Morgunblaðið - 25.08.2010, Side 26

Morgunblaðið - 25.08.2010, Side 26
26 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2010 Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér skilja, að ég er í föður mínum og þér í mér og ég í yður. (Jh. 14, 20.) Krossgáta Lárétt | 1 þrjót, 4 hestum, 7 blóma, 8 ávítur, 9 lyftiduft, 11 loftgat, 13 krana, 14 náð- hús, 15 grastorfa, 17 kapp- söm, 20 snák, 22 fullgerður, 23 ísstykki, 24 sveiflufjöldi, 25 illi. Lóðrétt | 1 fljót, 2 ákveð, 3 moldarsvæði, 4 kinda, 5 skalli, 6 mólendið, 10 gufa, 12 keyra, 13 ósoðin, 15 gekk til þurrðar, 16 undirokað, 18 köggla, 19 birgðir, 20 segi, 21 grannur. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 Þýskaland, 8 undar, 9 náðar, 10 arg, 11 dónar, 13 arð- an, 15 lasts, 18 eisan, 21 tíð, 22 krani, 23 lotan, 24 fangaráði. Lóðrétt: 2 ýldan, 3 kórar, 4 langa, 5 næðið, 6 hund, 7 Frón, 12 alt, 14 rói, 15 lykt, 16 skata, 17 sting, 18 eðlur, 19 sótið, 20 núna. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 Rf6 2. Rf3 g6 3. g3 Bg7 4. Bg2 O-O 5. c4 c6 6. b3 d5 7. Bb2 a5 8. Rc3 Be6 9. O-O Ra6 10. Re5 Re8 11. cxd5 cxd5 12. Hc1 Rec7 13. Ra4 Dd6 14. Dd2 f6 15. Rd3 Bf5 16. Rdc5 b5 17. Rb7 De6 18. Rc3 Rb8 19. Hfe1 Ha7 20. Rc5 Dd6 21. Rxd5 Rxd5 22. e4 Bxe4 23. Rxe4 Dd8 24. Rc5 Rc7 25. De3 He8 26. d5 Dd6 27. Re4 Da6 28. d6 Rd5 29. Dd2 Rb4 Staðan kom upp á alþjóðlegu móti sem lauk fyrir skömmu í Leiden í Hol- landi. Sigurvegari mótsins, bosníski stórmeistarinn Predrag Nikolic (2592), hafði hvítt gegn hinum ísra- elska kollega sínum Leonid Gofshtein (2521). 30. Rxf6+! Bxf6 31. Bxf6 og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Ásablæti. Norður ♠DG984 ♥ÁD43 ♦4 ♣ÁKG Vestur Austur ♠1063 ♠-- ♥8 ♥KG10962 ♦109853 ♦K762 ♣10984 ♣D73 Suður ♠ÁK752 ♥75 ♦ÁDG ♣652 Suður spilar 6♠. Austur opnar á veikum 2♥ og suður kemur inn á 2♠. Vestur er þegar horf- inn á vit dagdrauma sinna, en hvað á norður að gera? „Stopp! – fjögur grönd.“ Við þekkj- um þetta öll. Slemma liggur í loftinu og yfir okkur kemur óviðráðanleg löngun til að spyrja um ása. Auðvitað er samt meira vit í því að nota plássið til rann- sókna, byrja til dæmis á því að krefja makker sagna með 3♥. Ef suður á ein- spil í hjarta gæti hæglega unnist al- slemma. En það er sama hvað leið er valin í þessu spili, sagnir enda alltaf í hálfslemmu. Hvernig er best að vinna úr spilinu með ♥8 út? Leiðarstefið er að endaspila austur. Það er gert þannig: drepið á ♥Á, vörn- in aftrompuð í þremur umferðum, tíg- ulásinn lagður niður og hjarta dúkkað yfir. Austur sér um afganginn. 25. ágúst 1895 Hið skagfirska kvenfélag var stofnað. Tilgangur þess var að styðja við réttindabaráttu kvenna og stuðla að aukinni menningu meðal þeirra. Fé- lagið er enn starfandi, sem Kvenfélag Sauðárkróks, og hefur lengi staðið fyrir dæg- urlagakeppni í tengslum við Sæluviku Skagfirðinga. 25. ágúst 1934 Bakarar minntust þess að stétt þeirra hafði starfað hér á landi í eina öld. Blómsveigar voru lagðir á leiði tveggja fyrstu brauðgerðarmannanna, Daníels Bernhöfts og Heil- manns. 25. ágúst 1940 Slökkt var á 52 vitum um óákveðinn tíma, að fyrir- mælum bresku herstjórnar- innar, en áfram loguðu ljós á 19 vitum. Tíminn sagði að ákvörðunin hefði „mælst mis- jafnlega fyrir meðal sjófar- enda“. 25. ágúst 1950 Gunnar Huseby varði Evr- ópumeistaratitil sinn í kúlu- varpi á móti í Brussel þar sem hann kastaði 16,74 metra, sem var Íslandsmet, Norðurlanda- met og Evrópumet, og vann með miklum yfirburðum. 25. ágúst 1970 Stífla í Miðkvísl í Laxá í Suð- ur-Þingeyjarsýslu var sprengd til að mótmæla stækkun Laxárvirkjunar. Samkomulag tókst í Lax- árdeilunni í maí 1973. