Morgunblaðið - 05.10.2010, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2010
Morgunblaið/RAX
Norðurþing Heilbrigðisstofnun Þingeyinga fer illa út úr niðurskurði.
FRÉTTASKÝRING
Einar Örn Gíslason
einarorn@mbl.is
Mikil óánægja er meðal forsvars-
manna heilbrigðisstofnana á lands-
byggðinni vegna hins mikla niður-
skurðar sem boðaður er í fjárlögum.
Skera á útgjöld heilbrigðisráðuneyt-
isins niður um 5%, en það hlutfall er í
takt við það viðmið sem gefið hafði
verið út um niðurskurð. Framlög til
heilbrigðisstofnana dragast hins
vegar saman um 19,6% sé miðað við
fjárlög ársins í ár. Niðurskurðurinn
er þannig úr takti við fyrirheit, og sú
undirbúningsvinna sem víða hefur
farið fram að mörgu leyti unnin fyrir
gýg. Ekkert samráð var haft við for-
svarsmenn stofnananna, en þeim
hins vegar kynnt fjárlögin degi áður
en þau voru gerð opinber. Viðmæl-
endur blaðsins voru á einu máli um
það, miðað við reynslu síðustu ára,
að ekki væri mikil von til þess að
frumvarpið breyttist í meðförum
þingsins, þrátt fyrir mikla óánægju.
Kostnaður mikið til bundinn
„Mér sýnist þetta vera byggða-
stefnan, gagnvart landsbyggðinni, í
hnotskurn. Það á að skera allt niður
sem er opinbert,“ segir Úlfar B.
Thoroddsen, forstjóri Heilbrigðis-
stofnunarinnar á Patreksfirði. Hann
segir ekki af neinu að taka á sinni
stofnun, þar sem flestir kostnaðar-
og þjónustuþættir séu bundnir.
Stærsti útgjaldaliðurinn sé til dæmis
leiga húsnæðis. Húsnæðið er í eigu
ríkisins og ekki útlit fyrir að komið
verði til móts við stofnunina með af-
slætti. Úlfar segist hafa reiknað með
niðurskurði í kringum 5% í sinni
áætlanagerð. Niðurstaðan varð hins
vegar sú að skera skuli niður um
8,2% frá fyrra ári. Óhjákvæmilegt
gæti reynst að fækka starfsfólki. Á
Heilbrigðisstofnuninni í Fjallabyggð
starfa um 70 manns í 57 stöðugildum
og er stærsti vinnuveitandinn á
staðnum. Konráð Karl Baldvinsson
forstjóri segir ljóst að niðurskurð-
urinn höggvi „stórt skarð“ í þá tölu.
„Ég held að ekki nokkrir forstöðu-
menn nokkurra stofnana hafi lent í
öðrum eins hremmingum og við er-
um að lenda í núna,“ segir hann. Frá
og með næstu áramótum mun
sjúkrarúmum á stofnuninni hafa
fækkað um ríflega 40% frá því sem
var fyrir fimm árum.
Aukin áhersla á sjúkraflug
Samhliða niðurskurði á heilbrigð-
isstofnunum er ætlunin að efla
heilsugæslu. Starfsemi heilbrigðis-
stofnananna breytist þannig í
„heilsugæslusjúkrahús“, sem veiti
almenna grunnþjónustu. Hinn eig-
inlegi bráðaþjónustuþáttur, með-
höndlun bráðra alvarlegra sjúkdóma
og slysa, fellur hins vegar að mestu
leyti út, en til mótvægis verða
sjúkraflutningar efldir. Framlag til
heimahjúkrunar verður aukið, og
sálfélagsleg aðstoð við ungt fólk efld.
Þröstur Óskarsson, forstjóri Heil-
brigðisstofnunar Vestfjarða á Ísa-
firði, segir fyrirhugaðar breytingar
og aukna áherslu á sjúkraflug líkleg-
ar til að auka óöryggi sjúklinga og
íbúa svæðisins sem stofnunin þjón-
ar. „Við erum þannig í sveit sett að
við getum ekki treyst sjúkraflugi
hvenær sem er,“ segir hann.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er
gert að skera niður um ríflega 18%.
„Okkur er gert að skera sjúkrasviðið
niður um helming, sem þýðir að við
verðum ekki sjálfbjarga um hlutina
eins og við höfum verið,“ segir
Þröstur. Niðurskurðurinn gæti þýtt
að stöðugildum fækkaði um 40.
Fjöldi starfsmanna er hins vegar
meiri, þar sem ekki eru allir í fullri
vinnu.
Ekkert samráð á neinu stigi
Hlutfallslegur niðurskurður, sam-
kvæmt fjárlögunum, verður mestur
á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga,
tæp 40%. Þetta leggst almennt mjög
illa í fólk, segir Jón Helgi Björnsson,
forstjóri stofnunarinnar. Hann segir
að niðurskurðurinn hafi í för með sér
uppsögn 40-45 stöðugilda, en við það
missa allt að 67 einstaklingar vinn-
una. Einfaldur hlutfallsreikningur
sýni að þetta jafngildi því að þrjú
þúsund Reykvíkingar misstu vinn-
una á einu bretti. Því sé um að ræða
gríðarlegt áfall, ekki aðeins fyrir
stofnunina, heldur allt atvinnusvæð-
ið.
