Morgunblaðið - 15.11.2010, Síða 6

Morgunblaðið - 15.11.2010, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2010 www.noatun.is Hafðu það gott með Nóatúni ÝSUFLÖK ROÐ- OG BEINLAUS KR./KG 1598 F ÚRFISKBOR ÐI ÚR FISKBORÐI FERSKIR Í FISKI ur hann reykskynjarann úr sam- bandi,“ segir Guðmundur Hall- grímsson, starfsmaður Búnaðar- samtaka Vesturlands, sem vinnur að brunavarnaátaki í sveitum. Farið er skipulega yfir sveitirnar og aðstæð- ur skráðar. „Mikið öryggi í þessu“ Ólafur Dýrmundsson, ráðunautur hjá Bændasamtökum Íslands, segir að full þörf sé á að gera úttekt á ástandi mála og Haraldur Þórarins- son, formaður Landssambands hestamanna, telur að sambandið muni skoða öryggismálin vegna bruna í hesthúsum. Guðmundur og félagar hans kynntu sér hvernig staðið er að mál- um í nágrannalöndunum, einkum Noregi, þar sem góður árangur hef- ur náðst. Þar er skylda að hafa sér- hönnuð brunaviðvörunarkerfi, svo- kölluð reyksogstæki, í öllum gripahúsum yfir ákveðinni lág- marksstærð. Þau eru þannig útbúin að óhreinindi trufla ekki kerfið. Ör- yggiskerfið kostar nokkur hundruð þúsunda króna. „Tryggingafélögin ættu að vera duglegri að láta búfjár- eigendur verja hús sín,“ segir Óskar Örn Jónsson, markaðsstjóri hjá Ör- yggismiðstöðinni, sem ásamt öðrum hefur búnaðinn til sölu. „Það er ótrúlega mikið öryggi í þessu,“ segir Guðmundur. Kerfið er komið upp á fáeinum bæjum í Borg- arfirði og víðar um land. Guðmundur telur að reyksogskerfið gæti nýst vel í hesthúsahverfum. Þar gætu eig- endur jafnvel tekið sig saman um eitt tæki fyrir nokkur hólf og haldið þannig kostnaði í lágmarki. Mikil verðmæti geta verið í hest- um og öðrum skepnum, auk þess sem eigendurnir bindast þeim oft til- finningalegum böndum. „Eigendur þessara húsa þurfa að vera vel með- vitaðir um sín öryggismál,“ segir Bjarni Kjartansson, sviðsstjóri for- varna hjá Slökkviliði höfuðborgar- svæðisins. Reyksogskerfi veita öryggi  Brunaviðvörunarkerfi sem henta útihúsum hafa ekki náð útbreiðslu hér  Lögbundin í Noregi  Þörf talin á góðri úttekt á brunavörnum í gripahúsum  Skipulega unnið að skráningu á Vesturlandi Morgunblaðið/Kristinn Eldur Slökkviliðsmenn berjast við eld í hesthúsi í Mosfellsbæ. Öryggi í gripahúsum » Mikið tjón hefur orðið í eldsvoðum í fjósum og fjár- húsum og nokkrum sinnum kviknað í hesthúsum á síðustu árum. » Reykskynjari og slökkvitæki eiga að vera í öllum húsum en ekki er gerð krafa um viðvör- unarkerfi eða vatnsúðun. FRÉTTASKÝRING Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ráðunautur hjá Bændasamtökum Íslands segir að brunar í gripahús- um séu ansi tíðir og þörf á að gera góða úttekt á brunavörnum. Venju- leg brunaviðvörunarkerfi hafa gagnast illa. Hins vegar hafa verið sett upp reyksogstæki á nokkrum bæjum í Borgarfirði og víðar um land og þau reynast vel. Vegna reyks og óhreininda í gripahúsum nýtast hefðbundin brunaviðvörunarkerfi illa. Kerfið virkar ekki eða er að hringja í tíma og ótíma. „Þegar bóndinn er búinn að fara á nærbuxunum út í fjós þrjár nætur í röð án þess að neitt sé að, ríf- Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is „Það þarf að jafna samkeppnisstöðuna í greininni og nú- verandi kerfi ýtir undir samkeppnislega mismunun þeirra sem eru annars vegar bæði í útgerð og vinnslu og hins vegar þeirra sem eru einungis í vinnslu,“ segir Elín Björg Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fisk- framleiðenda og útflytjenda (SFÚ), en aðalfundur sam- takanna fór fram á laugardaginn. Elín Björg segir að þau fyrirtæki sem einungis starf- ræki vinnslu sjávarafurða kaupi sitt hráefni á markaðs- verði og þurfi fyrir vikið að greiða 30% hærra verð fyrir það en þeir sem einnig séu í útgerð. Auknar útflutningstekjur? „Við höfum bent á að það voru flutt út um 35-37 þúsund tonn óunnin á síðasta fiskveiðiári og það samsvarar um 500 störfum í fiskvinnslu ef hráefnið hefði verið unnið hér á landi. Það er talað um að eitt starf í frumvinnslu skili tveimur öðrum störfum þannig að við gætum verið að tala um þúsund til 1.500 störf,“ segir Elín Björg. Hún segir að miðað við það verð sem fyrirtæki innan SFÚ hafi verið að fá erlendis þá myndi útflutningsverð- mætið þessa hráefnis hækka um 25% ef það væri unnið á Íslandi áður en það væri flutt út. Það gæti skilað sér í auknum útflutningstekjum upp á þrjá milljarða króna. Vilja að allar sjávarafurðir verði unnar á Íslandi Morgunblaðið / Ernir Fiskur Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda segja að jafna þurfi samkeppnisstöðu fyrirtækja í sjávarútvegi.  Segja að mögulegt sé að skapa 500 til 1.500 ný störf Brotist var inn í þrjú einbýlishús í Hafnarfirði og Garðabæ á laugar- dagskvöldið og í fyrrinótt. Í öllum tilfellum var farið inn í húsin með því að spenna upp glugga á jarðhæð. Þjófarnir stálu skartgripum og einhverju af pen- ingum, að sögn lögreglu. Málin eru í rannsókn. Innbrot í einbýlishús Lögreglan stöðv- aði för ökumanns á Sæbraut í gær- morgun eftir að hann hafði reynt að komast undan með því að aka á ofsahraða. Að sögn lögreglu fór hjólbarði af öðru framhjólinu í lát- unum en maðurinn hélt áfram og ók áfram á felgunni á allt að 120 km hraða. Lögreglan ætlaði að stöðva för mannsins við Vatnsmýrarveg en hann sinnti þá ekki stöðvunar- merkjum og ók á ofsahraða eftir Hringbraut og síðan áfram inn á Sæbraut. Þar tókst lögreglumönn- um að stöðva bílinn með því að aka á hann. Maðurinn var í annarlegu ástandi og var fluttur í fanga- geymslur áður en yfirheyrslur hóf- ust yfir honum síðar í gær. Reyndi að stinga lögreglu af á ofsa- hraða í gærmorgun Jenna Jensdóttir rithöfundur sem komin er á tíræðisaldur var viðstödd at- höfn í fyrradag þegar bók hennar, „Adda lærir að synda“, var endurútgefin og lesið upp úr henni. Þetta er þriðja Öddubókin sem er endurútgefin. Hjón- in Jenna og Hreiðar Stefánsson sömdu meira en þrjátíu bækur. Þekktastar eru Öddubækurnar sjö sem teljast til sígildra íslenskra barnabókmennta. Unnið er að endurútgáfu þeirra á vegum Bókafélagsins Uglu. Jenna viðstödd endurútgáfu Öddubókar Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.