Morgunblaðið - 08.11.2010, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 08.11.2010, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2010 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Gisting Heimili í borginni - www.eyjasolibudir.is Ódýrt að gista í nóv.-des. Verð frá; 2 dagar kr. 23.500,- Auka dagur kr. 6.500,- Vikan 49.500,- Gisting fyrir 4- 6. - VELKOMIN - eyjasol@internet.is, 898 6033. AKUREYRI Höfum til leigu 50, 85 og 140 m² sumarhús 5 km frá Akureyri, öll með heitum potti og flottu útsýni yfir Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir á Akureyri. www.orlofshus.is, Leó, s: 897- 5300. Heilsa Má bjóða þér frítt lífsstílsmat? Það eru 5 atriði sem vega 90% þegar kemur að heilbrigðum lífsstíl. Fáðu þér frítt lífsstílsmat sem tekur út þessi atriði. Heiðar, 618 0317 eða heidartorleifsson@gmail.com. Húsnæði óskast Vil kaupa hús af byggingaraðila Óska eftir að kaupa einbýli eða raðhús af byggingaraðila gegn 100% láni til 10 ára. Húsið þarf að vera tilbúið til innréttinga, eða nálægt því. Sími 697 9557. Óska eftir að kaupa hús af verk- taka Ég óska eftir að kaupa hús af byggingaraðila sem er tilbúið til innréttinga. Gegn 100% láni frá VERKTAKA til 10 ára. Greiðslur 200.000 á mánuði. Þarf að vera á höfuðborgarsvæðinu. S. 697 9557. Til sölu Ódýr blekhylki og tónerar í HP, Dell, Brother, Canon og Epson. Send samdægurs beint heim að dyrum eða í vinnuna. S. 517 0150. Sjá nánar á blekhylki.is Ný og notuð vetrardekk til sölu Útsala á 13“ dekkjum. Kaldasel ehf. Hjólbarðaverkstæði, Dalvegi 16 b, Kópavogi. S. 544 4333. Augnablik Geisladiskur með lögum við ljóð Hákonar Aðalsteinssonar flutt af Nefndinni og gestum. Fæst í Hagkaupum, Tónspili, Samkaupum Egilsstöðum og hjá útgefanda í síma 863 3636. Netfang; darara@gmail.com. Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum gull til að smíða úr. Spörum gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL ! Ég, Magnús Steinþórsson gull- smíðameistari, kaupi gull, gull- peninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Þarft þú að breyta eða bæta húsnæðið þitt? Hafðu samband, kannaðu hvað ég get gert fyrir þig. Guðmundur Gunnar, húsamíða- meistari, sími 899 9825. Þak og utanhússklæðningar og allt húsaviðhald Ragnar V Sigurðsson ehf Sími 892 8647. Sisalteppi - Strönd ehf. Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík, s. 533 5800, www.strond.is. Handriðaplast - Efni og vinna. 27 ára góð reynsla. Margir litir. Komum á staðinn og gefum ráðgjöf og fast verð. Uppl. www.pyrite.is, S. 840 8282. Húsviðhald - nýr auglýsingamiðill KYNNINGARTILBOÐ Smáauglýsing án myndar: 990 kr. Smáauglýsing með mynd: 1.500 kr. –– Meira fyrir lesendur - nýr auglýsingamiðill ✝ Ingi Randver Jó-hannsson fæddist í Stíghúsi í Vest- mannaeyjum 5. des- ember 1936. Hann lést á líknardeild Landakots 30. októ- ber síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jóhann Pétur Pálmason, sjómaður og múrari, f. 4. mars 1895 í Stíghúsi, Vest- mannaeyjum, d. 7. jan. 1988, og Ólafía Ingibjörg Óladóttir, verkakona og húsmóðir, f. 17. nóv. 1897 á Melum í Mjóafirði í S-Múl., d. 22. mars 1965. Systkini Inga eru Pálmi, f. 18.1. 1925, d. 5.2. 1990, Óli Kristján, f. 6.3. 1926, d. 28.3. 1999, Rögnvaldur, f. 27.12. 1927, d. 15.6. 1974, og Guðbjörg, f. 27.10. 