Morgunblaðið - 21.10.2010, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 21.10.2010, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2010 ✝ Sigurður Bárð-arson fæddist í Höfða í Mývatnssveit 10. nóvember 1925. Hann lést á heimili sínu 12. október 2010. Foreldrar hans voru Bárður Sigurðs- son, f. 28. maí 1872, d. 21. febrúar 1937, og Sigurbjörg Sigfús- dóttir, f. 19. febrúar 1892, d. 3. júní 1964. Systkini hans voru sjö, elst var Sigrún, f. 1916, d. 2001, Halldór, f. 1917, d. 1993, Karl Kristján, f. 1920, d. 1998, Stefán Aðalgeir, f. 1923, d. 1974, Sveinbjörn, f. 1928, d. 2005, Gyða, f. 1930, d. 2008, og Sig- fús Þór, f. 1932, d. 1983. Þann 31. des. 1949 kvæntist Sig- urður eftirlifandi eiginkonu sinni Mörtu Kristínu Stefánsdóttur, f. 28. október 1929, og eignuðust þau þrjár dætur: Björgu, f. 6. ágúst 1950, Sigrúnu, f. 10. ágúst 1955, og Rebekku, f. 8. júlí 1966. Björg er gift Lars Wessing og eru þau búsett í Svíþjóð. Börn Bjargar af fyrra hjónabandi ur Mörtu eru: Ásdís Berglind Elena og Kristell Guðbjörg Lorena, faðir þeirra er Javier Enrique Olguin Se- pulveda. Fyrstu hjúskaparárin bjuggu Sig- urður og Marta á Akureyri, þar sem hann starfaði á járnsmíðaverkstæði. Þaðan fluttu þau árið 1953 með dótturina Björgu í Skútustaði til foreldra Mörtu. Árið 1958 fluttu þau með dætrum sínum Björgu og Sig- rúnu að Heiði í Mývatnssveit, þar sem þau eignuðust yngstu dótturina Rebekku. Þar bjuggu þau og stund- uðu búskap til ársins 1975 ásamt foreldrum Mörtu og Stefáni bróður Sigurðar. Þaðan fluttu þau og bjuggu í Reykjahlíðarþorpi þar sem Sigurður starfaði fyrir hreppinn, sem umsjónarmaður hitaveitu o.fl. Árið 1985 fluttu þau til Reykjavíkur ásamt Rebekku. Þau keyptu íbúð í Krummahólum 8 þar sem heimili þeirra er í dag. Í Reykjavík starfaði Sigurður um tíma í trésmiðjunni Víði, þá í trésmiðjunni Viðju og síð- ast á lager í Hagkaup í Skeifunni. Einnig starfaði hann um árabil sem húsvörður í Krummahólum 8. Sjö- tugur að aldri fór hann á eftirlaun og heima dundaði hann sér um tíma við að smíða ýmsa smáhluti úr tré. Útför Sigurðar fer fram frá Bú- staðakirkju í dag, 21. október 2010, og hefst athöfnin kl. 13. eru: a) Ómar Ari, kvæntur Önnu Magn- eu og eiga þau fjögur börn, Eygló, Guðna Má, Elmar Darra og Arnar Frosta. b) Birg- itta Valgerður, gift Justin Swed er búsett í Ástralíu og eiga þau dótturina Linnéu Öskju. c) Mónika Berglind, gift Andr- eas Henrikson, búsett í Svíþjóð og eiga þau börnin Símon Alex- ander Elías, Sögu Silju Emilíu og Freju Feliciu Perlu. d) Daníel Heiðar og unnusta hans Ann-Sofie Åkesson eru búsett í Sví- þjóð og eiga þau dótturina Novu Cristinu Björgu. Sigrún er gift Vigni Ólafssyni og eru þau búsett í Reykjavík. Börn Sigrúnar eru: a) Berglind Ósk Guð- mundsdóttir og b) Sigurður Ingi Árnason, kvæntur Kolbrúnu Braga- dóttur og eiga þau soninn Frey. Rebekka er gift Jósef Smára Ás- mundssyni, þau eru búsett í Noregi. Börn þeirra eru: a) Heimir Smári, b) Þórhallur og c) Marta Kristín. Dæt- Elsku pabbi minn. Einhvern veg- inn finnst mér svo óraunverulegt að þú sért farinn, ég hef alltaf sagt að það séu forréttindi að ég 55 ára eigi foreldra á lífi, pabbi og mamma eigi að vera eilíf en þannig er það víst ekki. Ég hef alltaf sagt að við syst- urnar höfum fengið besta og ástrík- asta uppeldi sem hægt er að hugsa sér. Þegar ég hugsa til baka koma yndislegar minningar upp sem maður getur yljað sér við. Fyrstu minning- arnar eru auðvitað frá æskustöðvun- um á Heiði. Það var svo órjúfanlegur þáttur í lífi mínu að vakna með þér á morgnana yfir veturinn, að borða saman morgunmatinn áður en við fór- um í fjárhúsin, og þá kemur fyrst upp í hugann hveitibrauð með rúllupylsu og sætt Melroses-te, ég finn bragðið ennþá við tilhugsunina. Síðan var stormað út í fjárhús, ég man litlu