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist … (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Freisting kemur við sögu fyrir hádegi. Kannski er það ástæðan fyrir því að samræð- ur við maka og nána vini eru jafn alvörugefn- ar og raun ber vitni. (20. apríl - 20. maí)  Naut Komi til árekstra milli þín og vinar skaltu varast að láta reiðina ná tökum á þér. Samvera í slíkum félagsskap mun vafalaust veita þér mikla gleði. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þótt sumum þyki nóg um þá ábyrgð, sem þér er falin, þarftu hvergi að ótt- ast, því þú ert maður fyrir þinn hatt. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú ættir að breyta út af vananum á einhvern hátt í dag. Skeyttu því engu þó aðrir telji það barnalegan hégóma. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Sum verkefni eru eins og langur vegur upp í móti, ekki láta þá blekkingu aftra þér frá því að ná árangri. Suma daga, eins og til dæmis í dag, er bara auðveldara að sjá sam- hengið. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Það er óþarfi að stökkva upp á nef sér þótt aðrir hlaupi ekki upp til handa og fóta til að framkvæma hugmyndir þínar. Reyndu að ýta þessu frá þér. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Það er nánast ekki hægt að standast freistinguna að eyða peningum í dag, en ekki láta eyðsluna tæma veskið. En það er óþarfi að vorkenna sér, þótt ekki sé unnt að kaupa alla hluti. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Óskhyggja gærdagsins er orðin að ringulreið. Heimspekilegar vangaveltur og trú annarra vekja áhuga þinn. Vertu ákveðinn. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Vinnan verður leikur einn þegar yfirmaðurinn bregður sér frá. Vertu bara já- kvæður og leyfðu öðrum að blása; það skað- ar þig hvort eð er ekkert. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Einhver sér ástæðu til þess að umbuna þér í dag. Liðsinni þitt er nóg og því ekki þörf á að gera nokkuð annað. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Mundu að grasið er ekki grænna handan hornsins. Næstu fjórar til sex vik- urnar henta því vel til einveru og íhugunar. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Spennandi atvinnutækifæri blasa við þér á þessu ári. Sinntu þínu og þá munt þú verða ofan á þegar vinda lægir aftur á. Stjörnuspá Sudoku Frumstig 1 4 5 1 2 2 7 1 7 6 4 8 3 5 3 6 6 5 8 8 3 7 7 6 4 1 7 4 8 3 5 4 1 3 9 7 8 1 4 6 9 3 8 8 5 6 4 9 9 5 4 3 4 3 9 7 6 7 7 5 6 1 8 4 7 6 1 3 8 5 7 3 6 5 9 1 9 4 7 8 3 1 9 6 5 2 5 9 6 7 4 2 3 1 8 3 2 1 6 5 8 4 7 9 1 6 3 2 8 4 7 9 5 7 8 9 5 6 1 2 4 3 2 4 5 9 7 3 1 8 6 9 1 2 8 3 7 5 6 4 6 3 7 4 9 5 8 2 1 8 5 4 1 2 6 9 3 7 6 7 2 8 3 4 1 9 5 4 5 1 9 7 6 2 3 8 8 3 9 1 2 5 7 4 6 9 2 6 7 8 1 3 5 4 7 1 4 5 6 3 8 2 9 5 8 3 4 9 2 6 1 7 3 9 7 2 5 8 4 6 1 1 6 8 3 4 9 5 7 2 2 4 5 6 1 7 9 8 3 8 9 1 7 3 4 5 2 6 6 3 5 9 1 2 7 4 8 7 4 2 5 6 8 1 9 3 4 5 7 8 2 1 6 3 9 9 1 8 3 5 6 2 7 4 2 6 3 4 7 9 8 1 5 5 7 6 1 9 3 4 8 2 3 2 4 6 8 7 9 5 1 1 8 9 2 4 5 3 6 7 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er miðvikudagur 25. ágúst, 237. dagur ársins 2010 Víkverji lét sig hafa það að hlaupafjórðung Reykjavíkurmara- þons eða tíu kílómetra. Víkverji hef- ur oft hlaupið áður og það versta er að honum virðist frekar fara aftur heldur en fram. Sýnist honum hann kominn vel á veg með að afsanna orðskviðinn um að æfingin skapi meistarann. Í tilfelli Víkverja virðist æfingin ekki nema rétt ná að skapa meðalskussann. x x x Mikill fjöldi tók þátt í hlaupinuþetta árið. Líkt og venjulega mjakaðist