Morgunblaðið - 05.10.2010, Side 13

Morgunblaðið - 05.10.2010, Side 13
FRÉTTASKÝRING Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Enn ríkir mikil óvissa varðandi end- urútreikninga erlendra bílalána, ekki síst í tilvikum þar sem bílarnir, sem lánað var fyrir, hafa skipt um eigendur. Frumvarps viðskiptaráð- herra er beðið með óþreyju, en þar mun koma fram hvernig endurút- reikningi skuli háttað. SP-fjármögnun hefur að undan- förnu endurreiknað erlend bílalán og kaupleigusamninga. Að sögn Haraldar Ólafssonar, forstöðu- manns verkefna- og þjónustusviðs SP-fjármögnunar, hefur áhersla verið lögð á að ljúka fyrst endurú- treikningi á þeim samningum þar sem sami lántaki hefur verið skráð- ur á lánið frá upphafi. Mikið álitamál Sú vinna er langt komin og munu 8.000 skuldarar fá send gögn um skuldastöðu sína 7. október. Haraldur segir að útreikningar erlendra lána á bílum, sem hafa skipt um eigendur, séu mikið álita- mál. Hann vonast til að í fyrirhug- uðu frumvarpi komi fram hvernig þeim útreikningum skuli háttað. „Þetta þarf að vinna á sanngjarnan hátt. Að okkar mati væri besta leiðin að skipta láninu upp, hafi fleiri en einn greitt af því, og leiðrétta lánið í samræmi við það, þannig að lántak- andi fái leiðréttingu á því tímabili sem hann greiddi af láninu.“ Halldór Jörgensson, forstjóri Lýsingar, segir að þar sé nú unnið að endurútreikningi og uppgjöri við viðskiptavini vegna bílasamninga. Fyrst verði tekin fyrir lán þeirra sem eru með virka samninga og hafa ekki farið í yfirtökur. „Við viljum fá sem flestar forsendur á hreint áður en við göngum endanlega frá þessu,“ segir Halldór. Hann gerir ráð fyrir því að útreikningunum verði lokið um miðjan október, fyrst verði lán einstaklinga endurreiknuð og síðan lán fyrirtækja. Halldór segist vona að í frum- varpinu verði skýr fyrirmæli um meðferð yfirtekinna lána. „Ég von- ast líka til að þar verði tekið á of- greiddum lánum.“ Óvissa um uppgjör Íslandsbanki Fjármögnun hefur endurreiknað bílasamninga og kaupleigusamninga í sam- ræmi við niðurstöðu Hæsta- réttar. Ingvar Stefánsson, yfirmaður Íslandsbanka Fjármögnunar, segir að nú sé verið að ljúka við end- urreikning lána sem hafa verið með sama greiðanda frá upphafi, það séu um 6.000 lán. Næst verða tekin lán sem hafa verið greidd upp og býst Ingvar við að gengið verði frá þeim í nóvember. Hann segir að enn sé óvissa um meðhöndlun uppgjörs á yfirteknum lánum. „Við vonumst til að í frum- varpinu komi fram hvernig endur- reikna eigi slík lán. Sanngjarnasta leiðin að mínu mati er að sá sem lenti í gengistapinu njóti lækkunar- innar.“ Meta þarf hvern og einn Fjármögnunarfyrirtækið Avant vinnur nú að endurútreikningi lána í erlendri mynt. Fyrst verða þeir samningar endurreiknaðir sem hafa verið í höndum sama lántaka frá upphafi og eru ekki greiddir upp. Gert er ráð fyrir að greiðsluseðlar verði sendir til viðskiptavina eftir 15. október. Enn ríkir hins vegar réttaróvissa um uppgjör yfirtekinna samninga. Helga Hermannsdóttir, deildarstjóri einstaklingsdeildar Av- ant segist búast við að í frumvarpinu verði línurnar lagðar hvað það varð- ar. Magnús Gunnarsson fram- kvæmdastjóri Avant segist fyrst og fremst gera þær kröfur til frum- varpsins að það sé sanngjarnt gagn- vart lántakendum. „Til þess að svo megi verða þarf að taka hvern og einn einstakling og reikna stöðuna á láni hans sérstaklega út.