1930. Hinn 15. nóvember 1958 kvænt- ist Ingi Sigþrúði Steffensen banka- starfsmanni og húsmóður, f. 14. febrúar 1930. Foreldrar hennar ob, f. 12. ágúst 1998, Hanna Sig- þrúður, f. 23. mars 2004, Davíð, f. 21. janúar 2006. Ingi fluttist barn að aldri til Reykjavíkur með foreldrum sínum og lauk verslunarprófi frá Versl- unarskóla Íslands. Hann hóf starfs- feril sinn í Búnaðarbanka Íslands, Verslunarsparisjóðnum og Versl- unarbanka Íslands. Hann fékk lög- gildingu sem endurskoðandi árið 1968 og varð fljótlega meðeigandi að Endurskoðunarstofu Björns S. Steffensen og Ara Ó. Thorlacius sem síðar varð að Löggiltum end- urskoðendum hf. og að lokum Deloitte hf. Ingi var alþjóðlegur meistari í skák og einn af fremstu skákmönnum landsins um langt árabil. Hann varð fjórum sinnum Íslandsmeistari í skák, 1956, 1958, 1959 og 1963, sex sinnum skák- meistari Reykjavíkur á árunum 1954-1961 og Norðurlandameistari 1961. Ingi tók þátt í fjölda al- þjóðlegra skákmóta og fór átta sinum fyrir Íslands hönd á ólymp- íuskákmót á árunum 1954-1982. Útför Inga fer fram frá Foss- vogskirkju í dag, 8. nóvember 2010, og hefst athöfnin kl. 15. voru Björn S. Steffen- sen endurskoðandi, f. 12. apríl 1902 í Hafn- arfirði, d. 15. júlí 1993, og Sigríður Árnadóttir húsmóðir, f. 13. janúar 1896 í Reykjavík, d. 26. mars 1985. Börn Inga og Sigþrúðar eru: 1) Björn Ingi, f. 19. mars 1959, d. 4. jan. 1968. 2) Árni, f. 12. mars 1961, matvælafræð- ingur á Ísafirði. Eig- inkona (skilin) Ragna Bachmann, barn þeirra Hrund Ósk söngnemi, f. 26. apríl 1985. Börn Árna og Bjarneyjar Ingibjargar Gunnlaugsdóttur tónlistarkennara, Brynja Sólrún, f. 30. janúar 1997 og Hlynur Ingi, f. 26. nóvember 2001. 3) Sigríður Ingibjörg, f. 29. maí 1968, alþingismaður. Eig- inmaður hennar er Birgir Her- mannsson háskólakennari, börn þeirra Natan, f. 10. des. 1991 (faðir Arnar Gunnar Hjálmtýsson), Jak- Ingi var hæglátur maður og hóg- vær, traustur og yfirvegaður. Heimakær varð hann með árunum, dulur á tilfinningar sínar og feiminn um eigin persónu, en jafnan stutt í húmor og hlátur. Ingi var vinnusam- ur og hafði mikla ánægju af starfi endurskoðandans. Eins og góðum endurskoðanda sæmir var hann ráð- deildarsamur, en jafnframt örlátur og hjálpsamur við börn og barna- börn. Ingi var stór og sterklega byggður, almennt heilsuhraustur í lífinu, en lítill íþróttamaður. Hið andlega fjör sem fylgir skák og brids féll betur að hans persónu- leika. Ingi varð bráðungur einn af fremstu skákmönnum þjóðarinnar, en með árunum varð erfiðara að samræma mikla skákiðkun erilsömu starfi endurskoðandans. Þegar ég kynntist Inga fyrir tæpum tveimur áratugum tefldi hann helst við tölv- una en hann hafði mikinn áhuga á að halda sér við í faginu. Eins og nærri má geta var undraveröld excel hval- reki fyrir reyndan endurskoðanda sem mundi tímana tvenna. Man ég vart eftir honum öðruvísi en með þykkan doðrant nærhendis um ým- islegt sem tengdist tölvum og við- skiptum. Fljótlega eftir að ég kynntist Inga kom í ljós óvæntur hæfileiki. Hinn hávaxni endurskoðandi og skákmað- ur var mikill smekkmaður á föt og átti auðvelt með að kaupa föt á börn og barnabörn. Fyrir sex árum keypti hann skírnarkjól í Boston fyrir Hönnu Sigþrúði, dótturdóttur sína. Kjóllinn ber uppruna sínum vitni, einfaldur og stílhreinn blær gamallar hreintrúarstefnu Nýja- Englands blasir við. Þegar ég minn- ist Inga nú er þessi fallegi kjóll mér hugleikinn. Tvö barna minna voru skírð í þessum kjól á heimili Inga og Sigþrúðar á Sævargörðum sem ger- ir minninguna auðvitað skýra og persónulega. Í mínum huga mun ég þó ætíð tengja kjólinn við þann hlý- hug og hjálpsemi sem Ingi sýndi okkur alla tíð. Fyrir það er ég þakk- látur og þannig mun ég minnast hans. Að lokum vil ég votta Sigþrúði Steffensen, tengdamóður minni, samúð og stuðning. Birgir Hermannsson. Góður og traustur samstarfsmað- ur okkar til margra ára er fallinn frá langt fyrir aldur