hveitipokana mína sem ég hafði fyrir heypoka og litla vatnsberann sem þú smíðaðir handa mér svo ég gæti borið vatnsföturnar. Það var svo gaman að fá að stússa í þessu öllu með þér, elsk- an mín, og ég var svo montin þegar þú vafðir mig inn í sængina þar sem ég var lasin og hélst á mér í fanginu út í fjárhús til að bera kennsl á eina roll- una af því að ég þekkti þær allar með nafni, þetta var mikill heiður fyrir lít- ið kríli. Þú kenndir mér að keyra bíl, þú kenndir mér svo margt sem ég bý að alla ævi. Alltaf hef ég eins og allir aðrir dáðst að ykkur mömmu, hjónaband ykkar var einstakt, samvinnan ein- stök, gagnkvæm ást og virðing, enda búin að vera gift í 61 ár, það segir allt sem segja þarf. Gaman var að fylgjast með ykkur, þið gerðuð allt saman, fóruð allt saman og bara eins og með jólabaksturinn, mamma breiddi út og þú passaðir ofninn, alltaf samvinnan í fyrirrúmi. Unun var að horfa á ykkur dansa, öll böllin í Skjólbrekku þar sem þið störtuðuð alltaf böllunum og enduðuð þau yfirleitt líka, allt svo fal- legar minningar. Elsku pabbi, missir okkar er sár en sárastur er hann fyrir mömmu sem þú elskaðir svo heitt og hún þig, en hún er svo dugleg og sterk að það er aðdáunarvert enda kletturinn okkar, en ég lofa þér að ég skal passa hana vel og halda utan um hana fyrir þig og það mun öll fjölskyldan gera. Ég veit að það hefur verið tekið vel á móti þér, elsku pabbi minn, og ég veit að þér líður vel umvafinn öllum englun- um okkar. Elsku mamma mín, missir þinn er mikill og auðvitað okkar allra, og bið ég góðan guð að gefa okkur styrk, við höldum utan um þig og pössum þig fyrir pabba þangað til að þið hittist næst. Þá kveð ég þig að sinni, elsku hjart- ans pabbi minn, takk fyrir öll árin og alla ástina sem þú gafst mér og fjöl- skyldunni minni, við erum ótrúlega rík að hafa fengið að eiga þig og elska öll þessi ár. Guð geymi þig, ég elska þig að eilífu. Þín dóttir, Sigrún (Didda). Elsku besti pabbi minn. Ég trúi ekki að þessi stund sé runnin upp, þú ert sofnaður í hinsta sinn. Þegar ég kvaddi þig og faðmaði í síðasta sinn í fyrra, þegar við fluttum út til Noregs, varstu svo sterkur, en ég fann að þú varst viss um að við myndum ekki hittast aftur. Ég hef alltaf neitað að trúa því, en nú er það orðin staðreynd. Fyrsta æskuminningin mín tengist þér. Þegar ég var um tveggja ára vor- um við að bíða eftir kvöldmatnum og við skriðum á fjórum fótum á gang- inum fyrir framan eldhúsdyrnar á Heiði geltandi, vorum að smala. Svo tínast til minningar um fjár- húsferðirnar, þegar þú leiddir mig þennan spöl og ég hélt í eyrun á Gimbli mínum og lét hann labba með okkur. Hrósið sem ég fékk frá þér þegar ég gat lesið orðið SÍS af fóður- blöndupoka, þegar ég fékk að sitja með þér á litlu grænu dráttarvélinni, þegar ég fór með ykkur mömmu á söngæfingarnar úti í skóla og lærði að meta öll þessi gömlu lög og sálma sem þið sunguð. Mörgum klukkutímum eyddi ég niðri í smíðahúsi á kvöldin, sitjandi uppi í gluggakistu, með fæturna á smíðabekknum og horfði á þig dunda við að búa til svo marga fallega hluti. Ég hef alltaf verið litla dekurdúkk- an ykkar mömmu, þar sem ég er langyngst, var vafin inn í bómull alla mína barnæsku, elskuð og vernduð. Þar sem ég svaf á milli ykkar fyrstu árin mín, naut ég þess að þú hafðir gaman af að segja mér sögur, þótt mig gruni að þú hafir verið orð- inn ansi þreyttur á Geitunum þremur og Kiðlingunum sjö, sem voru uppá- haldssögurnar mínar. Yndislegar minningar um útilegurnar með ykkur mömmu, í Vaglaskógi og Atlavík, dásamlegu árin 14 sem við áttum Blá- hvamm með ykkur mömmu. Elsku besti pabbi minn. Þú og elsku mamma eruð bestu foreldrar sem ég hefði getað fengið. Þið hafið alltaf verið stoð mín og stytta, örygg- isnetið mitt, verndarar og óendanleg- ur fjársjóður ástar og umhyggju. Ég á