Morgunblaðið - 21.10.2010, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 21.10.2010, Blaðsíða 14
BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Upplýsingar úr skattframtölum árs- ins 2010 bera órækan vitnisburð um þau umskipti sem urðu haustið 2008. Þetta er niðurstaða Páls Kolbeins, hagfræðings hjá ríkisskattstjóra, sem rýnt hefur í framtölin og segir frá niðurstöðunum í nýútkominni Tí- und, blaði emb- ættisins. Framteljend- um á skatt- grunnskrá hefur fækkað, launa- tekjur lækkað en atvinnuleysisbæt- ur og greiðslur úr séreignarlífeyris- sjóðum hafa hins vegar hækkað mikið. Þrátt fyrir að launatekjur hafi lækkað um 5,8% á milli ára hækkaði tekjuskattsstofn um 1,5%. Fjár- magnstekjur af arði, vöxtum og sölu- hagnaði lækkuðu hins vegar um 28,4%. Skatthlutföll hafa verið hækk- uð en álagðir tekjuskattar sem renna til ríkisins voru um 8,9 milljörðum lægri en við álagningu í fyrra. Síðastliðinn áratug fjölgaði fram- teljendum á skattgrunnskrá mjög ört. Nú, þ.e. við álagningu 2010, voru 261.436 framteljendur á skrá eða rúmum fimmtungi fleiri en fyrir tíu árum. Það teljast því nokkur tíðindi að mati Páls að nú fækkaði framtelj- endum á skattgrunnskrá um 6.058 eða 2,3% á milli áranna 2008 og 2009, en það er í fyrsta skipti sem fækkar á skattgrunnskrá á milli ára. Þessi lækkun skýrist aðallega af því að rúmlega átta þúsund útlendingar hafa horfið aftur til síns heima eftir að atvinnuástandið hér á landi versn- aði. Nú voru hins vegar 1.976 fleiri ís- lenskir ríkisborgarar á skatt- grunnskrá. Fjármagnstekjur lækka Tekjur landsmanna hafa aukist mikið á undanförnum árum. Fjár- magnstekjur hafa aukist meira en aðrar tekjur og er vægi þeirra því meira. Landsmenn töldu nú fram tæpa 955,6 milljarða í skattskyldar tekjur en þar af voru fjármagns- tekjur tæpir 139,3 milljarðar eða 14,6%. Nokkuð hefur dregið úr vægi fjármagnstekna því árið 2007 voru þær um fjórðungur skattskyldra tekna. Tekjuskattsstofn var nú um 11,9 milljörðum hærri en í fyrra en á móti lækkuðu fjármagnstekjur um tæpa 55,2 milljarða eða 28,4%. Skatt- skyldar tekjur lækkuðu því um 4,3% á milli ára. Samsetning annarra tekna hefur einnig breyst nokkuð á milli ára. Vægi launa hefur minnkað en á móti hafa bætur og lífeyrisgreiðslur hækkað. Starfstengdar greiðslur, þ.e. launatekjur, endurgjald fyrir vinnu, laun, hlunnindi, reiknað end- urgjald og hagnaður einstaklinga sem reka fyrirtæki í eigin nafni, hafa hækkað mikið á undanförnum árum. Nú bregður svo við, segir Páll, að þessar greiðslur lækka um rúma 39,8 milljarða, eða 5,8% á milli ára. Launatekjur voru 650,6 milljarðar 2009 samanborið við rúma 690,4 milljarða árið áður. Þegar litið er framhjá tekjum sem menn hafa af eignum eða fjármagnstekjum þá voru starfstengdar greiðslur nú um 73,4% tekna en á undanförnum árum hafa slíkar greiðslur verið um 80% tekna. Á móti lægri launum vega hins vegar ýmsar bætur, s.s. atvinnuleys- isbætur sem og greiðslur úr lífeyr- issjóðum sem hækkuðu nú mikið. Á meðan launa- og fjármagnstekjur lækkuðu um hátt í hundrað milljarða hækkuðu atvinnuleysisbætur og greiðslur úr lífeyrissjóðum um hátt í 40 milljarða. Skatt- skyldar tekjur lands- manna lækkuðu því um tæpa 43,3 milljarða. „Þetta eru mikil tíð- indi því tekjur lands- manna hafa ekki lækk- að að nafnvirði í háa herrans tíð,“ segir Páll. Sem fyrr segir hækkuðu atvinnu- leysisbætur verulega milli ára. Árið 2009 greiddi Vinnumálastofnun 29.271 manns 21,5 milljarða í atvinnu- leysisbætur sem er 17,6 milljörðum meira en árið áður en þá fengu 11.088 manns greiddar bætur. Atvinnuleysi var