Morgunblaðið - 15.11.2010, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 15.11.2010, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2010 Engin mikilvæg mál bíða þess núað alþingismenn stjórnarliðs- ins láti þau til sín taka. Þetta er fagnaðarefni, því þá geta þeir látið eftir sér að fjalla um gælumál og grín. Nú hafa 29 þingmenn lagt fram tillögu um að rann- sakað verði hver voru tildrög þess að lýst var yfir pólitísk- um stuðningi við að fjöldamorðinginn Saddam Hussein færi að hugsa um eitthvað annað. Þetta er góð tillaga hjá 29 menning- unum. Ekki síst vegna þess að að- dragandinn liggur skýr fyrir og það mun auðvelda rannsóknina. Það er nefnilega gott að láta rannsaka mál sem eru þegar fullrannsökuð.    Ef farið er inn á vef Alþingis þámá lesa sér til um hvaða þing- menn eru svona snjallir. Þeir eru þar listaðir upp. Reyndar kemur ekki fram á heimasíðunni hvernig þessir þingmenn lentu inni á þess- um lista, sem kallaður er listi yfir þingmenn sem viljugir eru til að rannsaka. Ekki kemur heldur fram hvernig eigi síðan að nota þennan lista sem birtur er á vefnum og bendir það til þess að þingmenn- irnir viljugu viti ekki heldur hvern- ig hann verður notaður. Fundist hefur úrklippubók Árna Þórs Sig- urðssonar úr þjálfunarbúðunum í Moskvu og mun Broddi segja frá henni fljótlega, enda er talið að hún geti varpað ljósi á það hvernig list- inn verði birtur eða að minnsta kosti hvernig Árni Þór birtist mönnum á Moskvuárunum. Hefur Páll Magnússon verið beðinn um að lesa fréttina þegar Broddi er búinn.    Gert er ráð fyrir að nefnd AtlaHeimis, svo kölluð Atla-nefnd, verði fengin til að semja lög við listann ef Alþingi samþykki ekki strax sjálft lög um rannsókn á því af hverju þingmennirnir 29 fái ekki listamannalaun fyrir svo þýðingar- mikinn lista. Alþingishúsið. Listamenn á þingi STAKSTEINAR Veður víða um heim 14.11., kl. 18.00 Reykjavík -5 heiðskírt Bolungarvík 0 snjókoma Akureyri -9 heiðskírt Egilsstaðir -11 léttskýjað Kirkjubæjarkl. -3 skýjað Nuuk 2 súld Þórshöfn 2 léttskýjað Ósló 0 þoka Kaupmannahöfn 10 skúrir Stokkhólmur 6 skýjað Helsinki 2 skúrir Lúxemborg 11 skýjað Brussel 12 skýjað Dublin 3 léttskýjað Glasgow 5 léttskýjað London 6 skúrir París 12 skýjað Amsterdam 11 skýjað Hamborg 12 skýjað Berlín 16 heiðskírt Vín 10 skýjað Moskva 7 skýjað Algarve 17 léttskýjað Madríd 8 súld Barcelona 17 léttskýjað Mallorca 18 skýjað Róm 17 léttskýjað Aþena 17 léttskýjað Winnipeg -2 alskýjað Montreal 5 léttskýjað New York 13 heiðskírt Chicago 4 skýjað Orlando 22 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 15. nóvember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:57 16:29 ÍSAFJÖRÐUR 10:21 16:14 SIGLUFJÖRÐUR 10:05 15:57 DJÚPIVOGUR 9:31 15:54 Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Sigurður Ingi Bjarnason, gull- smiður og skartgripahönnuður í Sign ehf. í Hafnarfirði, kom fær- andi hendi á æfingu hjá fimleika- deild Gerplu sl. föstudagskvöld og gaf nýkrýndum Evrópumeisturum í hópfimleikum hálsmen til minn- ingar um árangurinn. Ingi hefur taugar til íþrótta, stundar sjálfur mótorkross og hestamennsku og gerði meðal ann- ars verðlaunagripinn, sem Íþrótta- maður