Morgunblaðið - 21.10.2010, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 21.10.2010, Blaðsíða 25
mér ég ekki geta haldið áfram lífinu vegna sorgar og vonaðist eftir að ég myndi ekki þurfa að upplifa sorgina aftur, en lífið spyr víst ekki að því og hefur sinn gang. Ég er svo þakklát að geta yljað mér við fallegar og góðar minningar sem ég á um þig. Það var alltaf yndislegt að koma til ykkar í Krummahólana og mun það vera yndislegt áfram að heimsækja ömmu þó að ákveðið tómarúm fylgi heimsóknunum núna. Það er tómlegt að enginn situr í afastól þegar maður kemur í dag. Ég heiti þér því að við munum hugsa vel um ömmuna okkar sem þú varst giftur í rúmlega 60 ár. Ég veit að þú verður hér með okkur í anda og ert hér í kringum okkur og passar vel upp á okkur öll. Ég vil þakka þér fyrir að deila svo mörgum skemmtilegum og fallegum sögum með mér ásamt því að sýna mér hluta af gömlu myndaalbúmunum ykkar. Við áttum enn eftir að fara saman yfir nokkur myndaalbúm en nú mun ég klára það verkefni með ömmu. Ég hafði mikið dálæti á því að hlusta á sögur frá því að þið bjugguð á Heiði í Mývatnssveit og sjá hvar þið höfðuð verið með bú og hvar mamma ólst upp. Ég elska Mývatnssveitina og finnst yndislegt að koma þangað því þar er svo fallegt. Þegar ég kem þangað keyri ég upp að Heiði og skoða þar í kring. Það er fullt af góðu fólki sem hefur tekið á móti þér með opnum örmum þegar þú fórst yfir móðuna miklu. Við munum halda vel utan um ömmu hérna megin. Öll systkini þín, foreldr- ar þínir og m.a. pabbi minn hugsa vel um þig hinum megin. Viljið þið pabbi knúsa hvor annan fyrir mig, sakna ykkar beggja ólýsanlega. Elsku amma og aðrir ástvinir, guð gefi ykkur styrk á þessum erfiðu tím- um. Elsku afi, takk fyrir að hafa verið til, takk fyrir að gefa mér tíma með þér, takk fyrir allt. Þín afadóttir, Berglind Ósk Guðmundsdóttir. Elsku afi. Mig langar að kveðja þig með nokkrum orðum. Ég þakka þér fyrir allar þær stundir sem við áttum sam- an. Ég á svo mikið af ljúfum minn- ingum um þig sem ég mun varðveita alla ævi. Margar af mínum fyrstu minningum eru frá því þegar ég var lítill polli fyrir norðan hjá þér og ömmu. Ég hugsa einnig oft til þeirra stunda þegar ég, þú og Snævar pabbi vorum að spila snóker í stofunni í Hrafnhólunum. Þú varst algjör sér- fræðingur í að reikna út skotin á litla skakka snókerborðinu mínu. Ótelj- andi minningar á ég um þig frá því að við vorum uppi í dal á sumrin þegar ég var yngri. Eins langt og ég man aftur hef ég komið með fjölskyldunni í heimsókn til ykkar ömmu á aðfanga- dagskvöld og var það alltaf ómissandi hluti af jólahátíðinni. Allar þessar minningar og margar fleiri ylja mér um hjartarætur. Ég er svo þakklátur fyrir að Freyr hafi fengið að hitta þig nokkrum sinnum. Ég veit að hann á ekki eftir að muna eftir þessum stundum en ég mun svo sannarlega segja honum sögur af þér, segja hon- um hvað þú varst góður maður. Ég mun aldrei gleyma þér. Nú kveð ég þig og þakka þér fyrir þann heiður að hafa átt þig fyrir afa. Ég bið Guð að geyma þig. Sigurður Ingi Árnason. Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum, hugsið ekki um dauðann með harmi eða ótta. Ég er svo nærri, að hvert eitt tár ykkar snertir mig og kvel- ur, þótt látinn mig haldið. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, lyft- ist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (Kahlil Gibran.) Ég var svo heppinn að búa hjá þér og ömmu í 3 ár á meðan ég var að læra og kynntist ég þér enn betur á þeim tíma. Ég á fullt af góðum minn- ingum frá því að þið bjugguð í Hellu- hrauninu í Mývatnssveit og síðar í Krummahólum. Þú varst góður karl, afi, og á ég eft- ir að sakna þess að hafa þig ekki. Handlaginn varstu hvort sem það var við smíðar eða annað sem þú tókst þér fyrir hendur. Takk fyrir samfylgdina, afi minn. Þinn Ari. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. (Ásmundur Eiríksson) Elsku langafi, mikið eigum við eftir að sakna þín. Við komum svo oft við hjá þér og langömmu þegar við vor- um að hjóla heim af leikskólanum eða bara í göngutúr um hverfið þar sem þið amma búið bara rétt hjá okkur. Við fengum þau forréttindi að eiga þig að svona lengi og geta komið í Krummahólana þegar við vildum og alltaf var eitthvað gott til handa litlum afakrílum þar sem þú og amma voruð svo dugleg að baka. Það var skrítið að koma til lang- ömmu um daginn og enginn afi í stólnum sínum, við munum passa langömmu rosalega vel fyrir þig, en veistu afi að hún er búin að vera rosa- lega sterk og dugleg. Við vitum að þú fylgist vel með okkur og við söknum þín mikið. Guð veri með þér elsku langafi, Þín langafabörn, Eygló, Guðni Már, Elmar Darri og Arnar Frosti Ómarsbörn. Elsku Siggi, takk fyrir allar góðu stundirnar sem ég hef átt með þér sem eru ekki fáar, við Ari búum svo stutt frá ykkur svo ég kom oft við þegar ég var í hjóla- eða göngutúr með krakkana. Alltaf jafn yndislegt að koma til ykkar og fá sér kaffisopa á heimleið. Í sumar áttum við góða kvöldstund saman við að mála múrsteinsvegginn í stofunni og er það dýrmæt minning núna, ég man að klukkan var að ganga 12 á miðnætti og ég spurði hvort ég væri að halda fyrir þér vöku með að klára og þú hélst nú ekki, það væri ekki eins og þú þyrftir að vakna snemma daginn eftir, he, he, he. Þú hefðir orðið 85 ára núna í nóv- ember og verður skrítið að hringja ekki í þig, þú varst vanur að segja við mig að þú værir ekki frá því að það hefði tognað úr þér við að verða ári eldri. Þú varst handlaginn maður og með græna fingur sem rósirnar í garðinum hjá ykkur bera merki um, mjög fallegar rósir sem springa út ár hvert. Þið hjónin bjugguð ykkur fal- legt og hlýtt heimili í Krummahólum og gerðuð þið allt í sameiningu. Þú varst yndislegur maður og ég hef oft sagt við Ara að ég voni að hann verði svona fallegur eins og þú þegar hann verður gamall. Elsku afi, eins og ég kallaði þig, takk fyrir góðar stundir og megi engl- arnir passa þig, ég mun hugsa vel um Mörtu mína þó svo ég viti að þú sért hjá henni. Elsku Baddý, Didda, Rebekka og fjölskylda, guð gefi okkur styrk á þessum erfiðu tímum. Loks er dagsins önn á enda úti birtan dvín. Byrgðu fyrir blökkum skugga björtu augun þín. Ég skal þerra tár þíns trega, tendra falinn eld, svo við getum saman vinur syrgt og glaðst í kveld. Lífið hefur hendur kaldar, hjartaljúfur minn. Allir bera sorg í sefa, sárin blæða inn. Tárin fall heit í hljóði, heimur ei þau sér. Sofna vinur, svefnljóð meðan syng ég yfir þér. Þreyttir hvílast, þögla nóttin þaggar dagsins kvein. Felur brátt í faðmi sínum fagureygðan svein. Eins og hljóður engill friðar yfir jörðu fer. Sof þú væran, vinur, ég skal vaka yfir þér. (Kristján frá Djúpalæk) Þín Anna. MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2010 ✝ Margrét Jó-hannsdóttir fæddist 23. maí 1927 á Þrasastöðum í Stíflu, Skagafirði. Hún lést 30. sept- ember sl. Foreldrar Mar- grétar voru Jóhann Guðmundsson bóndi