Morgunblaðið - 21.10.2010, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2010
Jón Gnarr Kristinsson borgarstjórihefur þann hátt á að fjalla eink-
um um þau mál borgarinnar, sem
ekki eru til úrlausnar.
Nú síðast tvöbýsna ólík mál.
Fyrra málið snerist
um að koma hefð-
bundnum verkum af
borgarstjóranum yf-
ir á embættismann
sem enginn hafði kosið.
Sá var til hátíðabrigða ráðinn ánauglýsingar til að fara með lung-
ann af verksviði borgarstjórans.
Í tilefni af umræðu um mikiðstarfsálag á borgarstjórann sagð-
ist Jón ekki vilja útiloka að borg-
arstjórum yrði fjölgað.
Það kæmi dagur eftir þennan dag.
Hitt málið sem var svo brýnt aðræða var sú stefna Jóns að sam-
eina Reykjavík Kópavogi.
Jón gat þess sérstaklega að Kópa-vogur væri eina sveitarfélagið
sem tekið hefði vel í slíka sameiningu.
Hvar hefur það komið fram?
Og hver skyldu þá meginrökinhafa verið fyrri þeirri hugdettu?
Jú, þau voru þau að þá mætti spara
svo mikið í yfirstjórninni.
Ekki er vitað hvort þetta hafi ver-ið „djók“ eða fúlasta alvara.
Og heldur er ekki vitað hvort hefðiverið verra.
Jón Gnarr
Kristinsson
Jóker eða
Svarti Pétur
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 20.10., kl. 18.00
Reykjavík 5 skýjað
Bolungarvík 3 heiðskírt
Akureyri 1 skýjað
Egilsstaðir -1 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 3 skýjað
Nuuk 6 skýjað
Þórshöfn 1 skúrir
Ósló 2 heiðskírt
Kaupmannahöfn 8 skýjað
Stokkhólmur 2 súld
Helsinki 6 skúrir
Lúxemborg 5 skúrir
Brussel 6 léttskýjað
Dublin 7 léttskýjað
Glasgow 7 léttskýjað
London 7 léttskýjað
París 10 heiðskírt
Amsterdam 6 léttskýjað
Hamborg 6 skúrir
Berlín 6 skýjað
Vín 9 skýjað
Moskva 2 skúrir
Algarve 21 heiðskírt
Madríd 22 heiðskírt
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 20 léttskýjað
Róm 17 léttskýjað
Aþena 20 léttskýjað
Winnipeg 8 léttskýjað
Montreal 12 alskýjað
New York 14 heiðskírt
Chicago 13 skýjað
Orlando 27 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
21. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:37 17:49
ÍSAFJÖRÐUR 8:50 17:46
SIGLUFJÖRÐUR 8:33 17:28
DJÚPIVOGUR 8:08 17:16
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Eftir samþykkt borgarstjórnar um
breytingu á stjórnkerfi og skipuriti
borgarinnar í fyrradag er Regína Ás-
valdsdóttir, skrifstofustjóri borg-
arstjóra, orðin æðsti embættismaður
borgarinnar að borgarstjóra und-
anskildum. Allir embættismenn borg-
arinnar heyra því undir hana nema
borgarlögmaður, skrifstofustjóri
borgarstjórnar og innri endurskoð-
andi.
Regína hefur verið skrifstofu-
stjóri borgarstjóra frá 2008. Hún seg-
ir að í starfinu hafi hún fyrir hönd
borgarstjóra annast mikið tengsl við
sviðsstjóra og skrifstofustjóra. Á
hennar borði endi mörg mál, sem
mörg svið komi að og þarfnist úr-
lausnar. „Helsta breytingin er að nú
hef ég meira umboð til þess að taka
ákvarðanir og ljúka málum sem
snerta innri stjórnsýsluna,“ segir
hún.
Þörfin fyrir hendi
Að sögn Regínu hefur þetta starf
vantað í stjórnsýsluna, þótt vissulega
megi skoða hvort þetta sé nákvæm-
lega rétta skipulagið. Innri endur-
skoðun hafi bent á að þörf væri á
sterkari stjórnsýslu í kringum borg-
arstjóra. Hún áréttar að starf borg-
arritara hafi verið auglýst 2007 en
aldrei ráðið í það. Þá hafi borgarritari
átt að vera yfirmaður skrifstofustjór-
anna og hafa boðvald gagnvart sviðs-
stjórum, en nú væri skrifstofustjóri
yfirmaður skrifstofustjóra og sviðs-
stjóra. Munurinn felist því fyrst og
fremst í hugtökum í skipuriti.
