Morgunblaðið - 21.10.2010, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 21.10.2010, Qupperneq 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2010 Ég kveð yndislega konu, sem mér þótti mjög vænt um og sem var mikill áhrifavaldur í lífi mínu til góðs. Þegar ég byrjaði að vinna sem nýútskrifaður leikskólakennari við Heyrnleysingjaskólann var ég svo heppin að fá að vinna með henni og unnum við saman í mörg ár. María var þá nýkomin úr fram- haldsnámi frá Noregi. María var mikill reynslubolti og mikil fagmanneskja og var sívak- andi yfir velferð nemenda sinna. Hún var róleg, umburðarlynd, þol- inmóð og ákaflega umhugað um nemendur okkar og foreldra þeirra og bar mikla virðingu fyrir þeim. Það var ákaflega gaman að vinna með Maríu. Hún sá spaugilegu hlið- arnar á málunum og oft var glatt á hjalla. Ég er mjög fegin að hafa fengið tækifæri til að segja Maríu hvað mér þótti vænt um hana. Ég fór seinni árin á Þorláksmessu með smá gott í körfu til hennar, bara til þess að fá tækifæri til að hitta hana og spjalla. Það var notalegt að koma til hennar á Bjarkargötuna. Heimili hennar var smekklegt og heimilislegt. Við fórum líka stund- um niður á Hótel Borg og fengum okkur kaffisopa. Þá var mikið talað, rifjað upp og hlegið, manstu þetta og manstu hitt. Að lokum vil ég þakka Maríu samfylgdina og þá dýrmætu reynslu sem hún gaf mér. Díana Arthúrsdóttir. María Kjeld var í þeim hópi sem settist við fótskör Jóns Böðvars- sonar fljótlega eftir að hann hóf námskeið sín um íslenskar fornsög- ur. Sá hópur varð geysifjölmennur áður en yfir lauk, en í fyrstu var þar fámennt. Þetta var góður fé- lagsskapur. Mikið var ferðast á vettvang sagnanna og margt til gamans gert. María var áhugasam- ur og tryggur þátttakandi í ferða- lögum og viðburðum jafnt sem sögulestrinum sjálfum. Þegar við, nokkrar konur úr þessum hópi, tókum okkur til og fórum að lesa Sturlungu saman var María þar að sjálfsögðu með. Við höfum nú lesið saman hátt á annan áratug, Sturlungu oftar en einu sinni og fjölmargar aðrar bækur frá fyrri öldum. Og ekki höfum við van- rækt að ferðast saman og kynna okkur söguslóðirnar. Við kölluðum okkur af miklu lítil- læti Elíturnar. Og nú er Maríu Kjeld sárt sakn- að úr Elítuhópnum. Hún var frábær félagi, hógvær, vönduð og traust og kom hvarvetna fram til góðs. Við sendum fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hennar. Elíturnar, Ásdís, Guðrún, Hólmfríður, Hanna Dóra, Anna, Sólveig, Theódóra, Steinunn The., Ragnheiður, Þóra, Steinunn M. og Hildur. Mikil baráttukona María Kjeld, ein af frumkvöðlum í kennslu heyrnarlausra á Íslandi, stofnfélagi í Félagi íslenskra sérkennara, og síðar mikill brautryðjandi sem skólastjóri hjá Fullorðinsfræðslu fatlaðra er fallin frá. Fyrsta heyrnarstöðin á Íslandi var opnuð árið 1962. María var auk Erlings Þorsteinssonar læknis eini starfsmaður stöðvarinnar. María var sú fyrsta á Íslandi sem fór í alla barnaskóla Reykjavíkurborgar og María Ester Kjeld ✝ María Ester Kjeldfæddist í Tjarn- arkoti í Innri- Njarðvík 2. mars 1932. Hún lést á líkn- ardeild Landspít- alans, Landakoti, 8. október 2010. Útför Maríu fór fram frá Dómkirkj- unni í Reykjavík 19. október 2010. mældi heyrn allra sjö til tólf ára barna. Síðar menntaði María sig í Noregi í kennslu heyrnar- lausra og var ein af allra fyrstu kennurum Íslands með þá sér- menntun. María var kennari af guðs náð. Hún bar ákaflega mikla virðingu fyrir nemendum sínum og var vakin og sofin yfir velferð þeirra. Ég kynntist Maríu árið 1969 þegar ég hóf kennslu við Heyrnleysingjaskólann. Ég fann strax að hún var mikil fagmann- eskja sem alltaf var gott að leita til. María var einnig ákaflega göfug- lynd, virðingarverð og gefandi kona. Þó hún hætti kennslu við Heyrn- leysingjaskólann á blómaskeiði starfsferils síns þá veit ég að hún bar alltaf hag