Morgunblaðið - 25.08.2010, Side 36

Morgunblaðið - 25.08.2010, Side 36
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 237. DAGUR ÁRSINS 2010 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200 1. Hann stóð í lappirnar 1996 2. Ók inn í Íslandsbanka 3. Segir Lýsingu ekki fúsa að mæta 4. Tuttugu kg en aðeins 10 mánaða »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Dúettinn Ghostigital vinnur þessa dagana að nýrri breiðskífu sem er væntanleg um jólin. Ghostigital skipa tónlistarmennirnir Curver Thorodd- sen og Einar Örn Benediktsson. Fengu þeir félagar fjölda gesta með sér á plötuna, þar á meðal David Byrne, sem syngur í einu lagi á breið- skífunni. »33 Morgunblaðið/Ómar Curver, Einar Örn og David Byrne  Fyrsta breið- skífa hljómsveit- arinnar Swords of Chaos verður fá- anleg í forsölu á Gogoyoko í dag og í tilefni þess ætlar hljómsveitin að halda forútgáfu- tónleika á skemmtistaðnum Venue í kvöld kl. 21. The end is as near as your teeth kem- ur út á vegum Kimi Records og fer í almenna sölu 3. september. Forsala og for- útgáfutónleikar  Kvikmyndin The Good Heart eftir Dag Kára Pétursson er framlag Ís- lands í ár til norrænu kvikmyndaverð- launanna þar sem hún keppir við fjór- ar aðrar myndir um peningaverðlaun upp á 350.000 danskar krónur, 7,3 milljónir íslenskra. Myndirnar fimm verða sýndar á veg- um Græna ljóssins 29. október til 4. nóvember í Háskólabíói. The Good Heart framlag Íslands Á fimmtudag og föstudag Fremur hæg norðvestlæg eða breytileg átt. Skýjað en úr- komulítið á vestan- og norðanverðu landinu, en annars skýjað með köflum. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast sunnanlands. Á laugardag Suðvestan 5-10. Rigning um vestanvert landið en skýjað austantil. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Súld eða rigning á norðaustanverðu landinu, en bjart með köflum í öðrum landshlutum. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Suðurlandi. VEÐUR Strákarnir hans Alfreðs Gíslasonar í Þýskalands- og Evrópumeistaraliði Kiel urðu að sætta sig við tap gegn Hamburg í meist- araleiknum í þýska hand- boltanum en liðin áttust við í München í gærkvöldi. Aron Pálmarsson skoraði þrjú af mörkum Kiel í leikn- um sem markar upphaf handboltavertíðarinnar í Þýskalandi. »1 Tapleikur hjá Alfreð og Aroni Hólmfríður Magnúsdóttir spilar á móti mörgum af bestu knattspyrnukonum heims í banda- rísku atvinnudeildinni. Lið hennar hefur komið mjög á óvart og á ágæta möguleika á meistaratitlinum. „Það er frábært að fá að upplifa þetta á mínu fyrsta sumri í Banda- ríkj- unum,“ segir Hólm- fríður í viðtali við Morg- unblaðið. »3 Hólmfríður í baráttu um meistaratitilinn Óvissa ríkir um þátttöku Ásdísar Hjálmsdóttur spjótkastara í tveim- ur síðustu alþjóðlegu frjáls- íþróttamótunum sem hún hyggst taka þátt í á Ítalíu í næstu viku. Hálsbólga hefur verið að angra Ás- dísi síðustu dagana en hún hefur tekið þátt í mörgum mótum erlend- is í sumar, meðal annars í demanta- mótaröðinni. »1 Óvissa ríkir um þátt- töku Ásdísar á Ítalíu ÍÞRÓTTIR Önundur Páll Ragnarsson onundur@mbl.is „Ég sé um allt sem viðkemur húsinu en aðallega að markaðssetja það sem tónleikasal. Svo bý ég líka yfir al- mennri ræstikunnáttu,“ segir Davíð Ólafsson, kirkjuvörður í Guðríð- arkirkju í Grafarholti. Fengur er að Davíð fyrir kirkjuna þar sem hann tekur oft lagið fyrir kirkjugesti, bæði við guðsþjónustur og önnur tækifæri. Hann er vel þekktur sem óperusöngvari og skemmtikraft- ur, ekki síst í félagi við Stefán Helga Stefánsson tenór, sem með honum skipar frægan söngdúett. „Ég trana mér aldrei fram þannig séð, en hingað kemur fólk sem vill fá kirkjuna undir ýmsar athafnir. Svo horfir það á mig og spyr: „Hvað ert þú að gera hér?