Morgunblaðið - 21.10.2010, Page 34
34 MENNINGFréttir
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2010
Og aftur af fimmtudagsfjöri.
Fimmtudagsforleikur Hins Hússins
fer fram í kvöld kl. 20 en húsið
verður opnað 19.30. Fram koma
Sgt. Millers Misbehavious Daug-
hter og The Assassin of a Beauti-
ful Brunette. Aðgangur ókeypis,
gengið inn frá Austurstræti.
Fimmtudagsforleikur í
Hinu Húsinu
Fólk
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Nóvellan og ástarsagan Dagur kvennanna kemur út
hjá Uppheimum. Sagan er eftir Þórunni Valdimars-
dóttur og Magnús Þór Jónsson (Megas). Heyrst hefur
af bókinni árum saman en af útgáfu hefur ekki orðið
fyrr en nú. „Þrír útgefendur afþökkuðu fyrir átján
árum, sagan þótti slík afhelgun,“ segir Kristján
Kristjánsson, útgefandi hjá Uppheimum, „en hún
fann útgefanda í okkur.“ Mat hans er að á þeim tíma
sem verkið var samið hafi það verið andstætt því and-
rúmslofti sem ríkti í samfélaginu.
Þórunn tekur undir orð Kristjáns og segir að bókin
sé ástarsaga, fjalli eiginlega um Barbie og Ken, þótt
þau beri nöfn dags og nætur í bókinni. „ Dagur og
Máney lentu í frosti í kynjastríðinu, þegar árþús-
unda gamalt samskiptamynstur riðlaðist. Upplýstar
konur klæddu sig í afkynjandi föt og litu niður á vel
snyrta kynveru á háum hælum. Karlar þorðu ekki
lengur að daðra. Konan skyldi verða karlmannleg
og gera karlinn mjúkan,“ segir Þórunn. „Dagur og
Máney lentu við þetta í krísu.“
- En það er fleira sem gæti stuðað fólk, sagan ku
vera bersögul í ástamálum. „Hún er hispurslaus
gagnvart líkamanum, en ég held að fáum þyki sá
sannleikur lengur dónalegur, því sá þröskuldur hef-
ur lækkað,“ segir Þórunn. Aðspurð hvað hafi valdið
ótta hjá útgefendum segist hún telja að þá hafi verið
pólitískt rangt að grínast með hina helgu kvenna-
baráttu. „En nú, þegar konur hafa náð æðstu emb-
ættum, er gott að slaka á og hlæja að öllu saman.“
Bók eftir Megas kemur út eftir átján ár í kör
Morgunblaðið/Kristinn
Baldinn Megas ræðst gegn helgum véum.
Sjónvarpslausu fimmtudags-
kvöldin í Slippsalnum - Nema For-
um að Mýrargötu 2 hafa verið á
blússandi siglingu undanfarnar vik-
ur og verður engin breyting þar á í
kvöld, enda missa menn ekki af
neinu í sjónvarpinu. Fjörið byrjar
kl. 20 og munu fram koma tónlist-
armaðurinn Arnar Ólafsson, ný-
yndissveitin Pascal Pinon og and-
lyftutónlistarsveitin Elevator,
ásamt ljóðskáldinu Kára Tulinius
sem mun lesa ljóð sín, eins og því er
lýst á fésbókarsíðu. Sérstakur
gestakynnir verður Benóný Æg-
isson og lýkur gleðinni kl. 23.
Sjónvarpslaust í Slipp-
salnum - Nema Forum
Danski kvikmyndaleikstjórinn
Thomas Vinterberg, handritshöf-
undurinn Tobias Lindholm og
framleiðandinn Morten Kaufmann
hlutu í gær Kvikmyndaverðlaun
Norðurlandaráðs fyrir Submarino.