heynarlausra og heyrnardaufra nemenda sinna fyrir brjósti. Við María hittumst af og til síð- ustu árin og met ég þær stundir mikils. Ég sendi innilegar samúðar- kveðjur til fölskyldunnar og sysk- inabarna sem hafa misst svo góða og umhyggjusama systur og frænku. Blessuð sé minning eins af frum- kvöðlunum í kennslu og málefnum heynarlausra á Íslandi, Maríu Kjeld. Dóra Pálsdóttir. Lífið blasti við okkur nýútskrif- uðum fóstrum vorið 1953. María Kjeld var ein af átta ungum stúlk- um, sem hittust í Steinahlíð á haustdögum tveim árum áður til að hefja nám um uppeldi barna og störf á mismunandi dagvistarheim- ilum. Þessar ungu stúlkur komu hver úr sinni áttinni, en hópurinn náði vel saman og hver og ein naut sín í þessu skemmtilega námi, hvort sem það var bóklegt eða verklegt. Að námi loknu tóku við hefð- bundin störf á dagvistarheimilum hjá Maríu eins og okkur hinum. Fljótlega fór hún þó til frekara náms og hélt reyndar áfram að mennta sig jafnt og þétt alla sína starfsævi. Kennsla barna, sem áttu við ýmiss konar fötlun að búa, varð sérsvið Maríu og síðar stjórnun slíkrar kennslu. Hún kom víða við á þeim vettvangi og ávann sér hvar- vetna traust og trúnað skjólstæð- inga sinna, enda leiðbeining og hlýja aðalsmerki hennar. Vinátta okkar skólasystranna hefur enst gegnum árin og treyst- um við böndin með því að hittast mánaðarlega á vetrum eftir að allar höfðu haslað sér völl í starfi. María var traustur hlekkur í hópnum með sína notalegu viðveru. Hún var ráðagóð í hógværð sinni og miðlaði af fjölbreyttri reynslu af sínum starfsvettvangi. Margvíslegar uppá- komur tengdar starfinu og félagi okkar voru hluti af tilverunni og farið var í ferðalög bæði innanlands og utan. María átti rætur í Færeyjum og ræktaði samband við frændfólk og vini þar. Eftirminnilegt er sjötugs- afmæli hennar, hve margir stigu færeyskan dans og settu svip á dag- inn. Við skólasysturnar minnumst Maríu í fallegu íbúðinni sinni með listaverkum frá Færeyjum, góðum bókakosti og myndum af fjölskyld- unni, sem var henni svo kær. María var heilsteypt persóna og var fátt, sem kom henni úr jafn- vægi. Hún naut sín í góðra vina hópi og áhugamál átti hún mörg og sinnti þeim vel. Við syrgjum nú vegna fráfalls Maríu, en huggum okkur við allar góðu minningarnar. Elsku María, hvíl þú í friði. F.h. skólasystra, Margrét Schram. Árið 1973 var af foreldrum og sérfræðingum settur mikill þrýst- ingur á stjórnvöld að stofna dag- heimili fyrir nokkur fjölfötluð börn á forskólaaldri sem engin þáverandi stofnun treysti sér til að sinna. Reykjavíkurborg lagði til hús á Bú- staðavegi, ráðið var starfslið og skipuð stjórn með læknunum Sæv- ari Halldórssyni og Hauki Þórð- arsyni, helstu sérfræðingum á þessu sviði. Ráðgjafi um innra starf var ráðin María Kjeld sem þekkti öll börnin frá starfi sínu á Heyrn- ardeild Heilsuverndarstöðvarinnar. Hugmyndafræðina að innra starf- inu sótti María einkum til dr. Ing- rid Liljeroth, prófessors við háskól- ann í Gautaborg. Íslensk þýðing hennar á bók þeirra Liljeroth og Axeheim „Þjálfunaráætlanir handa þroskaheftum“ var gefin út af Ríkisútgáfu námsbóka árið 1975 og hafði mikil áhrif hér á landi. Í til- efni útkomu bókar Axeheim og Lilj- eroth komu höfundarnir til Íslands í janúar 1976 og héldu 20 tíma nám- skeið fyrir starfslið á stofnunum fatlaðra. Í erindum sínum kynntu þær hugmyndir sínar um normal- iseringu og integreringu þroska- heftra. Þátttakendur í námskeiðinu voru 260 talsins. Þá heimsóttu Ax- eheim og Liljeroth fjölda stofnana og áttu fundi með foreldrum. Áhrif- in af veru þeirra hér urðu mjög mikil á viðhorfin til fatlaðra og kennslu þeirra. Þessa þróun má rekja til Maríu. María varð árið 1982 skólastjóri Þjálfunarskóla ríkisins í Kópavogi. Sama ár lauk við háskólann í Mainz tilraun sem gerð var í sér- skóla í Landstuhl af dr. Haupt og dr. Frölich