Breytingin hefur verið gagnrýnd
og m.a. segja borgarfulltrúar minni-
hlutans að ekki gangi að breyta starfi
borgarstjóra með þessum hætti.
„Mál af þessum toga verða um-
deild og umrædd,“ segir Regína.
„Það er réttur minnihlutans að hafa
skoðanir á þessum hlutum.“ Hún
bætir við, að við venjulegar aðstæður
hefði verið eðlilegast að staða borg-
arritara hefði verið auglýst laus til
umsóknar og hún hefði sótt um slíkt
starf. Hins vegar hefði það þýtt fjölg-
un stjórnenda borgarinnar í 21, en
markmiðið sé fremur að fækka
stjórnendum í efsta lagi borgarinnar.
Staðan væri aðeins til eins árs og
með það í huga hafi þótt óeðlilegt að
festa hana í sessi til framtíðar þegar
stjórnkerfisnefnd væri að endur-
skoða skipurit og stjórnkerfi ráð-
hússins.
„Mér finnst að það þurfi að efla
stjórnsýsluna í kringum borg-
arstjóra en hvort það verður með
einum skrifstofustjóra svona nálægt
honum eða fleirum er í höndum
stjórnmálamannanna. Nú stendur
fyrir dyrum breytingatímabil og mitt
mikilvægasta hlutverk er að stýra
slíkum breytingum.“
Með auknum verkefnum segist
Regína standa vaktina frá morgni til
kvölds, en þrátt fyrir aukna ábyrgð
hefur ekki verið hreyft við launum
hennar. „Það hefur ekki verið rætt
um kjörin og ég get ekki ímyndað
mér að um verði að ræða mikla við-
bót,“ segir hún.
Margar kvartanir
Regína ber sviðsstjórum og öðr-
um stjórnendum Reykjavíkurborgar
afar vel söguna en segir að taka þurfi
á ýmsum málum í kerfinu sem slíku.
Mál sem snerti fleiri en eitt svið hafi
tilhneigingu til þess að taka lengri
tíma en önnur og skrifstofunni berist
á þriðja þúsund bréf á ári frá borg-
arbúum með kvörtunum um beiðni
um úrlausn. Í mjög mörgum tilfellum
leysist þau með upplýsingagjöf en
því miður falli mál á milli sviða.
Aðspurð segir Regína að hag-
ræðingarverkefni séu hins vegar
mikilvægust á þessari stundu. Marg-
ar góðar hugmyndir hafi komið m.a.
frá sviðsstjórum um hvernig megi
sameina og samreka ákveðna starf-
semi í borginni og þessum verk-
efnum þurfi að hrinda í framkvæmd.
„Að finna betri leiðir til að nota fé
skattborgaranna í Reykjavíkurborg“
segir hún.
Morgunblaðið/Kristinn
Skrifstofustjóri borgarstjóra Regína Ásvaldsdóttir er æðsti embættis-
maður Reykjavíkurborgar að borgarstjóra undanskildum.
Telur þörf á að styrkja stjórn-
sýsluna í kringum borgarstjóra
Finna þarf betri
leiðir til að nota fé
skattborgaranna
Regína hefur starfað hjá borginni
síðan 1997. Áður en hún tók við
starfi skrifstofustjóra borgarstjóra
var hún sviðsstjóri þjónustu- og
rekstrarsviðs borgarinnar, 900
manna sviði sem fór með yfirum-
sjón með þjónustumiðstöðvum í
öllum hverfum, sá um innkaupa- og
rekstrarmál, þjónustuver og upp-
lýsingatæknimál, vefmál og almenn
rekstrarverkefni. Þar áður var hún
breytingastjóri, sá m.a. um end-
urskipulagningu á þjónustu borg-
arinnar og innleiðingu á hverfa-
þjónustu. Þá var hún fram-
kvæmdastjóri Miðgarðs, fjölskyldu-
þjónustunnar í Grafarvogi,
1997-2002. Árin 1995-1997 var hún
félagsmálastjóri Sauðárkróks. Hún
hefur einnig unnið í stjórnsýslunni í
Noregi, bæði í Osló og í Östfold-
fylki.
Regína er með meistaragráðu í
stjórnun úr hagfræðideild háskól-
ans í Aberdeen í Skotlandi. Hún sér-
hæfði sig í nýsköpun og breyt-
ingastjórnun. Hún er einnig með
cand. mag.-gráðu í félagsráðgjöf og
afbrotafræði frá háskólanum í Osló
og framhaldsmenntun í opinberri
stjórnsýslu og stjórnun frá Endur-
menntunarstofnun Háskóla Ís-
lands. Eiginmaður hennar er Birgir
Pálsson.
Þekkir vel til hjá borginni
REGÍNA ÁSVALDSDÓTTIR