hópurinn af stað út Lækjargötu, Fríkirkjuveg og upp Skothúsveg. Á Suðurgötunni fer að losna aðeins um hópinn, en að þessu sinni var það þó ekki fyrr en á Æg- isíðunni að hægt var að hlaupa á eig- in hraða. Víkverji tók eitt sinn þátt í hlaupi í Bandaríkjunum þar sem þátttakendum var skipt niður í hólf eftir getu. Fremst voru settir þeir, sem hugðust hlaupa undir 45 mín- útum. Síðan komu þeir, sem ætluðu að hlaupa á 45 til 55 mínútum og svo komu þeir, sem ætluðu að hlaupa á lengri tíma. Þetta þýddi að þeir, sem voru ræstir um leið hugðust hlaupa á svipuðum tíma og myndaðist þá ekki sama örtröð og búast hefði mátt við hefði allur hópurinn staðið í einum hnapp og verið ræstur um leið. Skipuleggjendur Reykjavíkur- maraþons líta ef til vill ekki á þetta sem áhyggjuefni, en í það minnsta er þessari ábendingu hér með komið á framfæri. x x x Veðrið á laugardaginn var íviðhryssingslegra en við höfum átt að venjast sunnanlands í sumar og var kaldur vindurinn, sem næddi um þegar komið var út á Seltjarnarnes, mörgum hlaupurum erfiður. Hins vegar munaði mikið um þá fjöl- mörgu, sem höfðu stillt sér upp með- fram hlaupaleiðinni og hvöttu hlaup- arana með hrópum, ýlum og hrossabrestum. Sérstakt hrós á rokkbandið á Lindarbrautinni skilið. Það brást ekki frekar en fyrri dag- inn og átti snaran þátt í að Víkverji skyldi komast á leiðarenda. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar „Svei mér þá ef ég fer ekki bara batnandi með ár- unum,“ segir Tinna Hrafnsdóttir sem í dag er 35 ára gömul. „Reyndar hef ég aldrei verið jafn sann- færð og einmitt núna að aldur er algjörlega af- stæður því mér líður eins og ég sé ekki degi eldri en tuttugu og fimm!“ Tinna er leikkona og hefur mörg járn í eldinum um þessar mundir; „Það eru nokkur verkefni í gangi núna. Tökur í stuttmynd, handritavinna fyrir sjálfstæða leiksýningu sem ég og fleiri fengum styrk fyrir frá Leiklistarráði til að setja upp, en auk þess er ég þessa dagana að framleiða Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík, sem flestir þekkja sem RIFF.“ Tinna hefur ekki ákveðið hvort hún blæs til veislu í tilefni afmælisins en ætlar í það minnsta að hitta sína nánustu í dag. „Og svo á ég von á einhverju óvæntu og skemmtilegu frá ástinni minni,“ segir Tinna. Hún segir koma til greina að halda upp á tímamótin með vinkonu sinni í september en í það minnsta ætlar hún að halda kaffiboð fyrir fólk í innsta hring. Segist hún ekki hafa verið dugleg við að halda upp á af- mælið sitt gegnum tíðina. „En þar sem ég er að verða þrjátíu og fimm þetta árið finnst mér nú kominn tími til!“ skulias@mbl.is Tinna Hrafnsdóttir 35 ára Fer batnandi með árunum Nýirborgarar Reykjavík Daníel Logi Æv- arsson fæddist 5. júlí kl. 20.46. Hann vó 3.150 g og var 46,5 cm langur. For- eldrar hans eru Kristrún Guð- mundsdóttir og Ævar Freyr Æv- arsson. Kristín Þorsteins- dóttir frá Firði í Múlahreppi, bú- sett í dvalarheim- ili aldraðra, Víði- hlíð í Grindavík, er 95 ára í dag, 25. ágúst 2010. Í tilefni dagsins tekur hún á móti ættingjum og vin- um laugardaginn 28. ágúst næst- komandi í Verkalýðshúsi Grinda- víkur að Víkurbraut 46 frá kl. 14–17. 95 ára Flóðogfjara 25. ágúst Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 0.48 0,5 6.48 3,7 12.54 0,5 19.02 4,0 5.50 21.11 Ísafjörður 2.50 0,3 8.37 1,9 14.51 0,3 20.53 2,1 5.45 21.25 Siglufjörður 5.05 0,2 11.17 1,2 17.07 0,3 23.23 1,3 5.28 21.09 Djúpivogur 3.57 2,0 10.07 0,4 16.18 2,1 22.25 0,4 5.17 20.43 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Árnaðheilla

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.