Morgunblaðið - 21.10.2010, Síða 1

Morgunblaðið - 21.10.2010, Síða 1
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Skattframtöl ársins 2010 leiða í ljós að 3.632 framteljendur áttu meira en 100 milljónir hver og þessi hópur átti samanlagt 751,5 milljarða árið 2009. Fjölgað hafði í þessum hópi um 520 milli ára. Þetta kemur fram í Tíund, blaði ríkisskattstjóra. Árið 2009 töldu 3.112 framteljend- ur sem áttu meira en 100 milljónir fram tæpa 674,3 milljarða í eignir. Eignir þessa hóps hafa því aukist um 77,2 milljarða, eða 11,5% á sama tíma og 16,7% fleiri skipa þennan hóp. Öðru máli gegnir um skuldirnar en skuldir þeirra sem áttu minna en 50 milljónir jukust um 154,8 millj- arða, eða 152,8 milljörðum meira en eignirnar. Skuldir hinna sem áttu meira en 50 milljónir jukust um tæpa 54,4 milljarða. Fengu bætur ofan á launin Þá kemur einnig fram í Tíund að hátekjufólk hefur þegið atvinnuleys- isbætur. Í fyrra fengu 323 einstak- lingar sem voru með meira en tíu milljónir í laun, hlunnindi, lífeyri og greiðslur aðrar en fjármagnstekjur, greiddar atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun. Þetta fólk fékk rúmar 237 milljónir greiddar í bætur en var með tæpa 7,4 milljarða í tekjur. Atvinnuleysisbætur voru um 6,4% tekna þessa fólks. Í þessum hópi voru 290 með hærri tekjur árið sem þeir fengu bæturnar greiddar en árið áður. Fimm þeirra sem fengu greiddar atvinnuleysisbætur árið 2009 voru með meira en 40 milljónir í tekjur það ár. Þeir voru með tæpa 391 millj- ón í tekjur en þar af voru 4,7 millj- ónir í atvinnuleysisbætur. MLaun lækka en bætur hækka »14 3.632 eiga 750 milljarða  Umtalsverð fjölgun í hópi stóreignafólks  Fimm einstaklingar sem fengu greiddar atvinnuleysisbætur árið 2009 voru með meira en 40 milljónir í tekjur Hátekjufólk 2009 Meðmeira en 10 milljónir í launatekjur: 306 Þar af með meira en 15 milljónir: 246 F I M M T U D A G U R 2 1. O K T Ó B E R 2 0 1 0  Stofnað 1913  246. tölublað  98. árgangur  –– Meira fyrir lesendur fylgir með Morgu nblaði nu í da g KJÖTSÚPUDAGUR HALDINN Á FYRSTA VETRARDEGI FJÖLDI AUGLÝSINGA Á EINUM STAÐ ÁSTARSAGA UM DAG OG MÁNEYJU SEM LENTU Í KRÍSU NÝR AUGLÝSINGAMIÐILL MEGAS GEFUR ÚT BÓK 34EITT TONN AF SÚPU 10 Sú stefna stjórnvalda, að öllum sé tryggð fjármögnun við húsnæðis- kaup, er að mati greiningardeildar Arion banka væntanlega liðin undir lok, verði frumvarp ríkisstjórn- arinnar um breyttan fyrningartíma skulda að lögum. Segir í Markaðs- punktum Arion að frumvarpið, sem gerir ráð fyrir því að fyrningartíminn styttist niður í tvö ár, boði miklar breytingar á íslenskum lánamarkaði. Telur deildin einsýnt, að lánastofn- anir muni gera mun meiri kröfur um eigið fé við lánveitingar til húsnæðis- kaupa, verði frumvarpið að lögum. Lánamarkaðurinn muni því færast aftur til þess sem var fyrir einkavæð- ingu bankanna. Þetta feli í raun og veru í sér að hin gamalgróna séreign- arstefna íslenskra stjórnvalda – að öllum sé tryggð lánsfjármögnun til eigin íbúðarkaupa – sé liðin undir lok. „Aukin krafa um borð fyrir báru í lánveitingum mun gera að verkum að stór hluti fólks