nær óþekkt hér á landi framan af tíunda áratugnum en á þeim tíma streymdu þúsundir út- lendinga til landsins til að vinna. Frá árinu 2007 hafa atvinnuleysisbætur hins vegar hækkað mikið. Vinnu- málastofnun greiddi 1,7 milljarða í at- vinnuleysisbætur árið 2007 en þá fengu 4.729 manns bætur. Á þessu tímabili hefur fjárhæð atvinnuleysis- bóta því hækkað um 1094% og fjöldi þeirra sem fengu atvinnuleysisbætur aukist um 518%. Um 11,7% þeirra sem töldu fram útsvarsskyldar tekjur höfðu fengið greiddar atvinnuleysis- bætur árið 2009. „Hér hafa því orðið mjög hröð umskipti til hins verra,“ segir Páll. Mikið tekið út af lífeyri Landsmenn tóku út tæpa 91,8 milljarða úr lífeyrissjóðum árið 2009. Þeir sem orðnir voru 60 ára tóku út tæpa 15 milljarða úr séreignarlífeyr- issjóðum í formi almennra útborg- ana. Ekkert þak var á útborgunum nú og hafa margir því tekið talsverð- ar fjárhæðir úr séreignarlífeyrissjóð- um. Frá upphafi árs 2009 var þeim sem ekki voru orðnir 60 ára leyft að taka út eina milljón úr séreignarlíf- eyrissjóði, eða 111 þús. á mánuði. Hér er um að ræða tímabundna ráðstöfun sem var ætlað að gera fólki kleift að bregðast við breyttum aðstæðum í þjóðfélaginu. Alls nýttu 39.184 sér þessa heimild og tóku þeir samanlagt út 21 milljarð. Flestir þeirra sem voru með meira en tíu milljónir í launatekjur árið 2008 voru enn með svo háar tekjur ári síðar. Við álagningu 2009 voru 6.289 framteljendur yfir þessum tíu millj- óna króna mörkum en ári síðar voru 4.563 þessara framteljenda enn með meira en tíu milljónir í launatekjur. Laun lækka en bætur hækka  Skattframtölin 2010 bera órækan vitnisburð um breytta tíma  Launatekjur hafa lækkað en atvinnu- leysisbætur og greiðslur úr séreignarlífeyrissjóðum hafa hækkað mikið  955,6 milljarðar taldir fram Eignir og skuldir einstaklinga raðað eftir eignum í árslok 2009 Eignir alls í milljónum kr. M.kr. 800.000 700.000 600.000 500.000 400.000 300.000 200.000 100.000 0 0 0-10 10-20 20-30 30-40 40-50 50-60 60-70 70-80 80-90 90-100 >100 Eignir Skuldir Margir hátekjumenn » Flestir þeirra 369 framtelj- enda sem voru með meira en 25 milljónir í tekjur árið 2008 voru komnir niður fyrir þessi mörk ári síðar. Aðeins 133 voru enn yfir mörkunum. » Árið 2009 voru 306 með meira en 10 milljónir í launa- tekjur og þar af voru 246 með meira en 15 milljónir í tekjur. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2010 - nýr auglýsingamiðill Finnur.is er nýr miðill fyrir þá sem eru að leita að vinnu, húsnæði, bíl og nánast hverju sem er. ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR Tilboð á finnur.is TexTi + logo 6.500 kr. Hægt er að senda pantanir á finnur@mbl.is eða í síma 569-1107 –– Meira fyrir lesendur - nýr auglýsingamiðill Það virðist sem skipti nokkuð í tvö horn hvað varðar eignir og skuldir landsmanna, segir Páll Kolbeins. Annars vegar er stór hópur fólks sem á tiltölulega lítið og skuldar mikið og svo er tiltölulega lítill hóp- ur sem á miklar eignir og skuldar lítið. „Þá ber ekki á öðru en að eignafólki hafi yfirleitt tekist að ávaxta fé sitt nokkuð vel en al- mennt lítur út fyrir að fleiri eigi nú meira þrátt fyrir erfitt árferði,“ seg- ir Páll í grein sinni. Eignir þeirra sem áttu meira en 50 milljónir juk- ust um 145,2 milljarða á sama tíma og eignir þeirra sem áttu minna en 50 milljónir jukust um rúma 2,2 milljarða. Nú voru 7.729 fleiri undir þessum eignamörkum en fyrir ári en 1.448 fleiri voru yfir mörkunum. Hér er litið framhjá þeim sem telja ekki fram neinar eignir. Þeim fjölg- aði mest sem áttu minna en tíu milljónir eða um 