um örvun ofurfatlaðra barna. Skýrsla háskólans bar með sér að um stórmerka nýjung var að ræða. Safamýrarskóli og Þjálfunar- skólinn í Kópavogi sameinuðust um að flytja aðferðafræði Haupt og Frölich til Íslands. Safnað var fé til að þýða skýrsluna, senda fimm kennara undir stjórn Eyjólfs Mel- sted í tíu daga námsferð til Lands- tuhl, breyta síðan námsaðstæðum í skólunum og hefja starfið. Tveir af kennurunum kynntu seinna aðferðafræðina í menntasetri kennara fatlaðra í Dronninglund þaðan sem þekkingin fluttist til Norðurlandanna. Loks vil ég nefna aðild Maríu að íslenskri stöðlun málþroskaprófs Reynell (Reynell Developmental Scales). María lauk ævistarfi sínu sem skólastjóri Fullorðinsfræðslu fatl- aðra og var á því sviði einnig braut- ryðjandi. Það verða margir sem minnast Maríu með þakklæti og virðingu, bæði þeir sem nutu góðs af verkum hennar og við sem unnum með henni í lengri eða skemmri tíma. Með Maríu E. Kjeld er fallinn í valinn merkur brautryðjandi í skólamálum fatlaðra. Ættingjum hennar er vottuð samúð. Þorsteinn Sigurðsson, fv. skólastjóri Safamýrarskóla. Kæra María, við vorum nýút- skrifaðir kennarar þegar við hófum starfsferil okkar undir þinni stjórn. Þú varst skólastjóri í Þjálfunar- skóla ríkisins í Kópavogi og betri yfirmann var ekki hægt að fá. Þú hvattir okkur áfram og varst alltaf til í að hlusta á það sem við höfðum fram að færa og sást til þess að góðar hugmyndir kæmust í fram- kvæmd. Miklar breytingar og þróun áttu sér stað í kennslu fatlaðra meðan þú varst skólastjóri, fyrst í Þjálf- unarskóla ríkisins sem síðan þróað- ist yfir í Fullorðinsfræðslu fatlaðra með sameiningu nokkurra skóla. Í dag heitir skólinn Fjölmennt og starfar enn í þeirri mynd sem þú lagðir grunninn að. Fyrst og fremst minnumst við þín sem hlýrrar og góðrar mann- eskju sem vildi öllum vel og þú lagðir þig fram við að greiða götu samferðamanna þinna. Okkur langar að þakka þér fyrir þau ár sem við störfuðum með þér og fengum að kynnast þér. Þú ert ein af þeim sem við tökum til fyr- irmyndar og minnumst með hlýju. Árni Einarsson og Ásta Ísberg. Við afi Halli áttum ófáar góðar stundir saman. Það var alltaf mjög gott að vera í kringum hann, hann vildi allt fyrir mann gera og hugsaði til manns oft á dag. Mínar fyrstu minningar um afa og ömmu eru þegar ég kom að heim- sækja þau í Álftamýrina. Ég var þar oft þegar ég var polli. Þau voru ófá skiptin sem ég fór til afa og ömmu þegar ég var veikur og mamma og pabbi þurftu að komast til vinnu. Þeir dagar voru alltaf mjög skemmtilegir. Afi sá til þess að ég hafði nóg fyrir stafni og laumaði að mér nóg af góðgæti meðan amma var nú meira að hugsa um heilsuna á manni og dældi í mann mat. Ég man alltaf eftir því þegar fór að vora og afi fór inn í skúr að pússa „sportbílinn“ sinn sem var þá búinn að vera inni í skúr allan veturinn á meðan hann þjösnaðist á gömlu Jettunni hennar ömmu. Það var nú aldrei leiðinlegt að fara með afa í bíltúr upp á golfvöll að sumri til í eina Toyota Avensis-sportbíl í heimi! Það er afa að þakka að eitt af mín- um aðaláhugamálum í dag er golf. Ég var ekki gamall þegar honum tókst að draga mig út á golfvöll. Þar vorum við strákarnir saman að slá úr fötum og afi að kenna mér að halda á kylfunni og slá í kúluna. Það tókst þó misjafnlega en ég var nú ótrúlega fljótur að ná tökum á þessu sporti og farinn að eyða heilu og hálfu dögunum uppi á golfvelli. Það leið þó ekki á löngu þar til afi var farinn að hringja í mig og biðja mig um að koma út á golfvöll að laga að- eins hjá sér sveifluna. Þar með var eggið farið að kenna hænunni og hafði ég alltaf rosalega gaman af því. Aðfangadagskvöld var alltaf svakalega notaleg stund hjá okkur fjölskyldunni og vorum við krakk- arnir svo heppin að fá að hafa afa og ömmu hjá okkur. Afi var alltaf mikið jólabarn í sér og æstur í að vita