Morgunblaðið - 25.08.2010, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2010
HHH
-M.M., Bíófilman
HHH
„Óhætt að mæla með Salt sem
ofbeldisglaðari sumarafþreyingu“
S.V., MBL
SÝND Í SMÁRA-, HÁSKÓLA- OG BORGAR-
HHHH
„Salt er blautur draumur
hasarmyndafíkla“
-Þ.Þ., FBL
HHH
„Jolie stendur sig vel sem kvenkyns
útgáfan af Jason Bourne og myndin er
hugsanlega ein sú hraðskreiðasta sem
ég hef séð í allt sumar.”
T.V. - Kvikmyndir.is
HHH
„Salt er þrælgóð...
Unnendur hasarmynda
fá hér eftirlætisverk“
-Ó.H.T., Rás 2
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Sýnd kl. 6 og 10:10
POWE
RSÝN
ING
Á STÆ
RSTA
DIGIT
AL
TJALD
I LAN
DSINS
KL. 10
:15
HHHH
-Þ.Þ., FBL
HHH
-M.M., Bíófilman
Expendables kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára Karate Kid kl. 6 - 9 LEYFÐ
Salt kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 14 ára Babies kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó,
Háskólabíó
og Borgarbíó
Sýnd kl. 3:50 (3D) og 8 (2D)
HHH
S.V., MBL
Sýnd kl. 3:50, 5:45, 8 og 10:15 (POWER)
HHHHH
Fyrir alla KARLMENN í heiminum þá er þessi
mynd mesta veisla sem hægt er að fara á. Það
er einfaldlega upplifun að sjá þessa mynd.
Gillz - DV
HHH
T.V - Kvikmyndir.is
HHH
„James Bond í G-Streng”
-E.E., DV
HH
E.E., DV
HHHH
„Magnad madur, magnad”
ÞÞ-FBL
HHH
The Expendables uppfyllir
það sem hún lofar...
S.V. - MBL
SÝND Í SMÁRABÍÓ SÝND Í SMÁRABÍÓ SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
SÍÐUSTU SÝNING
AR
TOPPMYNDIN Í DAG Á ÍSLANDI OG USA!
ALLAR SVÖLUSTU HASARHETJURNAR
Í EINNI FLOTTUSTU MYND ÁRSINS
Sýnd kl. 3:50, 5:45, 8 og 10:15
FRÁ LEIKSTJÓRA HOT FUZZ
OG SHAUN OF THE DEAD
KEMUR EIN FYNDNASTA OG
FRUMLEGASTA MYND ÁRSINS
2 VIKUR Á TOPPNUM Í
USA!
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
www.laugarasbio.is
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
-bara lúxus
Sími 553 2075
Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
Kynjahlutfall bíógesta hefurverið heldur bjagað ínokkrar vikur, eða allt fráþví að Sylvester Stallone
og öll hin steratröllin úr The Expend-
ables komu til sögunnar og hasar-
þyrstir strákar fjölmenntu í bíó.
Rómantíska kvikmyndin Letters
to Juliet kemur því á hárréttum tíma
í kvikmyndahús og leiðréttir þessa
bjögun með því að draga dreymnar
stúlkur að stóra tjaldinu.
Sagan segir frá hinni ungu Sophie
Hall (Amanda Seyfried) sem vinnur
við að sannreyna heimildir í greinum
hjá New York Magazine. Hún á sér
þann draum heitastan að verða
greinahöfundur en yfirmaður hennar
virðist ekki gefa þeim draumi nokk-
urn gaum. Sophie er trúlofuð ástríðu-
fulla kokkinum Victor (Gael García
Bernal) sem elskar matargerð jafn-
mikið ef ekki meira en unnustu sína.
