Morgunblaðið - 15.11.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.11.2010, Blaðsíða 1
Jónas Margeir Ingólfsson jonasmargeir@mbl.is Þjóðkirkjan fer fram á að kirkjuþing veiti sér heimild til að óska eftir tilboðum í tuttugu og sex eignir sínar til að mæta áætlaðri 8,6% tekjuskerð- ingu miðað við fjár- lög 2010. Með sölu einstakra eigna ætlar kirkjan að brúa 120 milljóna króna bil í rekstri sínum. Miklar um- ræður voru um fjármál kirkjunnar í gær á kirkjuþingi, en kirkjan þarf að mæta 330 milljón króna niðurskurði. Til stendur að fækka um fimm prestsembætti. Tvö þeirra eru Holt undir Eyjafjöllum og á Kálfafellsstöð- um. Starfandi prestar í þeim embættum ljúka störfum á næsta ári vegna aldurs en þá verða embættin lögð niður. Þá verður launakostnaður Kirkjumálasjóðs lækkaður um sem nemur fimm stöðugildum Kirkjan sker og selur eignir  Hyggst óska eftir tilboðum í 26 eignir Vilja tilboð » Kirkjan hyggst óska eftir tilboðum í 26 eignir. » Meðal þeirra er Kol- freyjustaður, Kapella ljóssins í Reykjanesbæ, prestsbústaðurinn í Hrísey, Prestbakki í Bæjarhreppi, jörðin Mosfell í Grímsnesi og hluti jarðarinnar á Bergþórshvoli í Rang- árþingi eystra. MÞingað um hagræðingu »4 M Á N U D A G U R 1 5. N Ó V E M B E R 2 0 1 0  Stofnað 1913  267. tölublað  98. árgangur  BÖRNIN FIMM KOMU FRAM MEÐ PABBA ÚRSLITIN RÁÐAST Í KVÖLD SLEPPT ÚR FANGELSI SKREKKUR 28 AUNG SAN SUU KIY 13TÓNLISTARFJÖLSKYLDA 10 Fréttaskýring Bjarna Ólafssonar um Burma Meirihluti atvinnulausra hér á landi, eða á áttunda þúsund manns, hefur verið án atvinnu í hálft ár eða lengur. Áætlað er að lenging réttar til at- vinnuleysisbóta úr 3 árum í 4 muni ná til um 800 manna á næsta ári, sem misstu vinnuna 2008 og hafa þá verið á atvinnuleysisbótum í meira en þrjú ár. „Það sem kemur kannski á óvart er það að fólk er að stærstum hluta jákvætt og ætlar að þreyja þorrann og góuna og nýta tímann til að byggja sig upp,“ segir Guðlaug Pétursdóttir, verkefnisstjóri átaksins Þekking og reynsla (ÞOR), fyrir fólk sem hefur verið atvinnulaust í langan tíma. Haldnir hafa verið um 60 kynning- arfundir fyrir um 3.000 manns og eru um 1.500 þeirra þegar komnir með úrræði. omfr@mbl.is »14 ,,Þreyja þorrann og góuna“ Á áttunda þúsund án vinnu í yfir hálft ár Alvarleg líkamsárás er til rannsóknar hjá lög- reglunni í höfuðborgarsvæðinu. Par var hand- tekið vegna málsins. Önnur líkamsárás, þó ekki eins alvarleg, var gerð í Hafnarfirði í gær. Sex voru handteknir vegna rannsóknar þess máls. Alvarlegri árásin var gerð í Þingholtunum í Reykjavík um klukkan hálf fimm í gær. Sá sem fyrir árásinni varð var fluttur á sjúkrahús. Lögreglan gat í gærkvöldi ekki gefið frekari upplýsingar um málið vegna þess að rann- sóknin er á viðkvæmu stigi. Sex handteknir eftir árás í Hafnarfirði Önnur líkamsárás var tilkynnt til lögregl- unnar um klukkan ellefu í gærmorgun. Hún var í Hafnarfirði. Sex menn voru handteknir og eru þeir í haldi lögreglu á meðan málið er athugað. Árásin er ekki eins alvarleg og sú fyrri en sá sem fyrir henni varð var fluttur á sjúkra- hús.  Lögreglan handtók par eftir líkamsárás í Þingholtunum síðdegis í gær  Sá sem fyrir árásinni varð fluttur á sjúkrahús  Rannsóknin á viðkvæmu stigi Mjög alvarleg líkamsárás Ráðherranefnd vinnur að undirbún- ingi tillagna um lausn á skulda- vanda heimilanna. Ráðherrarnir funduðu með samtökum fjármála- fyrirtækja og lífeyrissjóða um helgina. Eftir að nefnd sérfræðinga undir forystu efnahagsráðgjafa ríkis- stjórnarinnar kynnti hagsmuna- samtökum lánveitenda og lántaka niðurstöður sínar formlega á fundi í Þjóðmenningarhúsinu í síðustu viku lá ekki fyrir hver yrðu næstu skref í málinu. Í skýrslu nefndarinnar eru útreikningar á ýmsum leiðum og forsætisráðherra talaði um bland- aða lausn að fundi loknum. Fulltrúar Samtaka fjármála- stofnana og Sambands lífeyrissjóða fóru á fund ráðherranefndarinnar í fyrradag. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins var farið almennt yfir stöðuna og ýmsum möguleikum velt upp. Frekari fundahöld eru ráðgerð síðar í vikunni. helgi@mbl.is Veltu upp ýmsum kostum Tillögur undirbúnar Morgunblaðið/Ernir Vandi Ráðherrar funduðu um skuldavandann um helgina. Árni Þór Sigurðsson, þing- maður VG og formaður utan- ríkismálanefndar, telur hug- myndir Ögmundar Jónassonar um að fá skjóta niðurstöðu um tiltekin ágreiningsmál í aðild- arviðræðum við ESB „algerlega óraunhæfar.“ Ögmundur kynnti hugmyndir sínar í grein í Morgunblaðinu sl. laugardag. Valgerður Bjarnadóttir tekur í sama streng. „Samningaviðræður ganga ekki þannig fyrir sig að þú stillir fólki upp við vegg.“ »2 Árni Þór ósam- mála Ögmundi Allt tiltækt slökkvilið var kallað út á tíunda tímanum í gærkvöldi þegar reykur sást koma upp úr þaki húss á Laugavegi 40 a. Eldsupptök voru talin vera í þaki yfir risíbúðum. Slökkvi- liðsmenn unnu fram á nótt við að rífa upp þak- ið, bæði innanfrá og utan, til að leita að eld- inum. Var það tafsamt verk og erfitt. Undir miðnætti var það að takast. Í húsunum á Laugavegi 38, 40, 40a og 42 er veitingastaður og verslanir auk fjölda íbúða á efri hæðum. Íbúar úr 40a komu sér sjálfir út en fólk í sam- liggjandi húsum sem voru rýmd fékk að snúa aftur heim í gærkvöldi en var beðið að hafa varann á. Morgunblaðið/Júlíus Reykur Slökkviliðsmenn beindu kröftum sínum einkum að þaki hússins á Laugavegi 40a. Hús við Laugaveg rýmd vegna elds í þaki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.