Morgunblaðið - 21.10.2010, Page 22

Morgunblaðið - 21.10.2010, Page 22
22 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2010 Umræður um for- virkar rannsókn- arheimildir lögreglu hafa skotið upp koll- inum af og til en sjaldan fengið að njóta sín í mál- efnalegu umhverfi. Með forvirkum rann- sóknarheimildum er átt við að lögreglu sé heimilað að nota ákveðin úrræði til rannsóknar á málum áður en sannað er að brot sé framið. Hugmyndin er að lög- regla fái heimild til slíkra rann- sókna samkvæmt ákvörðun dóm- ara hverju sinni. Lögregla yrði því að færa rök fyrir nauðsyn rann- sóknarinnar. Hugtakið forvirkar rannsókn- arheimildir hefur ranglega fengið á sig stimpil sem leyniþjónustubrölt og umræðunni hefur fylgt sú hug- mynd að einhvers konar lögregluríki, þar sem réttindi borg- ara yrðu fótum troðin af lögreglumönnum myndist í kjölfarið. Hér skal bent á nokkra punkta sem eru mikilvægir fyrir umræðuna enda er tímabært að færa um- ræður um þessar heimildir á annað stig hér á landi. Allar okkar helstu nágrannaþjóðir eins og Svíar, Finnar, Danir og Norðmenn hafa veitt lögreglu forvirkar rannsókn- arheimildir. Í þessum löndum telja yfirvöld lögreglu, að þessar heim- ildir hafi verið ómetanlegar í bar- áttunni gegn m.a. skipulagðri glæpastarfsemi jafnt innlendri sem erlendri, mansali, fíkniefnainn- flutningi og hryðjuverkaógn, svo að hið helsta sé nefnt. Flestir geta verið sammála um að þessi ríki verði seint talin til lögregluríkja, þvert á móti. Það er hinsvegar, því miður, staðreynd að erlend og innlend glæpasamtök hafa fest rætur á Íslandi og að skipulögð glæpastarfsemi er stunduð hér. Það er ekki markmið þessara skrifa að ræða um þá ógn sem hef- ur skapast á Íslandi af slíkri starf- semi, en hún fer vaxandi, á því leikur ekki mikill vafi. Forvirkar rannsóknarheimildir væru öflugt vopn til að sporna við þessum ófögnuði, og það sem er eflaust mikilvægara, að koma í veg fyrir frekari aðkomu erlendra glæpa- gengja að landinu. Í umræðum um forvirkar rann- sóknarheimildir er því stundum fleygt, að með slíkum heimildum geti lögregla njósnað um hvern og einn með símhlerunum eða á ann- an hátt. Þegar þetta er sagt er lit- ið fram hjá þeirri staðreynd, að lögregla verður að leita til dómara til að fá rannsóknarheimildina. Einnig er gert ráð fyrir eftirliti af hálfu kjörinna fulltrúa í umboði Al- þingis, annað hvort þingmanna sjálfra eða manna, sem þeir kjósa til slíks eftirlits. Hið stranga að- haldskerfi utan um þennan þátt ör- yggisgæslu ríkisins miðar að því að veita þeim aðhald, sem á þess- um vettvangi starfa. Þegar um þessi mál er rætt má minna á að lögreglan er og hefur lengi verið sú stofnun sem almenn- ingur ber hvað mest traust til á Ís- landi. Heimild til forvirkra rann- sókna myndi efla öryggis- og löggæslu á Íslandi í baráttunni við skipulögð glæpasamtök og gegn al- mennri glæpastarfsemi. Það er orðið löngu tímabært að ræða mál- efnalega um þetta mikilvæga við- fangsefni. Grípi íslensk yfirvöld ekki til sambærilegra ráðstafana og gerðar eru í öðrum löndum gæti Ísland orðið griðastaður fyrir þá sem svífast einskis gegn sam- borgurum sínum hvar um heim sem er. Lögreglan á Íslandi er því í þessum skilning með aðra hönd bundna og má færa