Morgunblaðið - 21.10.2010, Side 2

Morgunblaðið - 21.10.2010, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Auglýsingamiðillinn Finnur.is hefur göngu sína í dag, bæði á prenti og á samnefndri heimasíðu. Blaðinu verð- ur dreift alla fimmtudaga. Finnur.is sameinar á einum stað atvinnu-, fast- eigna-, bíla-, rað- og smáauglýsing- ar, svo fátt eitt sé talið til. Blaðinu verður dreift á heimili í stærra upplagi en aðrir miðlar bjóða upp á. Því verður dreift í öll hús á höfuðborgarsvæðinu, en jafnframt verður blaðið borið út til áskrifenda Morgunblaðsins á landsbyggðinni. Birtast líka á netinu Allar auglýsingar í blaðinu birtast á vefsíðunni finnur.is, sem heyrir undir fréttavef Morgunblaðsins, stjórnarefni tengt t.a.m. atvinnu og fasteignum auk ótengdra mála af ýmsum toga. Bílablað Morgunblaðs- ins, sem áður kom út á föstudögum, færist jafnframt yfir í hið nýja blað. Í blaði dagsins er meðal annars rætt við hönnuð sem hannar búninga fyrir nýjan söngleik um Dísu ljósálf, ungan mann sem lærði fjármála- verkfræði en starfar sem plötusnúð- ur, og nýráðinn forstjóra Happ- drættis Háskóla Íslands. Auk þessa er fjallað um innrétt- ingar í hinu nýopnaða kvikmynda- húsi Bíó Paradís við Hverfisgötu, starf leikskólakennarans, pistill um gæludýrahald og fleira. einarorn@mbl.is mbl.is, mest sótta vef landsins. Mikil dreifing blaðsins, samhliða birtingu á finnur.is, ætti að gera blaðið að spennandi kosti fyrir auglýsendur. Í blaðinu verður, auk auglýsinga, að finna margvíslegt áhugavert rit- Nýr auglýsingamiðill hefur göngu sína í dag  Finnur.is sameinar auglýsingar á einum stað Örn Arnarson ornarnar@mbl.is Lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor’s hækkaði í gær lánshæfiseinkunn Landsvirkj- unar. Langtímaskuldbindingar félagsins fá nú einkunnina BB+ með neikvæðum horfum í stað BB. Skuldbindingar Landsvirkjunar eru því áfram í svokölluðum ruslflokki en eru hins veg- ar nær því að geta talist fjárfestingahæfar að mati sérfræðinga S&P. Að sögn Harðar Arnarsonar, forstjóra Landsvirkjunar, er um jákvæðar fréttir að ræða en á næstu dögum mun skýrast hvort lánshæfiseinkunnin liðkar frekar fyrir fjár- mögnun Búðarhálsvirkjunar. Lánshæfismat S&P gerir ekki ráð fyrir þeim virkjunarfram- kvæmdum en hækkun matsins hvílir meðal annars á þeirri forsendu að ekki verði ráðist í miklar fjárfestingar á næstunni. Andreas Kin- dahl, sérfræðingur hjá S&P, sagði við Morg- unblaðið að þar á bæ væru menn meðvitaðir um Búðarhálsáformin en endurskoða þyrfti láns- hæfiseinkunn Landsvirkjunar ef í þau yrði ráð- ist. Hins vegar segir hann að þau þurfi ekki endilega að leiða til lækkunar. Lánakjör og arð- semi framkvæmdanna muni ráða því. Aukinn stöðugleiki en léleg arðsemi Samkvæmt S&P hefur smám saman tekist að draga úr sveiflum og auka stöðugleika tekna Landsvirkjunar og það, ásamt betri lausafjár- stöðu, sé ástæða betra lánshæfismats. Auk þess hefur endurnýjun sölusamninga Landsvirkj- unar styrkt stöðu félagsins að mati S&P þar sem afkoman er ekki jafnháð sveiflum á heims- markaðsverði á áli og áður. Samt sem áður segir S&P arðsemi af rekstri Landsvirkjunar vera enn lélega þó svo að sér- fræðingar matsfyrirtækisins telji það til tekna að verið sé að reyna að auka hana. Ástæðuna fyrir lélegri arðsemi rekja sérfræðingar S&P til þess hversu stór hluti starfseminnar snýst um sölu á raforku á lágu verði til orkufreks iðn- aðar. Lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar hvílir á þeirri