Morgunblaðið - 25.08.2010, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 25.08.2010, Qupperneq 12
FRÉTTASKÝRING Egill Ólafsson egol@mbl.is Munur á rafmagnsverði í smásölu til heimila er óvenjulega mikill um þessar mundir eða 7,7%. Það þýðir að munur á hæsta og lægsta verði er um 2000 krónur á ári miðað við meðalnotkun. Verðið er lægst hjá Orkubúi Vestfjarða og Orku- veitu Reykjavíkur. Innan við 1% af heimilum í landinu hafa skipt um orkukaupanda frá því samkeppni var innleidd á raforkumarkaði. All- mörg fyrirtæki hafa hins vegar leitað eftir til- boðum hjá orkufyrirtækjunum. Þar er því hægt að tala um virkan samkeppnismarkað. Um fimm ár eru síðan tekin var upp sam- keppni við sölu á rafmagni. Samkvæmt lögum ríkir samkeppni í sölu og framleiðslu á rafmagni, en ekki í dreifingu. Rúmlega helmingur af venju- legum rafmagnsreikningi er tilkominn vegna dreifingar rafmagns. Fólk í Reykjavík verður að borga Orkuveitu Reykjavíkur, sem á raflínurnar, fyrir þessa þjónustu. Fólk getur hins vegar keypt rafmagnið af hvaða orkufyrirtæki sem er. Óvenjulega mikill verðmunur Það eru sex fyrirtæki sem bjóða rafmagn til sölu í smásölu hér á landi. Miðað við verð á al- mennum taxta er munur á hæsta og lægsta verði 7,7%. Lægst er verðið hjá Orkubúi Vestfjarða, en hæst er verðið hjá Orkusölunni, sem er dótt- urfélag RARIK. Andri Teitsson, framkvæmdastjóri Fallorku, dótturfélags Norðurorku á Akureyri, segir að þessi verðmunur sé óvenjulega mikill um þessar mundir. Oftast nær hafi venjulegt heimili hagn- ast um 200-300 kr. á ári með því að skipta við þann sem býður lægsta verðið frekar en þann sem er með hæsta verðið. Nú er þessi munur um 2000 kr. miðað við ársnotkun. Andri á von á að munurinn minnki aftur þegar OR breyti verðskrá sinni. Verðskrá Orkubús Vestfjarða hækkaði um 3% 1. ágúst sl. og fyrir liggur að verðskrá Orku- veitu Reykjavíkur, sem er með svipað verð og Orkubú Vestfjarða, hækkar á næstunni. Öll orkufyrirtækin hafa hækkað gjaldskrána á síð- ustu mánuðum. Gjaldskrá Landsvirkjunar hækk- aði um 8,3% 1. júlí sl., en flest orkufyrirtækin kaupa rafmagn af Landsvirkjun og selja það auk eigin framleiðslu til heimila og fyrirtækja. Fyrirtæki leita tilboða Andri segir að þó að heimilin í landinu hafi sýnt samkeppni á raforkumarkaði lítinn áhuga gildi ekki það sama um fyrirtækin. Þau hafi ver- ið nokkuð dugleg að óska eftir tilboðum frá orkufyrirtækjunum. Það sé því virkur mark- aður hjá stærri og meðalstórum fyrirtækjum. Samningarnir við þau séu með ýmsum hætti. Þeir taki m.a. mið af því hvernig notkunin er. Bakarí sem noti mikla orku á nóttunni, geti t.d. gert hagstæða samninga og eins fyr- irtæki sem nota mikla raforku á sumrin. Andri segir að fyrirtæki sem eru með starfstöðvar á fleiri en einum stað á landinu skipti gjarnan við sama orkusala. Þannig hafi Fallorka misst fyr- irtæki Haga úr viðskiptum, en á móti náð Mjólk- ursamsölunni og Vífilfelli í viðskipti. Ríkiskaup hefur einnig óskað eftir tilboðum í kaup á raf- magni. Kristján Haraldsson, framkvæmdastjóri Orkubús Vestfjarða, telur hins vegar að fyr- irtækin mættu vera duglegri að leita tilboða í raforku. Markaðurinn sé ekki eins virkur og hann hafi vonast eftir. Mjög einfalt er fyrir heimilin að færa við- skipti með raforku annað. Einungis þarf að senda einfalda tilkynningu um nýjan orkuselj- anda og síðan kemur rafmagnsreikningur frá nýjum aðila mánuði síðar. Um 7,7% munur er á hæsta og lægsta verði  Innan við 1% heimila hafa skipt um raforkusala frá því samkeppni hófst 