Morgunblaðið - 05.10.2010, Side 30

Morgunblaðið - 05.10.2010, Side 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2010  Rás 2 stendur nú fyrir John Len- non tökulagakeppni og eru tólf lög komin í úrslit sem verða tilkynnt í Popplandi föstudaginn 8. október. Tilefnið er að sjálfsögðu afmæli Lennon 9. október og hingaðkoma ekkju hans, Yoko Ono, sem heldur hljómleika þann daginn. Tólf lög í úrslit Lennon tökulagakeppni Fólk  Lokaumferð Íslandsmótsins í Gokart fór fram laugardaginn sl, 2. október, en þetta er í fyrsta sinn sem haldið er Íslandsmót í grein- inni síðan árið 2006. Mótið fór fram á Rallýkrossbrautinni við Krýsuvík- urveg og fóru leikar þannig að Jón Ingi Þorvaldsson sigraði eftir harða og einkar jafna keppni. Jón Ingi slær einnig á bassastrengi með rokksveitinni XIII og er svartbelt- ingur í karate, á marga sigra að baki í þeirri sjálfsvarnarlist, m.a. Íslandsmeistaratitil í kumite. Fjöl- hæfur maður þar á ferðinni svo sannarlega! Þungarokkari Íslands- meistari í Gokart  Hann Hebbi okkar Guðmunds- son undirbýr nú innrás mikla á hljómplötumarkaðinn í haust en lagið „Time“, sem hann vann ásamt syni sínum hefur glumið í útvarps- stöðvum landsins undanfarið. Í vik- unni fer svo nýtt lag í spilun, „Treasure Hunt“. Lögin tvö draga bæði dám af eitís-tónlistinni sem Herbert sló í gegn með á sínum tíma en endurlit til þeirra tíma er mjög svo móðins hjá ungsveitum dagsins í dag. Spegill sálarinnar, síðasta hljóðversverk Herberts, kom út fyrir tveimur árum. Herbert Guðmundsson gefur út nýtt lag Dagskrá þessa mánaðar liggur nú fyrir hjá kvikmyndahúsinu Bíó Paradís og kennir þar ýmissa grasa. Kvikmyndin Nowhere Boy hefur verið tekin til sýninga en hún segir af Bítlinum John Lennon á unglings- árum sínum, þegar hann hitti Paul McCartney og stofnaði sína fyrstu hljómsveit. Fleiri myndir verða sýndar tengdar Lennon, hinn 8. október verður frumsýnd ný heim- ildarmynd Ara Alexanders um Yoko Ono, ekkju Lennons, og friðarsúluna í Viðey, Imagine Peace, og einnig verður boðið upp á úrval forvitni- legra mynda sem Lennon og Ono gerðu um og eftir 1970. Kvikmyndin Winter’s Bone, sem sýnd var á RIFF, verður sýnd áfram í Bíó Paradís og nýjasta kvikmynd Gaspars Noe, Enter the Void, en hún verður frumsýnd 8. október. 15. október verður svo frumsýnd heimildarmynd Þorsteins Jónssonar um séra Gunnar Kristjánsson, Liljur vallarins en í henni er ýmsum spurn- ingum varpað fram um Guð, tilgang lífsins og kirkjuna. 22. október verða svo frumsýndar kvikmyndirnar We Want Sex, bresk gamanmynd sem líkt hefur verið við The Full Monty, og Norð vestur, heimildarmynd Ein- ars Þórs Gunnlaugssonar um björg- unaraðgerðirnar á Flateyri eftir að snjóflóð féll á bæinn 26. október 1995. Þá mun Bíó Paradís sýna kvik- myndirnar sem tilnefndar eru til kvikmyndaverðlauna Norðurlanda- ráðs og þýskir dagar standa þar yfir til 7. október, fjórar þýskar kvik- myndir sýndar í samvinnu við Goethe-stofnunina. Hvergi Úr Nowhere Boy. Aaron Johnson leikur John Lennon ungan. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Fyrsta sólóplata tónlistarmannsins Erps Eyvindarsonar er væntanleg í mánuðinum en verið er að leggja lokahönd á verkið þessa dagana. Platan hafði ekki hlotið titil þegar blaðamaður sló á þráðinn til Erps undir lok síðustu viku, þá var hann á leiðinni á hugmyndafund með hönn- uðum þar sem fara átti yfir útlit um- slagsins og plötutitilinn. Plötuna gefur Erpur út undir lista- mannsnafninu BlazRoca og fær hann marga tónlistarmenn í lið með sér á henni, m.a. Sesar A, Dóra DNA, Ágúst Bent, Dabba T, MC Gauta, Henrik Biering, Friðrik Dór, hinn tíu ára gamla rappara MC Isaksen og bítboxarann Kidda sem einnig er ungur að árum en hann lék í kvik- myndinni Bjarnfreðarson, nánar til- tekið Georg Bjarnfreðarson ungan. Kiddi „bítboxar“ í laginu sem Is- aksen rappar í. Lærimeistari Erpur – Er Isaksen hinn ungi að flytja texta eftir þig? „Við unnum lagið sam- an, strákarnir, hittumst í stúdíói og þetta var mikil samvinna. Það náttúrlega segir sig sjálft að ég geri mikið en samt sem áður var þetta mikil samvinna,“ svarar Erpur. Lagið sem strákarnir flytja heitir „Pabbarnir“. – Þú ert lærimeistari ungra rapp- ara? „Já, klárlega, ég hef verið það lengi.