aldrei að vita nema maður fari að finna upp eitthvað nýtt enda er maður búinn að kynna sér flóru strengjahljóðfær- anna,“ segir Jón kankvís að lokum. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2010 Daglegt líf 11 „Mín mesta upplifun í köfun var þegar ég kafaði fyrr á þessu ári nið- ur í skipsflak í Valpariso í Chile. Það var rosalega gaman,“ segir Hrafn- hildur Magnúsdóttir sem veit fátt skemmtilegra en að kafa niður í undirdjúpin. „Þetta var í fyrsta skipti sem ég sá skipsflak og við fengum að fara inn í flakið og skoða okkur um. Það var mjög sérstakt og magnað á all- an hátt. Ég var líka með tvo kúta á bakinu í þessari köfun en það hafði ég aldrei prófað áður. Þetta var því mjög eftirminnilegt,“ segir Hrafn- hildur sem lærði köfun hér heima á Íslandi en mest hefur hún kafað með skemmtilegum köfunarhóp þegar hún var í Chile. „Í annarri köfunarferð í Chile fékk ég líka að rafsjóða neðansjávar, sem var verulega svalt. Þar sem ég var „gringa“ eða útlendingurinn í köf- unarhópnum, þá fékk ég undanþágu og fékk að prófa þetta án leyfis. Ég þótti standa mig stórvel, ég fékk ekki rafstraum í tennurnar eða neitt slíkt, en félagar mínir biðu spenntir eftir að ég kipptist við vegna straumsins. Ég varð því óvænt neð- ansjávar-rafsuðusnillingur.“ Hrafnhildur er fædd og uppalin í Vestmanneyjum í mikilli nálægð við sjóinn. „Kannski er það þess vegna sem mér finnst svo frábært að upp- lifa nýja veröld neðansjávar og mér finnst ég komast á einhvern hátt nær afa mínum heitnum, honum Sighvati Bjarnasyni, þegar ég kafa ofan í sjóinn, því ég fór oft með honum niður að sjó að skoða báta þegar ég var lítil stelpa.“ Uppáhaldsköfunarstaður Hrafnhildar Magnúsdóttur Ljósmynd/Patricio Barra Tassara Svöl Hrafnhildur með kafarafélögum sínum í Chile, þeim Mario og Patricio. Neðansjávartöfrar í Chile Holtagörðum 2. hæð Sími 512 6800 www.dorma.is dorma@dorma.is 30x30 cm kr. 99,- 50x100 cm kr. 499,- 70x140 cm kr. 995,- Baðmottur 50x85 cm kr. 1.090,- Ellefu litir OPIÐ Virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 11-17 handklæði - Ný sending ótrúlegt ver ð Sænskar konur sem borðuðu einn til tvo skammta af dökku súkkulaði á viku fengu í einum þriðja tilfella sjaldnar hjartabilun en þær sem borð- uðu ekki þetta magn af súkkulaði. Samkvæmt rannsókninni voru engin varnaráhrif fyrir þær konur sem borð- uðu súkkulaði á hverjum degi eða nán- ast á hverjum degi. Rannsóknin birtist um miðjan ágúst í tímaritinu Circulation: Heart Failure. Tíðni hjartabilunar var skoðuð í 31.823 sænskum konum á aldrinum 48-83 ára sem höfðu fyllt út spurningarlista um mataræði, fylgst var með kon- unum á árunum 1998-2006. Konur sem borðuðu einn til þrjá skammta af súkkulaði á mánuði voru með 26% færri tilfelli hjartabilana og þær sem borðuðu einn til tvo skammta á viku voru með 32% færri tilfelli. Fræðingar leiða líkur að því að efni í súkkulaðinu lækki blóðþrýstinginn og dragi því úr áhættu á hjartabilun. Þær konur sem komu best út úr rannsókninni borða einn til tvo skammta, sem eru 19 til 30 grömm, af dökku súkkulaði á viku. Dökkt súkku- laði í Svíþjóð inniheldur a.m.k. 30% kakó. Heilsa Reuters Súkkulaði Hollt og gott í hófi. Hófleg neysla á dökku súkku- laði dregur úr hjartabilunum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.