Morgunblaðið - 21.10.2010, Page 27

Morgunblaðið - 21.10.2010, Page 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2010 Nú vantar illa mág minn Rúnar hjá fjöl- skyldunni okkar. Tína systir mín kynnti hann fyrir fjölskyldunni 1974 og átti eftir að koma í ljós að foreldrar mínir voru sérlega ánægð með tengdasoninn sem var alltaf tilbúin að eiga sam- verustundir við þau, ræða dæg- urmálin við föður minn og sýna móður minni mikla umhyggju, auk þess sem hann hjálpaði þeim eftir þörfum bæði heima og í sumarbú- staðnum. Við Rúnar áttum fjölda góðra samverustunda í yfir 35 ár, þar sem við áttum eftir að vinna saman á sumarbústaðalandinu, skiptast á að vinna hvor annan í skák eða bara almennt njóta tímans saman. Alltaf höfðingi heim að sækja og verður skrýtið að hann verður ekki á staðnum þegar við fögnum nýju ári en alltaf hittist fjölskyldan hjá þeim Björgu. Allt hjá Rúnari fannst mér hafa tilgang og hugsjón. Hann gaf sér tíma fyrir fjölskylduna og fannst mér Rúnar vera ánægðastur þegar hann var með Björgu og börnin. Hann hugsaði alltaf mikið um Ein- ar, Mörtu og Sigrúnu og vildi að þeim gengi sem allra best. Maður sá alltaf að hann var mjög stoltur af því að þeim vegnaði vel, þótt aldrei mundi hann segja það berum orðum. Einnig var hann Rúnar I. Sigfússon ✝ Rúnar IngimarSigfússon fæddist í Reykjavík 10. janúar 1949. Hann lést á líknardeild Landspít- alans í Kópavogi 5. október 2010. Rúnar var jarð- sunginn frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík 14. október 2010. ánægður með að vera kominn með tengda- börn og vera orðinn afi. Vinnulega var hann einnig hug- sjónamaður. Störf hans í tengslum við heilbrigðismál og menntamál voru vegna óskar um að vinna að hlutum sem höfðu tilgang, ekki að einskisnýtu frama- poti. Góður maður er farinn frá okkur, við munum sakna hans mikið. Björn Óli, Kristjana, Stefán Barði, Marisa, Valter og Gunnhildur. Dag einn fyrir margt löngu þeg- ar við hjónin vorum við nám í Sví- þjóð hittum við á förnum vegi ung- an mann í lopapeysu á hjóli. Þetta var skarpleitur maður, grannholda, jarphærður, fríður sínum og með glettnisglampa í augum. Þarna fór Rúnar Sigfússon verkfræðingur, sem kominn var til framhaldsnáms við háskólann í Linköping ásamt unnustu sinni Björgu Hauksdóttur. Núna 35 árum síðar þegar við kveðjum Rúnar langt um aldur fram er margs að minnast. Náms- árin í Svíþjóð voru góður tími og margt dreif á dagana. Samheldni í „Íslendinganýlendunni“ var mikil og áttum við margar ánægjustund- irnar saman Íslendingarnir í Lin- köping. Á góðri stund þegar fjör færðist í leikinn var tekin létt sveifla með Stuðmönnum en Sumar á Sýrlandi kom eins og ferskur norðanvindur inn í Íslendinga- byggðina á þessum tíma. Rúnar kom reyndar víða við í tónlistinni og var vísnaöngur ofarlega á blaði og oftar en ekki heyrðist í Cornelis Vreeswijk eða öðrum ámóta snill- ingum. Rúnar var skarpgreindur, yfirvegaður, rólyndur og alltaf var stutt í húmorinn. Minnisstætt er þegar við félagarnir Þorsteinn Ein- arsson, Rúnar og undirritaður gengum í skákklúbb Linköpings upptendraðir af einvígi Fischers og Spasskí. Heldur urðum við hissa þegar yngsti félaginn í klúbbnum reyndist fæddur um aldamótin 1900 