“ Erpur segir að rappið sé þess eðlis að rapparinn tali fyrir hönd stórs hóps, þannig hafi rappið orðið til í upphafi. Menn séu að tala fyrir hönd síns hverfis, borgarinnar sinnar eða kynþáttar síns, til dæmis. Erpur hóf snemma að rappa á íslensku, ellefu ára gamall og hefur unnið með mörg- um tónlistarmönnum í þeim geira. Hann komst fyrir alvöru í kastljósið með hljómsveit sinni XXX Rott- weilerhundum sem fór með sigur af hólmi í Músíktilraunum árið 2000. Hann segist hafa slegið í gegn með þeirri ágætu og farsælu sveit. Ljónhart Kópavogslag – Hver eru yrkisefni þín á þessari plötu? Romm, vindlar og frænkur? „Ég væri að svíkja sjálfan mig ef ég væri ekki að rappa um romm og frænkur,“ segir Erpur, kíkir á laga- listann og bætir við að á plötunni megi m.a. finna pælingar um hipp- hopp-senuna á Íslandi, umfjöllun fjöl- miðla um hana og heimsósómaljóð um stöðuna á hlutum hjá ungu fólki. „Svo er fullt af partídóti og lag um landráð,“ bætir Erpur við. Á plötunni megi einnig finna ádeilu á íslensk stjórnmál og þjóðfélag, t.d. í lögunum „Reykjavík Belfast“, „Landráð“, „Stórasta landið“ og „Hleraðu þetta“. „Svo eru náttúrlega lög þarna sem allir þekkja sem orðin eru mjög vinsæl, „Elska þessar mellur“, „Viltu dick?“, „Keyrum þetta í gang“ og það allt,“ segir Erp- ur. „Svo er Kópavogslag sem heitir „Kópacabana“. Það er ljónhart.“ Ekki dónalegt – Ertu mjög dónalegur á þessari plötu? Kannski er ekki hægt að spyrja að því þegar þessi tegund tón- listar á í hlut? „Ég myndi ekki segja að þetta væri mjög dónalegt. „Elska þessar mellur“ er örugglega dónalegasta lagið og mér finnst það ekkert dóna- legt.“ – Það höfðar ekki til femínista? „Jú, það ætti alveg að gera það. Femínisminn hefur sem betur fer fengið miklu fleiri fylgismenn og af öðru sauðahúsi seinustu árin. Femín- istar eru fólk sem vill að jafnrétti kynjanna sé tryggt og að konur gjaldi ekki fyrir það að vera konur, hvorki í launum né fyrir dómstólum. Því fólki ætti að vera skítsama þó að ég sé eitthvað að fokkast, það er nátt- úrlega húmor í þessu. Það er enginn sem hlustar á þetta og hlær ekki.“ – Fólk áttar sig kannski ekki alltaf á því að það sé spaugsamur undir- tónn í svona lögum? „Ég held að fólk sem hlustar á lagið í gegn fatti það alveg. Og ef ekki þá er mér slétt sama.“ Romm, frænkur og landráð  Erpur Eyvindarson, BlazRoca, sendir frá sér sína fyrstu sólóplötu  Partí og heimsósómaljóð koma m.a. við sögu og tíu ára rappari RAPPORÐABÓKIN Blaðamaður bað Erp um að nefna nokkur ómissandi orð og frasa í rapptextum. Erpur varð við því og færði skýringar. Frænka: Hugguleg kona/stelpa. Hali: Getur þýtt margt, t.d. einhver sem er að dingla sér, sbr. hali sem dinglar, og að „vera á halanum“ sem þýðir í raun að vera dauðadrukkinn. Þá sitja menn á halanum, ófærir um að standa í lappirnar. Beygla: Tæpar píur. Lókur: Gamalt og gott íslenskt orð sem flestir ættu að vita hvað þýðir. Skinka: Ákveðin týpa af stelpu. Stundar ljósaböð af miklu kappi og málar sig fullmikið. Hali, beygla og lókur Morgunblaðið/Ernir Pósa Héðinn Valdimarsson var ljónharður og átti gemsa löngu áður en gemsar urðu til, að því er virðist. Erpur bregður sér í styttulíki. Lennon og Ono í Paradís

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.