Morgunblaðið - 25.08.2010, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2010
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Einhver skemmtilegasta hljómsveit
landsins, Sniglabandið, fagnar í ár
25 ára afmæli og af því tilefni verður
blásið til stórtónleika á stóra sviðinu
í Borgarleikhúsinu á laugardaginn,
28. ágúst, kl. 20. Blaðamaður sló á
þráðinn til trymbils sveitarinnar,
Björgvins Ploder, sem hefur verið í
hljómsveitinni frá því hún var stofn-
uð og spurði hann fyrst hvernig
sveitin hefði orðið til.
„Upphaflega hét hún Lagavals-
nefnd Bifhjólasamtaka lýðveldisins
og í þeirri nefnd voru Skúli Gauta-
son og Þormar Þorkelsson. Síðan
breyttist þetta í Sniglabandið af því
að þeir voru jú stofnendur að Snigl-
um, Bifhjólasamtökum lýðveld-
isins sem sagt, og síðan höf-
um við ekki getað hrist þetta
nafn af okkur þó við séum
bara þrír í bandinu á mót-
orhjólum,“ segir Björgvin.
Fyrsta gigg Björgvins með
Sniglabandinu var svo um áramót-
in 1985/6 á Þórshöfn á Langanesi. Í
Sniglabandinu voru upphaflega
Stefán Hilmarsson söngvari, Bjarni
Bragi Kjartansson bassaleikari, Sig-
urður Kristinsson á gítar, Björgvin
trommuleikari, Einar Rúnarsson
hljómborðsleikari og Skúli Gautason
sem lék á gítar og söng.
Fór út í fíflalæti
Fyrsta plata Sniglabandsins kom
út árið 1986, Fjöllin falla í hauga en
umslag hennar prýðir ljósmynd af
ömmu Björgvins, Aðalheiði, með
mótorhjólahjálm. „Þessi hljómsveit
stefndi í það að spila mótorhjólarokk
sem við gerum líka alltaf reglulega
en svo breyttist þetta óvart í fífla-
læti, náttúrlega með alvarlegu ívafi
en það er alltaf rosalega stutt í að við
bullum.“
-Þið eruð enda þekktir fyrir fífla-
læti …
„Já, í rauninni, fyrst og fremst.
Við spiluðum stundum niðri á Gauk
(á Stöng) í gamla daga, vorum
kannski bókaðir þrjú kvöld: sunnu-
dag, mánudag og þriðjudag og það
var troðfullt öll kvöldin og það kom
fyrir einu sinni að við spiluðum hálft
lag allt kvöldið, vorum bara að bulla
og fíflast í fólkinu en svo spiluðum
við stundum fimm, sex lög. Þetta var
svona eins og revía stundum.“
Búa lagið bara til
-Nú eruð þið líka þekktir fyrir að
spila það sem fólk biður um, voruð
lengi vel á Rás 2 á sunnudögum að
spila óskalög hlustenda. Getið þið
spilað hvað sem er?
„Við getum það alveg.“
-Hafið þið ekki strandað á ein-
hverju lagi?
„Nei, ég kjafta alla vega ekki frá
því. Ef við höfum aldrei heyrt lagið
þá búum við það bara til. Og sá sem
biður um lagið er þá búinn að leggja
á fyrir löngu þannig að við bara spil-
um lagið.“
-Nú ætlið þið að halda stór-
tónleika, eða sjónleika, ætlið að
leggja mikið upp úr sjónrænni upp-
lifun. Hvernig verður hin sjónræna
upplifun?
„Það verða einhver vídeó sýnd og
svo náttúrlega er þetta leikhús og
við nýtum það til hins ýtrasta,“ segir
Björgvin. Hljómsveitin muni hins
vegar ekki sjá um að matreiða veit-
ingar sem á boðstólum verða.
-Nú hafið þið verið að í aldarfjórð-
ung og aldrei tekið ykkur hlé. Ætlið
þið að halda áfram í önnur 25 ár?
„Ég býst fastlega við því. Eins og
ég sagði þegar ég byrjaði í þessu:
um leið og mér finnst þetta leiðinlegt
þá er ég hættur. Mér finnst bara svo
gaman að hitta þessa vitleysinga og
spila með þeim.“
Morgunblaðið/Ómar
2007 Sniglabandið skemmtir á Austurvelli í beinni útsendingu á Rás 2 fyrir þremur árum.
Alltaf stutt í bullið
Sniglabandið á 25 ára afmæli og blæs af því tilefni til
stórtónleika, eða sjónleika, í Borgarleikhúsinu Í upphafi
átti að flytja mótorhjólarokk en fíflalæti tóku völdin
Það er ekki hægt að sleppa Björg-
vin úr viðtali án þess að biðja hann
um skrautlega sögu af Snigla-
bandinu. Og hann kann eina æði
skrautlega. „Einar Rún-
arsson hefur sungið lag
sem heitir „Hægðatregðu-
blús“ og á einum tónleik-
unum var hann að syngja það
og við ferðuðumst alltaf með
klósett með okkur. Svo var kló-
settið dregið fram, sett á svið og
Einar söng „Hægðatregðublús“
með miklum tilþrifum, mikið garg
og hægðatregða í gangi. Þá kom
það fyrir að Einar gat bara ekki
haldið aftur af sér og rótararnir
þurftu sem sagt að þrífa það,“ rifj-
ar Einar upp. Atvikið átti sér stað á
bindindismóti í Húsafelli.
