Morgunblaðið - 21.10.2010, Blaðsíða 27
21. október 2010 27 bílar
CHRYSLER TOWN - COUNTRY Árgerð
2006, ekinn 84 Þ.KM, BENSÍN,
SJÁLFSKIPTUR. Verð 2.790 þ.
tilboð 2190 þ. Rnr.220294
HYUNDAI GETZ GLS Árgerð 2008, ekinn
103 Þ.KM, BENSÍN, 5 GÍRAR.
Verð 1390 þ. tilboð 890 þ.
Rnr.101618
SUBARU JUSTY S Árgerð 2008, ekinn 98
Þ.KM, BENSÍN, 5 GÍRAR. 1590 þ.
tilboð 990 þ. Rnr.220311
FORD EXCURSION LTD 4WD Árgerð 2004,
ekinn 110 Þ.KM, DÍSEL, SJÁLFSKIPTUR.
umboðsbíll verð 4.500 þ. tilboð 3.500 þ.
Rnr.220302
VW PASSAT COMFORTLINE Árgerð 2005,
ekinn 60 Þ.KM, BENSÍN, 6 GÍRAR.
verð 1950 þ. tilboð 1.750 þ.
Rnr.101525
Elsta bílasala
á Íslandi
TOYOTA YARIS SOL Árgerð 2007, ekinn
64 Þ.KM, BENSÍN, 5 GÍRAR.
verð 1.690 þ. tilboð 1.250 þ. Rnr.220267
Smiðjuvegur 46e gul gata • 200 Kópavogur
Bílasala sími 567 1800 • Fax 557 5210
Þitt tækifæri!
Lacetti Station árgerð 2010
Verð aðeins kr. 2.690.000.- Kr. 2.143.000 / án vsk.
Öflug sókn Chevro
let á
Evrópumarkaði by
ggist á
framúrskarandi gæ
ðum og
lágri bilanatíðni.
Gerðu Chevrolet gæ
ðin að þínum.
Bílabúð Benna er 35 ára á árinu 2010 og þú færð að njóta þess. Vegna hagstæðra samninga við Chevrolet,
í tengslum við magnkaup fyrir bílaleigur, getum við boðið Chevrolet Lacetti Station á frábæru verði.
Hér er um að ræða einstaklega rúmgóðan og ríkulega búinn gæðabíl að öllu leyti,
m.a. álfelgum, langbogum, loftkælingu o.fl, o.fl. Og að sjálfsögðu með 3ja ára ábyrgð.
Þetta er þitt tækifæri til að eignast stór-góðan bíl á verði smábíls. Gerðu verðsamanburð.
Bílabúð Benna - Chevrolet sýningarsalur - Tangarhöfða 8-12 - Reykjavík - sími 590 2000 - www.benni.is / Spesbílar - Njarðarbraut 9
Reykjanesbæ - sími 420 3300 - www.spesbilar.is / Bílasalan Ós - Óseyri 5 - 603 Akureyri - sími 462 1430 - www.osbilar.is Stofnað 1975
Porsche Cayenne er fjölnota bíll ársins samkvæmt
vali hins virta bílatímarits Motor Trend. Í vali sér-
fræðinga blaðsins voru sex meginþættir hvers bíls
til skoðunar og þeir lagðir til grundvallar í valinu;
það er hönnun og útlit, verkfræðileg útfærsla,
eyðsla og skilvirkni, öryggi farþega, gæði með tilliti
til verðs og frammistaða í akstri. Þegar allir þessir
þættir voru vegnir stóð uppi einn augljós sigurveg-
ari, Porsche Cayenne og voru yfirburðir hans afger-
andi.
Léttari og eyðslugrennri
Dómararnir nefna að hrifning þeirra á fyrstu kyn-
slóð Cayenne-bílsins sem kom á markað árið 2003
hafi ekki verið sérlega mikil. Breytingar sem ný kyn-
slóð bílsins hafi fengið geri hann að yfirburðabíl í
sínum flokki. Þar nefna þeir sem dæmi að bíllinn
hafi lést um hátt í 200 kíló, fengið nýjar stórkostleg-
ar vélar af fimm mismunandi gerðum sem allar séu
eyðslugrannar þrátt fyrir mikið afl. Allar gerðir bíls-
ins séu með Start/Stop tækni og að geta bílsins
hvort sem er á malbiki eða í örgustu ófærum sé
framúrskarandi.
Ennfremur nefndu dómendur að innréttingin í
Porsche Cayenne væri leiðandi í sínum flokki og ytra
útlit hans væri það fallegasta sem bílaframleiðend-
urnir byðu upp á.
Engu fórnað
Brautartími Cayenne var talsvert betri en allra
keppinautanna og næstbesta gerðin, Cayenne S, var
betri en allir keppinautarnir, en sú dýrasta, Cayenne
Turbo, var sér í flokki og keppti við sportbíla á við
Lamborghini Murcielago og Corvettu Z06.
Athyglisverðast fannst bílablaðamönnum Motor
Trend að engu væri fórnað fyrir annað. Bíllinn væri
eins og góður sportbíll á kræklóttum vegum, ljúfur
innanbæjarbíll, torfærutröll í ófærum og gæti togað
3,5 tonna aftanívagn. Þetta gerði Cayenne allt með
mikilli fágun en verðið væri engu að síður mjög
samkeppnisfært.
finnur@reykjavikbags.is
Þegar helstu þættir voru vegnir stóð Porsche Cayenne uppi sem augljós sigurvegari og voru yfirburðir hans afgerandi.
Porsche Cayenne valinn fjölnota
bíll ársins af Motor Trend
- nýr auglýsingamiðill