rök fyrir því að ekki liggi fyrir nægilega góð ástæða fyrir slíkri heftingu. Mat Ríkislögreglustjóra á skipulagðri glæpastarfsemi og hættu á hryðju- verkum á Íslandi frá árinu 2009 er eitt af mörgum skjölum sem benda á þær heftingar sem íslenska lög- reglan stendur frammi fyrir. En þar kemur m.a. fram að þar sem lögreglan á Íslandi býr ekki yfir forvirkum rannsóknarheimildum þá séu „…möguleikar lögreglunnar á Íslandi til þess að fyrirbyggja hryðjuverk ekki þeir sömu og á hinum Norðurlöndunum. Þessu fylgir einnig að lögreglan hérlendis hefur mun takmarkaðri upplýs- ingar um mögulega ógn eða hættu- lega einstaklinga.“ Forvirkar rannsóknar- heimildir – tímabær umræða Eftir Tryggva Hjaltason » Lögreglan á Íslandi er með aðra höndina bundna þegar kemur að því að berjast gegn skipulagðri glæpa- starfsemi. Tryggvi Hjaltason Höfundur er öryggis- og varnarmálafræðingur. Nú á dögunum kynnti fjármálaráð- herra umdeilt frum- varp til fjárlaga fyrir árið 2011. Í framhaldi af kynningu frum- varpsins hafa fjöl- margir lýst yfir undr- un sinni á forgangsröðuninni í niðurskurðinum. Þar má helst nefna orð Ásbjörns Óttarssonar þingmanns. Þá spurði Ásbjörn einfaldlega af hverju við værum að styrkja listir og bætti við að listamenn ættu ein- faldlega að fá sér vinnu. Ásbjörn hafði ekki fyrr sleppt orðinu en nær allir listamenn landsins fóru að réttlæta störf sín í fjölmiðlum og fóru sumir þeirra meðal annars að skipuleggja listaverkfall. Það er hins vegar mín skoðun að Ásbjörn hafi bent á forvitnilega punkta, en klúðraði röksemdafærslu sinni með því að gera lítið úr starfi lista- manna. Því flestir, ef ekki allir, skilja vel mikilvægi listamanna og lista fyrir þjóðfélög. Stutt yfirlit yf- ir mannkynssöguna sýnir og sannar aftur og aftur mikilvægi þess. Því ég tel landsmenn að mestum hluta sammála því að halda hér uppi líf- legu listalífi. En þá kemur stóra spurningin, hversu mikið erum við tilbúin að greiða fyrir listina? Það er eflaust persónubundið, en til þess að taka upplýsta afstöðu er ágætt að byrja á því að átta okkur á því hversu mikið stefnir í að við munum greiða fyrir hana. Því skulum við skoða frumvarp til fjárlaga 2011 og taka saman lauslega þær upphæðir sem augljóslega fara beint eða óbeint í listastarfsemi af einhverjum toga. Fyrir það fyrsta, þá greiðum við samtals 2.821.700.000 kr. til að halda uppi Sinfóníuhljómsveitinni, Þjóðleikhúsinu, Listaháskólanum, Kvikmyndamiðstöð Íslands, Lista- safni Íslands, Kvikmyndasafni Ís- lands, Íslenska dansflokknum og Listasafni Einars Jónssonar. Við þetta bætast svo 795.800.000 kr. sem fara í ýmis framlög til lista og 266.900.000 kr. sem fara í ýmis framlög til safna og í Safnasjóð. Jafnframt væri hægt að nefna 424.400.000 kr. sem fara í byggingu á tónlistarhúsinu Hörpu og ekki má gleyma 408.800.000 kr. sem fara í launasjóð listamanna. Samtals gerir þessi stutta upptalning mín 4.717.600.000 kr. eða um 4,7 milljarða. Sem er forvitnilegt, þar sem heildarniðurskurð- urinn í heilbrigðis- málum í fjárlaga- frumvarpinu fyrir árið 2011 er 4.761.600.000 kr. eða 4,7 milljarðar. Það væri barnalegt af mér að halda því fram að hægt væri með einu penna- striki að loka á allar greiðslur til lista. Fyrir það fyrsta þá væri