Morgunblaðið - 21.10.2010, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 21.10.2010, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2010 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Innan Evrópu-sambandsinshefur þrýst- ingur farið vax- andi á að sam- bandið fái eigin skattstofna í stað þess að fá skatt- tekjur óbeint í gegnum fram- lög aðildarríkjanna. Fram- kvæmdastjórn Evrópusambandsins leggur nú áherslu á málið og segja má að þar með séu verulegar líkur á að þetta muni ná fram að ganga innan fárra ára, en nú- verandi sjö ára fjárlagarammi rennur út árið 2013. Í fyrradag lýsti fram- kvæmdastjórnin þeirri skoðun sinni, í umfjöllun um fjárlög sambandsins, að núverandi fyrirkomulag hentaði ekki lengur. Framkvæmdastjórnin stillir málinu ekki þannig upp að hún vilji auka skattheimtu af íbúum sambandsins heldur eigi nýju beinu skattarnir að koma í stað þeirra óbeinu sem renni nú til sambandsins í gegnum aðildarríkin. Fyrst um sinn kann að vera að sú yrði raunin, en allar líkur eru til að smám saman yrði þessi beina skattheimta Evrópu- sambandsins til að auka tekjur þess og þar með umsvif enn frekar. Meðal þess rökstuðnings sem framkvæmdastjórnin set- ur nú fram fyrir afstöðu sinni er að lög Evrópusambandsins frá 1957 hafi gert ráð fyrir því að það hefði sínar eigin tekjur. Þessi röksemd er sett fram til að sýna að málið sé ekki nýtt af nálinni og þar með að kom- inn sé tími á breytinguna, eins og iðulega er gert. En hún er ef til vill ekki síður sett fram í þeim tilgangi að reyna að kom- ast framhjá því að einstök ríki geti hindrað þessa breytingu. Hingað til hefur neikvæð af- staða einstakra ríkja við hug- myndinni um sérstaka Evr- ópusambandsskatta komið í veg fyrir upptöku þeirra, en takist framkvæmda- stjórninni að þvinga í gegn þá lagatúlkun að eng- in þörf sé á fullri samstöðu er málið nánast í höfn. Meðal þeirra skatta sem rætt er um innan fram- kvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins er skattur á flug- samgöngur. Nú eru þeir að vísu til hér á landi sem trúa því að Íslands bíði fátt annað en undanþágur gerist landið aðili að Evrópusambandinu. Breyt- ir þar engu þó að stækk- unarstjóri sambandsins hafi sérstaklega sett ofan í við Öss- ur Skarphéðinsson, utanrík- isráðherra, fyrir slíkt fleipur. Vegna þessarar hugmyndar skiptir máli að Ísland er háð- ara loftsamgöngum en flest önnur ríki. Ætli einhverjir vilji treysta því að við munum hafa þau áhrif innan Evrópusam- bandsins að við gætum komið í veg fyrir að flugskattur þess legðist á okkur ef af yrði? Sumir segjast vilja vita hvað Evrópusambandsaðild mundi þýða fyrir Ísland. Því er vita- skuld auðsvarað og þarf ekki aðildarviðræður til. Evrópu- sambandsaðild mundi einfald- lega þýða aðild að sambandinu eins og það er. Engar var- anlegar undanþágur eru í boði, eins og forsvarsmenn sambandsins hafa ítrekað staðfest. Eina óvissan er hvert Evrópusambandið stefnir og þá aðallega hversu hratt það stefnir í átt að auknum sam- runa. Áform framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins um beina skattlagningu eru sterk vísbending um hvert stefnir. Eðlilegt er að þau áform verði liður í að Íslend- ingar endurskoði umsókn sína, enda gæti þessi skattlagning komið mun þyngra niður hér á landi en annars staðar. Skattlagning ESB gæti orðið Íslandi sérlega þungbær yrði landið aðili að sambandinu} Áform um beina skatta Evrópusambandsins Fornbókaversl-unin Bókin er hálfrar aldar göm- ul um þessar mundir og ber ald- urinn vel. Feðgarnir Bragi Kristjónsson og Ari Gísli Bragason standa þar vaktina og veita nútíma Íslendingum innsýn í