Hægðatregðublús
SKEMMTILEG SAGA ÚR SÖGU SNIGLABANDSINS
Í árdaga Sniglabandið þegar Stefán Hilmars var í því. Leður áberandi í klæðum.
sniglabandid.is
Fáðu úrslitin
send í símann þinn
Sala áskriftarkorta
í fullumgangi!
Fjórar sýningar að eigin vali
á besta verðinu
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Gauragangur - sýningar hefjast 3. sept
Gauragangur (Stóra svið)
Fös 3/9 kl. 20:00 Fös 10/9 kl. 20:00
Lau 4/9 kl. 20:00 Lau 11/9 kl. 20:00
Eftir Ólaf Hauk Símonarson - tónlist Nýdönsk
Harry og Heimir (Litla sviðið)
Fim 9/9 kl. 20:00 Fim 16/9 kl. 20:00 Fös 24/9 kl. 20:00
Sun 12/9 kl. 20:00 Sun 19/9 kl. 20:00
Einnig sýnt á Akureyri í nóvember
Enron (Stóra svið)
Mið 22/9 kl. 20:00 Fors Fös 24/9 kl. 20:00 Fim 30/9 kl. 20:00
Fim 23/9 kl. 20:00 Frums Lau 25/9 kl. 20:00 Fös 1/10 kl. 20:00
Stórsýning um brjálæðislegt dramb og fall
Horn á höfði (Litla svið)
Lau 18/9 kl. 14:00 Lau 25/9 kl. 14:00
Sun 19/9 kl. 14:00 Sun 26/9 kl. 14:00
Gríman: Barnasýning ársins 2010!
Lei
khú
sko
rtið
201
0/2
011
www
.leikh
usid.i
s I
Gildir
ágúst
2010
til j
Lei
khú
sko
rtið
201
0/2
011
OPIÐ
KO
www
.leikh
usid.i
s I mi
dasal
a@le
ikhus
id.is I
s
Lei
khú
sko
rtið
201
0/2
011
www
.leikh
usid.i
s I mi
d
ÞJÓÐLEIKHÚSI
SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS
Ð
Fíasól (Kúlan)
Lau 4/9 kl. 13:00 Sun 12/9 kl. 13:00 Sun 19/9 kl. 13:00
Lau 4/9 kl. 15:00 Sun 12/9 kl. 15:00 Sun 19/9 kl. 15:00
Lau 11/9 kl. 13:00 Lau 18/9 kl. 13:00
Lau 11/9 kl. 15:00 Lau 18/9 kl. 15:00
Haustsýningar komnar í sölu!
Hænuungarnir (Kassinn)
Fös 10/9 kl. 20:00 Fös 17/9 kl. 20:00 Fös 24/9 kl. 20:00
Lau 11/9 kl. 20:00 Lau 18/9 kl. 20:00 Lau 25/9 kl. 20:00
Sun 12/9 kl. 20:00 Sun 19/9 kl. 20:00 Sun 26/9 kl. 20:00
Fim 16/9 kl. 20:00 Fim 23/9 kl. 20:00
Haustsýningar komnar í sölu!
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Fim 9/9 kl. 19:00 Sun 19/9 kl. 19:00 Fös 1/10 kl. 19:00
Fös 10/9 kl. 19:00 Fös 24/9 kl. 19:00 Lau 2/10 kl. 19:00
Lau 18/9 kl. 19:00 Lau 25/9 kl. 19:00
Haustsýningar komnar í sölu! Sýningarnar hefjast kl. 19:00
Hamskiptin (Stóra sviðið)
Fös 27/8 kl. 20:00 Fim 2/9 kl. 20:00 Sun 12/9 kl. 20:00
Lau 28/8 kl. 20:00 Fös 3/9 kl. 20:00
Sun 29/8 kl. 20:00 Lau 11/9 kl. 20:00
Örfáar sýningar í haust vegna gríðarlegra vinsælda!
Nígeríusvindlið (Kassinn)
Fim 26/8 kl. 20:00 Lau 28/8 kl. 20:00 Sun 5/9 kl. 20:00
Fös 27/8 kl. 20:00 Lau 4/9 kl. 20:00
Aðeins sýnt til 5. september!