ársins fær til varðveislu ár hvert. Fékk hugmyndir hjá þjálfurum Hann segir að fólk geri sér al- mennt ekki grein fyrir hversu mikil vinna búi að baki góðum ár- angri og hann hafi viljað sýna stúlkunum stuðning með því að gefa þeim hálsmen sem minnti þær í framtíðinni á árangurinn í Evrópumótinu. Hann hafi rætt þetta við þjálfarana, fengið hjá þeim hugmyndir í sambandi við töluna þrjá og unnið út frá því. Í meninu væru því þrír steinar í sömu litum og búningur stúlkn- anna, svartur, rauður og hvítur. Þær kepptu á þremur áhöldum, þetta var þriðja Evrópumót þeirra þar sem þær áttu raunhæfa mögu- leika á verðlaunum og keppnin stóð yfir í þrjá daga. Björn Björnsson, þjálfari Evr- ópumeistaranna, segir gaman að hafa fengið tækifæri til þess að eiga þátt í hönnuninni. „Þetta er líka mjög gott framtak og við er- um ánægð með það.“ Ingi er með verkstæði sitt í gamalli verbúð við smábátahöfnina í Hafnarfirði og fær innblástur úr umhverfinu. „Þetta er gamli grá- sleppuskúrinn hans pabba,“ segir hann og leggur áherslu á hvað Gerplustúlkur hafi staðið sig vel. „Nú er spurningin hvort þær geti kennt mér að standa á höndum en ég setti það sem skilyrði fyrir gjöfinni,“ segir hann og áréttar að menin séu þeirra þó hann nái ekki að fá ósk sína uppfyllta. Lærir að standa á höndum í staðinn Morgunblaðið/Golli Ánægðar Stelpurnar hjálpuðust að við að setja hálsmenin á hverja aðra. Menið Þrír steinar í þremur litum.  Gullsmiður færði stelpunum hálsmen að gjöf Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is Dagur íslenskrar tungu verður haldinn hátíðlegur í fimmtánda sinn á morgun og verður honum fagn- að með ýmsum viðburðum í skólum landsins og hjá stofnunum og samtökum. Þá verða árleg verð- laun Jónasar Hallgrímssonar veitt en dagur ís- lenskrar tungu er haldinn hátíðlegur á fæðing- ardegi hans. Meðal þessara viðburða er árleg Jónasarvaka í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu í Reykja- vík þar sem Vilborg Dagbjartsdóttir, ljóðskáld, les nokkur eftirlætisljóða sinna eftir Jónas. Stóra upplestrarkeppnin hefst í fimmtánda sinn á degi íslenskrar tungu í grunnskólum landsins. Eldri börn koma þá í bekki yngri barna og lesa upp sög- ur og ljóð, auk þess sem ljóða- og smásagnakeppni fer fram. Þá mun Mjólkursamsalan kynna nýtt málrækt- arátak á mjólkurfernum landsmanna, að öðrum viðburðum ótöldum. Ráðherra heimsækir Borgarnes Á undanförnum árum hefur skapast sú hefð að mennta- og menningarmálaráðherra heimsæki skóla- og menningarstofnanir í einu sveitarfélagi á degi íslenskrar tungu. Að þessu sinni mun Katrín Jakobsdóttir sækja Borgarnes heim og m.a. skoða sýningu á vegum Grunnskólans í Borgarnesi og Menntaskóla Borgarfjarðar. Þá mun hún heim- sækja leikskólann Klettaborg, Skallagrímsgarð og loks íþróttamiðstöðina. Að endingu verður opin hátíðardagskrá í Landnámssetrinu sem hefst seinnipartinn. Degi íslenskrar tungu fagnað  Fjölmargir viðburðir fyrirhugaðir í tilefni af degi íslenskrar tungu víða um land  Stóra upplestrarkeppnin haldin í fimmtánda sinn í grunnskólum landsins Morgunblaðið/Golli Æskan Frá leikskólanum Dvergasteini.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.