“ Frumvarp vekur væntingar Morgunblaðið/G.Rúnar Bílalán Útreikningar erlendra lána á bílum, sem hafa skipt um eigendur, eru mikið álitamál. Fjármögnunarfyrir- tæki binda vonir við að í fyrirhuguðu frumvarpi komi fram hvernig þeim útreikningum skuli háttað.  Fjármögnunarfyrirtækin binda vonir við boðað frumvarp stjórnvalda um endurreiknun gengislána  Sanngirni verður að ráða för við útreikninga yfirtekinna lána  Skýrra fyrirmæla er beðið 185 milljarða lán » Heildarverðmæti geng- isbundinna lána einstaklinga er 185 milljarðar. » Ein afleiðing af dómi Hæsta- réttar er lækkun þessarar verðmætistölu um 43 millj- arða. Bankakerfið tekur það á sig. » Séu gengisbundin lán fyr- irtækja tekin með í reikninginn fer heildarupphæð lánanna yfir þúsund milljarða. FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2010 www.noatun.is Sláturmarkaður opinn þriðjudaga til laugardaga. Þegar þú tekur slátur færðu mikinn mat fyrir lítinn pening auk þess sem sláturgerð er mikil skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Þú færð allt hráefni og öll áhöld til sláturgerðar í Nóatúni. Lærðu að taka slátur á www.noatun.is í sérstöku myndbandi eða fáðu kennslubækling gefins í næstu Nóatúns verslun. Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, boðaði frum- varp sitt um meðferð geng- istryggðra lána þann 17. september síðastliðinn. Frumvarpið kom í kjölfar dóms Hæstaréttar, þar sem kveðið var á um að vextir slíkra lána skyldu á hverjum tíma vera jafnhá- ir lægstu óverð- tryggðu vöxtum Seðla- bankans. Niðurstaða Hæstaréttar verður lögð til grundvallar lagasetning- unni. Frumvarpið mun gera það að verkum að allir þeir sem hafa tekið lán til bíla- eða húsnæðiskaupa með tengingu við erlenda gjald- miðla, sitji við sama borð. Uppgjöri og endurútreikningi bílalána og kaupleigusamninga var hraðað í kjölfar dómsins. Flestar fjármálastofnanir eru nú komnar vel á veg með þá vinnu og munu einhverjar þeirra senda út greiðsluseðla endurreiknaðra lána á næstu dögum. Frumvarp í kjölfar dóms ALLIR SITJI VIÐ SAMA BORÐ Árni Páll Árnason Alþýðusamband Íslands og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands efna til opinbers fyrirlestrar þriðjudaginn 5. októ- ber kl. 12 í Hátíðarsal HÍ. Fyrirlesari verður dr. Heiner Flassbeck, yfirmaður hjá Þróun- arstofnun Sameinuðu þjóðanna. Hann mun horfa til Íslands í fyr- irlestri sínum þegar hann fjallar um óveðursský í efnahagsmálum heimsins, sem leiddu til fjár- málakreppu og hruns fjár- málakerfa. Kristín Flygering hag- fræðingur og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, munu bregðast við fyr- irlestrinum með stuttu innlegi. Að því loknu verða almennar umræð- ur. Fundarstjóri verður Gylfi Magnússon. Flytur fyrirlestur um hrun fjármálakerfa Félag viðskipta- og hagfræðinga, FVH, efnir til hádegisverðarfundar á Grand hótel í dag, þriðjudaginn 5. október. Á fundinum verður fjallað um áhrif dóms Hæstaréttar um gengistryggð lán. Erindi flytja Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Sam- taka iðnaðarins, Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður og Tryggvi Þór Herbertsson alþingismaður. Fundurinn hefst kl. 12 og lýkur kl. 13.30. Fundurinn er öllum op- inn. Hádegisverður er innifalinn í verði, að því er segir í tilkynningu frá félaginu. Fundur um dóm

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.