Morgunblaðið - 21.10.2010, Side 36

Morgunblaðið - 21.10.2010, Side 36
Hátíðarsöngur Frostrósir Klassík, hátíðartónleikar á jólum, verða haldnir í Háskóla- bíói 19. desember. Á þeim munu syngja Dísella Lárusdóttir, Gréta Hergils og Kristinn Sigmundsson auk Garðars Thors Cortes og Jóhanns Friðgeirs Valdimarssonar. Miðasala á tónleika Frostrósa hefur aldrei gengið eins vel og í ár, að sögn skipuleggjenda. Um 15 þúsund mið- ar seldust á tónleikana á rúmum sólarhring en forsala hófst í fyrrdag og almenn miðasala í gærmorgun. Upp- selt er á fjölda tónleika víða um landið, m.a. þrenna í Reykjavík og ferna á Akureyri. Þá hefur verið bætt við tónleikum í Reykjavík, í Laugardalshöll. Um kl. 13 í gær höfðu yfir 15 þúsund miðar selst en svo margir miðar hafa ekki selst á jafnskömmum tíma í níu ára sögu Frostrósatónleika. 22 tónleikar eru á dagskrá og verða þeir fyrstu haldnir 1. desember í Ólafsvík. Metsala á Frostrósir Morgunblaðið/Ernir Sæla Félagarnir í hljómsveitinni Moses Higtower láta fara vel um sig á fagurgrænu túni. Á túr Jónas Sigurðsson og Ritvélar framtíðarinnar. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Bílalest út úr bænum er yfirskrift þrennra tónleika ferðar hljómsveitanna Moses Hightower og Jónas Sigurðsson og Ritvélar framtíðarinnar (ferðin heitir eftir einu laga Moses Hightower) en fyrstu tónleikarnir verða haldnir í kvöld kl. 21 á veitingastaðn- um Fjöruborðinu á Stokkseyri. Annað kvöld verða svo haldnir tónleikar á Sódómu Reykjavík kl. 23 og þriðju tónleikarnir á Græna hattinum á Akureyri á laugardaginn kl. 22. Hljómsveitin Jónas Sigurðsson og Ritvélar framtíðarinnar gaf nýverið út breiðskífuna Allt er eitthvað en fyrsta plata Moses Hightower, Búum til börn, kom út í júlí sl. Tónlist þessara tveggja sveita er býsna ólík, Moses Hightower á angurværu nótunum en Jónas og félagar í eins konar marseringarrokki. Andri Ólafsson úr Moses Hightower seg- ir þó hljómsveitirnar ekki svo ósvipaðar. „Hljóðfæraskipan er um margt svipuð og báðar syngja á íslensku en tónlist Moses er töluvert afslappaðri, á heildina litið,“ segir Andri. Nálgun Jónasar á tónlistina sé þó harðari en hjá Moses. Sunnlendingar í sveitum -Hvað kom til að þið ákváðuð að fara saman í tónleikaferð? „Lítilsháttar kunningsskapur og við vor- um búin að heyra músíkina hjá hinum og leist voða vel á þetta, ágætis dínamík í þessu,“ svarar Andri. Þetta sé góður skali fyrir tónleika, mismunandi tilfinning í tón- listinni en þó allt á íslensku. „Við höldum tónleika á Stokkseyri og við Jónas erum báðir Sunnlendingar þannig að við höfum stefnt að því að halda tónleika á Suðurlandi. Það var bara snilld að geta slegið því sam- an.“ -Þið eruð að gera þetta í samstarfi við Rás 2, verður þessum tónleikum útvarpað? „Þetta er aðallega samstarf um kynn- ingu, það hefur ekki verið rætt um að taka þetta upp en við verðum í Popplandi á föstudeginum (á morgun), „live“ upptaka og svo gerum við einhverja pistla sem verða spilaðir í útvarpinu.“ -Báðar hljómsveitir eru með nýjar plöt- ur, þið verðið væntanlega að flytja lög af þeim? „Já, Moses er svo mikið í útlöndum að okkur hefur ekki gefist tími ennþá til að fara í nýtt efni en það er í vinnslu þessa dagana,“ segir Andri. Hann hlakki til að fylgja plötunni frekar eftir um jólin. -Fjöruborðið er frekar óvenjulegur tón- leikastaður? „Já, það er ekki mikið um tónleika þar, einstaka viðburðir sem staðarhaldarar taka að sér.