og blómaskeið klúbbsins var á millistríðsárunum. Við hugsuðum okkur gott til glóðarinnar en skemmst er frá því að segja að karlarnir rúlluðu okkur upp en það var helst að Rúnar stæði í þeim. Við Þorsteinn vorum heldur sneyptir og fúlir eftir útreiðina en Rúnar sá auðvitað skondnu hliðina og gerði grín að öllu saman á sinn einstaka hátt. Eftir að við fluttumst heim héld- um við hópinn og vorum við meðal annars boðin í fermingar og út- skriftir Einars, Mörtu og Sigrúnar. Um hver jól borðuðum við sam- an sænskan jólamat með síld, Jan- sons frestelse, skinku, kjötbollum og viðeigandi vísnasöng. Um síð- ustu jól nutum við frábærra veit- inga hjá þeim Rúnari og Björgu þar sem Rúnar lék á als oddi þrátt fyrir sín erfiðu veikindi. Þá er minnisstæð heimsókn í fjölskyldu- paradísina í Stóraskógi við Úlfarsá en þar hafði Rúnar gróðursett mik- inn fjölda trjáa á undanförnum áratugum og árangurinn með ólík- indum. Síðastliðinn ágústmánuð heimsóttum við Þorstein og Ester á Selfossi. Þetta var sólríkur og fallegur dagur þar sem fjallahringurinn skartaði sínu fegursta og móttökur einstakar. Þegar við kvöddumst á Freyjugötunni bar Rúnar sig ein- staklega vel og sagði af æðruleysi með sínu rólynda yfirbragði; þetta var góður dagur. Við þökkum góð- um vini hlýhug og vináttu og vott- um Björgu og börnunum innilega samúð. Guðrún og Eiríkur Briem. Aðalheiður Klemens- dóttir, Holtsgötu 31 Reykjavík, fæddist 21. október 1910. Aðal- heiður hefði orðið 100 ára í dag, en hún lést 26. október 1995. Hún var elst fjögurra systkina, sem voru, Erlingur, f. 12. mars 1912, Valgarður, f. 2. nóv. 1913, og Klem- entína Margrét, f. 24. mars 1917. Faðir hennar var sjómaður og féll frá í spánsku veikinni 1918. Það var erfitt fyrir móður hennar að koma upp fjórum börnum á þessum tíma. Oft sagði hún að þröngt hefði verið í búi hjá móður sinni, en með dugnaði og út- sjónarsemi hefði þetta blessast. Árin liðu og systkinin uxu úr grasi, bræður hennar fóru til sjós og gerðust afburða togarasjómenn. Að- alheiður kynntist eiginmanni sínum Guðmundi Kristjáni Kristjánssyni vélstjóra og bjuggu þau lengst af á Holtsgötu 31. Guðmundur var ekkjumaður og átti hann tvær dæt- ur fyrir, þær Ingibjörgu, f. 9. ágúst 1927, d. 27. janúar 1985, gift Karli Sigurði Sigfússyni, f. 13. ágúst 1923, d. 16. maí 1987, eignuðust þau 6 börn og Kristínu, f. 16. apríl 1929, d. 22. júlí 1961, eignaðist hún 3 dætur. Aðalheiður ól þær systur upp og gekk þeim í móðurstað. Brátt fjölgaði í kotinu og eignuð- ust þau hjón sex börn og eru þau: 1) Klemens, f. 10. nóv. 1934, kv. Astri Flaglien, 2) Aðalheiður Margrét, f. 7. okt. 1937, d. 10. maí 1942. 3) Að- alheiður Margrét, f. 11 maí 1942, gift Jóni Helgasyni. 4) Hrefna, f. 9. sept. 1944, gift Óla Má Guðmundssyni, d. 21. mars 1997. 5) Kristján, f. 4. okt. 1945, kv. Elsu Baldursdóttur. 