Morgunblaðið - 21.10.2010, Page 11

Morgunblaðið - 21.10.2010, Page 11
Kjötsúpudagurinn á Skólavörðustígnum hefur fest sig í sessi og nú verður dagurinn sá haldinn hátíð- legur í áttunda sinn næstkomandi laugardag, á fyrsta vetrardegi. Með því að bjóða vegfarendum að smakka á heitri kjötsúpu vilja verslunar- og fyrir- tækjaeigendur á Skólavörðustígnum fagna komu vetrar, bjóða fólk velkomið, fá það til að koma út, hittast og spjalla og skapa þannig þjóðlega og skemmtilega götulífsstemningu. Maður er jú manns gaman. Súpurnar eru rammíslenskar, því sauðfjárbændur og garðyrkjubændur landsins leggja til hráefnið. Sex eðalkokkar sem starfa á veitingastöðum í ná- grenni Skólavörðustígsins ætla hver og einn að elda sína útgáfu af kjötsúpu fyrir gesti og gangandi, þeir Úlfar á Þremur Frökkum, Eiríkur Ingi og Friðgeir á Holtinu, Hrafnkell og Teódór frá Óðinsvéum og Dóra frá Á næstu grösum. Og öll gefa þau vinnu sína. Þetta er mikil götuhátíð og fastur liður í deginum er að einn af kokkunum fer með fullan súpupott inn á Níuna, öðru nafni Hegningarhúsið við Skólavörðu- stíg, klukkan tvö, á þeim tíma sem hátíðin hefst formlega, svo vistmenn þar fái líka sína súpu. Steindór Andersen hefur ævinlega flutt rímur af sinni alkunnu snilld í verslun Eggerts feldskera í til- efni dagsins, en núna ætlar Steindór að fá til liðs við sig félaga úr Kvæðamannafélaginu Iðunni. Þau munu kveða saman rétt fyrir klukkan tvö, skömmu áður en súpan þeirra Eiríks Inga og Friðgeirs verður fram borin þar. Nokkrir harmonikkuleikarar munu spila hér og þar á Skólavörðustígnum og einnig má búast við ýmsum uppákomum, t.d. blús og vísnaspili. Súpusmakkið verður á fimm stöðum úti á götu: Í grennd við Ostabúðina, við Níuna (Hegningarhúsið) við horn Týsgötu og Skólavörðustígs, við Hand- prjónasambandið og á Súputorginu hjá Eggerti feldskera. Mikil götuhátíð ÍSLENSKT LAMBAKJÖT OG GRÆNMETI Morgunblaðið/Ómar Til í slaginn Þau Dóra frá Á næstu grösum, Hrafnkell frá Óðinsvéum, Úlfar frá Þremur Frökkum, Theodór frá Óðinsvéum, Eiríkur Ingi og Friðgeir frá Hótel Holti, ætla öll að vera vel búin áhöldum til súpugerðarinnar, þegar þau elda heilt tonn af íslenskri kjötsúpu. ½-1 hvítkálshaus 4 góðar rófur nokkrar kartöflur gulrætur sellerí blaðlaukur sumir nota líka hrísgrjón og haframjöl Kjötið sett í pott með köldu vatni og suðan látin koma upp. Froð- an fleytt af jafnóðum. Látið sjóða í 40-50 mín. Grænmetið skorið gróft og sett út í soðið af kjötinu. Soðið í u.þ.b. 20 mín. Blandið saman við góðu lamba- kjötssoði sem búið er að sjóða í átta tíma til að fá extragott bragð í súpuna. Öllu blandað saman við kjöt- ið og smakkað til með salti og pipar. Hver gerir sína súpu eins og honum sýnist Úlfar á Þremur Frökkum gaf upp mjög einfalda og frjálslega uppskrift. Hann sagði að hver og einn réði magninu á hverju hráefni: Súpukjöt rófur gulrætur laukur hrísgrjón lambakraftur súpujurtir í poka soðið í 1½ tíma DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2010 appelsínunni ásamt rifna appels- ínuberkinum. Sjóðið niður um helm- ing og bætið þá rifsberjunum út og lækkið hitann. Sjóðið áfram í tvær mínútur eða svo og hrærið þá mat- skeið af volgu smjöri út í. Athugið að þessi sósa getur orð- ið svolítið sýrumikil. Það á mjög vel við fituna úr öndinni og dregur fram bestu eiginleika rauðvínsins. Ef þið viljið almennt hafa meiri sætu í sósunni þá er ráðlegt að setja svo sem eina góða matskeið af rifsberjahlaupi út í og hræra saman við áður en þið bætið við smjörinu. Skerið nú niður andarbringurnar í um hálfs til eins sentimetra þykk- ar sneiðar. Hún á helst að vera ör- lítið bleik í miðjunni. Setjið á diska og hellið sósunni yfir. Það er mjög gott að hafa steiktar kartöflur þessu til viðbótar og þá að sjálfsögðu steiktar úr andarfitu. Forsjóðið og skerið í bita. Þegar þið eruð búin að steikja bringurnar þá hellið þið megninu af feitinni á aðra pönnu og steikið kartöflurnar á henni upp úr feitinni þar til þær verða stökkar og fínar. Saltið með Maldon-salti í lokin. Steingrímur Sigurgeirsson Fleiri uppskriftir má finna á Matur og vín-vef Morgunblaðsins: mbl.is/matur og á www.vinotek.is.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.