“ Ég segi: „Ég er kirkjuvörður hér.“ Og oft er svarið þá: „Nú syngur þú þá ekki bara?“ Svo ég geri það og ef það koma hingað ferðahópar og túristar tek ég náttúrlega lagið.“ En af hverju er Davíð kirkjuvörður hér heima en ekki úti í heimi að syngja þar og sigra heiminn? „Ég var að vinna í þrjú ár í Þýska- landi og Sviss. Ég söng í Lübeck þar sem er þúsund manna hús og svo í skemmtilegum uppfærslum á útisviði rétt hjá Berlín þar sem voru 5.000 manns á hverju kvöldi. Og einnig í Suður-Þýskalandi á útitónleikum þar, þar sem voru 5-6.000 manns. Það var rosalega skemmtilegt. En það er voða- lega lítils virði að gera einhvern frama annars staðar þegar það er enginn til staðar til að njóta þess með manni, fjölskylda eða ættingjar. Ég gerði það sem mig dreymdi um, stóð á óperusviðum úti í heimi. Ég er búinn að því og það var draumur sem rættist,“ segir Davíð. Nú er hann meiri skemmtikraftur og veislustjóri og fær alveg jafnmikla ánægju út úr því. Fjölskyldulífið sem hann saknaði er nú orðið að veruleika. „Ég barnaði organistann,“ segir Davíð, ánægður með afrekið, en Hrönn Helgadóttir, organisti í kirkjunni, er konan hans. Þau eignuðust nýverið tvíbura og Dav- íð er því nýkominn úr sex mánaða fæð- ingarorlofi. Nú er hann í hálfu starfi við kirkjuna, en sinnir þess á milli föð- urhlutverkinu og skipuleggur starf söngdúettsins. Þar er margt á döfinni. Nú er verið að semja revíu fyrir þá Davíð og Stef- án og í september fara þeir af stað með sögu- og söngskemmtun í sam- starfi við textahöfundinn Þorstein Eggertsson. Fyllir Guðríðarkirkju af tónum  Syngjandi kirkjuvörður eignaðist nýverið tvíbura með organistanum Morgunblaðið/Golli Í Guðríðarkirkju Þótt Davíð sé trúaður getur hann því miður ekki gengið á vatni eins og Frelsarinn gerði forðum. Guðríðarkirkja var vígð í desember 2008 en vegna kreppunnar er enn ekki komið pípuorgel þangað. Það er í smíði hjá Björgvini Tómassyni á Stokkseyri. „Ég er að fara af stað með söfnunarátak sem byrjar 3. október og þá verðum við með tónleika og leiksýningar hér á hverju einasta kvöldi,“ segir Davíð. Orgelið er það eina í smíði á landinu, en ef ekki safnast peningur til að klára verk- ið þarf smiðurinn að flytja úr landi til að fá vinnu. En hann er líka eini maðurinn á landinu sem gerir við gömul orgel svo það yrði missir. Diddú, karlakórinn Fóstbræður og barnakór frá Berlín hafa skráð sig til leiks og fleiri munu slást í hópinn. Orgelið þarf 1.100 pípur og kostar þrjátíu milljónir. Tvo þriðju af því á eftir að fjármagna. „Ég ætla að selja pípur fyrir jólin. Fólk má kannski ekki taka þær með sér heim, en má alltaf koma og hlusta á pípuna sem það kaupir,“ segir Davíð. Safnar fyrir orgeli í kirkjuna FÓLK GETUR KEYPT SÉR PÍPU Í ORGELINU Guðríðarkirkja

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.