Verðlaunaféð er 350.000 danskar
krónur. Valdís Óskarsdóttir klippti
myndina. Dómnefnd rökstuddi val
sitt svo: „Submarino er óvægin en
jafnframt áhrifamikil saga tveggja
bræðra sem tengjast vegna ör-
lagaríkra atburða í æsku. Myndin
fjallar um bræður sem axla ábyrgð
fullorðinna og um hvernig barn fær
félagslegar aðstæður í arf, en einn-
ig um von um betri framtíð. Í mynd-
inni er fjallað um þemu eins og
áföll, sekt og sættir. Submarino er
einfalt en jafnframt flókið lista-
verk, handritið er heilsteypt og
leikstjórnin stílviss. Fínleg og þétt
innri bygging sem gengur upp, ná-
lægð í leiknum og snjöll notkun
hljóðs og ljóss stuðla að því að
skapa þessa áleitnu mynd af lífi
fólks.“ Myndin var sýnd á RIFF.
Submarino Vinterbergs
þótti sú besta
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Gunnar Kr. Sigurjónsson hjá Hinu
íslenska töframannagildi hefur flutt
til landsins Lennart Green, einn af
hinum frægari töframönnum í heim-
inum í dag. Lennart Green mun
sýna á vegum töfragildisins í Salnum
í Kópavogi í kvöld klukkan 20:00 en
kynnir kvöldsins er Eiríkur Fjalar
(Laddi) áhugatöframaður. Hið ís-
lenska töfragildi var stofnað 29.
febrúar árið 2007. Stofnfélagar eru
tólf manns, þar á meðal þekkt nöfn
eins og leikarinn Björgvin Franz
Gíslason, hinn landsþekkti töfra-
maður Baldur Brjánsson og formað-
ur félagsins Jón Víðis Jakobsson.
Aðspurður hvernig menn komist í
félagið segir Gunnar: „Meðlimur fé-
lagsins hittir þann sem hefur áhuga
á inngöngu og það er fljótt að koma í
ljós hvort raunverulegur áhugi er á
töfrabrögðum. Það er í sjálfu sér
ekki aðalatriðið að kunna töfra-
brögð, það nægir að um brennandi
áhuga sé að ræða. En flestir í félag-
inu eru einnig töframenn þótt eng-
inn vinni við það eingöngu enda erf-
itt að hafa viðurværi sitt af þessu.
Ég hef oft sagt við fólk sem spyr mig
út í þetta að ég sé sjálfur amatör en
amatör er komið af latneska orðinu
amor sem þýðir í raun sá sem hefur
ástríðu fyrir einhverju. Þannig að
amatör er ekki slæmt og það nægir
til að komast í félagið.“
Blaðamaður gabbaður
Markmið félagsins er samt annað
en að stækka það, þetta er fyrst og
fremst vettvangur fyrir áhugamenn
sem vilja auka við þekkingu sína
með því að sækja fyrirlestra og þess
háttar. En félagið fær á hverju ári til
sín erlendan gest sem sýnir töfra-
brögð eða heldur fyrirlestur. Og í ár
er það stórstjarnan Lennart Green
sem er mættur. Green sýnir blaða-
manni Morgunblaðsins mjög magn-
aða töfra með spilastokkum, pen-
ingum og öðrum leikföngum þar sem
ekkert er eins og það sýnist. Green
segist samt ekki kalla sig töframann
þrátt fyrir að hafa gabbað blaða-
manninn fram og aftur, hann er ein-
mitt meistari blekkingar og sjón-
hverfinga. Hann skýrir út hvernig
auga mannsins sé latt. Það einbeiti
sér að einum hlut í sjónsviðinu og
annað sem er innan sjónsviðsins veki
ekki athygli nema það sé nýtt. Hann
notfærir sér þessa leti augans með
snilldarhætti þannig að þrátt fyrir
þessa vitneskju er aldrei hægt að sjá
við töfrabrögðum mannsins. Þegar
Lennart Green vann heimsmeistara-
keppnina var það í annað skiptið
sem hann keppti. Í fyrra skiptið
höfðu töfrabrögðin verið það ótrúleg
að dómararnir töldu víst að hann
hefði svindlað. Hann passaði sig á
því að einungis dómarar kæmu ná-
lægt honum í næstu keppni og fram-
kvæmdi sömu töfrabrögð og vann.
