Morgunblaðið - 05.10.2010, Blaðsíða 2
Morgunblaðið/Ómar
Fjölskylda Ellen, lengst t.v., ásamt dætrum sínum, Töru, Natalíu og Leu, og systur, Jóhönnu.
Ellen Erlingsdóttir sér ekki fram á
annað en hún missi íbúð sína í
Kópavogi. Þótt ekki hafi verið
krafist uppboðs á íbúðinni sér hún
ekki fram á að sér takist að halda
henni.
Um það bil ár er síðan Ellen
missti vinnuna, við bókhald, og
hún hefur ekki fundið starf síðan.
Ellen vonast eftir því að mótmælin
hreyfi við stjórnvöldum, að þau
komi með nýjar lausnir.
„Ég held að fólk sé algjörlega
búið að fá nóg,“ sagði hún við
blaðamann Morgunblaðsins á Aust-
urvelli í gærkvöldi.
Með Ellen voru þrjár dætur
hennar sem héldu á skiltum sem
ekki þarfnast nánari skýringa.
runarp@mbl.is
Sér fram á að
missa íbúðina
Morgunblaðið/Ómar
Mótmæli Fast var barið á trumbur.
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Mótmælin á Austurvelli hófust um kl. 19 en hávað-
inn magnaðist og fólkinu fjölgaði eftir því sem leið
að því að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
flytti stefnuræðu sína. Þeir sem höfðu sig mest í
frammi voru næst álgirðingunni sem lögregla
hafði reist við þinghúsið. Aftar var hópurinn fjöl-
breyttari. Þar var mikið um fólk á miðjum aldri og
þaðan af eldra, þarna voru foreldrar með ung börn
í kerru og unglingar, fólk úr flestum stéttum þjóð-
félagsins. Á nokkrum stöðum hafði stæðum af
stórum eggjabökkum verið komið fyrir og það var
greinilegt frá upphafi að sumir ætluðu sér ekki að
mótmæla á friðsamlegan hátt. Sá hópur var þó að-
eins lítið brot af öllum fjöldanum, líkt og í fyrra.
Fyrst í stað voru lögreglumenn fáir fyrir utan
þinghúsið og með húfur í stað hjálma. Eftir því
sem meiri hiti færðist í mótmælin fjölgaði lög-
reglumönnunum og fljótlega var þeim húfuklæddu
skipt út fyrir hjálmbúna menn í hlífðarbúningum.
Tilefnið var ærið. Eggjunum rigndi yfir húsið og
einhverjir úr sístækkandi hópi mótmælenda köst-
uðu m.a. golfkúlum, glerflöskum og stórum spýt-
um að húsinu og lögreglumönn-
unum. Enginn lögreglumaður
meiddist en brot kom í nokkrar
rúður þinghússins og rúða fyrir
ofan anddyri þingskálans
brotnaði. Mótmælendur voru
heldur ekki óhultir og a.m.k.
einn þeirra skarst á höfði þegar
hann fékk í sig glerílát. Af og til
sprungu flugeldar á Aust-
urvelli, með augljósri slysa-
hættu fyrir þá sem þar voru.
Þegar umræðum á þingi var lokið um kl. 22 hafði
mótmælendum fækkað mikið. Þegar von var á
þingmönnum út úr bílakjallara færði drjúgur hluti
hópsins sig að útgangi hans. Borði sem lögregla
notaði til að loka svæðið af var ítrekað slitinn
sundur og lítilli skottertu var hent logandi niður í
bílskýlið. Nokkrir þingmenn fóru ekki út um bíl-
skýlið heldur gengu þeir í gegnum hópinn og
smeygðu sér undir lögregluborðann, óáreittir.
Þeir sem óku nokkru síðar upp úr bílakjallaranum
fengu verri móttökur, bílar þeirra fengu á sig egg
og grjót. Um miðnætti voru enn 400-500 manns við
húsið.
Morgunblaðið/Ómar
Óánægja Mikið bál logaði í vörubrettum á Austurvelli í mótmælunum í gær. Kveikt var í flugeldum, og eggjum og fleiru kastað í þinghúsið. Langflestir mótmæltu með friðsamlegum hætti.
Hávaðinn stigmagnast
Lítill hópur grýtti eggjum, golfkúlum, grjóti og fleiru
Bílar þingmanna grýttir þegar þeim var ekið á brott
Einn fékk glerílát
í höfuðið.
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
„Ég er að mótmæla þess-
ari svívirðilegu háttsemi
sem er búin að ganga yfir
okkur endalaust,“ sagði
Bjarney Magnúsdóttir sem
var við Austurvöll í gær-
kvöldi ásamt eiginmanni
sínum. Búið væri að
fremja mikla glæpi í þessu
þjóðfélagi og almenningur
væri látinn blæða fyrir þá.
„Það er öll þessi spilling,
þetta er bara glæpamennska út í eitt, finnst
mér,“ sagði Bjarney.
Spillinguna og óréttlætið væri að finna í
öllum lögum þjóðfélagsins. Ekkert hefði
breyst eftir mótmælin í ársbyrjun 2009, sama
spillingin hefði haldið áfram. Hún vill nýjar
kosningar og þjóðstjórn að þeim loknum,
lausa við alla flokkapólitík. runarp@mbl.is
Þetta er glæpa-
mennska út í eitt
Bjarney
Magnúsdóttir
Mótmæli á Austurvelli
„Mér finnst að Alþingi megi vita að
almenningur ætlar ekki að láta
valta yfir sig,“ sagði Inga Björk
Andrésdóttir á Austurvelli. „Mat,
mat! Lýðveldi mitt fyrir mat,“ sagði
á skiltinu hennar og Inga Björk
sagði að þótt hún glímdi ekki við
erfið lán og stæði ágætlega væri
erfitt að koma sér áfram í lífinu á
eigin spýtur.
Björk Konráðsdóttir mótmælti
harkalegum niðurskurði og skatta-
hækkunum sem væri kannski ekk-
ert mál að takast á við „ef maður er
með milljón á mánuði eins og fólkið
þarna inni,“ sagði hún og benti í átt
að þinghúsinu. Hún er nemi í list-
fræði og var í hlutastarfi á lista-
safni þar til henni var sagt upp
vegna niðurskurðar.
Morgunblaðið/Ómar
Vinkonur Inga Björk og Björk með spjöld-
in á lofti á Austurvelli í gærkvöldi.
„Látum ekki
valta yfir okkur“