á Þrasastöðum f. 29. maí 1898, d. 13. júlí 1983 og Sigríður Gísladóttir húsmóðir f. 8. júlí 1896, d. 4. desember 1977. Systkini Margrétar eru 1) Gyða f. 19. sept. 1923, 2) Ástrún f. 2. apríl 1925, 3) Gísli f. 5. ágúst 1929 d. 24. júlí 1964, 4) Einar f. 5. júlí 1939, d. 7. apríl 1974. Árið 1935 flutti hún með for- eldrum sínum til Siglufjarðar. Hún gekk í barnaskóla á Siglufirði og lauk Gagnfræðaprófi frá Gagn- fræðaskólanum á Siglufirði. Árin 1946-1947 dvaldi hún í Svíþjóð við vinnu og stundaði síðan nám við hússtjórnarskóla. Margrét starfaði við skrifstofustörf hjá Síldarverk- smiðjum ríksins á Siglufirði og hjá Sambandi íslenskra samvinnu- félaga um skeið. Einnig stundaði hún nám við Hjúkrunarkvennaskóla Íslands 1954-1956. Margrét giftist Jóni Finn- bogasyni Arndal 14. apríl 1956, d. 30. janúar 1999. Synir þeirra eru 1) Hlynur Jónsson Arndal hagfræðingur, f. 20. janúar 1957, kvæntur Auði Eyjólfsdóttur tannlækni, börn þeirra eru Karen Lísa f. 5. nóvember 1993 og Jóna Margrét f. 21. desember 1999. 2) Ívar Jónsson Arn- dal verkfræðingur f. 28.maí 1959, kvæntur Elínu Helgu Káradótt- ur sjúkraþjálfara f. 8. nóvember 1960. Börn þeirra eru Margrét Helga f. 28. desember 1992 og Jó- hann Kári f. 8. janúar 1995. Margrét og Jón bjuggu fyrst í Reykjavík, síðan Kópavogi en fluttu svo til Siglufjarðar þar sem þau bjuggu til 1966 þar til þau fluttu til Hafnarfjarðar þar sem þau ráku í sameiningu umboðsskrifstofu Brunabótafélags Íslands um langt skeið. Eftir að Vátryggingafélag Ís- lands hf. tók við rekstri Hafn- arfjarðarumboðsins hætti Margrét störfum en Jón hélt áfram að starfa hjá Vátryggingafélagi Íslands. Árið 1969 fluttu þau að Þrúð- vangi 8, Hafnarfirði og bjuggu þar í 26 ár þar til þau fluttu að Naust- hlein 3, Garðabæ þar sem Margrét bjó eftir andlát Jóns 1999. Útför Margrétar Jóhannsdóttur hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Margrét var yngst af okkur þremur systrum. Bræður okkar sem voru yngri: Gísli Benedikt, fyrrverandi skrifstofustjóri hjá Síldarútvegs- nefnd, lést af slysförum 35 ára að aldri og Einar vélstjóri, sem starfaði lengst af hjá Hafskip, fékk heilablóðfall sem varð hans banamein. Hann var þá 35 ára, ókvæntur og barnlaus. Margrét fékk sinn skammt af mótlæti á sínum yngri árum, en lífsbaráttan er sjaldan án þyrna. Margrét giftist Jóni F. Arndal 1956. Hann var með farmannapróf frá Stýrimannaskóla Íslands og stundaði sjómennsku í nokkur ár. Síðar varð hann umboðsmaður Brunabótafélags Íslands í Hafnarfirði og í framhaldi af því svæðisstjóri Vátryggingafélags Ís- lands í Hafnarfirði. Hann lést 1999 eft- ir erfið veikindi. Synirnir tveir Hlynur og Ívar eru vel giftir, eiga glæsileg heimili og efnileg börn. Mér er minn- isstætt, þegar ég einu sinni sem oftar kom í afmælisveislu til systur minnar og settist við borðið sem var hlaðið girnilegum tertum, að ég hafði á orði að hún ætti ekki að hafa svona mikið fyrir þessu. Hún svaraði með nokkru stolti að sonardóttirin Margrét Helga sem þá mun hafa verið 16 eða 17 ára gömul, hefði séð um baksturinn. Margrét var orðvör og tók aldrei undir ef hún heyrði einhverjum hall- mælt. Hún var hlýleg í framkomu og umgekkst þá sem hún átti samleið með á lífsleiðinni með tillitssemi og vinsemd. Margrét vann ekki mikið ut- an heimilisins. Hún prjónaði, heklaði saumaði út og gerði marga fallega muni sem hún gaf vinum sínum og vandamönnum. Ristilkrabbamein batt enda á lífs- feril hennar. Hún vissi