menningararf þjóð- arinnar. Ekki veitir af. Í Bókinni er hvorki reynt að hlaupa á eftir duttlungum dagsins né ímynduðum tíð- aranda. Þetta er augljóst þeim fjöl- mörgu sem heim- sækja verslunina og er þá ekki að- eins átt við þá staðreynd að þar er engin tölva til að dreifa huganum. Margur hefur varið tíma sínum verr en að gramsa í bókum Bókarinnar sl. hálfa öld og vonandi gefst mönnum færi á að gramsa í að minnsta kosti hálfa öld enn. Gott er að gleyma sér í gömlum bókum }Bókin M annréttindaráð Reykjavík- urborgar er sérstakt fyr- irbæri sem þarfnast greini- lega nánari rannsóknar. Á sparnaðartímum, eins og nú eru, þá gengur ekki að ríki og borg hafi fólk á fullum launum við að fá galnar hugmyndir sem það ætlast til að tekið verði mark á og hleypt í framkvæmd eins og ekkert sé sjálf- sagðara. Mannréttindaráð hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að boðskapur kristinnar trúar um að maður eigi að elska náungann eins og sjálf- an sig, fyrirgefa óvinum sínum og muna að sælla sé að gefa en þiggja sé vafasamur og særandi fyrir minnihlutahópa og ekki beri að breiða hann út í leik- og grunnskólum borg- arinnar. Bænahaldi, sálmasöng og „list- sköpun í trúarlegum tilgangi“ innan veggja skóla verður úthýst, nái tillögur þessa furðuráðs fram að ganga. Væntanlega þýðir þetta að mörg fallegustu trúarlög sem þjóðin á hætta að hljóma í skólum fyrir jól. Vandséð er hvernig kennarar ætla framvegis að út- skýra tilgang jólanna fyrir ungum nemendum sínum ef þeir mega ekki minnast á Guð og Jesúbarnið án þess að eiga á hættu að vera sakaðir um að stunda trúboð og inn- rætingu og skaða þannig illilega áhrifagjarnar sálir. Inn- an skólastofunnar munu jólin því verða hátíð umbúða, haldin Mammoni til dýrðar. Framvegis verða kennarar að gæta sín því orðin „Guð“ og „Jesús“ verða talin særandi og vanvirðandi fyrir alls kyns minnihlutahópa. Kennarar munu því fara að stunda sjálfsritskoðun því ekki vilja þeir hætta á að fá áminningu yf- irvalda fyrir að hafa brotið reglur með því að tala af sér og minnast á almættið. Nú vill svo til að vestræn siðmenning er grundvölluð á kristinni trú. Listasagan, bók- menntasagan og tónlistarsagan er undirlögð af kristnum gildum. Það er ekki hægt að skilja vestræna menningu nema þekkja sög- ur Biblíunnar. Öfgamönnunum í Vantrú kann að gremjast að listamenn skuli hafa verið svo uppteknir af Guði og Kristi að þeir hafi skap- að ódauðleg listaverk kristinni trú til dýrðar. En þannig er það nú samt. Vantrúin fær því í engu breytt. Er það ekki einmitt eitt af hlut- verkum skólans að mennta börn með því að kynna þeim þá merku menningar- og listasögu sem hvílir á kristnum grunni? Þeir sem þekkja þá menningu alls ekki teljast ekki sérlega vel menntaðir. Hvernig kemst jafn vitlaus og illa grunduð ályktun upp á borð, eins og sú sem kemur frá mannréttindaráði? Er ekki einhver innan mannréttindaráðs sem hefur næga skynsemi til að benda félögum sínum á hvers lags vitleysa er þarna á ferð? Og ætla borgarfulltrúar að taka undir þennan furðulega gjörning? Hvar er dómgreind þeirra? Sefur hún föstum svefni? Nú þarf skynsamt fólk að segja stopp við vitleysunni. kolbrun@mbl.is Kolbrún Berg- þórsdóttir Pistill Vantrú mannréttindaráðs STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is U ndanfarna daga hafa ýmsir bent á að fram- kvæmd kosninganna til stjórnlagaþings sem fram fara hinn 27. nóvember sé ruglingsleg fyrir kjósendur. Frambjóðendur til stjórnlagaþingsins eru í kringum fimm hundruð og geta kjósendur valið tuttugu og fimm úr þeirra hópi. Frambjóðendum verður úthlutað fjögurra stafa númeri af handahófi