6) Aðalheiður Klemensdóttir Margrét, f. 28. ágúst 1948, gift Geoffrey Brabin. Barnabörn Aðalheiðar eru 15, barnabarnabörnin eru 27 og 3 barnabarna- barnabörn. Aðalheiður hafði létta lund, hún var söngelsk og á góðum stundum var lagið tek- ið á Holtsgötunni. Hún hafði sungið í kórum á sínum yngri árum og hafði fallega altrödd. Hún söng í Þjóðhátíð- arkórnum sem söng á Lýðveldishá- tíðinni á Þingvöllum 17. júní 1944. Eftir að barnabörnin fóru að koma varð aðalsamkomustaður þeirra hjá ömmu á Holtsgötunni. Hún tók alltaf á móti þeim með hlýju og ástúð. Þar var spjallað og sagðar sögur. Hún fylgdist með náminu hjá ungviðinu, lagði þeim lífsreglurnar svo var hellt upp á könnuna og unga fólkinu boðið upp á kökur og kræsingar, var þá oft glatt á hjalla. Eftir að unga fólkið í fjölskyld- unni fór að mennta sig og fara í skóla erlendis var alltaf hringt og ömmu sendar góðar kveðjur og þeg- ar þessir námshestar komu heim var fyrst farið „vestureftir til ömmu“ og heilsað upp á hana. Aðalheiður var ankerið í okkar fjölskyldu og hélt þessum hóp sínum saman af kærleik og trausti. Þegar hún féll frá var hennar sárt saknað af ömmubörnunum sem nú gátu ekki farið vestur á Holtsgötu, heimsótt hana og spjallað. Við hin eldri minnumst skemmtilegra stunda og þökkum henni fyrir allt sem hún var okkur. F.h. barna og tengdabarna, Jón Helgason. Það fer að verða æ algengara að sam- ferðamenn á svipuðu reki leggi í þá ferð, sem okkur er öllum ætlað að fara. Andlát Jóhannesar Jónsson- ar, eða Jóa rafvirkja, kom nokkuð illa við mig. Ekki að það væri óvænt, eins og heilsu hans var háttað, heldur vegna þess að ég átti honum skuld að gjalda. Ekki aðeins átti hann hjá mér fleiri heimsóknir, þar sem hann dvaldi á sjúkrastofnun, heldur er óuppgert þakklæti, með meiru, fyrir ómetan- lega sendingu sem barst á næstliðn- um útmánuðum. Þannig er mál með vexti að snemma á tíunda áratugnum var far- in eftirminnileg skíðaferð undir dyggri fararstjórn Jóa rafvirkja. Lagt var upp í blíðskaparveðri, gönguskíð- in undir við Bláfjallaskála, gengið suðvestur með Draugahlíðum. Upp úr hádegi var kominn norðan-norð- austan strekkingur. Áð var í ónefnd- um gíg. Þegar áfram var haldið er veðurhæðin orðin slík, að beita þurfti þeirri öflugu bremsutækni – plógi, þó farið væri upp snarbrattar brekkur. Okkur bar, sem vænta mátti, nokkuð af leið og heimkoman tafðist lítillega, en verr hefði getað farið ef ekki hefði verið fyrir hæfni og kunnáttu Jóa far- arstjóra. Nú kem ég aftur að sendingunni. Hún innihélt tvær vatnslitamyndir „signeraðar“ J.I.J. Þær eru listilega gerðar, sýna gönguskíðafólk í stór- Jóhannes Ingólfur Jónsson ✝ Jóhannes Ing-ólfur Jónsson fæddist 15. júlí 1939. Hann andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir 1. október 2010. Útför Jóhannesar var gerð frá Árbæj- arkirkju 11. október 2010. viðri, plægjandi upp bratta brekku. Þessi listaverk ásamt minn- ingunni um Jóa raf- virkja eru mér miklir dýrgripir. Ég sé fyrir mér ferðahóp í langri lest, fyrstur fer vörpulegur maður með prjóna- húfu, áttavita í hendi, klæddur svörtum vind- buxum, – víðum. Fast á eftir ganga konurnar, þær hænast að þessum – ekki smáfríða en karlmannlega, fótstóra fararstjóra, sem geislar af vilja, eins og stóðhest- ur. Síðan koll af kolli og aftastur er undirritaður, ef til vill að beiðni ábyrgs undanfara. Upp í hugann koma myndir að af- loknum degi þar sem nestið og bik- arinn eru með. Það er hollt að staldra við og þakka fyrir góða heilsu, þar sem það á við, og undrast jafnframt hversu ranglega því mesta dýrmæti er skipt. Við Borga þökkum ómetanlegar samverustundir og blessum minningu trausts og góðs ferðafélaga. Gísli Óskarsson.                          ✝ Okkar ástkæra, ERLA KRISTÍN BJARNADÓTTIR, áður Brekkustíg 29a, Njarðvík, andaðist mánudaginn 27. september. Útförin hefur farið fram. Innilegar þakkir til allra sem sýnt hafa okkur samúð og hlýhug við andlát hennar. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Víðihlíðar sem annaðist hana og veitti henni og okkur einstaka umhyggju og hlýju. Gunnlaug B. Jónsdóttir, Ásmundur Sigurðsson, Guðrún Sigurjónsdóttir, Guðbjörn Sigurjónsson, Erla Sigurjónsdóttir, Sævar Sigurðsson, Anna Halla Jóhannesdóttir, Aðalbjörg Jóna Jóhannesdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elsku Gísli bróðir, það eru engin lýsing- arorð nógu sterk til að lýsa þeim sársauka sem fylgdi því að fá fréttirnar af því að þú hefðir dáið, að fá ekki að sjá þig aftur. Þú varst svo góður bróðir. Allir sem þekktu þig elskuðu þig á einn eða annan hátt. Ég hef sjaldan séð þig eins hamingjusaman og fullan af lífi og fjöri og síðustu vikur og mánuði. Það hellast yfir mig minningar úr lífi okkar saman sem hafa leitað á hugann núna síðustu daga um þig á öllum aldri, allt frá því þú varst pínulítill og þangað til ég sá þig síð- ast. Þegar þú varst lítill þá fann ég oft hvað fór mikið fyrir þér, orkumikill og uppátækjasamur. Það var mikið líf og fjör hjá okkur á Skúlagötunni þar sem við ólumst upp. Það var Gísli Theodór Ægisson ✝ Gísli TheodórÆgisson fæddist í Reykjavík 16.5. 1958. Hann lést 3.10. 2010. Útför Gísla fór fram frá Landakirkju 14. október 2010. margt brallað inni á heimilinu enda oft líf og fjör í stórum systk- inahópi enda áttum við góðar stundir á Skúlagötunni þar sem þú varst fljótur að koma með hugmyndir að prakkarastriki, það eru til margar sögur af þér sem fær mig til að brosa. Unglingsár- in og fullorðinsárin tóku síðan við hjá okk- ur systkinunum. Öll þroskuðumst við og eignuðumst fjölskyldur. Fjarlægðin var þá meiri þar sem við systkinin festum rætur á ýmsum stöðum inn- anlands sem utanlands. En á síðustu árum náðum við nánari tengslum Gísli minn. Við ferðuðumst saman, við tveir, og áttum góðan tíma sam- an. Oft var glatt á hjalla og stutt í húmorinn hjá okkur enda hafðir þú svo góða nærveru. Síðustu vikur og mánuði sem þú gistir hjá mér var mikil tilhlökkun þar sem við náðum svo vel saman. Það var alltaf gaman að vera nálægt þér, Gísli minn. Átt- um við þá dýrmæta tíma saman og náðum við að styrkja tengsl okkar enn frekar þegar þú komst í bæinn. Þá var gaman að heimsækja systk- inin okkar og hjálpa þeim við við- gerðir. Þar varst þú á heimavelli, það var alveg sama hvað þú tókst þér fyrir hendur, þér tókst að leysa öll verkefni. Þessi tími var okkur báðum til góðs. Þennan tíma okkar saman mun ég varðveita um ókomin ár í hjarta mínu, Gísli minn. Ég kveð þig nú, bróðir minn, með söknuði og þakka þér fyrir að vera hjá okkur í þessu lífi. Við verðum bræður að eilífu. Ég hlakka til að hitta þig aftur. Megi góður Guð styrkja ykkur kæru fjölskylda á þessum erfiðu tímum, Guðbjörg, Gunnar, Ægir, Guðmundur, Garðar, Jóhann og Didda. Þinn bróðir, Ómar Ægisson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.