“ -Ætlið þið af fá ykkur humar? „Ójá.“ Moses og Jónas í bílalest  Hljómsveitirnar Moses Hightower og Jónas Sigurðsson og Ritvélar framtíð- arinnar halda í stutta tónleikaferð  Ætla að fá sér humar á Fjöruborðinu 36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2010 BEN AFFLECK LEIKUR BANKARÆNINGJA Í SINNI BESTU MYND TIL ÞESSA HHHH „ÞESSI LÆTUR KLÁRLEGA SJÁ SIG Á ÓSKARNUM Á NÆSTA ÁRI.“ - T.V. - KVIKMYNDIR.IS HHHHH “ÞETTA ER EINFALDLEGA BESTA MYNDIN SEM ÉG HEF SÉÐ Á ÁRINU” - Leonard Maltin HHHH “EF ÞAÐ ER TIL MYND SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ, ÞÁ ER ÞAÐ ÞESSI” - Boxoffice Magazine HHHH “THE TOWN ER ÞRILLER EINS OG ÞEIR GERAST BESTIR OG RÚMLEGA ÞAД - Wall Street Journal SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRISÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI HHHH - SJÁÐU/STÖÐ 2 HHHH „BESTA MYND SINNAR TEGUNDAR Á KLAKANUM OG HIKLAUST EIN AF BETRI ÍSLENSKUM MYNDUM SEM ÉG HEF SÉÐ.“ - T.V. - KVIKMYNDIR.IS HHHH - H.S. MBL HHHH „FRAMVINDAN SVO ÁREYNSLU- LAUS OG SKEMMTILEG AÐ ÁHORFANDINN GLEYMIR SÉR.“ - R.E. FBL BESTA SKEMMTUNIN ÓRÓI kl.5:50-8-10:20 10 FURRYVENGEANCE kl.6 -8 L THETOWN kl.6 -8-10:40 16 DINNERFORSCHMUCKS kl.5:40-8-10:20 7 THETOWN kl.8 -10:40 VIP-LÚXUS GOINGTHEDISTANCE kl.8:30-10:40 L SOLOMONKANE kl.10:20 16 ALGJÖRSVEPPIOGDULARFULLA... kl.63D L SOLOMONKANE kl.5:40 VIP-LÚXUS / ÁLFABAKKA ÓRÓI kl. 5:50 - 8 - 10:20 10 THE TOWN kl. 8 - 10:40 16 FURRY VENGEANCE kl. 6 L ALGJÖR SVEPPI OG DULARFULLA... kl. 63D L STEP UP 3 kl. 8 7 INCEPTION kl. 10:10 Sýnd í síðasta sinn 21. okt. 12 / KRINGLUNNI Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Sjötta alþjóðlega ljóðahátíð Nýhils fer fram um helgina í Norræna húsinu. Hátíðin hefst í dag kl. 17:00 en þá verður kokkteill í tilefni opnunarinnar og síðan verður farið á Næsta bar og haldið ljóðapöbbkviss. Ljóðaunn- endur geta nú glaðst eftir marga fýluförina á pöbbkviss sem virðist nánast alltaf snúast um tónlist og ef bókmenntir rata í spurning- arnar er það oftast Laxness. En nú geta ljóðaunnendur búist við því að geta svarað því hástöfum hver sé til dæmis grimmastur mánaða. Á föstudag og laugardag munu síðan upp- lestrar fara fram; erlend skáld eins og Shar- on Mesmer sem er svokallað flarf-skáld sem klippir saman og vinnur með efni af netinu. „Á laugardaginn er Angela Rawlings að lesa sem er orðin ein af lókal ljóðskáldunum á Nýhil,“ segir Kristín Svava sem er ein af skipuleggjendum hátíðarinnar. „Þetta er þriðja eða fjórða skiptið sem hún les á hátíð- inni. Hún er mjög skemmtilegur lesari.“ Af íslenskum skáldum er helst að nefna Anton Helga Jónsson, Ásgeir H. Ingólfsson og Jón Bjarka Magnússon en Ásgeir og Jón Bjarki hlutu nýlega styrk úr Nýræktarsjóði fyrir skáldskap sinn. Jón Bjarki mun lesa úr bókinni sem hann er að vinna að; Lömbin í Kambódíu (og þú). Kristín Svava segir að umfang hátíð- arinnar sé ekki það kostnaðarsamt að hrun- ið hafi haft áhrif á hana. Styrkir frá Nor- ræna húsinu og mennta- og menningarmálaráðuneytinu hafi nægt til að hún færi fram. Nánari dagskrá má nálgast á nordice.is. Morgunblaðið/Golli Nýhil Gunnhildur Hauks og Óttar Norð- fjörð hafa verið fastagestir á hátíðunum. Krassandi ljóð á hátíð- inni hjá Nýhil

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.