7.922. Nú áttu 520 fleiri fjölskyldur eignir sem metn- ar voru á meira en 100 milljónir. Þessir 3.632 framteljendur áttu samanlagt 751,5 milljarða. Fyrir ári töldu 3.112 framteljendur sem áttu meira en 100 milljónir fram tæpa 674,3 millj- arða í eignir. Eignir þessa hóps hafa því aukist um 77,2 milljarða, eða 11,5% á sama tíma og 16,7% fleiri skipa þennan hóp. Öðru máli gegnir um skuldirnar en skuldir þeirra sem áttu minna en 50 milljónir jukust um 154,8 milljarða, eða 152,8 millj- örðum meira en eignirnar. Skuldir hinna sem áttu meira en 50 millj- ónir jukust um tæpa 54,4 milljarða. Framteljendur sem áttu meira en 50 milljónir í desember 2009 áttu þannig tæpum 145,2 milljörðum meira en framteljendur sem áttu meira en 50 milljónir í desember 2008. Þá áttu þeir sem áttu meira en 100 milljónir í desember 2009 77,2 milljörðum meira en sami eignahópur ári fyrr. Hér þarf að fara varlega við að túlka upplýsingarnar segir Páll því ekki sé alltaf um sama hóp fram- teljenda að ræða hvort árið um sig. Framteljendur eru flokkaðir eftir eignum en þegar eignir aukast fær- ast framteljendurnir upp um eigna- flokk. Þetta gefi hins vegar vís- bendingu um þróun eigna og skulda í þjóðfélaginu. Eiga mikið en skulda lítið ERU TVÆR ÞJÓÐIR Í LANDINU? Páll Kolbeins Reikna má með því að árstekjur þeirra sem þurfa að leita á náðir Vinnumálastofnunnar séu í flestum tilfellum fremur lágar, segir Páll Kolbeins í grein í Tíund. Þannig voru 17.769 þeirra 27.638 sem fengu greiddar bætur með minna en þrjár milljónir í tekjur árið sem þeir fengu bæturnar greiddar. Þetta eru 64,3% þeirra sem fengu greiddar atvinnu- leysisbætur árið 2009. Vinnumálastofnun greiddi þessu fólki 14,5 milljarða í bætur. Tekjur 7.525 höfðu hækkað á milli ára en 10.244 höfðu hins vegar lækkað. Atvinnu- leysisbætur voru 43,7% tekna þessa fólks. Meðalbætur voru 815.743 kr. Árið 2009 voru 8.535 manns greiddar atvinnuleysis- bætur sem voru með þrjár til sex milljónir í tekjur en 30,9% þeirra sem fengu atvinnuleysisbætur voru með tekjur á þessu bili árið 2009. Þessir framteljendur fengu rúma 5,3 milljarða í atvinnuleysisbætur en bæturnar voru 15,5% tekna þeirra. Tekjur 4.150 höfðu hækkað á milli ára. Sumir þeirra sem fengu greiddar atvinnuleys- isbætur árið 2009 voru með fremur háar tekjur árið sem þeir fengu bæturnar greiddar. Hér er þó iðulega um undantekningartilvik að ræða. Atvinnuleysisbætur voru þó yfirleitt ekki stór hluti tekna þessa hóps, segir Páll. Í fyrra fengu 323 einstaklingar sem voru með meira en tíu milljónir í laun, hlunnindi, lífeyri og greiðslur aðrar en fjármagnstekjur, greiddar atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun. Þetta fólk fékk rúmar 237 milljónir greiddar í bætur en var með tæpa 7,4 milljarða í tekjur. Atvinnuleysisbætur voru um 6,4% tekna þessa fólks. Í þessum hópi voru 290 með hærri tekjur árið sem þeir fengu bæturnar greiddar en árið áður. Fimm þeirra sem fengu greiddar atvinnuleysisbætur árið 2009 voru með meira en 40 milljónir í tekjur árið 2009. Þeir voru með tæpa 391 milljón í tekjur en þar af voru 4,7 milljónir í at- vinnuleysisbætur. Margir þeirra sem fengu greiddar atvinnuleysisbætur árið 2009 voru frekar ungir að árum, undir þrítugu. Þetta unga fólk var oft mjög tekjulágt árið sem það fékk greiddar atvinnuleysisbætur. Flestir þeirra sem fengu greiddar bætur og voru með minna en milljón í tekjur það ár tilheyra þessum hópi. Hér er einnig um að ræða fjölmenna hópa bótaþega. Voru með 40 milljónir í tekjur en þáðu samt atvinnuleysisbætur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.