hvað framund- an var og tók því með jafnaðargeði, stundaði handavinnuna og réð kross- gátur sér til gamans. Margrét dvaldi síðustu vikurnar á líknardeild Landsspítalans, en gat far- ið heim til sín þegar hún treysti sér til. Um dvöl sína á líknardeildinni sagði hún að það væri eins og að vera á fimm stjörnu hóteli. Til hinstu stundar leið henni vel og yfir henni hvíldi ró þess sem býr sig undir svefninn. Sonum hennar og fjöl- skyldum sendi ég hlýjar kveðjur og bið þess að blessun Guðs vaki yfir þeim. Gyða Jóhannsdóttir. Móðursystir mín Margrét Jó- hannsdóttir er látin. Frá því ég man eftir mér hefur Gréta frænka, eins og við kölluðum hana, skipað stóran sess í huga mínum og fjölskyldu minnar. Ég minnist hennar með lotn- ingu fyrir lífinu, tilverunni og dauð- anum. Systur Grétu voru Gyða og Ást- rún. Gréta var yngst þeirra. Yngri bræður voru Gísli og Einar, báðir látnir fyrir alllöngu. Þau voru börn Jóhanns Guðmundssonar og Sigríð- ar Gísladóttur frá Þrasastöðum í Fljótum og niðjar taldir til Þrasa- staðaættar. Gréta giftist Jóni Arndal 1956 og eignuðust þau strákana Hlyn og Ív- ar. Gréta og Jón hófu búskap sinn í Reykjavík. Þau bjuggu til skamms tíma á Siglufirði, en lengst af í Hafn- arfirði. Jón lést árið 1999. Gréta var búin miklum mannkost- um. Skap hennar einkenndist af jafn- aðargeði, hlédrægni, stóískri ró og hlýleika. Það var ávallt notalegt að heimsækja Grétu og Jón í Hafnar- firðinum. Á seinni árum urðu sam- skipti okkar og samverustundir meiri í gegnum synina Ívar, Hlyn og fjölskyldur þeirra. Einkum eru okk- ur Linn og börnum okkar, Iðunni og Jan, minnisstæðir áramótafagnaðir síðustu ára hér á Hörgslundinum, þar sem systurnar Gréta og Gyða, móðir mín, skipuðu sérstakan heið- urssess. Nærvera þeirra minnti okk- ur hin á ræturnar og skapaði festu í tilverunni. Eiginleikar og mannkostir Grétu komu vel í ljós eftir að hún greindist með illkynja sjúkdóm fyrir um ári. Æðruleysi, blítt viðmót og þægileg útgeislun hennar hélst alveg fram á síðustu stund. Það var unun að fá að upplifa þessa eiginleika Grétu þessa síðustu mánuði, enda þótt þessi tími hafi verið erfiður. Minningin um Grétu vekur hlýhug í huga okkar sem eftir lifum. Fyrir hönd fjöl- skyldu minnar sendi ég Hlyni, Ívari og fjölskyldum þeirra hugheilar sam- úðarkveðjur. Jóhann Ágúst Sigurðsson. Margrét Jóhannsdóttir ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÁSGRÍMUR HELGASON, lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks fimmtudag- inn 14. október. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 23. október kl. 11.00. Ragnhildur Lúðvíksdóttir, María Ásgrímsdóttir, Jón Grétar Þorsteinsson, Hulda Ásgrímsdóttir, Jón Sigurðsson, Þröstur Ingi Ásgrímsson, Ásta Birna Jónsdóttir. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HRAFNKELL HELGASON f.v. yfirlæknir á Vífilsstöðum, Móaflöt 23, Garðabæ, lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 19. október. Sigrún Aspelund Helgi Hrafnkelsson, Anna Kristín Gunnlaugsdóttir, Stella S. Hrafnkelsdóttir, Einar Sigurgeirsson, Hrefna Lovísa Hrafnkelsdóttir,Gunnar Karl Guðmundsson, Ríkarður Már Ríkarðsson, Lilja Þorsteinsdóttir, afabörn og langafabörn. ✝ Elsku systir okkar, ÁSA BJÖRGÚLFSDÓTTIR, Skólabraut 5, Seltjarnarnesi, lést sunnudaginn 10. október á Landspítalanum í Fossvogi. Útför fór fram í kyrrþey. Þórunn Björgúlfsdóttir, Ólafur Björgúlfsson og fjölskyldan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.