12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2010 Samfok, sam- tök foreldra grunnskóla- barna í Reykjavík, hvetur for- eldra til að ganga með börnum sínum í skólann fyrstu skóladagana. Þetta á sér- staklega við um yngstu börnin sem eru að hefja skólagöngu sína í dag. Mikilvægt sé að sýna þeim heppi- legustu leiðina og kenna þeim á nærumhverfi sitt. Gangan sé auk þess hressandi og skemmtileg fyrir alla og gefi foreldrum innsýn í heim barnsins og umhverfi skólans. Samfok vill jafnframt benda for- eldrum á að útivistartími barna tek- ur breytingum frá og með 1. sept- ember nk. Þá mega börn 12 ára og yngri ekki vera úti eftir kl. 20:00 og 13-16 ára unglingar mega ekki vera úti eftir kl. 22:00. Börnin fái fylgd Aldrei hafa verið fleiri íbúar í Hveragerði en einmitt nú. Sam- kvæmt nýjustu tölum eru Hver- gerðingar 2.324 talsins, tveimur fleiri en í júlí 2008 þegar fyrra met var sett. „Þegar krepp- an skall á tókum við þá ákvörðun að takast á við verkefnin með já- kvæðum hætti. Halda áfram að bæta umhverfið og skera ekki nið- ur þjónustu við barnafólk,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri. Þróunin í Hveragerði er athygl- isverð í ljósi þess að Íslendingum hefur heldur fækkað og því hefur íbúum flestra sveitarfélaga fækk- að. Aldís segir greinilegt að Hveragerði sé ákjósanlegur bú- setukostur, ekki síst fyrir fjöl- skyldufólk. Jákvæðni í Hveragerði Aldís Hafsteinsdóttir Notendur Nokia-síma geta nú feng- ið Ovi Maps frítt í símann sinn. Ovi Maps er nýtt korta- og leið- sögukerfi sem gerir fólki kleift að nota símann sem leiðsögu- og stað- setningartæki nánast hvar sem er í heiminum. Ovi Maps fylgir ókeypis Íslandskort af bæði þéttbýli og dreifbýli, með nákvæmu götukorti yfir Reykjavík, ásamt upplýsingum um áhugaverða staði, veitingahús, sundlaugar, söfn o.fl. umhverfis landið. Einnig er hægt að hlaða nið- ur kortum af hundruðum borga um allan heim. Frítt leiðsögukerfi fyrir Nokia-síma Kristján Haraldsson, framkvæmdastjóri Orkubús Vestfjarða, útilokar ekki að fyr- irtækið muni breyta rafmagnsverði á sam- keppnishlutanum ef Orkuveita Reykjavíkur hækkar gjaldskrá sína. Hann segir að Orkubúið ætli eftir sem áður að bjóða lægsta verðið, enda hafi það allar for- sendur til að gera það. Fyrirtækið skuldi lítið og framleiði sjálft um 2/3 af þeirri orku sem það selur. Orkubú Vestfjarða hagnaðist um 234 milljónir á síðasta ári sem er besta af- koma í sögu félagsins. Fyrirtækið skuldar sáralítið. Kristján segir að fyrirtækið hafi verið rekið af íhaldssemi og það komi því til góða núna. Það ætli að stækka og endurbæta Mjólk- árvirkjun fyrir milljarð á þessu og næsta ári án þess að taka neitt að láni. Ætla að bjóða áfram lægsta verð ORKUBÚ VESTFJARÐA Orka Tæplega helmingur raforkuverðs til heimila er á samkeppnismarkaði. Morgunblaðið/ÞÖK Samanburður á raforkuverði Sala Taxti kr/kWh Kostnaður, kr/ári Orkubú Vestfjarða Almennur 4,13 28.759 Orkuveita Reykjavíkur Almennur 4,15 28.894 Fallorka Almennur 4,39 30.518 Hitaveita Suðurnesja Almennur 4,39 30.518 Rafveita Reyðarfjarðar Almennur 4,43 30.789 Orkusalan Almennur 4,45 30.925 Forsendur: 140m2 raðhús í 110 Reykjavík (Árbær) Jeppadekk í miklu úrvali Bílabúð Benna er umboðsaðili BFGoodrich og TOYO TIRES á Íslandi. Komdu við á nýju fullkomnu hjólbarðaverkstæði að Tangarhöfða 8. Stofnað 1975 Hjólbarðaverkstæði Bílabúðar Benna - Tangarhöfða 8 - S: 590 2000 / Nesdekk - Fiskislóð - sími 561 4110 / Nesdekk - Reykjanesbæ - sími 420 3333 Reykjanesb æ Rey kjavík Kristján Haraldsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.