sem kjósendur skrifa á kjörseðilinn í stað nafna. Erfitt gæti reynst fyrir fólk að kynna sér slíkan fjölda fram- bjóðenda og koma vilja sínum skýrt á framfæri í kjörklefanum. Ástráður Haraldsson, formaður landskjörstjórnar, segir ljóst að framkvæmd kosninganna verði ekki einföld. „Það er ekki einföld fram- kvæmd að velja 25 menn úr 500 manna hópi,“ segir Ástráður. Hann segir fólk þó geta undirbúið sig áður en það mætir á kjörstað. „Fólki verður gert kleift að hafa með sér gögn í kjörklefann. Það verður sett upp sérstök vél á netinu þar sem það getur undirbúið sig. Þar getur fólk valið frambjóðendur og raðað þeim upp að vild og fær þá númerin í réttri röð. Það blað getur fólk svo prentað út, haft með sér í kjörklefann og fyllt út kjörseðilinn eftir því,“ segir hann. Viðbúið er að kosningarnar taki meiri tíma en venjulega enda kost- irnir á kjörseðlinum mun fleiri en venjulega. Ástráður segir ómögulegt að segja hvort raðir muni myndast en reynt verði að undirbúa kosning- arnar eins vel og hægt er til að fram- kvæmd þeirra verði sem best úr garði gerð. Pólitískt flókin kosning Kosningarnar til stjórnlaga- þings eru bæði flóknar fyrir kjós- endur og út frá pólitísku sjónarmiði segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við fé- lagsvísindadeild Háskóla Íslands. Hann segir persónukjör með slíkum fjölda frambjóðenda og sæta ekki eiga sér neina hliðstæðu í heiminum svo hann viti til. Yfirleitt sé persónu- kjör talið helst henta þar sem fjöldi sæta og framboða sé takmarkaður. „Sumir munu væntanlega mikla það fyrir sér að skrifa niður númer fram- bjóðenda heima hjá sér og svo aftur í kjörklefanum, sérstaklega ef þeir vilja velja tuttugu og fimm tölur,“ segir hann. Gunnar Helgi segir enga von til þess að kjósendur geti á málefna- legan hátt gert upp á milli fimm hundruð frambjóðenda. Því sé vel mögulegt að fólk mæti og kjósi að- eins einn eða tvo frambjóðendur eða mæti alls ekki á kjörstað. Það þýði hins vegar það að atkvæði þeirra sem kjósa aðeins einn frambjóðanda falli í raun dauð niður fái sá fram- bjóðandi ríflega þann fjölda atkvæða sem til þarf til að ná kjöri. Fá atkvæði dugi til kjörs Verulegar líkur eru á því að töluverður fjöldi frambjóðenda verði kjörinn á þingið með mjög fáum at- kvæðum að sögn Gunnars Helga. Ef atkvæði dreifist verulega á milli þessa mikla fjölda frambjóðenda bjóði kerfið upp á slíkt. „Maður getur ímyndað sér að töluverð- ur fjöldi kjósenda kjósi sömu tíu fram- bjóðendurna. Þá gætu aðrir fram- bjóðendur komist inn á afar fáum at- kvæðum. Þetta er mjög óvenjulegt fyr- irkomulag,“ segir Gunnar Helgi. Morgunblaðið/Kristinn Kjörklefar Það er hætt við að kjósendur þurfi lengri tíma í kjörklefunum í kosningum fyrir stjórnlagaþing en venjulega vegna fjölda kosta í boði. Flóknar stjórnlaga- þingskosningar Kjósendur geta greitt tuttugu og fimm frambjóðendum at- kvæði sitt á kjörseðlinum í kosningunum til stjórnlaga- þings. Þá er best að fara vel yfir seðilinn áður en honum er skilað því að ef vallína er skil- in eftir auð á seðlinum er að- eins tekið tillit til útfyllingar fram að auðu línunni. Hið sama á við ef sama númer frambjóðanda er skrifað oftar en einu sinni á kjörseðilinn. Þannig verður kjörseðillinn í heild sinni ógildur ef fyrsta vallínan er skilin eftir auð. Ástráður Haraldsson, for- maður landskjörstjórnar, seg- ist ekki hafa miklar áhyggjur af því að þetta fyrirkomulag vefjist fyrir fólki. Val- línurnar séu allar í röð og því ætti að vera auðvelt að sjá hvort einhver þeirra sé auð. Bil leiða til ógildingar MEINBUGIR Á KJÖRSEÐLUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.