mun ekki hafa getu til eigin íbúðarkaupa vegna þess að eigið fé skortir – a.m.k. ekki nema hafa leigt og lagt fyrir um einhvern tíma. Þetta þýðir í hnotskurn að aðgangur uppvaxandi kynslóða að láns- fjármagni mun skerðast stórlega miðað við það sem hefur tíðkast hér- lendis um nokkurn tíma,“ segir grein- ingardeildin í Markaðspunktum. ivar- pall@mbl.is »Viðskipti Íbúðarkaup ekki lengur fyrir alla Arion Telur stóran hluta fólks ekki munu geta keypt íbúð. Banaslys í Tyrklandi T Y R K L A N D Mugla Istanbúl Ankara Antalya BÚLGARÍA GRIKKL. KÝPUR Bodrum Jónas Margeir Ingólfsson jonasmargeir@mbl.is Íslensk hjón létust í bílslysi í borginni Mugla í suðvesturhluta Tyrklands um hádegisbil í gær. Barn hjónanna, sem er rúmlega hálfs árs gamalt, slapp ómeitt úr slysinu. Hjónin voru búsett í Danmörku og voru 25 og 34 ára. Bíll þeirra lenti í árekstri við stærri bíl sem hafnaði utan vegar en bifreið íslensku hjónanna skall á vegriði. Allir farþegar stærri bílsins lifðu slysið af en hlutu tals- verða áverka. Þeir voru því færðir á ríkisspítalann í Mugla. Ræðismaður aðstoðar Þangað var barn íslensku hjónanna einnig flutt en ræðis- maður Íslands í Tyrklandi er væntanlegur þangað í dag. Hann mun aðstoða fjölskyldur hjónanna við að sækja barnið og koma því heim. Mikil rigning var í Mugla þegar slysið átti sér stað. Talið er að ökumaðurinn hafi misst stjórn á bílnum á blautum veginum og ekið yfir á öfuga akrein. Þar hafi hann lent í árekstri við stærri bíl. Íslensk hjón létust í bílslysi í Tyrklandi Ljósmynd/IHLAS Slys Mikil rigning var þegar slysið varð og eftir að hafa lent framan á stærri bíl hafnaði bíll Íslendinganna á vegriði.  Rúmlega hálfs árs gamalt barn þeirra slapp ómeitt  Vænta má þess að tekist verði á um það á árs- fundi Alþýðu- sambands Ís- lands hver verði næsti varaforseti þess. Ingibjörg R. Guðmundsdóttir lætur af því starfi eftir 15 ár. Hún kemur úr röðum verslunarmanna, en þó þykir ekki sjálfgefið að eft- irmaður hennar komi úr röðum þeirra. Starfsgreinasambandið mun sækja fast að varaformaðurinn komi úr þeirra röðum enda hefur sambandið ekki átt mann í fremstu röð ASÍ um langa hríð. Tvær konur eru helst nefndar til sögunnar, þær Signý Jóhannesdóttir og Sigurrós Kristinsdóttir, en þær eiga báðar sæti í miðstjórn. Fyrir ársfundinum liggja fjölmargar tillögur, meðal annars um að í stað ársfundar verði eftirleiðis haldin ASÍ-þing annað hvert ár. »9 Starfsgreinasam- bandið vill fá næsta varaforseta  „Bækling- urinn með upplýsingum um frambjóð- endur verður heldur stærri en við áttum von á, en þetta verður engin síma- skrá,“ sagði Hjalti Zóphóníasson, skrifstofustjóri í dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu, um kynningarbæklinginn sem gefa á út vegna kosninga til stjórnlaga- þings 27. nóvember, þar sem um 500 manns buðu sig fram. „Við bjuggumst við 2-300. Það komast sex frambjóðendur á síðu og það er búið að plana ýmislegt enda þarf að vinna þetta hratt þar sem stutt er í kosningarnar,“ sagði Hjalti. »18 Bæklingurinn stærri en reiknað var með

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.