Morgunblaðið - 15.11.2010, Síða 7

Morgunblaðið - 15.11.2010, Síða 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2010 Hátúni 2b | 105 Reykjavík Sími 594 4200 | Fax 594 4201 | www.landey.is Til sölu Landey ehf. er dótturfélag Arion banka og fer með eignarhald bankans á nýbyggingum og fasteignaþróunarverkefnum sem bankinn hefur tekið yfir. ÍS L E N S K A /S IA .I S /L A E 52 14 7 10 /1 0 Nánari upplýsingar á skrifstofu félagins Hátúni 2B, í síma 594 4210, gsm 660 4210 eða hjá thorsteinn@landey.is Hrólfsskálamelur á Seltjarnarnesi Hrólfsskálamelur 2, 2 íbúðir, 283,1 birtir m2 Hrólfsskálamelur 4, 5 íbúðir, 791,1 birtir m2 Hrólfsskálamelur 6, 6 íbúðir, 704,4 birtir m2 Hrólfsskálamelur 8, 6 íbúðir, 891,3 birtir m2 Fasteignirnar afhendast á ólíkum byggingarstigum. Hrólfsskálamelur 10-18, byggingarréttur, um 3.800 brúttó m2 ofanjarðar. Norðurbakki í Hafnarfirði Norðurbakki 15, 5 íbúðir, 652 birtir m2 Norðurbakki 17, 25 íbúðir, 2.998 birtir m2 Norðurbakki 19, 20 íbúðir, 1.976 birtir m2 Fasteignirnar afhendast á ólíkum byggingarstigum. Norðurbakki 21, byggingarréttur, 3.817,9 birtir m2. N ESVEG U R SUÐ URS TRÖ ND 2-8 10-18 15 17 21 19 Eignirnar eru til sölu í heild eða að hluta. Ekki er tekið við tilboðum í minni einingu en sem nemur einum stigagangi. Tilboðum í eignirnar óskast skilað eigi síðar en fyrir kl. 16:00, 19. nóvember nk. 25 Vesturbær Miðbær Norðurbakki Suðurbær Suðurhöfn Hvaleyri Re yk ja rv ík ur ve gu r H ja ll Hr au nb rú n Flatahraun Nor ður bra ut Hr au nb rú n Fló ka g a ta Ve st ur br au t Vesturgata A usturgata Strandgata Tja rna rbr au tFjarðargata S u ð u rg a ta St ra n d g a ta Hr ing bra ut Óseyrarbraut Hv ale yra rbr au t Suðurbakki Hvaleyrarbakki Hvaleyrarhöfði Óseyrarbryggja Flensborgar- höfn Hverfisgata Lækja rgata Arnarhraun Samtök sykursjúkra vöktu athygli á Alþjóðadegi sykursjúkra í gær með fræðsludagskrá í Reykjavík. Til að leggja áherslu á hve heil- brigður lífsstíll er mikilvægur til að verjast sjúkdómum á borð við syk- ursýki hófst dagskráin á því að gengið var í kringum Tjörnina. Katrín Jónsdóttir, læknir og fyrir- liði íslenska landsliðsins í knatt- spyrnu, var í fararbroddi. Sykursýki er vaxandi vandamál hér á landi eins og annars staðar. Sigríður Jóhannsdóttir, formaður Samtaka sykursjúkra, segir að 8.500 manns séu greindir með syk- ursýki 2 og 800 með sykursýki 1. Mörg börn eru í síðarnefnda hópn- um en ekki er vitað um ástæður þess. Sameinuðu þjóðirnar gerðu sam- þykkt um Alþjóðadag sykursjúkra 2006 en áður höfðu samtök sykur- sjúkra notað daginn til að vekja at- hygli á málefninu. Það var í fyrsta skipti sem SÞ tileinkuðu sérstakan dag sjúkdómi sem ekki er smit- sjúkdómur. helgi@mbl.is Sykursýki er vaxandi vandamál hjá börnum Morgunblaðið/Kristinn Heilsubót Katrín Jónsdóttir, fyrirliðið íslenska kvennalandsliðsins, var í fararbroddi á alþjóðadegi sykursjúkra. Búið er að endurvekja ÍSFÁN, fé- lag Íslendinga í Árósum í Dan- mörku, en fráfarandi stjórn félags- ins tilkynnti eftir aðalfund í október að félagið hefði verið lagt niður vegna áhugaleysis. Á aðalfundinum, sem haldinn var í októberlok, mætti aðeins 1 fyrir utan fráfarandi stjórn, sem á sér þann kost vænstan að leggja starf- semina niður. Félagið hefur starfað í 40 ár í Árósum. Þegar fréttir bárust af þessu komu fram óskir um að efna til framhaldsfundar, sem haldinn var sl. laugardag. Á fundinn mættu um 15 manns og tókst að manna nýja stjórn félagsins og fá fólk í þorra- blótsnefnd. Á heimasíðu félagsins segir nýja stjórnin, að þrátt fyrir allt sé ljóst, að mikill áhugi sé á áframhaldandi starfsemi félagsins. Það sýni þátt- taka í þeim atburðum sem félagið hafi staðið fyrir fram til þessa. Íslendingafélagið í Árósum hefur verið endurvakið Kosningabaráttan var dýrust hjá Samfylkingunni fyrir bæjarstjórn- arkosningarnar á Akureyri í vor. Fram kemur á vef Vikudags, að heildarkostnaður við framboð flokksins nam rúmum 4,6 millj- ónum kr. Þar af var auglýsinga- kostnaður 1.805.410 kr. og kostn- aður vegna prentunar og útgáfu 242.586 kr. Næst dýrust var kosningabar- áttan hjá L-lista, lista fólksins, sem fékk hreinan meirihluta í bæjar- stjórn Akureyrar, eða um 3,6 millj- ónir króna. Þar af var auglýsinga- kostnaður rúmar 1,5 milljónir. Vikudagur aflaði upplýsinga hjá öllum framboðunum um kostnað við framboðin sex sem buðu fram í maí sl. Heildarkostnaður við fram- boð Sjálfstæðisflokksins nam 3.281.422 kr., þar af var kostnaður vegna birtinga á auglýsingum 688.907 kr. „Heildarkostnaður vegna fram- boðs Vinstri grænna nam samtals kr. 2.769.736, þar af var auglýs- ingakostnaður kr. 620.000 og kostnaður við prentun, útgáfu og hönnun kr. 925.884. Heildarkostn- aður við framboð Bæjarlistans nam kr. 2.647.300 og þar af var kostn- aður vegna auglýsinga kr. 2.188.845. Framsóknarflokkurinn rak ódýrustu kosningabaráttuna sem fyrr segir, en heildarkostn- aður flokksins var kr. 1.092.298, þar af var kostnaður vegna auglýs- inga og bæklingaútgáfu kr. 827.400.“ Baráttan dýrust hjá Samfylkingunni Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Kosningar Tölur liggja fyrir um kostn- að við kosningabaráttuna á Akureyri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.