ekki nógu stór orð um það hvað ég er þakklát fyrir ykkur. Núna langar mig bara að ná í elsku litlu mömmu mína og taka hana með mér hingað í sælureitinn okkar, annast hana allt til enda. Þið voruð sem ein manneskja og nú hefur hún misst klettinn sinn, ég finn alveg óendanlega mikið til með henni. Gott er samt að vita að þú fékkst að sofna heima, það vildir þú allra helst, hjá ástinni þinni og lífsförunaut. Þakka þér af öllu hjarta, elsku pabbi minn, fyrir allt sem þú hefur verið mér og sem þú hefur gert fyrir mig og litlu fjölskylduna mína. Ég elska ykkur endalaust. Elsku besta mamma mín. Guð gefi þér styrk og frið, núna þegar þú hefur misst svo mikið. Ég vildi að ég væri hjá þér svo ég gæti faðmað þig og grátið með þér, þú ert besta mamma í heimi. Ég er fegin að vita að elsku besta Didda okkar, stoð ykkar og stytta, er hjá þér, ásamt elsku litlu Mörtu minni, ást- arenglunum hennar ömmu Bekku, Ásdísi og Kristell og öllum öðrum sem elska ykkur svo mikið. Guð gefi ykkur öllum styrk og frið. Innileg kveðja frá Jobba, Heimi og Þórhalli. Hvíl þú í friði, elsku pabbi minn, og vertu kært kvaddur. Þín Rebekka. Elsku afi. Það er gríðarlega mikil sorg sem ég upplifi nú við fráfall þitt því þú varst svo yndislegur afi. Ég á ofboðs- lega erfitt með að taka því að þú sért fallinn frá og mig langar svo að fá að knúsa þig einu sinni enn. Þegar ég missti pabba 2001 fannst Sigurður Bárðarson ✝ Ástkær systir okkar, AGNES GUÐFINNA STEINADÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Boðaþingi sunnudaginn 17. október. Jarðarförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðviku- daginn 27. október kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Sam- band íslenskra kristniboðsfélaga, Háaleitisbraut 68, Reykjavík, s. 533 4900. Sérstakar þakkir fær starfsfólkið á hjúkrunarheimili DAS, Boðaþingi, fyrir kærleiksríka umönnun. Petrína Steinadóttir, Helgi V. Guðmundsson og aðrir aðstandendur. ✝ Móðir okkar, KRISTÍN PÉTURSDÓTTIR frá Galtará, í Gufudalssveit, andaðist á Hrafnistu laugardaginn 16. október. Jarðarförin auglýst síðar. Elías Guðmundsson, Bryndís Guðmundsdóttir. ✝ Okkar ástkæri eiginmaður og fjölskyldufaðir, GRÉTAR HALLDÓRSSON, Kirkjuvegi 23, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands mánudaginn 18. október. Jarðsett verður í kyrrþey að ósk hins látna. Margrét Sigurgeirsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, RAGNHEIÐUR SVANLAUGSDÓTTIR hjúkrunarkona, andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn 20. október. Þórarinn Sveinsson, Hildur Bernhöft, Svanlaugur Sveinsson, Freyja Guðlaugsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, ÁSTA JOHANNSSON, Worcester, Massachusetts, Bandaríkjunum, lést föstudaginn 15. október. Minningarathöfn fer fram í Bandaríkjunum laugar- daginn 30. október. Gudrun Johannsson Paulino, Maria og George C. Rush. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, LÁRUS HVAMMDAL FINNBOGASON, Ársölum 1, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans Landakoti fimmtu- daginn 14. október. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 22. október kl. 13.00. Úlla Marteinsdóttir, Finnbogi Hvammdal Lárusson, Íris Guðlaugsdóttir, Kristrún Dahl, John Dahl, Elva María Neraasen, Ágústa Lárusdóttir, Kjell Paulsen, Margrét Lárusdóttir, Jóhann Halldórsson og barnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RANNVEIG KRISTJANA ÞORVARÐARDÓTTIR, áður til heimilis að, Vallarbraut 2, Njarðvík, lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði, sunnu- daginn 17. október. Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju mánudag- inn 25. október kl. 13.00. Ragnar Hauksson, Eygló Alexandersdóttir, Sigríður Hauksdóttir, Pálína Hauksdóttir, Grétar Ævarsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.