Parið heldur í snemmbúna brúð-
kaupsferð til Verónu á Ítalíu þar sem
Victor virðist hafa gleymt tilgangi
ferðarinnar og mælir sér mót við hina
ýmsu birgja, Sophie til mikillar
mæðu. Eftir að hafa fylgt unnusta
sínum í nokkurn tíma tekur hún sig
til og ákveður að fara í skoðunarferð
um Verónuborg upp á eigin spýtur. Á
ferð sinni kemur hún m.a. að svöl-
unum frægu þar sem skáldsagna-
persónur Shakespears, Rómeó og
Júlía, tjáðu hvort öðru ást sína. Þar
kemst hún í kynni við ritara Júlíu,
ítalskar konur sem vinna við að svara
þeim bréfum sem konur með brostin
hjörtu víðsvegar að úr heiminum hafa
sent Júlíu í þeirri von að hún geti
leyst úr vanda þeirra.
Myndin fer á flug er Sophie finnur
50 ára gamalt ástarbréf fyrir slysni
og ákveður að skrifa til baka. Upp frá
því hefst leitin að ástinni sem Sophie
finnur í hinum ýmsum myndum,
henni sjálfri til mikillar undrunar.
Flestir fara í bíó til þess að flýja
raunveruleikann og gleyma sér í
draumheimi þar sem nánast allt
gengur upp eins og í sögu. Þennan
fyrrnefnda draumheim er svo sann-
arlega að finna hjá Sophie á Ítalíu.
Þrátt fyrir að Letter to Juliet sé al-
gjör klisja og söguþráðurinn augljós
er ekki annað hægt en að falla kylli-
flatur fyrir þessari ástarþvælu.
Það sem einkennir myndina er
hversu hrein og ljúf hún er, en nú á
dögum er sjaldgæft að finna kvik-
myndir sem innihalda jafnfá blótsyrði
eða dónaleg atriði, því þau voru eng-
in. Dætur geta farið á myndina með
mæðrum sínum og/eða jafnvel ömm-
um án þess að fara í kleinu yfir kyn-
lífsatriðum eða öðru vandræðalegu
sem bregður stundum fyrir á stóra
skjánum. Ítalska landslagið hreinlega
stelur senunni (eins og alltaf þegar
það kemur við sögu), tónlistin gefur
hárrétta tóninn og leikararnir eru
geðþekkir og standa sig með prýði.
Maður veit að rómantísk mynd er
að gera góða hluti þegar áhorfandinn
vill vera í fótsporum aðalpersónanna.
Þar hittir Letters to Juliet í mark því
auðvelt er að setja sig í spor Sophie
og óhætt að segja að engin stelpa með
fullu viti myndi fúlsa við því að lenda í
hennar stöðu. Klisjan fer þó í nýjar
hæðir á síðustu mínútum mynd-
arinnar og létu bíógestir í sér heyra
með tilheyrandi hljóðum er kjána-
hrollurinn sveif hvað eftir annað yfir
salinn.
Einn af þeim fáu karlmönnum sem
staddir voru á myndinni gekk meira
að segja svo langt að veina til þess að
verja karlmennsku sína. Hann átti
alla mína samúð. Hvaða strákur get-
ur setið hljóður undir samtali á borð
við: „Can you move?“ – „Only my
lips.“ án þess að missa kúlið! Þrátt
fyrir yfirgengilega klisju er ekki ann-
að hægt en að fara brosandi heim af
myndinni, viss í sinni sök um að ástin
sé þarna úti.
Klisjuleg rómantík sem virkar
Sambíóin Álfabakka, Kringl-
unni, Keflavík og Akureyri.
Letters to Juliet
bbbnn
Leikstjóri: Gary Winick.
Aðalleikarar: Amanda Seyfried, Christo-
pher Egan, Vanessa Redgrave og Gael
García Bernal. 105 mín. Bandaríkin.
2010.
HUGRÚN
HALLDÓRSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Gengur upp „Þrátt fyrir að Letter to Juliet sé algjör klisja og söguþráðurinn augljós er ekki annað hægt en að falla
kylliflatur fyrir þessari ástarþvælu.“ Amanda Seyfried í hlutverki sínu.