það ósiðlegt og ólöglegt, m.a. á grund- velli þess að inni í þessum upp- hæðum er starfsfólk sem á rétt á uppsagnarfresti. Jafnframt væri hægt að benda á að við þessa aðför gegn listum myndi mikill peningur fara í framkvæmd þess, útgreiðslu atvinnuleysisbóta og jafnframt væri óklárað tónlistarhús að molast niður við Reykjavíkurhöfn. Að lok- um má auðvitað deila um hvort 616.000.000 kr. sem fara í Listahá- skólann séu raunverulega framlag til lista. En sú staðreynd að þessi fyrrgreindu framlög eru jafnhá nið- urskurðinum í heilbrigðisgeiranum, fær mig til að velta fyrir mér fjöl- mörgum spurningum. Ég velti því fyrir mér hversu mikið af framlagi til lista fer annað en til höfuðborgarsvæðisins. Hversu mikið af niðurskurðinum í heilbrigðismálum fer annað en á landsbyggðina? Af tvennu slæmu, hvort myndi fólk kjósa heilbrigð- isþjónustu án frekari niðurskurðar eða líflegt listalíf? Myndi hér ekki viðhaldast líflegt listalíf án fram- lags ríkissjóðs til lista? Væri raun- hæft að skera fyrrnefnd framlög til lista um helming og takmarka nið- urskurðinn í heilbrigðismálum um helming? Hvað kostar hið líflega listalíf? Eftir Arnþór Gíslason Arnþór Gíslason » Í þessari grein fjalla ég lauslega um heildarframlag rík- issjóðs til lista og ber það saman við nið- urskurðinn innan heil- brigðiskerfisins. Höfundur er nemi og á sæti í Stúdentaráði Háskóla Íslands. Skuldaþrælkun í boði stjórnvalda, sem blessuð er af ASÍ, blasir nú við þús- undum heimila. Hvergi í veröldinni greiða hlutfallslega fleiri í verkalýðsfélög en á Íslandi en þau velta yfir 10 millj- örðum á ári hverju. Frá hruni hefur sam- einuð hreyfingin ekki haldið einn samstöðu- eða mótmælafund utan hina árlegu 1. maí-göngu. Þrátt fyrir mestu hamfarir launafólks er þögnin orðin aðalsmerki þeirra sem verja almúgann fyrir auðvaldinu og þiggja forstjóralaun fyrir. Í verkalýðshreyfingunni er að- allega notast við bananalýðræði sem virkar þannig að félagsmenn geta ekki kosið sér forystu beinni kosningu. Stjórnir félaganna hand- velja sérstök trúnaðarráð sem aft- ur kjósa stjórnirnar. Þetta er eins og ef ríkisstjórnin skipaði Alþingi og Alþingi kysi svo ríkisstjórn. Því er ekki að undra að forystusauðir og stjórnarmenn verkalýðsins skuli sitja áratugum saman í sömu stól- unum. Það er líklega auðveldara að komast til metorða í Norður-Kóreu en innan verkalýðshreyfingarinnar nema þú sért með réttar skoðanir. Í stað þess að brýna vopnin með samstöðu launafólks er ASÍ búið að afvopna hreyfinguna með aðgerða- leysi og yfirlýsingum á borð við „lítið sem ekkert svigrúm“, „hvar á að fá peninga“, „halda fengnum hlut“, „koma í veg fyrir frekari kaupmáttarrýrnun“ og einhverju sem þeir kalla „ábyrgar kröfur“. Þetta sýnir best upp- gjöfina og vonleysið. Eini hávaðinn frá hreyfingunni eru öskrin í kóngunum ef einhver dirfist að gagnrýna þá. Neyð- arópin frá Akranesi og Húsavík eru af- greidd með sama hætti. Í Frakklandi spyr verkalýðshreyfingin ekki hvernig eða hvar á að fá pen- inga. Það er hlutverk stjórnvalda að leysa það. Þegar til stóð að hækka eftirlaunaaldur í Frakk- landi um tvö ár var hraðbrautum lokað og verkalýðshreyfingin boð- aði til fjöldamótmæla. Við komum með kröfurnar, það er annarra að finna lausnir