Jón segir ekkert samráð hafa ver-
ið haft við sig eða sína starfsmenn á
neinu stigi málsins, og hann hafi
ekki séð þær tölur sem liggi að baki
ákvörðuninni. „Það á að reka svo-
kallað heilsugæslusjúkrahús hér á
Húsavík, en við höfum ekki fengið
neina skilgreiningu á því hvað í því
felst. Við höldum í raun að við séum
að reka það í dag,“ segir hann. Stór
hluti starfseminnar leggst niður í
kjölfar niðurskurðarins. Jón segir að
sé tekið tillit til þeirra sértekna sem
tapast við það að starfsemin dregst
saman sé niðurskurður framlaga til
sjúkrahússhlutans um 90%. „Það
þýðir auðvitað á mannamáli að hann
er lagður niður,“ segir Jón.
Niðurskurður á fjárframlögum til heilbrigðisstofnana
Grunnkort: Landmælingar Íslands
*Allar upphæðir í milljónum króna
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Fjárlög 2010: 2.784,80
Frumvarp 2011: 2.699,10
Breyting milli ára: -3,1%
Heilbrigðisstofnunin Patreksfirði
Fjárlög 2010: 261,3
Frumvarp 2011: 239,8
Breyting milli ára: -8,2%
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Fjárlög 2010: 1.020,20
Frumvarp 2011: 834,9
Breyting milli ára: -18,2%
Heilbrigðisstofnunin Blönduósi
Fjárlög 2010: 394,8
Frumvarp 2011: 351,1
Breyting milli ára: -11,1%
Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki
Fjárlög 2010: 822
Frumvarp 2011: 577,6
Breyting milli ára: -29,7%
Heilbrigðisstofnunin Fjallabyggð
Fjárlög 2010: 451
Frumvarp 2011: 376,7
Breyting milli ára: -16,5%
Heilbrigðisstofnun Þingeyinga
Fjárlög 2010: 925,9
Frumvarp 2011: 557,4
Breyting milli ára: -39,8%
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Fjárlög 2010: 2.029,20
Frumvarp 2011: 1.581,50
Breyting milli ára: -22,1%
Heilbrigðisstofnun Suð-Austurlands
Fjárlög 2010: 184
Frumvarp 2011: 162,1
Breyting milli ára: -11,9%
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Fjárlög 2010: 2.016,70
Frumvarp 2011: 1.691,10
Breyting milli ára: -16,1%
Heilbrigðisstofnunin Vestmannaeyjum
Fjárlög 2010: 672,1
Frumvarp 2011: 512,3
Breyting milli ára: -23,8%
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Fjárlög 2010: 1.704,90
Frumvarp 2011: 1.305,50
Breyting milli ára: -23,4%
St. Jósefsspítali
Fjárlög 2010: 1.322,70
Frumvarp 2011: 840,3
Breyting milli ára: -36,5%
Breytt ásýnd heilbrigðisþjónustu
Gríðarleg óánægja og undrun vegna fyrirhugaðs niðurskurðar fjárframlaga til heilbrigðisstofnana
Dragast mun meira saman en til heilbrigðisgeirans í heild Forstöðumenn ekki hafðir með í ráðum
„Þetta hefur í för
með sér verulega
þjónustuskerð-
ingu við íbúa
þessa fjórðungs,“
segir Einar Rafn
Haraldsson, for-
stjóri Heilbrigð-
isstofnunar Aust-
urlands.
Stofnuninni er
gert að skera
niður um 22% á næsta ári, en meg-
inhluti fjármagnsins fer út af
sjúkrahússviðinu. Líklegt sé að
segja þurfi upp starfsfólki. „Þetta
er bara hrein þjónustuskerðing,“
segir Einar. Hann efast um að hag-
ræðing náist með breytingunum.
Mikil þjónustuskerð-
ing á Austurlandi
Einar Rafn
Haraldsson
39,8%
niðurskurður á fjár-
framlögum til Heilbrigð-
isstofnunar Þingeyinga á
fjárlögum næsta árs
60-67
fjöldi starfsmanna sem
missa atvinnuna vegna
niðurskurðarins og óhjá-
kvæmilegra aðhalds-
aðgerða
‹ NIÐURSKURÐUR ›
»
Heilbrigðis-
stofnun Vest-
urlands sleppur
undan
niðurskurðar-
hnífnum að
mestu, í það
minnsta í sam-
anburði við aðrar
stofnanir. Stofn-
uninni er gert að
skera niður um
ríflega 3% á milli ára. Guðjón
Brjánsson forstjóri segir að ekki
muni koma til uppsagna. Þegar hafi
verið samið við starfsmenn um
lækkað starfshlutfall tímabundið,
og líklegt að farið verði í frekari að-
gerðir af þeim toga. Alls eru stöðu-
gildi hjá stofnuninni um 440, flest á
starfsstöðinni á Akranesi, eða 240.
Koma vel út í sam-
anburði við aðra
Guðjón
Brjánsson