Morgunblaðið - 21.10.2010, Page 31

Morgunblaðið - 21.10.2010, Page 31
VELVAKANDI 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2010 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand STUNDUM LÍÐUR MÉR EINS OG... ...ÉG GERI ÞETTA BARA AF GÖMLUM VANA EN SVO ÞEGAR HANN LENDIR Á SPILABORGINNI HANS JÓNS, ÞÁ MAN ÉG AFHVERJU ÉG HEF SVONA GAMAN AÐ ÞESSU MÉR MUNDI HUNDLEIÐAST EF ÉG VÆRI VINDHANI SYSTIR MÍN OG MAÐURINN HENNAR ÆTLA AÐ KOMA Í HEIMSÓKN, EN HVAR EIGA ÞAU AÐ GISTA? HVAÐ MEÐ AÐ VIÐ SKELLUM OKKUR Í FRÍ OG LEYFUM ÞEIM BARA AÐ GISTA HÉRNA HEIMA SÚKKULAÐIKANÍNUR LIFA ÞVÍ MIÐUR ALDREI AF PÁSKANA VERTU NÚ EKKI SVO VISS UM ÞAÐ. SÉRÐU HVÍTU SÚKKULAÐI- KANÍNUNA ÞARNA? ÞETTA ER HANN FRÆNDI MINN HANN HEFUR LIFAÐ AF MARGA PÁSKA, EN ÉG VEIT EKKI HVERNIG HANN FER AÐ ÞVÍ SÆLL FRÆNDI! SVONA SNÁFAÐU STRÁKSI ERTU TILBÚIN AÐ FARA MEÐ BÖRNIN Í SKEMMTI- GARÐINN? ÉG ER BÚINN AÐ FELA MIG NÓGU LENGI KOMINN TÍMI TIL AÐ SÆKJA PENINGANA MÍNA KANNSKI GETURÐU FENGIÐ ÞÁ SENDA TIL ÞÍN... ...Í FANGELSIÐ! KÓNGU- LÓAR- MAÐURINN! HJÁLPAÐU MÉR AÐ KOMA ÞESSU ÚT Í BÍLGETUM VIÐ EKKI BARA SLEPPT ÞVÍ AÐ SPÁ Í ÞESSU Í NOKKRA DAGA? MIG LANGAR BARA AÐ FORÐAST ÞAÐ AÐ ÞURFA AÐ BORÐA BRAUÐ YFIR HÁTÍÐARNAR NÆSTUM ÞVÍ, ÉG ER BARA AÐ REYNA AÐ FINNA LEIÐ FYRIR OKKUR AÐ HALDA PÁSKAHÁ- TÍÐINA HEILAGA Um mannréttindi í Kína og á Íslandi Kínverjar eru merki- leg þjóð, hógvær, frið- söm, og seinþreytt til vandræða. Þeir hafa, ólíkt mörgum öðrum, aðstoðað okkur í vand- ræðum okkar, sem við höfum komið okkur í. Það er því nokkuð þversagnarkennt, þeg- ar við bregðumst við vináttu þeirra með því gagnrýna framgang dómsmála í landi þeirra. Í þessu sam- hengi er sagt að þar í landi séu menn fangelsaðir fyrir pólitískar skoðanir og sérstaklega einn maður sem nú hefur fengið friðarverðlaun Nóbels. Á sama tíma er hér á Íslandi, fyrir forgöngu Alþingis Íslendinga, krafist réttarhalda og í framhaldi af því fangelsisdóms yfir manni, sem framfylgdi sínum pólitísku skoðunum í verki og framkvæmdi eftir bestu getu. Manni sem aldrei hefur mátt vamm sitt vita, heið- arlegur í framkomu og starfi, og ætti að vera öðrum mönnum fyr- irmynd. Hann skal ákærast fyrir að vera ekki alvitur og forspár, og að hafa ekki útbreitt orð Davíðs Oddssonar. Kínverjar hafa flestum þjóðum betur kynnst vestrænu réttlæti, og er ekki furða þó þeir taki því með fyrirvara. Má geta þess í því sambandi, að nýlega er lokið síð- ustu eftirhreytum af einu ógeðslegasta stríði, sem háð hefur verið á þessari jörð. Það var þegar Bretar afhentu Kínverjum aftur Hong Kong. Bretar stofnuðu þessa nýlendu í lok stríðs við Kína, sem var efnt til vegna þess að Kín- verjar höfðu nánast upprætt ópíumneyslu í landinu, en eftir að hafa gjörtapað þessu villimannlega stríði, urðu þeir að leyfa frjálsa sölu Breta á ópíum og láta eyna Hong Kong af hendi. Það er mikið afrek og erfitt starf að halda uppi einingu og friði með- al kínversku þjóðarinnar, og hjálp- ar þó til að þeir eru að eðlisfari friðsamir. Það yrði því mikð slys fyrir allt mannkyn, ef vestræn úlf- úð nær að grafa undan þeirra friði. Við Íslendingar eigum að taka í útrétta hönd þeirra, og segja eins og Gunnar á Hlíðarenda: „Góðar þykja mér gjafir þínar, en betri þykir mér vinátta þín og sona þinna.“ Kristján Hall. Ást er… … að breyta nýja húsinu ykkar í heimili. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, gönguhópur II kl. 10.30, vatnsleikfimi kl. 10.45, myndlist og prjónakaffi kl. 13, bókmenntakl. kl. 13.15 og jóga kl. 18. Árskógar 4 | Handavinna kl. 9, smíði/ útskurður, boccia kl. 9.30, helgistund. kl. 10.30, myndlist kl. 13.30. Bólstaðarhlíð 43 | Myndlist kl. 9, bók- band kl. 13, handavina allan daginn. Dalbraut 18-20 | Bókabíll kl. 11.15, víd- eóstund kl. 13.30. Dalbraut 27 | Handavinna kl. 8-16. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13. Opið hús í á morgun kl. 13, fé- lagsstarf vetrarins kynnt. Félag kennara á eftirlaunum | Bók- menntakl. í kennarahúsi kl. 13.30. Félagsheimilið Boðinn | Jóga kl. 9, handavinna kl. 10, boccia kl. 13. Félagsheimilið Gjábakki | Rammavefn- aður kl. 9.05, leikfimi kl. 9.15, málm- og silfursmíði kl. 9.30, bókband kl. 13 og myndlistarhópur kl. 16.10. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handa- vinna kl. 9, ganga kl. 10, handavinna/ brids kl. 13, jóga kl. 18. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Gönguhópur kl. 11, handavinnuhorn, leð- ursaumur og karlaleikfimi kl. 13, Garða- kórinn, æfing kl. 16. Félagsstarf Gerðubergi | Helgistund kl. 10.30. Vinnustofur opnar frá hádegi, m.a. myndlist, perlu- og bútasaumur. ,,Breiðholtsdagar“ verða 15.-21. nóv., ábendingar óskast. Uppl. í s. 575-7720. Hraunsel | Rabb kl. 9, qi-gong kl. 10, leikfimi kl. 11.20, glerskurður kl. 13, Helgi Seljan með söng fyrir alla ásamt píanó- undirleik kl. 13.30, félagsvist kl. 13.30. Dansleikur föstud. 22. okt., Þorvaldur Halldórsson leikur og syngur. Hvassaleiti 56-58 | Boccia kl. 10, hann- yrðir kl. 13, félagsvist kl. 13.30, kaffisala í hléi. Böðun fyrir hádegi. Hæðargarður 31 | Við Hringborðið kl. 8.50, Stefánsganga og listasmiðja kl. 9, leikfimi og spænska kl. 10, þegar amma var ung kl. 10.50. Sönghópur Hjördísar Geirs kl. 13.30, línudans kl. 15. Myndlist- arsýning Hrafnhildar Baldvinsdóttur. Ókeypis tölvuleiðb. Uppl. 411-2790. Íþróttafélagið Glóð | Boccia í Boð- anum kl. 13., pútt við Kópavogslæk kl. 17. Uppl. í s. 554-2780 og á www.glod.is Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun er listasmiðja með gleriðnað og tréútskurð kl. 13 og sundleikfimi kl. 9.30. Laugarból, Íþr.hús Ármann/Þróttur | Leikfimi kl. 11. Norðurbrún 1 | Handavinna kl. 9-16. Vinnustofa í útskurði opin allan daginn. Vesturgata 7 | Handavinna og gler- skurður og ganga kl. 9.15, kertaskreyting og kóræfing kl. 13, leikfimi kl. 13. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, bók- band, postulínsmálun, kl. 9, morgun- stund kl. 9.30, boccia kl. 10, framhalds- saga kl. 12.30, handavinnustofan opin, spilað og stóladans kl. 13, myndasýning kl. 13.30. Uppl. í síma 411-9450. Óttar Einarsson er einn af góðvin- um Vísnahornsins. Og full ástæða til að fagna útkomu bókarinnar Þorn og þistlar, sem hann sendi ný- verið frá sér. Er kom að starfs- lokum höfundarins við Mennta- skólann á Laugarvatni vorið 2007 voru kveðjuorð Óttars, „svona bæði í gamni og alvöru“: Lagði í sölur líf og blóð, lét af hendi framann, til að mennta þessa þjóð – það var ekki gaman. Og enn kvað hann: Loks ég hörfa lúinn má lífs- úr örvabrýnum. Klæddur lörfum kem ég frá kennslustörfum mínum. Það hafa fleiri Þyrnar komið við kaunin á þjóðinni, en eins og alþjóð veit var það heiti ljóðabókar skálds- ins ástsæla Þorsteins Erlingssonar. Þar á meðal er Guðsmyndin: Hægt fær enn þinn herra séð, hvernig öllu er varið, þó að guðsmynd þína með þú hafir illa farið. Kenna mun sitt mark á þér mannafaðirinn eini: stofn af vígtönn enn þar er og ögn af rófubeini. Lárus H. Blöndal bókavörður og afi umsjónarmanns hélt mikið upp á Þyrna Þorsteins og skrifaði inn í eintak af bókinni, sem undirritaður fékk í jólapakka: Þegar að vill heimur herða og hjartað verður ljóðaþyrst; alltaf Þyrnar Þorsteins verða það sem höndin grípur fyrst. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af ljóðaþyrnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.