og framkvæma. Ég skrifaði grein þar sem ég líki aðilum vinnumarkaðarins við ríki í ríki. Með alla sína sjóði berjast þeir fyrir stærri sneið af köku launafólks með stofnun endalausra sjóða í formi launatengdra gjalda í bland við að verja hásæti sín fyrir frekum lýðnum. Er eðlilegt að þegar ríkisstjórnin kallaði til hags- munaaðila, vegna leiðréttingar á skuldum heimilanna, voru aðilar vinnumarkaðarins hinum megin við borðið að verja lífeyrissjóðina sem blésu hæst í eignabólum út- rásarinnar og sprungu svo eft- irminnilega? Hlutverk þeirra nú er að verja bólurnar sem eftir eru inni í kerfinu og passa að þær springi ekki fyrr en kemur að skuldadögum við framtíðarlífeyr- isþega en þá verða núverandi stjórnendur á bak og burt. Aðilar vinnumarkaðarins dæla svo ið- gjöldum sjóðfélaga og illa fengnum verðbótum fasteignalána í áhættu- fjárfestingasjóði til höfuðs vel reknum fyrirtækjum. Af hverju skattpínir rík- isstjórnin ekki fjármálafyrirtækin með ábyrgum hætti um minnst 60- 80% af framtíðarhagnaði til að standa undir leiðréttingum hús- næðislána? Það er alveg ljóst að fjármálakerfið ber höfuðábyrgð. Af hverju eru ekki sett neyð- arlög sem gera ríkinu mögulegt að ná til baka megninu af því fjár- magni sem útrásaraularnir hirtu úr gjaldþrota einkahlutafélögum, sem við borgum nú skuldirnar af? Tala nú ekki um eignir fyrrverandi ráðherra sem fóru úr ráðherradóm í ríkidóm á kostnað skattgreiðenda. Það er hægt að senda mann til tunglsins en það er ekki hægt að skattleggja séreignasparnað. Ekk- ert má gera, þetta er ólöglegt, við erum skaðabótaskyld, hendur okk- ar eru bundnar, lögin banna okkur þetta og hitt o.s.frv. Hingað til hefur ríkið sett alls kyns lög til að verja sérhags- munahópa en þegar kemur að okk- ur sem raunverulega framleiðum og byggjum þetta land vandast málið. Það er ótrúlegt að horfa upp á sjúklega samtryggingu valda í þessu litla samfélagi. Við getum sett lög um allt og ekkert. Við gætum sett lög á hurð- arhúna, sett vörugjöld á gula liti, sem er gáfulegra en flest það sem núverandi stjórnvöld hafa lagt til í niðurskurðarmálum. Við getum borað göng undir Hvalfjörð, reist risatónlistarhöll út í sjó, búið til peninga úr þunnu lofti á kostnað allra þeirra sem fyrir eru, lánað vildarvinum ígildi 1.000 ævistarfa sem aldrei verða greidd til baka án eftirmála, horft framhjá fyrrverandi stjórnendum landsins skammta sér ríkiseigur án at- hugasemda, en við getum ekki lyft litla fingri fyrir heimilin. Það sem heimilin þurfa er vilji. Vilji í formi pennastrika og orða- lagsbreytinga í lagafrumskógi auð- valdsins. Það er ekki verið að færa til fjöll, það þarf engar stórvirkar vinnuvélar, það þarf ekkert innflutt stál frá Kína, þetta snýst um að breyta orðalagi og forsendum sem skrifaðar verða með bleki á A4- blað. Forsendubresturinn er mann- anna verk. Það þarf vilja til að breyta honum og ekkert annað. Þrælahald á Íslandi er orðið staðreynd Eftir Ragnar Þór Ingólfsson » Það er hægt að senda mann til tunglsins en það er ekki hægt að skattleggja séreignasparnað. Ömurlegt að horfa upp á samtryggingu valda í þessu samfélagi. Ragnar Þór Ingólfsson Höfundur er sölustjóri og er stjórnarmaður í VR. Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.