forsendu að á félaginu hvíli óumdeilt rík- istrygging en það er mat S&P að „afar miklar“ líkur séu á því að ríkissjóður neyðist til þess að hlaupa undir bagga með félaginu lendi það í vandræðum. Lánshæfiseinkunnin skánar  Jákvæðar fréttir, segir forstjóri Landsvirkjunar  Er enn í ruslflokki hjá S&P  Einkunnin tekur ekki tillit til fyrirhugaðra framkvæmda við Búðarhálsvirkjun Morgunblaðið/RAX Unnið Framkvæmdir við Búðarháls. „Tillagan fékk lítinn hljómgrunn í stjórninni og var felld,“ sagði Kjart- an Magnússon, borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins og stjórnarmaður í Orkuveitu Reykjavíkur, eftir að aukafundur stjórnar OR, sem hann óskaði eftir, felldi tillögu hans. Kjartan lagði fram tillögu þess efnis að reynt yrði að komast hjá fjöldauppsögnum hjá OR með því að skoða aðrar leiðir og nefndi meðal annars sérstaka eftirlaunasamninga. „Ég gerði athugasemd við máls- meðferðina enda tel ég að ef grípa þurfi til slíka úrræða sem fjölda- uppsagnir eru eigi að ræða það inn- an stjórnar Orkuveitunnar,“ sagði Kjartan eftir fundinn í gær. Starfsmannafélag Reykjavík- urborgar sendi frá sér ályktun í gær þar sem lýst er yfir miklum von- brigðum með áform OR um að ráð- ast í svo umfangsmiklar uppsagnir. Eðlilegt hefði verið að kanna til hlít- ar allar aðrar leiðir. skuli@mbl.is OR felldi tillögu Kjartans Fellt Frá fundi stjórnar OR í gær. Morgunblaðið/Ómar Skúli Unnar Sveinsson skuli@mbl.is „Þetta var heljarinnar stór og sprelllifandi hákarl,“ sagði Sævar Ólafsson, skipstjóri á Steinunni SF, um Grænlandshákarlinn sem kom í botnvörpuna hjá honum á þriðjudagskvöldið þegar verið var að trolla ofarlega í Jökuldýpinu. „Þessi er með þeim stærri sem ég hef séð af þessari tegund. Það er ekki algengt að fá slíkan há- karl á þessu svæði, en það er al- gengt að þeir fái þessa tegund fyrir vestan. Hann var sprelllif- andi í trollinu, en við losuðum um móttökuna hjá okkur og hífðum hann upp á dekk, settum hann síð- an út í síðu þannig að hann væri ekki fyrir okkur.“ Sævar sagði að ákveðið hefði verið að koma með skepnuna í land. „Við ákváðum að koma með hann í land. Nú eru þorrablót og annað framundan og ekki ólíklegt að einhver brennivínsstaupin verði tekin með honum þessum. Ég held hann hafi verið rétt tæp 600 kíló þegar búið var að gera að honum þannig að það ættu einhverjir að geta gætt sér á honum á þorr- anum.“ Steinunn hefur verið á steinbíts- veiðum, en vegna ástandsins í Frakklandi, en þangað hefur steinbíturinn verið seldur, var ákveðið að færa sig aðeins til á miðunum og þá kom hákarlinn í trollið. Það kom ýmislegt í ljós þegar gert var að skepnunni. „Hann var fullur af alls konar kvikindum, það var mikið af fiski í honum og svo var hálfur kópur sem hann hefur skellt í sig. Þetta eru skað- ræðisskepnur,“ sagði Sævar. „Hákarlinn er væntanlega kom- inn vestur í Bjarnarhöfn þar sem hann verður verkaður. Ég ræddi við Hildibrand í morgun og hann vildi ekki að hann yrði skorinn. Hann átti von á tveimur hópum ferðamanna og vildi endilega fá hann heilan vestur til að sýna þeim. Við sendum honum gripinn og hann fær hann bara gefins,“ sagði Sævar um ferlíkið, en ef marka má myndina hér þá er há- karlinn um fjögurra metra langur. Ljósmynd/Jón Páll Ásgeirsson Fengu fjögurra metra hákarl í trollið  Var sprelllif- andi og með hálf- an kóp í maganum Ferlíki Grænlandshákarlinn sem kom í trollið hjá Steinunni SF var engin smásmíði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.