fram. Við sem nut- um þeirra forréttinda að starfa með Inga lítum nú yfir farinn veg með þakklæti í huga og viljum minnast hans nokkrum orðum. Ingi fæddist í Vestmannaeyjum árið 1936, var verslunarskólageng- inn og lauk prófi sem löggiltur end- urskoðandi árið 1968. Ingi heillaðist snemma af skákíþróttinni og var hún alla tíð hans helsta áhugamál. Hæfileikar hans voru óumdeildir og má nefna að hann varð skákmeistari Reykjavíkur 5 sinnum, Íslands- meistari 4 sinnum, Norðurlanda- meistari árið 1961 og varð alþjóð- legur skákmeistari FIDE. Án efa hefði hann náð mun lengra ef hann hefði alfarið helgað sig skáklistinni, en mikið vinnuálag í endurskoðunar- starfinu leyfði það ekki. Eftir að Ingi hætti þátttöku í skákmótum fylgdist hann jafnan vel með í skákheiminum og ekki var óal- gengt að menn fyndu hjá honum úr- klippur úr rússneskum blöðum þar sem fjallað var um skák, þó ekki gætum við hinir lesið letrið eða skil- ið það sem skrifað var. Auk skák- arinnar hafði Ingi gaman af að taka í spil og var hann mjög góður brids- spilari. En endurskoðunarstarfið tók mestan hans tíma og var sá þáttur í lífi Inga sem okkur stóð næst. Hann var mikil hamhleypa til vinnu og þar komu skipulagshæfileikar hans vel í ljós. Það var alltaf gott að leita til Inga og traustari vinnufélaga var ekki hægt að hugsa sér. Með sínum hægláta hætti leiðbeindi Ingi sam- starfsmönnum og gætti þess að að- finnslur hans særðu engan. Ingi gegndi mörgum trúnaðar- störfum fyrir Félag löggiltra endur- skoðenda og var meðal annars vara- formaður félagsins um tveggja ára skeið. Ingi kvæntist Sigþrúði Björns- dóttur Steffensen árið 1958 og var það mikil gæfa í lífi hans. Eignuðust þau þrjú börn, Björn Inga sem lést á 9. ári, Árna og Sigríði Ingibjörgu. Þau hjónin voru mjög samrýmd, byggðu sér heimili á Seltjarnarnesi og höfðu yndi af garðrækt og ferða- lögum. Á seinni árum tóku þau miklu ástfóstri við Frakkland og fóru ófáar ferðir þangað til að upp- lifa menningu, matargerð og fegurð landsins. Það var skömmu fyrir síðustu aldamót að Ingi veiktist í vinnuferð og var talsvert lengi að ná fullum bata. Um og eftir aldamótin greind- ist Ingi með krabbamein og eftir á að hyggja hefur hann væntanlega dregið of lengi að leita sér lækninga, enda var það ekki í eðli hans að kveinka sér eða láta eigin velferð ganga fyrir. Hann náði þó að sigrast á sjúkdómnum um skeið og halda í horfinu, en krafturinn var ekki sá sami og áður. Sjúkdómurinn tók sig svo upp aftur og lét Ingi af störfum 2009 hjá endurskoðunarfyrirtækinu Deloitte, þar sem hann var einn stofnenda og meðeigandi. Með Inga R. Jóhannssyni er genginn drengur góður og farsæll samstarfsmaður, sem við stöndum öll í mikilli þakkarskuld við. Við minnumst hans með hlýhug og virð- ingu og vottum Distu og fjölskyldu innilegustu samúð okkar. Guð blessi minningu Inga R. Jóhannssonar. Árni Tómasson, Guðlaugur Guðmundsson, Guðmundur Frímannsson, Jón Hilm- arsson, Birkir Leósson og fjölskyldur. Kveðja frá Skáksambandi Íslands Ingi R. Jóhannsson, sem var al- þjóðlegur meistari í skák, var einn af snjöllustu skákmönnum Íslands fyrr og síðar. Þegar ég byrjaði að tefla heyrði maður mest talað um Friðrik, Guðmund og Inga R. Ingi var fjórfaldur Íslandsmeistari og tefldi átta sinnum fyrir Íslands hönd á ólympíuskákmóti. Fyrst árið 1954 og síðast árið 1982 svo landsliðsfer- illinn spannaði næstum 30 ár. Ingi tefldi tvisvar á fyrsta borði, árin 1958 og 1968. Ingi hætti hins vegar skákiðkun alltof snemma og sjálfur kynntist ég honum aðeins lítillega og tefldi að- eins við hann einu sinni. Það var í Skákkeppni stofnana og tapaði ég örugglega. Ég skynja mikla virðingu fyrir Inga á spjallþræði skákmanna þar sem menn hafa rifjað upp kynni sín af honum. Hann var orðheppinn og átti gullkorn eins og: „Hann redús- erar materíalinu prímitíft.