hvað væri í pökkunum. Það var honum að þakka að alla mína æsku fékk ég að opna einn pakka fyrir matinn við litla hrifningu mömmu og pabba. Afi fylgdist alltaf með því sem við barnabörnin tókum okkur fyrir hendur og var um leið mjög stoltur af okkur krökkunum. Afi Halli á eftir að lifa lengi í minningunni. Ég kveð þig með mikl- Haraldur Þorsteinsson ✝ Haraldur Þor-steinsson fæddist í Reykjavík 23. maí 1923, hann lést á hjúkrunardeild Hrafnistu 5. október sl. Útför Haraldar fór fram frá Neskirkju 19. október 2010. um söknuði en trúi því um leið að þú sért kominn á betri stað þar sem amma og þú getið passað hvort upp á annað. Bið að heilsa. Þinn Baldvin. Hann afi Halli er dáinn. Það leið ekki langur tími á milli þeirra afa og ömmu í Álftamýri, en amma Dista lést 9. maí síðastliðinn. Það er nokkuð sérstök tilfinning að upplifa kynslóðaskiptin sem brotthvarf þeirra beggja hefur í för með sér. Nú eru þau farin, báðar ömmur okk- ar og báðir afar okkar. Þetta er víst gangur lífsins. Þótt vissulega séu þetta sorgleg tímamót þá vekja þau líka ljúfar og góðar minningar. Það er dýrmætt að hafa fengið að njóta samvista við afa fram á fullorðinsár. Undir það síðasta hrakaði heilsunni hjá afa og er hann því vel að hvíldinni kominn. Afi Halli var hress og skemmtilegur karl og það var sjaldan lognmolla þar sem hann var staddur. Afi tók lengi í nefið og angaði þá af mildum tóbaksilm. Það var hressandi að ræða við afa um málefni líðandi stundar enda lá hann yfirleitt ekki á skoðunum sínum. Afi fylgdist stoltur með sínu fólki og bar hag allra sinna mjög fyrir brjósti. Afi var húsasmíðameistari og starfaði lengst af sem slíkur. Stundum fékk afastrákur að fara með í eftirlitsferðir með afa, þær voru til dæmis ófáar ferðirnar sem farnar voru til að fylgjast með bygg- ingu háskólabyggingarinnar Odda. Afi var líka húsgagnasmiður og bar heimili hans og ömmu þess glöggt merki. Á heimili þeirra voru margir kjörgripir sem hann smíðaði. Afa- börn fengu líka að njóta þess hvað hann var handlaginn. Hann smíðaði barnarúm sem var fyrsta rúmið okkar beggja, síðan gekk það áfram til annarra barnabarna, og þau voru fleiri húsgögnin sem hann smíðaði fyrir okkur. Afi var svolítill dellukarl, hann hafði til dæmis mjög gaman af því að spá í bíla og græjur, en hann fór líka mjög vel með hluti sem hann átti. Afi var alla tíð opinn fyrir nýj- ungum, t.d. fékk hans sér tölvu og var spenntur fyrir því að kynnast því hvað hægt væri að gera með slíkum græjum. Þá hafði afi yndi af því að leika golf á Oddfellowvell- inum með félögum sínum eftir að hann komst á eftirlaun. Á þessari stundu er efst í huga þakklæti fyrir langa og góða sam- fylgd. Guð blessi Harald Þorsteins- son. Ólafur Arinbjörn Sigurðsson og Aðalheiður Sigurðardóttir. Jarþrúður Soffía Ásgeirsdóttir var allt- af kölluð Fía frænka alla sína ævi. Hún var systir mömmu minn- ar. Fjölskylda hennar bjó lengi í Laugardalnum stutt frá Hjallaveg- inum þar sem mamma og pabbi bjuggu. Þangað var létt að skokka eða hjóla og koma við hjá Fíu, Jóni og stelpunum og ávallt fékk maður hlýja og góða móttöku og passað Jarþrúður Soffía Ásgeirsdóttir ✝ Jarþrúður SoffíaÁsgeirsdóttir fæddist á Hömrum í Eyrarsveit 3. apríl 1924. Hún lést á Landspítalanum 27. júlí 2010. Útförin fór fram í kyrrþey. upp á að maður færi aldrei svangur heim. Fía var gift Jóni Þorvaldssyni sem lést fyrir mörgum áum og var mikill samgangur á milli fjölskyldnanna sérstaklega þegar þau bjuggu í Bræð- raparti í Laugardaln- um. Fía er nú fallin frá og er ég sannfærður um að elskuleg frænka mín hafi orðið hvíldinni fegin enda átt við mikið heilsuleysi að glíma síðustu árin. Ég votta frænkum mínum, börn- um þeirra, barnabörnum og öðru venslafólki innilega samúð. Hvíl þú í friði, kæra frænka. Ásgeir Þór Árnason.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.