Síðan þá hefur hann eingöngu unnið
við töfrabrögð en áður hafði þetta
verið hlutastarf. Hann hefur líka
haldið fyrirlestra hjá fyrirtækjum
undir nafninu; Hvernig á að leiða, af-
vegaleiða og komast hjá því að vera
afvegaleiddur. (How to lead, mislead
and avoid being misled). Það er aug-
ljóslega hægt að lifa góðu lífi á þessu
eins og öðru ef menn ná langt.
Blekkingunni boðið heim
Í kvöld töfrar Lennart Green en Laddi fer með grín Green er meistari
blekkingar og sjónhverfinga Laddi er meistari brandara og afglapa
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Galdrar Töframaðurinn Lennart Green mun sýna listir sínar í Salnum í
kvöld klukkan 20. Green er heimsmeistari í töfrabrögðum.
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
„Ég bað reyndar um að platan kæmi
út á föstudaginn,“ segir Bragi Valdi-
mar og bætir við kersknislega: „Þá
eiga konan mín og mamma mín af-
mæli. Þá hefði ég losnað við að leita
uppi afmælisgjafir.“
Diskóeyjan er barnaplata, eða eig-
inlega „barnaplata – en nei“ eins og
Bragi og blaðamaður verða ásáttir
um. Segir af prófessornum (Óttarr
Proppé) sem rekur fágunarskóla
fyrir börn á Diskóeyju við Diskóflóa.
Þangað eru systkinin Daníel og Rut
send og sækist þeim námið vel þar
til ljóti kallinn birtist en hann hyggst
breyta fágunarskólanum í tehús.
„Kiddi (Guðmundur Kristinn
Jónsson, Kiddi „Hjálmur“) fékk
hugstrump fyrir ca. tveimur árum
um að gera eitthvað með Óttari,“
segir Bragi. „Við létum svo til skarar
skríða í upphafi árs.“
Bragi segir að eftir að Óttari var
rænt af borgarbúum hafi hann klár-
að söguna, klambrað saman lögum
og svo var hóað í nokkra góðkunn-
ingja, Memfísmafíuna m.a., en svo
leggja Eyþór Gunnarsson, Unn-
steinn Manúel úr Retro Stefson og
fleiri gjörva hönd á plóg. Margir af
þeim sem koma við sögu voru og á
hinni feikivinsælu Gilligill en Bragi
segir Diskóeyjuna þó ekki vera
framhald þeirrar plötu.
„Gilligill gekk vonum framar
vissulega, og þó að það hafi legið
beint við að búa til nokkurs konar
framhald fetuðum við ekki þá leið
beint. En við fundum að prófess-
orinn smellpassaði inn í þennan æv-
intýraheim og um að gera að nýta
hann á öðrum sviðum en á jað-
arlendum íslenskrar tónlistar.
Framvindan er líka öðruvísi, þetta
er heil saga og það er sögumaður á
milli laga. Þetta er meira svona í
Gylfa Ægissonar-skólanum.“
Bragi segir að menn geti lesið
samfélagsrýni og þvíumlíkt á milli
lína, gefi þeir sig að því, en aðal-
boðskapurinn sé þó fyrst og síðast
að hafa hlutina svolítið skemmtilega
enda er það skilyrðislaus skylda í
fágunarskóla prófessorsins að „vera
hress“.
Prófessorinn ráðleggur …
Fönkóperan
Diskóeyjan, eftir
Braga Valdimar
Skúlason, kemur
út í dag
Svakalegt Ábúendur Diskóeyju í öllu sínu veldi. Prófessorinn og hans fólk vita að það er bannað að vera í fýlu.