“ Hann mun hafa sagt, þegar honum fannst félagar sínir í ólympíuliðinu bera of mikla virðingu fyrir andstæðingum sínum: „Það er manngangurinn þótt það sé Keres.“ Skákhreyfingin hefur misst mann. Fjölskyldu hans votta ég samúð mína. Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands. Ingi R. Jóhannsson, alþjóðlegur skákmeistari og endurskoðandi, lést 2. nóvember sl. á 74. aldursári. Með honum er genginn einn öflugasti skákmaður þeirrar kynslóðar, sem lét að sér kveða á áratugunum eftir heimsstyrjöldina síðari og víst er að fáir hafa lagt jafn mikið af mörkum til eflingar íslensku skáklífi og hann. Framfarir Inga voru með ólíkind- um eftir að hann gekk í TR nýorðinn 14 ára. Hann tefldi í fyrsta skipti op- inberlega í 2. flokki á Skákþingi Reykjavíkur þetta sama ár en hafði þar stutta viðkomu og var búinn að vinna sér rétt til þátttöku í landsliðs- flokki þegar á árinu 1953. Það tók hann því aðeins þrjú ár að vinna sig upp úr lægsta flokknum í þann efsta. Það leyndi sér ekki að í þess- um pilti bjuggu ríkir hæfileikar en það sem kannski kom mest á óvart var þroskaður og yfirvegaður skák- stíll hans þegar á unga aldri. Skákin átti greinilega hug hans allan og mér varð fljótlega ljóst, eftir að við fórum að eigast við á reitunum sex- tíu og fjórum, að byrjendaþekking hans stóð afar traustum fótum. Hann tamdi sér fagleg vinnubrögð í skákinni sem var alls ekki algengt á þessum tímum. Það samræmdist nefnilega ekki tíðarandanum að afla sér þekkingar í bókum, þetta átti víst allt saman að vera „innbyggt“, og stundum mátti heyra glósur eins og „teóríuhestar“ frá sumum eldri meisturunum þegar þeim þótti nóg um allan lærdóminn. En tímarnir voru að breytast og eftirstríðsárin voru sérstakur kafli í íslensku þjóðlífi. Sjálfstæðið var ný- fengið og Íslendingar voru að reyna að átta sig á stöðu sinni meðal þjóða heims og tileinka sér það besta í stjórnarháttum þeirra og menningu. Þetta átti að sjálfsögðu einnig við í skákinni. Þannig voru aðstæður þegar Ingi var að stíga sín fyrstu spor í skák- inni. Ég var tæpum tveimur árum eldri en hann og hafði gengið í TR nokkrum árum áður. Það átti fyrir okkur að liggja að vera samferða- menn í skákinni um alllangt skeið. Með okkur stofnuðust vináttubönd sem aldrei rofnuðu, þótt vissulega væri oft tekist á af mikilli kappsemi á reitunum sextíu og fjórum. Ingi var ávallt traustur hlekkur í keðjunni þegar reyndi á liðsheildina í ólympíuskákmótum og öðrum slík- um sveitakeppnum. Þar stóð hann fyrir sínu og var jafnan einn helsti máttarstólpinn í liðinu. Með árangri sínum á Ólympíuskákmótinu í München 1958 tryggði Ingi sér fyrri áfanga alþjóðlegs meistaratitils og eftir góða frammistöðu í svæða- mótinu í Halle 1963 var hann út- nefndur alþjóðlegur meistari af Al- þjóðaskáksambandinu FIDE. Ingi reyndist mér ómetanlegur liðsstyrkur og traustur félagi þegar ég þurfti á aðstoðarmanni að halda í mikilvægum mótum. Þar á ég við Hastings-mótið 1955-56 og áskor- endamótið í Júgóslavíu 1959. Þá lið- veislu fæ ég seint fullþakkað. Nú þegar komið er að skilnaðar- stund kveð ég Inga með virðingu og þakka honum trausta vináttu sem varðveitast mun í minningunni um góðan félaga. Við Auður sendum Sigþrúði og ástvinum öllum innilegustu samúð- arkveðjur okkar. Friðrik Ólafsson. Ingi R. Jóhannsson  Fleiri minningargreinar um Inga R. Jóhannsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.